Dagur - 18.05.1955, Side 8
8
Baguk
Miðvikiídaginn 18. maí 1955’
Kennt á þremur stöðum í bænum
vegna húsnæðisvandræða
barnaskólans
885 börn stundnðu nám í Barnaskóla
Akureyrar s. 1. vetur - Skólaslit fóru
frams.l. laugardag
ÉuféEap hafoi nær hel
f
á stöasf sionu ári
Félagið Iiafði miklar iramkvæmdir
með höndum víðs yegar mn land
taka 20,600 lest.r. Loks eru benzín-
Barnaskóla Akureyrar var slit-
ið þann 14. maí að viðstöddum
mörgum getsum. — Skólastióri,
Hannes J. Magnússon, flutti
skýrslu um starfið á skólaár-
inu. Minntist hann þess m. a. að
skólinn hefði nu starfað 25 ár í
þessu skólahúsi, og þetta væri því
25. árgangurinn, sem þaðan út-
skrifaðist, en alls munu hafa út-
skrifast á þessu tímabili um 2200
börn.
1 vetur voru í skólanum 885
börn í 33 deildum, og varð vegna
húsnæðísvandræða að kenna á
þremur stöðum. Við inntökupróf
7 ára barna voru skráð um 170
börn. Fjölgar því börnum á þessu
ári um 45 börn.
Heilsufar, lýsi og tannskemmdir.
Heilsufar í skólanum var nokk-
uð neðan við meðallag og tafði
það mjög fyrir námi um lengri
t.'ma. Heilsufar meðal kennara
var einnig óvenjulega slæmt.
Berklajákvæð reyndust 44 börn,
en engir virkir berklar fundust
þó. Ljósbaða nutu 241 bam og er
það með minnsta móti. Aðeins
155 börn hafa allar tennur heilar.
Um 500—600 böm tóku að stað-
aldri lýsi í skólanum og fengu
með því annað hvort hráar gul-
rófur eða rúgbrauð. Börnin
hækkuðu að meðaltali um 3.30
sm. og þyngdust að meðaltali um
1,78 kg.
Próf og verðlaun.
Bamaprófi luku 118 böm.
Hæstu einkunnir á bamaprófi
hlutu: Anna G. Jónasdóttir 9,58,
Anna Gunnarsdóttir 9,48 og Anna
I. Eydal 9,39. Annars hlutu 8 börn
ágætiseinkunn, 86 böm 1. eink.,
26 böm 2. eink. og 5 böm 3. eink.
Afhent voru verðlaun Bóka-
verzlunar POB fyrir beztu stíla
við barnapróf og hlutu þau: Jóna
Edith Burgess, Anna G. Jónas-
dóttir og Hreinn Pálsson.
Margir íþróttakappleikir voru
háðir á skólaárinu svo sem í
sundi, skíðagöngu, svigi, skauta-
hlaupi, fimleikum drengja og
stúlkna, og var keppt um bikara í
öllum þessum greinum, sem eru
farandgripir í skólanum.
Sparifjársöfnun.
Sparifjársöfnun skólabarna hófst
um mánaðamótin okt.—nóv. og
varð eftir það fastur liður í skóla-
starfinu. Var þessari starfserni vel
tekið bæði af börnum og foreldr-
um og þátttakan var mjög al-
menn, svo að nálega hvert barn
Kosningar fyrir ílyrum
í þremur prestaköllum
Umsóknarfrestur er nýlega út-
runninn um þrjú prestaköll hér á
Norðurlandi. Sækir einn maður
um hvert þessara prestakalla, séra
Ami Sigurðsson um Hofsóspresta-
kall, Sigurður Haukur Guðjónson
cand. theol. um Hálsprestakall í S.-
Þing., og Stefán Lárusson um
Vatnsendaprestakall, S.-Þing.
var þarna með. Bömin keyptu
merki samtals fyrir rúmar 75
þús. kr. á þessum 6 mánuðum,
sem merki voru seld.
Náms- og utanfararsjóður.
í vetur stofnuðu kennarar
skólans sjóð, sem nefnist Náms-
og utanfararsjóður kennara. Er
honum ætlað að styrkja kennara
til utanfarar til námsferða og
dvalar við erlenda skóla. Er þess
vænst að einn kennari geti fengið
styrk á ári hverju. Ætlast er til að
höfuðtekjur sjóðsins fyrst um
sinn fáist með þeim hætti, að
hver fastur kennari við barna-
skóla Akureyrar greiði 100 kr.
tillag í sjóðinn á ári.
Gjafir.
Nokkrar giafir bárust skólan-
um á árinu og meðal annars kr.
500.00 frá frú Laufeyju Pálsdótt-
ur og systkinum hennar til mínn-
ingar um föður þeirra, Pál J. Ár-
dal skáld og kennara. Er þetta í 4
skipti, sem skólanum eða Árdals-
sjóði, berst slík gjöf frá sömu að-
ilum.
Að lokum beindi skólastjóri
máli sínu til barnanna sem
kvöddu skólann að fullu, og
ræddi hann einkum um trú-
mennskuna.
Vorskólinn hófst mánudaginn
16. maí.
Islendingar 6. þjóð á
alþjóðaskákmóti
Á Alþjóðaskákmóti stúdenta í
Lyon í Frakklandi, urðu Islending-
ar 6. þjóðin í röðinni, með 26 vinn-
inga, urðu Rússar fyrstir með 41
v., þá Júgóslafar, Ungverjar, Búlg-
arar og Tékkar. A eftir íslending-
um komu þessar þjóðir: Pólverjar,
Spánverjar, Finnar, Hollendingar,
Svíar, Norðmenn og Frakkar. —
Er frammistaðan íslenzku skák-
mönnunum til sóma. Fyrirliði
þeirra var Guðmundur Pálmason,
og stcð hann sig afburða vel.
Sauðíé gefið iani -
sanðimrður stendur
sem Iiæst
Víðast hvar hér norðanlands
mun sauðfé gefið inni um þessar
mundir, enda snjór og frost. Sauð-
burður stendur nú sem hæst. Veld-
ur kuldatíðin bændum hinum
mestu erfiðleikum. I gærmorgun
var t. d. 9 stiga frost í Mývatnsveit.
Um miðbik Þingeyjarsýslu var
versta veður og mikil fannkoma og
er mikil fönn í giljum. Er óttast að
fé hafi fennt eða hrakið í Skjálf-
andafljót, en ekki eru fyrir hendi
áreiðanlegar fregnir af því.
Aðalriíari Hjálpræðis-
Iiersins í Noregi
X sambandi við 60 ára starfsaf-
mæli Hjálprzeðishersins á Islsndi
komu til landsms aðalritari Hjálp-
ræðishersins i Noregi, 4 ibro
ofursti og kcm hans.
Hjáípraeðisherinn bélt fvrstu
samkomu sína hér á landi 12. maí
1895, daginn eftir að fyrsiu
Hjálpræðishermennirnir stigu á
land í Reykjavík.
Ofursti Albro hefur verið foringi
i Hernum um 40 ára skeið og
gegnt helztu tiúnaðarstörfum
Hersins í Danmörk, Finnlandi og
Noregi. Hann er mikill ræðumaður
og hefur mikil blessun hlotizt af
starfi hans. Kona hans, sem einnig
er foringi, hefur styrkt mann sinn
mæta vel í starfinu. Eftir að hafa
tekið þátt í aimennum samkomum
Hersins í Reykjavík og hátíðar-
samkomu í Dómkirkjunni þar,
koma nefndir forir.gjar til Akur-
eyrar og verður fagnaðarsamkoma
í kirkjunni hér föstudaginn 20. þ.
m. kl. 20.30. I fagnaðarsamkom-
unni taka einnig þátt deildarstjór-
inn, major Gulbrandsen, og kap-
teinn Guðfinna Jóhannsdóttir frá
Reykjavík, ásamt foringjum á
Akureyri. (Frá Hjálpræðishernum
á Akureyri).
Aðalíundur Olíuíélagsms h.f.
var nýlega haldlnn í Rsykjavík.
Helgi Þorsleinsson framkvæinda-
stjóri, setti fundinn en futnfar-
stjóri var kjörinn Ls.'íur Bjarna-
son, útgerðarmaður.
Heigi Þorsteinsson fluíti i urn-
boði stjórnarinnar skýrslu um
starfsemi félagsins á liðnu ári.
Samtals nam innflutningur frá
Rússlandi fj'rir innlendan markað
102.315 lestum af olíum og ben-
zíni, sem er um 47:45% af heildar-
innflutningi til landsins af þessum
vörum. Sala á olium og benzíni
varð á árinu 113.616 lestir og jókst
um 10.634 lest frá fyrri.ári. Hluti
Olíufélagsins af heildarsölunni var
47.03%. Sala á smurningsolíu hef-
ur aukizt frá sl ári um 100 lestir.
Miklar framkvæmdir.
Framkvæmdir Olíufélagsins á
árinu voru miklar og margvíslegar.
A Akranesi var settur upp 1200
smálesta benzíngeymir. I Olafs-'
vik 400 lesta gasolíugeymir, lokið
við vandaða birgðastöð á ísafirði,
komið var upp á Blönduósi 100
smálesta gasolíugeymí tii mik.illa
þæginda fyrir Húnvetninga, reist-
ur var 77 lesta geymir í Borgar-
firði eystra, setttur upp 1330 smá-
lesta brennsluolíugeymir á Flat-
eyri og bætir það úr brýnni þörf
þegar togaraflotinn stundar veiðar
út af Vestfjörðum. Snemma á ár-
inu keypti Olíufélagið að hálfu á
móti SIS olíuskipið Litlafell, sem
gert hefur stórkostlegt gagn við
dreifingu á olíu og benzíni með
ströndum fram, en þessi dneifing
var komin í hið mesta óefni, þegar
skipið var keypt.
Stórir birgðageymar.
Aaðalbirgðageymar félagsins í
Hvalfirði. Hafnarfirði og Oifirisey
eru nú 46 að tölu og taka 113-100
smálestir samtals. Víðs vegar um
landið á félagið birgðageyma, sem
ohugeymar 91. Vegna aukinnar
notkunar gasolíu á bifreiðar voru
settir upp 10 gssolíusöludælur.
A árinu höfðu um 100 manns
fasta atvinnu hiá félaginu.
Þökkuð forganga.
Vilhjálmur Þór bankastjóri, sem
var formaður Olíufélagsins frá
stofnun þess cg hefur átt manna
mestan þátt í hinum öra vexti þess,
sagði af sér formennsku í janúar
sl. Þakkaði fundurinn honum hin
margvíslegu störf hans. í hádegis-
verðarboði að loknum fundinum
rakti Egill Thcrarensen kaupfélags
stjóri í ræðu störf Vilhjálms og
færði honum þakkir.
Formaður var kjörinn Helgi Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri, en
aðrir stjórnarmenn voru endur-
kjörnir, þeir Skúli Thorarensen,
útgerðarmaður, Jakob Frímanns-
son, kaupfélagsstjóri, Ástþór
Matthíasson, framkvæmdastjóri,
Karvel Ogmundsson, útgerðar-
maður.
I vara stjórn voru endurkjörnir,
þeir: Egill Thorarensen, kaupfé-
lagsstjóri, Ólafur Tr. Einarsson,
framkvæmdastjóri, Elías Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri.
Endurskoðendur voru kjörnir:
Kolbeinn Jóhannsson, löggiltur
endurskoðandi. Þorgrímur St. Eyj-
ólfsson, framkvæmdastjóri.
Hímvetniiigaljóð koma
á f östudaginn
Hér er að koma út bók, sem
nefnist Húnvetningaljóð. sem
nokkrir Húnvetningar hér í bæ
gefa út. Rósberg G. Snædal mun
afgreiða bókina til áskrifenda i Ás-
garði, Hafnarstræti 88; á föstu-
dagskvöld frá kl. 5—7 og laugar-
dag kl. 1—4. Panta má bókina í
síma 2196.
Glæsilegasti almenningsvagn, seni Iiingað hefnr flutzt
Þetta er nýi dísilvagninn, sem útihú KEA notar á sérleyfisleið sinni Akureyri—Ðalvík, og Akurcvri—
Kristnes. Er sænskur af Velvo-gerð, og að ö!lu leyti vandaður og mjög vel búinn. Vélin er 150 hestöfl,
sæti eru fyrir 38 og eru þau mjög þægileg með höfuðpúðum, og sérstökum Ijósaútbúnaði I bílnum cr
háíalarakerfi fyrir b Istjórann, eða íararstjóra í hópferðum, og ýmiss annarr útbúnaður til þæginda. —
Mennirnir á myndinni eru Ámi Amgrímsson, er ekur hinum nýja bíl, Magnús Jónss. og Jóhann Krist-
insson, eigendur bifreiðaverkstæðisins Víkings hér í bæ, er hefur söluumboð fyrsr Volvobíla hér á
Akureyri. — Aðalumboðið á íslandi hafa Sveinn Bjömsson & Ásgeirsson, Hafnarstræti, Reykjavík. —