Dagur - 09.11.1955, Qupperneq 12
12
Bagijk
Miðvikudagiinn 9. nóvember 1955
Sparifjársöfnun skólabarna að
meðallali 70 kr. á barn i fyrra
Landsbankinn gaf skólabörnum 185 þús. kr. á
sl. ári - nú fá yngstu skólabörnin 10 kr. hvert
Ymis tlSindi úr nágrannabyggðum
Alls tóku 13500 börn i 43 skólum
þútt i sparifjársöfnun skólabarna á
s. I. ári, og söfnuðust urn 70 kr. á
barn að meðailah.
Aður hatði Landsbankinn gefið
hverju barni 10 kr. í sparisjóðsbók,
og þannig dreift á nreðal skólabarn-
anna 185 þús. krónum. 1 haust verð-
nr þessari merku starfsemi haldið
áfrarn. Gefur Landsbankinn nú
yngsta aldursflokki skólabarna spari
sjóðsbók með 10 kr. innstæðu.
Frá þessu og ýmsu fleiru varð-
andi þessa starfsemi skýrði Snorri
Sigfússon fyrrv. námstjóri á blaða-
mannafundi í Reykjavík í s.l. viku.
Fórust honum þá orð á þessa leið
m. a.
.....I>að hefir vcrið margsinn-
is tekið fram í sambandi við þetta
mál, og skal hér enn endurtekið, að
hér er fyrst og fremst um uppeldis-
mál að ræða, en ekki eingöngu fjár-
söfnun. Og það er skoðun ]>eirra,
sem að jressari starfsemi standa, að
uppvaxandi æsku sé mikil nauðsyn
á fræðslu og leiðbeiningum í þess-
um efnum, er þá jafnframt væri
sýnd í verki. Það er öllum kunnugt,
að mikið af „lausum“ aurum er nú
í höndum barna og unglinga vor
á meðal, og hitt getur ekki farið
fram hjá neinum, að of mikið af
þeim aurum fer í súginn og skilur
ekkert eftir, en ýtir hins vegar und-
ir skaðlegar eyðsluvenjur, er börn
og unglingar verða um of háð og
leiða oft á glapstigu, eins og dæm-
in sýna.“
Að gíœða sparnaðarviljan.
„Kjarni þessa málefnis er því sá,
að þess sé freistað að hafa hér holl
áhrif, með því að reyna til að'glæða
vilja barnanna til sparnaðar, og
fá þau til að leiða huga að og skilia,
að ekki sé hyggilegt að eyða hverj-
um evri jafnskjótt og þau eignast
hann, og að miirgu smáu sé vert að
safna saman til jiess að geta kcypt
eigulegan hlut síðar meir.
Það ætlum vér að öllum hljóti að
vera ljóst nú. að þjóð vorri sé það
aðkallandi nauðsyn, að hagsýni og
Júlíus Bogason sigur-
sæll í skákkeppni í
Húsavík
Nokkrir félagsmenn úr Skákfé-
lagi Akureyrar heimsóttu Taflfélag
Húsavíkur um sl. helgi. Vinna
skákmenn hér að því, fyrir atbeina
Skáksambandsins, að glæða skák-
líf í nágrannabyggðum. I Húsavík
tefldi Július Bogason skákmeist-
ari hér í bæ fjöltefli á 16 borðum.
Júlíus vann 12 skákir, gerði 1 jafn-
tefli og tapaði 3. Þessir sigruðu
Július: Páll Sigurjónsson, Sig-
mundur Halldórsson og Halldór
Þorgrímsson. Margir efnilegir tafl-
menn eru í Húsavík, segja skák-
mennirnir héðan, þar á meðal
nokkrir ungir piltar, sem vöktu at-
hygli þeirra. Einn þeirra, Pétur
Stefánsson; tefldi vel í móti Júli-
usi, þótt hann tapaði, og vakti at-
hygli.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Steinunn
Guðmundsdóttir afgreiðslumær í
KEA og Bjöm Baldursson verzl-
unarmaður, sama stað.
ráðdeild aukist meðal þegna henn-
ar. Það mun vissuléga verða örugg-
asta leiðin til þess að tryggja efna-
legt sjálfstæði og öruggan gjaldmið-
il.“
Starfsemin erlendisi
Á s.l. vori kynnti Snorri Sigfús-
son sér sparifjárstarfsemi meðal
uppvaxandi æsku í Bandaríkjum
N.-Ameríku. Er ljóst af því, sem
hann sá þar og heyrði í þeim efnum,
að sú volduga þjóð lætur sig niiklu
varða, að börnum og unglingum
sé innrætt hagsýni og ráðdeild með
fjármuni. Verja ríki og bankar
miklu fé og orku til þess að sinna
því verkefni, og bæði skólar og fé-
lagsleg samtök vcita þar iiflugan
stuðning. f sumar tók Snorri einn-
ig þátt í fjölmennu móti og náms-
skeiði, sem haldið var í Brandbjerg
á Jótlandi á vegum danskra spari-
sjóða og uppeldisfrömuða. Sóttu
það menn frá öllum Norðurlönd-
unum, og var mótið fjölmennt og
stóð í 6 daga.
Nokkrar niðurstöður frá mótinu
virtust þessar:
1. Mikil nauðsyn er á vegsögu í
ráðdeild og sparnaði.
2. Rétt er að þeir, sem fara með
uppeldismál og fjármál þjóðar, sé
sá aðali, sem stjómar slíkri leið-
sögn.
3. í heimilum og skólum sé ræki-
lega að því unnið að innræta upp-
vaxandi æsku virðingu fyrir gildi
verðmæta og ráðdeild i meðferð
fjármuna. Sé sumt námsefni skól-
anna rækilega notað í þcssu skyni,
svo sem efniviður átthagafræðinnar
og reikningskennslunnar.
4. Talið heppilegt, að börn og
ungmenni hafi vissa ljárhæð, t.d.
vikulega, sem þau ráða yfir og mega
nota að vild sinni, en geri grein
lyrir notkuninni á tilteknum tíma,
og sé þá mikilsverða<t að þeim tak-
ist að leggja eitthvað af þessu fé til
hliðar.
5. Talið nauðsynlegt að venja
fólk á reikningsháld með eigin’ fjár-
muni.
6. Talið áð sparirhérki væru nauð
synlegt stárfstæki rrieðal barrta. Úpp
•lýst jafnframt að Dánir hafi
s. 1. 2 ár haft merkjásölu á ýmsúm
vinnustöðvum, óg hafi -verkstjórar
selt, íúefkin til verkamanna, og hafi
þetta géngið níjög vel.
7. Einitig upplýst, að ve'rið sé áð
skaþh niögúle’ika tíl þess að örva
ungt fólk til spárnaðar í sambándi
við líftryggingfi, kaup á búslöð og
láif til jtess að mynda heimili. Er
flest af jressu á byrjunarstigi, en
talið fara vel af stað.
8. 'Ealið, var að verja ]>yrfli miklu
fé til íræðslustarfsemi í þessum efn-
um.
Slíkt mót sent þetla hafa verið
haldin við og við, bæði í Damnörk
og Svijijóð,
Þá er kunnugt, að Bretar hafa
um fjölda ára haft hjá sér spari-
fjárstarfsemi, í ntargs konar form-
um, meðal æskunnar í laudinu.
Það má [>ví með sanni segja að
Jressi mál, sem hér um ræðir, sétt
orðin snar þáttur í uppeldi þessara
J>jóða, og munu J>ær telja slíkt nauð
synlegt. Og að því er oss varðar má
segja, að nokkuð kunni að vera
erfiðara að starfa hér að Jtessum
málum en víðast annars staðar, en
þörfin til að sinna jieim enn þá
brýnni. Þess er því að vænta, að
sem flestir leggi hér hönd á plóg-
inn.
Minkur tekur sér ból-
festu í Fljótum
Hofsós 7. nóvember.
Tíðin er ágæt. Þó er víða farið
að hýsa fé. Litillega er róið til
fiskjar og er reitingsafli.
Unnið var í sumar í Fljótavegi
og er nú kominn upphlaðinn vegur
allt út fyrir Hrollaugsstaði. Milli
Hofsóss og Haganesvikur er mikil
umferð á sumrin og vegabótarinn-
ar fyllsta þörf.
Unnið var að rafvæðingu í
Fljótum i sumar. Er rafmagnið
komið á flesta bæi. Háspennulín-
an er einnig komin i Haganesvik.
Rafmagnið er leitt frá Skeiðsfoss-
virkjun.
Minkurinn er kominn í Fljót og
fyrir nokkru varð hans vart bæði
i Unadal og Deildardal. Verulegri
útbreiðslu hafa þeir þó ekki náð
ennþá, en óttast er um að svo
muni verði innan skamms, ef
ekkert er að gert. Lítið er um
rjúpu.
Ný uppfylling ver
Ólafsfjarðarhöfn
Ólafsfirði 7. nóvember.
I sumar var 1100 bílhlössum af
stórgrýti ekið í eins konar upp-
fyllingu norðan við hafnargarðinn.
I norðaustangarðinum í fyrri viku,
kom greinilega í ljós, hve þessi
ráðstöfun var þýðingarmikil. —
Skemmdir urðu engar. Brim var
svo mikið, að braut yfir þveran
fjörðinn, en hvassviðri ekki eins
mikið og t. d. á Siglufirði, þó voru
talin 9—10 vindstig. Trillubátarnir
lágu á höfninni og fór vel um þá.
Fyrra mánudag tepptist Lágheiði
og hefur ekki verið opnuð. En
snjór hefur sigið mjög mikið. —
Trillubátarnir reru í gær og dag.
Aflinn var litill.
Lokið vatnsveitufram-
kvæmdum á Hauganesi
Tilfinnanlegur vatnsskortur hef-
ur verið á Hauganesi undanfarin
ár og sérstaklega i sumar. Utgerð
er þar vaxandi og ibúum fjölgar.
Eins og áður hefur verið frá skýrt,
Ungmennasamband Eyjafjarðar
hefur efnt til þappdrættis til
styrktar fyrir starfsemi s'tna, og til
þess að standa að nokkru leyti
straum af hinu stórmyndarlega
landsmóti ungmennafélaganna, er
haldið var hér á Akureyri í sumar,
og UMSE sá um. Happdrættis-
vinningurinn er ný Chevrolet-
fólksbifreið og verður dregið nú
innan fárra daga, hinn 15. nóv.
Aukið iþróttastarf.
Ef ungmennasambandinu verður
verulegur fjárhagsstyrkur að happ-
hefur verið unnið að endurbótum
á þann hátt, að vatn er tekið ofan
við Kálfskinn og leitt niður á
Hauganes. Er þessum fram-
kvæmdum lokið í bráð. Vatnið
var leitt í 2ja tommu asbeströrum
frá upptökum á Selás, skammt of-
an við þorpið. Þar er gamall vatns-
geymir. Er ráðgert að byggja ann-
an stærri, sem á að taka um 70
tonn af vatni. Með þeirri viðbót-
arframkvæmd verður vel séð fyrir
vatnsþörf á Hauganesi, þótt reikn-
að sé með vaxandi útgerð.
9 kirkjukórar á söng-
móti í Skjólbrekku við
Mývatn
Kirkjukórasambandið í Suður-
Þingeyjarsýslu hélt myndarlega
samkomu að félagsheimilinu að
Skjólbrekku á sunnudaginn var.
Var það kaffisamsæti fyrir kórfé-
laga og gesti þeirra. Hófið sátu
um 300 manns. Hófst það kl. 1 e.
h. Séra Orn Friðriksson sóknar-
prestur á Skútustöðum las guð-
spjall dagsins, en samkomugestir
sungu að því loknu: „O Guð vors
lands“. Síðan setti Páll H. Jónsson
kennari á Laugum samkomuna
með stuttri ræðu. Undir borðum
fluttu ávörp og ræður: séra Frið-
rik A. Friðriksson prófastur, Sig-
urður Gunnarsson skólastjóri,
Húsavík, Sigurður P. Bjarnason,
Húsavik, Stefán Tryggvason bóndi
að Hallgilsstöðum og Jónas Helga-
son söngstjóri að Grænavatni.
Niu kirkjukórar, allt frá Sval-
barðsströnd til Húsavíkur, mættu
á þessari samkomu. Meðan á borð-
haldi stóð sungu kirkjukórar Ein-
arsstaðakirkju, undir stjórn Páls
H. Jónssonar, kirkjukór Grenjað-
arstaðarkirkju undir stjórn Agústs
Halblaum, og kirkjukór Húsavik-
ur, undir stjórn prófastsins, Frið-
riks A. Friðrikssonar. Einsöng
söng Þráinn Þórisson og tvísöng
Njáll Bjarnason og Ingvar Þórar-
insson.
Þegar borð voru upp tekin sungu
kórarnir sameiginlega 8 lög undir
stjórn söngstjóra sinna og að lok-
um var dansað til kl. 10,30.
Ungmennafélagið Mývetningur
sá um allan undirbúning samkom-
unnar og þótti stórvel takast. —
drættinu, mun það geta aukið
íþróttakennslu í héraðinu, bætt
aðstöðu til iþróttaiðkana og sinnt
frekar en enn hefur verið unnt
ýmsum málefnum unga fólksms.
Tilgangurinn er þvi góður, og ár-
angursins nýtur allt héraðið. Er
þess því að vænta, að sala happ-
drættismiðanna gangi sérlega
greiðlega i héraði og bæ. Ung-
mennafélögin í hverjum hreppi sjá
um miðasölu og hér í bænum fást
miðar á þessum stöðum: I verzlun
Péturs & Valdimars við Ráðhús-
torg, í Blaðsölunni á Ráðhústorgi,
Gestir rómuðu mjög hin myndar-
legu og rúmgóðu húsakynni félags-
heimilisins. Var það sýnt að 400
manns hefðu getað setið að borð-
um. Veður var ágætt og samkom-
an }>ótti takast með ágætum. —
Henni stjórnaði Páll H. Jónsson
kennari.
24 kindur drukknuðu í
Skagafirði
Sl. föstudag drukknuðu 24 kind-
ur í svonefndri Tjarnartjörn
skammt frá Sauðárkróki. Fóru
þaer út á veikan ,is til að bíta ferg-
in, sem stóð upp úr íshroðanum,
en ísinn brast og köfnuðu 24 kind-
ur. Eigendur þeirra voru bræð-
urnir Guðmundur og Sigurður
Jósafatssynir á Sauðárkróki. —
Misstu þeir helming fjárstofns síns
og urðu fyrir miklu tjóni.
Tónlistarmenn
á vegum
Ríkisútvarpsins
skemmta hér
Þriðja og síðasta ferð tónlistar-
manna Rikisútvarpsins út á land á
þessu hausti verður farin hingað
til Akureyrar. Gefst bæjarbúum og
fólki úr nágrannabyggðum, kost-
ur á að heyra þá og sjá í Sam-
komuhúsi bæjarins á fimmtudags-
og föstudagskvöldið 10. og 11. þ.
m. — Kristinn Hallsson óperu-
söngvari syngur með undirleik
Fritz Weisshappel innlend og er-
lend lög. Strengjakvintett leikur
Lítið næturljóð eftir Mozart. Flutt
verður óperan „Ráðskonuríki” eft-
ir Pergolesi. Textaþýðingu annað-
ist Egill Bjarnason. Hljómsveitar-
stjóri er Fritz Weisshappel, en
leikstjóri Jón Sigurbjörnsson. — I
óperunni eru 2 sönghlutverk. Þau
annast hinir þekktu söngvarar
Guðrún A. Símonar og Guðmund-
ur Jónsson. Þriðja hlutverkið er
þögult. Það leikur Kristinn Halls-
son.
Braunsverzlun, Bókabúð Rikku,
Ursmiðastofu Bjama Jónssonar,
Söluturninum við Hamarsstíg, í
Diddabar og á afgreiðslu Dags,
Hafnarstræti 87.
Bíllirm til sýnis.
Loks fást miðar i bílnum sjálf-
um, sem verður til sýnis hér í mið-
bænum næstu daga. Miðinn kostar
aðeins 10 krónur. Allir hafa efni
á því að styrkja Ungmennasam-
bandið með 10 kr., og kaupa um
leið vonina i glæsilegum vinningi
nýjum og vönduðum fólksbíl.
Dregið m happdræffishil UMSE15. nóv.