Dagur - 06.07.1955, Síða 6

Dagur - 06.07.1955, Síða 6
e DAGUR Miðvikudaginn 6. júlí 1955 DAGUR Ritstjóri: HAUKUR SNORRASON. Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta: Erlingur Davíðsson. Skrifstofa í Hafnarstræti 90. — Sími 1166. Árgangur kostar kr. 60.00. Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi. Gjalddagi er 1. júlí. PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F. r Unga Island ÞAÐ VAR FALLEGUR og bjartur svipur á Ak- ureyri um síðustu helgi. Sól skein í heiði, og sunn- angola bærði lauf og strá og fána, sem blöktu við hún víðs vegar i bænum. Allt var þetta gamalkunn- ugt. En nýstárlegt tilbrigði í þessari mynd var fjöldi æskumanna að leik og starfi, í skrúðgöngum um að- algötur bæjarins, að keppni á íþróttaleikvanginum og að störfum á sambandsþingi ungmennafélaganna, sem hér var háð. Þetta tilbrigði í sumarmynd Akur- eyringa var svo móttugt, að það hreif til sín mestan skerf áhrifanna, sem áhorfandinn varð fyrir. Við urðum snortin af mynd unga Islands, og við hrif- umst í huganum af þeim fyrirheitum, sem hún geymdi. Þetta var dugmikið, frjálsmannlegt, hispurs- laust og drengilegt fólk, mótað af starfi í sveit og við sjó. Þessi mynd var til þess fallin, að hrífa úr huga þeirra, sem eldri eru, úrtölur og vonleysi og svartsýnisskraf um að heimur fari versnandi, og unga fólkið skorti þrótt horfinna kynslóða. Island hefur aldrei átt þróttmeira né fallegra æskufólk en í dag. Þetta unga fólk vinnur hörðum höndum á skip- um á hafi úti, við ræktunarstörf í sveitum, við vél- arnar í iðnaðinum og við þúsund önnur verkefni í varðstöðvum þjóðfélagsins. Og því fara verk vel úr hendi. Hér mættust nú fulltrúar þess til drengilegra leika og það sannaðist, að í byggðum landsins eru alls staðar að vaxa upp hin ágætustu íþróttamanns- efni. Samhliða starfinu þroskast hæfileikinn til að stunda drengilegar íþróttir með sæmd. Þeir, sem leysa hvort tveggja vel af hendi, starf og íþrótt, verða góðir þegnar og traustar stoðir heilbrigðs þjóðfélags. Að vísu má líka sjá dökka fleti á hinni glæsilegu mynd. Til eru þeir, sem hafa ekki kunnað eða megnað að sjá fótum sinum forráð í sóknarhraða ■hins nýja íslenzka þjóðfélags, eða hafa illa getað gert skil í milli skemmtunar og skyldustarfs. Þannig hafa starfskraftar glatast öllum þjóðum alla tíð. En framtiðin er ekki þessa fólks, heldur hinna, sem starfa í anda ungmennafélgsskaparins að heill og heiðri þjóðarinnar. i HÉR MÁTTI SJÁ ÞAÐ um þessa síðustu helgi, að ungmennafélögin eru enn þróttmikill félagsskap- ur í landinu, og þau eiga enn óst og virðingu mikils fjölda æskufólks. Onnur félög hafa fremur náð hylli unga fólksins í stærstu kaupstöðunum, en í sveit- um og þorpum og hinum minni bæjum, eru það enn ungmennafélögin, sem eru merkisberi frjálshuga æskumanna, vettvangur þeirra til leika, og til starfs að málum heildarinnar. Þetta er vissulega ekki til- viljum heldur aðeins sönnun þess, að í byggðum landsins á hin þjóðlega menning dýpstar rætur. SVO KANN ENN AÐ FARA, að í stað þess að hin nýtizkulegu æskulýðsfélög bæjanna útrými ung- mennafélagsskapnum, eins og stundum er þó haft á orði, verði það ungmennafélagsskapurinn og hug- sjón hans, sem verður hin þjóðlega og stóra tízka framtíðarinnar í bæ jafnt sem sveit. Landsmót ungmennafélaganna hér hefur vissulega þokað mál- um nær þessu marki. Þessi fundur æskumanna, und- ir merki ungmennafélaganna, hlýtur að hafa kveikt löngun í brjósti heilbrigðra æskumanna stóru kaup- staðanna, að gerast þátttakendur í því starfi að vinna íslandi fyrst og síðast undir krossmarki bláhvíta fánans. LEIÐ ÍSLENZKAR æsku ligg- ur frá ismum og erlendum tízku- Brezkur v.sindamaður talaði fyrir fáa áheyrendur. í FYRRI VIKU kom hér kunn- ur, brezkur læknir og vísindamað- ur, dr. Richard Doll að nafni, og flutti hér erindi á vegum Krabba- meinsfélags Akureyrar. Erindið var rækilega áuglýst. Aðgangur var ókeypis. Ljóst mátti vera, að þessi maður mundi hafa margt merkilegt að segja um tóbakið og áhrif þess. Hann og félagi hans, prófessor Hill í London, hafa manna mest rann- sakað þá hluti. Skýrsla þeirra um samband sigarettureykinga og lungnakrabba vakti heimsathygli, er hún var fyrst birt fyrir fáum ár- um. Síðan hefur þessum rannsókn- um fleygt fram, og vísindamenn margra landa hafa lagt orð í belg. Allt eru þetta athyglisverð fræði fyrir reykingamenn, og ekki síður fyrir ungt fólk, er ekki er orðið tó- baksnautn að bráð, og aðstandend- ur þess. En þótt svona væri í pott- inn búið, fór svo, að aðeins fáir áheyrendur nenntu að ómaka sig til að hlýða á fyrirlesturinn og sjá skýringarmyndirnar, sem sýndar voru. Við erum seinir til, Akureyr- ingar, og erfiðara virðist hé; en annars staðar að fá góða aðsókn að fundum og samkomum af þessu tagi. stefnum seinni áratuga, og að hinni upphaflegu hugsjón ungmennafé- laganna. Þannig mun unga kynslóð- in varðveita lýðveldi, framför og frelsi, á ókomnum tima. sagði dr. Doll. í sama streng tók prófessor Níels Dungal, sem hing- að kom með honum, og er flestum landsmönnum kunnugt um baráttu próf. Dungals gegn reykingum vegna þessarar sjúkdómshættu. — Krabbameinsfélagið hér á þakkir skildar fyrir að hafa fengið dr. Doll til að koma. Fræðslustarf um skaðsemi reykinga er enn hvergi nógu þróttmikið. Almenningur er enn of sinnulaus um mikið vanda- mál, sem sækir að okkur með vax- andi þunga. Sendið þá í skólana! EN ÞÓTT GOTT sé fyrir okk- ur, sem fullorðin erum, að hlýða á fræðslu um þessi mál, er miklu gagnlegra að koma upplýsingunum inn í skólana. Þar er sá akur, sem þessi vísindi eiga einkum að sá í. Eldri reykingamönnum verður ekki bjargað, en æskunni má bjarga með því að kynna henni hlnar miskunnarlausu staðreyndir. Kynn- ing af því tagi er margfallt ábrifa- meiri en nokkur bindindisprédik- un. Gimsteinn íslenzkra bókmennta Hvaða heimilistæki á að kaupa? HÉR VAR FYRIR NOKKRU vakin athygli á bæklingum Neytendasamtakanna, sem geyma gagn- legan fróðleik fyrir húsmæðurnar um ýmsan varning og ýmis áhöld. Með þessari útgáfu er hafin hér starf- semi, sem lengi hefur tíðkast meðal annarra þjóða, og reynst heimilunum hin bezta vemd í völundarhúsum verzlunar og viðskipta. En enn sem komið er, munu íslenzkar húsmæður ekki hafa komizt upp á lag með að notfæra sér þessar leiðbeiningar. Þær ná að vísu aðeins til fárra vörutegunda enn sem komið er, en eru samt gagnlegar, það sem þær ná. HÉR FÁST NÚ í búðum vörur, sem eru gæða merktar, er svo er kallað, eða hafa á sér viðurkenn- ingarstimpla neytendasamtaka eða hliðstæðra stofn- ana í öðrum löndum. Fólk hér er líka að komast upp á lag með pð líta á það sem tryggingu, ef varan er merkt með viðurkenningarmerki „Good houskeeping", eða viðurkennd af Statens Husholdningsraad. Þetta vísar veginn til þess, sem koma skal hér: Gæðamerk- ingar á sem flestum vörum og auknar leiðbeiningar um verð og gæði. Þannig má spara heimilum og þjóð- arbúi mikið fé. SEM DÆMI UM GAGNSEMI slikrar stefnu má nefna frétt í dönsku blaði nú á dögunum. Statens Husholdningsraad hefur látið athuga og reyna flestar gerðir rafmagnshrærivéla, sem á boðstólum eru í Danmörk. Voru það einar 12 tegundir, sem allar eru auglýstar af miklum krafti. Styrkleiki vélanna var prófaður, varahlutir kannaðir, gagnsemi metin og verð. Merkilegt erindi. UM erindi dr. Dolls er það ann- ars að segja, að það var merkilegt, flutt af hófsemi vísindamannsins, laust við áróður, en þunga stað- reyndanna teflt fram miskunnar- laust. Það var því mjög áhrifarikt. Var vissulega skaði, að svo fáir ungir menn voru meðal áheyrenda. Menn, sem éru ofurseldir reyking- um, hætta ógjarnan uppteknum hætti, þótt þess séu að vísu all- mörg dæmi, en meira er um vert, að opna augu æskumanna fyrir skaðsemi vindlinganna. Hér var í rauninni ekki um neina bindindis- prédikun að ræða, heldur heilsu- fræðilegar staðreyndir, og jafn- hliða tölur um tóbaksnotkun. Eng- um manni með heilbrigða dóm- greind, getur blandast hugur um, að hér eru ógnarleg tengsl i milli, sem hljóta að vekja til umhugs- unar. Þróunin í Brctlandi og hér á landi. ÞAÐ, sem einkum vakti athygli mína, var sú staðreynd, að skýrslur um útbreiðslu lungnakrabba sýna, að Bretland er það efst á blaði, með mesta útbreiðslu, en Island einna neðst. En dr. Doll hafði til reiðu skýringu á þessu fyrirbæri. Englendingar hafa reykt vindlinga í stórum stíl nokkrum áratugum lengur en íslendingar Og krabba- mein er ekki sjúkdómur, sem mað- ur tekur í dag og leggur mann í rúmið á morgun, heldur kemur það fram eftir áratug eða áratugi. Og tölurnar sýna einnig, að nú hin síðustu ár, verður þessi ógnarlegi sjúkdómur útbreiddari hér. Sama skýringin er á því, hvers vegna færri konur en karlar fá lungna- krabba. Vindlingareykingar meðal kvenþjóðarinnar hófust miklu seinna en meðal karla. Það er fyrst nú þessi síðustu ár, sem sjúkdóm- urinn fer ört vaxandi meðal kvenna. Enda reykingar þeirra á fyrri árum fyrst nú að segja til sín. Allt þykja mér þetta skynsamleg- ar skýringar á einum þætti þessa máls. Og margt fleira í þessum dúr „Njáls saga cr i senn nógu stór í sniðurn og auðug að efni til þess að fullncegja flestum kröftim flestra manna. Hún er dásamleg œvintýra- saga, og i þeim búningi er hún, er við kynnumst henni fyrst. Fyrir þroskaðar sálir verður hún göfugur hljómur, þar scm slefið er leyndar- dómur mannlegra örlaga. Hún hef- ur aila tíð verið talin hin merkasta heimild fyrir þá, sem vilja frœðast um gullöld íslenzkra bókmennta ... eða um söguheljur og sorgarsháld- skaþ yfirleitt. En prýði Njálu er i henni sjálfri og sprottin af henni sjálfri, en hvorlii lánað frá hliðstceð- um verkum eða byggt á lcerdómi Próf. Giuyn Jones i grein um Njáluútgáfu þróf. Einars Ól. Sveinssonar, i Times Litterary Suþplement og i The Scandina- vian Review, sumarhefti 1955. Upplýsingarnar síðan birtar sem leiðbeining fyrir al- menning, sem síðan stendur miklu betur að vígi en áður, að velja hrærivél í búð. HÉR HJÁ OKKUR eru sífellt auglýstar margar tegundir af alls konar heimilisvélum, og hver um- boðsmaður heldur að sjálfsögðu fram sínu merki, en almenningur stendur ráðvilltur, og veit varla, hvar bera skal niður. Upplýsingaþjónusta af þessu tagi get- ur því verið hinn bezti greiði við almenning, og auk þess gagnleg fyrir þjóðarbúskapinn með því að beina eftirspurninni að þeim tækjum, sem bezt eru í reynd og hagkvæmust. Þannig má lengi telja dæmin. Þessi starfsemi öll er athyglisverð. Fiskur og grænmeti DANSKT kvennablað kennir lesendum sínum þessa aðferð við að sjóða fisk: Látið ykkur ekki nægja, að sjóða nýjan fisk í vatni, með ofurlitlu af ediki, heldur bætið vatnið miklu meira: Sker- ið einn lauk í sneiðar, gulrót sömuleiðis, og setjið saman við, bætið í persille og „púrru“, ef til er, og gleymið ekki að láta pipar um leið og þið saltið vatnið! Með þessum hætti verður fiskurinn miklu bragðbetri og ljúffengari, segir blaðið, og er ráðið hér ekki selt dýrara en það er keypt! Laugardaginn 9. júlí næstk. fer hér fram kanttspyrnukappleikur milli Isfirðinga og Akureyringa. Eins og kunnugt er fer Knatt- spyrnumót Islands nú fram í I. deild, sem nú er skipuð Reykjavík- urfélögunum 5 og Akurnesinguum, og í II. deild. 1 II. deild er sú skipting viðhöfð, að landinu er skipt i 3 svæði. — Fyrsta: Suður- og Vesturland. — Annað: Vestfirðir og Norðurland. — Þriðja: Austfirðir. — Félög inn- an þessara svæða keppa innbyrðis og síðan keppa sigurvegararnir af hverju svæði um rétt til setu í I. deild, en aftur á móti fellur neðsta lið í I. deild niður í II. deild. Á svæðinu Vestfirðir—Norður- land höfðu Húsvíkingar einnig til- kynnt þátttöku, en munu sennilega ekki verða með. GOTT AÐ HAFA í HUGA: Það er miklu betra og geðslegra að láta ryksuguna þrífa sópa og kústa, en hrista úr þeim út fyrir dyr eða út um glugga. ■——o------ Oft er erfitt að hengja léttar blússur eða kjóla á herðatré. Við þessu má gera með því að vefja teygju- snúru um endana á herðatrénu. Þá situr fatnaðurinn vel. ----o----- Sjálfsagt er, þá maður kaupir nýja skó, að bursta þá vel upp úr góðum áburði, áður en maður tekur þá í notkun. Og bezt er að láta skóna standa, nýburst- aða, einn dag eða svo, áður en maður setur þá upp. Þannig endist leðrið bezt.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.