Dagur - 11.05.1955, Side 2

Dagur - 11.05.1955, Side 2
2 D A G U R Miðvikudaginn 11. maí 1955 SEXTUGUR: Karl Kristjánsson alþingismaður DAGSKRÁRMÁL Þjóðféiagið þarf að búa betur að landnemunuml Karl Kristjánsson sextugur. Við trúum því nú varla. En fæddur er hann 10. maí 1895. Hefur séð tvær aldirnar. Lifað upphaf hins nýja tíma. Verið baráttumaður í vörn og sókn, og hina síðari áratugi í brjósti fylkingar. Eg minnist hans fyrst vorið 1917 um Jónsmessubil. Sólin reis yfir Fljótsheiði. Nokkrir ungir menn voru að undirbúa fyrsta íþróttamót ungmennafélaganna í Þingéyjar- sýslu á Vatnsendagrund við Ljósa- vatn. Flokkar og fylkingar riðandi manna komu úr öllum áttum. Þar skyldi stokkið og hlaupið og synt í ísköldu vatninu. Sunnan undir sól- rikri skjólbrekku með setþrepum var búinn ræðustóll og glimupall- ur. Glíman var þá öndvegisiþróttin og þótti mestu skipta hver sveitin legði til glímukónginn. Æft hafði verið að kappi í hinum fjölmennari félögum um miðbik sýslunnar. — Fjörlegasta og fámennasta félagið var á Tjörnesi. Þaðan komu fæstir. En þaðan kom Karl Kristjánsson. Vöðvastæltur ungur maður, svo þrekinn, að hann leyndi hæð sinni. Styrkur hans og harðfylgi, mýkt hans og lipurð gerðu honum glímu- sigurinn auðunninn. II Karl Kristjánsson var á útskaga alinn á þeim árum, þegar hafisar og harðindi byggðu á mörgu vori heljarbrú norður að heimskauti. Eníþá var samt andlegt þjóðar- vor í Þingeyjarsýslu. Hugsjón sam- vinnunnar vermdi híigtna, gaf Þing- eyingum þrek og kraft, kvaddi fram hóp mannaj er jafnframt þungri búönn unnu andleg afrek. Skáld, rithöfundar og félagsfrömuðir ristu nöfn sín óafmáanlega á gulltöflur sögunnar. Hið ytra harðrétti, hinn andlegi frjóblær gáfu þá mörgum mannvænlegan þroska. Karl Kristjánsson er af góðum stofnum þingeyskum í allar ættir, þótt ekki sé hér rúm að rekja þær. Hann fékk í heimanfylgju stæltan þrótt við örðugleikana og ljúfan skáldhug frá sambyggð sinni. Um tvítugsaldur fór Karl í þjóðskólann norðlenzka og lauk þar námi. Þá bættist hann í þann fjölmenna hóp forystumanna á öllum sviðum, sem sótti menntun sína til Möðru- valla og Akureyrar á skóla þann. Fyrstu opinberu störf Karls munu hafa verið deildarstjórn á Tjörnesi í Kaupfélagi Þingeyinga. Var hann þá enn búlaus og rösk- lega tvítugur. En á þeim dögum var deildarstjórn í K. Þ. í fátækri sveit ekki barna meðfæri. „Deild- in“ var „ríki í ríkinu", samábyrg og sérstæð viðskiptaeining. Stjórn- skipulag K. Þ. var líkt eftir goð- orðunum fornu, og deildarstjórinn mjög ábyrgur við öll efnahagsmál sveitarinnar. Deildarstjórar voru langoftast gamlir, lífsreyndir og ábyrgir bændur, og nærri einstætt að fela slíkt ungum búleysingja. Karl hóf búskap á föðurleifð sinni árið 1920. Fljótlega hlóðust á hann næstum öll þau trúnaðar- störf fyrir sveit og hérað, sem unnt var að fela ungum bónda. Alls stað- ar reyndist hann, sem í glímunum forðum; styrkur á svelli, einnig á andfegá^yísu, harðfyIginn,|og átti þó þá mýkt og lipurð, er oft verð- ur sigursælust, einnig í félagsmál- um. Þar kom, að félagsleg trúnaðar- störf hlóðust svo á Karl Kristjáns- son, að búskapurinn hlaut að verða hjáverk ein. Um 1935 fluttist hann alfarinn til Húsavíkur og yfirgaf búskap sinn. Þar verður hann þegar í stað forystumaður hins vaxandi kaup- staðar og grjótpáll fyrir málum hans. Kaupfélag Þingeyinga átti um þær mundir meira í vök að verjast en nokkru sinni fyrr eða síðar. Karl Kristjánsson gerist odd- viti í björgunarsveit félagsins, lagði á ráðin og stóð fyrir framkvæmd- um. Hann fór þá um allt félags- svæðið og samdi um viðskiptamál- in og kom á skipulagi, sem kom öllum viðskiptum félagsins og hér- aðsins í örugga höfn. Það má ein- stætt teljast, að maður fari um víðlent hérað að gera upp skulda- skil og beri auknar vinsældir úr býtum. En svo fór um Karl Krist- jánsson, og Iýsir það honum ef til vill betur en flest annað. Eftir þessa för Karls hefjast nýir tímar í kaupfélaginu og í héraðinu. Meiri og stórstígari framkvæmdir og fjárfesting hefur orðið en nokkru sinni áður og meiri gjör- bylting í búnaði en víðast annars staðar. A þessum tima var tekið upp og haldið fast við staðgreiðslufyrir- komulagið í Kaupfélagi Þingey- inga með þeim árangri, að nú eru innstæður félagsmanna í vörzlum K. Þ. yfir sjö milljónir, en skuldir engar. Auk þess nema sjóðir um 3.7 millj. kr. Þetta er allt safnfé, á miklum framkvæmdaárum, sem unnizt hefur vegna þess, að haldið vT fífet við f)a?U4kiMag,#Sem Kristjánsson og Þórhallur Sigtryggjse.)> kotnU' á í lók krep>'u-i áranna. III í bréfi til Sigurðar í Yztafelli 15. marz 1889 kemst Einar As- mundsson alþm. í Nesi svo að orði: „Hyggindi, kjark og lagkænsku þarf alþingismaður að hafa í hæfi- legum hlutföllum. Sérstaklega er vandhæfni á að sjóða réttilega saman kjarkinn og lagkænskuna, eins og stál og deigt járn í ljá eða annað verkfæri, sem bíta skal, svo að hvorki molni né vefjist upp á eggina.“ Þegar ég las þessi orð í fyrsta sinn i vetur, kom mér Karl Krist- jánsson fyrst í hug. Eg held, að sig- ursæld hans í öllum félagsmálum sé mest í því fólgin, að hann hafi kunnað það svo mætavel, sem Ein- ar í Nesi taldi mesta vandhæfni á. Með hyggindum, kjarki og lag- kænsku vann Karl að endurreisn Kaupfélags Þingeyinga. Við treyst- um því, er við settum hann í þing- sæti Jónasar Jónssonar, að sömu eiginleikar myndu hjálpa honum að framgangi góðra mála á Alþingi. Við höfum ekki enn orðið fyrir vonbrigðum. IV I „stóra salnum" í Laugaskóla eru veggmyndir af mörgum hinna atkvæðamestu félagsmálafrömuða Þingeyinga af þeirri kynslóð, sem nú er i valinn fallin eða hætt störf- um. Flestir þessara manna voru þrennt í senn: Þeir voru gó5ir bændur og bjargálna, er unnu hörð- um höndum að dagsönn búa sinna. Þeir voru skáld, rithöfundar eða fræðimenn á einhverju sviði, fjar- lægu búshyggjunni. Og loks voru þeir sterkir hugsjónamenn um fé- lagsmál og prýðilega vopnfimir að Aldrei hefur ungt fólk á íslandi átt fleiri kosta völ en nú á síðustu tímum. Fjölmargar nýjar at- vinnugreinar hafa risið á legg og hvárvetna blasa við óleyst verk- efni og tækifæri þeim er hafa dug og djörfung til að brjóta nýjar leiðir. Jafnvel elzti atvinnuvegurinn, landbúnaðurinn, er svo skammt á veg kominn, að ræktanlegt land er enn til, til stofnunar 40 þús. nýrra býla sem þó gætu haft möguleika til að skila fjórum sinnum meiri framleiðslu en talið er meðallag nú. Rúmlega 20% af landsfólkinu stundar landbúnað, samkvæmt því sem fróðir menn telja. Hefur sú hlutfallstala s'fellt farið lækkandi, þótt framleiðslan hafi aukizt með bættri, aukinni ræktun og vélanotkun. Landbún- aðarafurðir hafa verið miðaðar við innanlandsneyzluþörfina. — Sýnilegt er þó, að á næstu árum verður að leita erlendra markaða fyrir vissar framleiðslugreinar. Má því með sanni segja að hér verða nokkur þáttaskil. Jafnvel þótt framkvæmdir verði enn um sinn miðaðar við innanlandsþörf- ina. . En hverjir vilja .slofna þessj. 40 þús. nýbýli? Á síðustu 8 árum hafa verið stofnuð um 330 nýbýli og þar að auki endurbyggðar tæplega 80 eyðijarðir. Með allri virðingu fyrir þarfri löggjöf um landriám, virðist hún þó fremur miðast við að þéttbýlisfólk skorti ekki kjöt og mjólk heldur en að berjast til sigurs fyrir hugsjón sína. Slík fjölhæfni er nú að verða sjald- gæf á síðustu tímum. Karl Kristjánsson á þennan arf frá kynslóðinni, sem nú er fallin í valinn. Ég hef lýst störfum hans hið ytra hér að framan. Maðurinn sjálfur er okkur, sem bezt þekkj- um hann, allra minnisstæðastur. Hve ljúft og glatt er með honum að vera. Hve hann er góður og ljúfur félagi og samkvæmismaður. Fljótur að finna hið skringilega og gamansama. Hve honum er létt um að kasta fram stöku, sem hittir í mark. En þó er hann þarna ekki allur. Innsti og dýpsti þáttur hans er skáldhneigðin. Hún birtist í orða- lagi hverrar tillögu, er hann semur, hverri blaðagrein, hverri ræðu, sem hann flytur, hvort sem er á þjóð- þingi, mannfundi eða samkomu við gleðihóf. En öllu fremur birtist þó listhneigð hans í hinni fögru og listrænu rithönd. Vinur minn, Karl Kristjánsson! Eg vissi ekki um afmælið þitt fyrr en í gærkvöldi, að „Dagur“ bað mig að flytja þér nokkur orð. Ferð- um hagar svo, að senda verður þessar línur færri og fátæklegri en vera ætti. Yztafelli, 7. mai 1955. ’ , ; r» « Jón Sigurðsson. landnám í stórum stíl sé hið eig- inlega markmið. Má í því sambandi benda á að landnámsstjórinn, Pálmi Einars- son, hefur oftar en einu sinni á opinberum vettvangi, talið það til hreystiverka þegar ung hjón stofni til búskapar á nýbýli. Segir hann ennfremur, að slíku fólki falli fyrst og fremst í skaut áhyggjurnar og erfðið, en eftir- komendunum eitthvað skárri lífsafkoma. Þannig er þá búið að þeim ungu mönnum og konum, er vilja una æfi sinni sem frumbyggjar í okk- ar ágæta landi. Verður þá að nokkru skiljaniegt, þót-t landnámi miði seint og fólk kjósi annað frekar. Sú skoðun er enn nokkuð al- geng að fátækt fólk geti eins og áður hafið búskap í sveit. En því miður er þessi skoðun alröng. — Sæmilega hýstar jarðir með áhöfn og nauðsynlegum vélum kosta stórfé. Og lán til jarða og bústofnskaupa eru Kka mjög tak- mörkuð. Hundruð af ungu fólki í sveitum landsihs,'sém‘stófná Vilja eigin heimili verða að flýja á náð- ir þéttbýlisins í atvinnuleit. í bæj um og kaúpstöðum getur hver maður, sem vinnu ‘hefur, komizt sæmilega "af; tvv.' í lítiHi leiguíbúð, en síðar í eigin hús- næði. Margt affþ^f^uj^SlkLhEfði miklu fremur ’kósiS ’fandbúnað að lífsstarfi, - ef þess hef-ði verið nokkur kostúr. *' Þessi þróun held.ur enn áfram og er þeim er hugsa um velferð þjóðarinnar á komandi tímum, hið mesta áhyggjuefni. Sagan segir okkur að þjóðum þeim, sem vanrækja landbúnað sinn og van- meta, sé hætt við að glata vel- gengni sinni og þjóðlegum verð- mætum. —o— Fyrir skömmu heilsuðum við nýju sumri. Svalt er ennþá yfir norðlenzkum byggðum og nætur- frost kippa úr vexti nýgræðings- ins. En þetta sumar á sér þó eins og öll önnur, enn hækkandi sól og margir vonir. Undir marg- radda fuglasöng eru vorverkin unnin á hverju byggðu bóli. Þar sem hvert verk er unnið með hag framtíðarinnar fyrir augum. Mikilvirk tæki ræktunai-sam- bandanna munu senn hefja starf að nýju, og enn sem fyrr, skila þúsundum ha. land áleiðis til fullrar ræktunar. Og Alþingi hef- ur samþykkt að tryggja nokkrar fjárhæðir til kaupa nýrra og enn betri tækja. Kjarni, hinn íslenzki köfnunar- efnisáburður og erlendur stein- efnaáburður, tryggir mikinn og góðan töðufeng. Tilbúinn áburð- ur og stórvirkar og smærri vélar hafa valdið þeirri gjörbyltingu í landbúnaðinum, og. skapað svo mikla möguleika að bændur, sem Framhald á 7. síðu. Karl

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.