Dagur - 08.02.1956, Blaðsíða 8
Bagub
Miðvikudaginn 8. febr. 1956
NállúrugripasafniS á Ák. í örum vexti.
Opnað í nýjum húsakynnum á laugard.
Líkan af gervihnetti
Steinar og dýr frá Grænlandi - Strútsegg og
kolibrífuglsegg - 10 spendýr frá dýra-
safninu í Kaupmannahöfn
Kristján Geirmundsson, taxeder-
mist, safnvörður Náttúrugripasafns-
itis á Akureyri, boðaði fréttamenn
á sinn fund i hið nýja húsnceði
safnsins i Hafnarstrœti 81 nýlega.
Svo sem áður er sagt í blaðinu,
varð safnið að yfirgefa fyrra luis-
næði sitt í Slökkvistöðinni, þar sem
vel liafði verið að því búið um
skeið og endurgjaldslaust. Þriing
húsakynni í Hafnarstræti 81 urðu
fyrir valinu og vonandi til bráða-
birgða, því það húsnæði svarar ekki
til þeirra krafna, sem gera verður
til safnsins og útilokar vöxt þess og
torveldar sýningargestum að hafa
af því full not.
Þrátt fyrir þessa aðbúð, liefur
safninu verið eins vel fyrir komið
og verða mátti, og er það ánægju-
efni, að margt ágætra niuna hefur
bætzt því á síðustu tímum.
Munir frá Grænlandi.
Kristján Geirmundsson dvaldist
um tíma í sumar sem leið á Græn-
landi og flutti safninu margt ágætra
muna. Má þar til nefna nokkrar
menjar úr heimkynnum sauðnaut-
anna. Þar er til dæmis sauðnauta-
ull. Er hún harla einkennileg. Tal-
ið er, að ullin sé 10 crn þykk á dýr-
inu, og skiptist hún í þel og tog.
Togið er gráleitt og allt upp í 70
cm langt, og er lengst á bógum.
ÞeJið er mjúkt og fíngert og líkist
kindaull.
Einnig kom Kristján með steina-
safn af 30 gerðum, steingervinga og
dýrabein, hami af fuglum og fleiri
dýrum og margt flcira.
Vantar aðeins fjórar tegundir
íslenzkra eggja.
I eggjasafnið vantar nú aðeins
fjórar tegundir eggja íslenzkra
fugla, liaftyrðils, keldusvíns, jaðrak-
ans og litla svartbaks. Mundi safn-
inu vera hinn mesti greiði gerður,
ef einhverjir gætu úr þessu bætt.
Eins og kunnugt er, verpir haftyrð-
illinn ennþá í Grímsey. en er ann-
ars kominn til norðlægari slóða.
Egg hans eru friðuð í Grímsey, og
skvldu menn varast að flýta fyrir
Bændaklúbburinn
Næsti fundur verður mánudag-
inn 13. febrúar á venjulegum stað
og tíma. Fundarefni: Búfjáráburð-
ur. Framsögumaður verður Ólafur
Jónsson.
burtför síðustu haftyrðlanna með
eggjaráni. Alls eru 81 eggjategund
í safninu.
Góð viðbót frá Dýrasafninu í Höfn.
Meðal útlendra eggja eru ný-
komin strútsegg, ekkert smásmíði,
og kólibrífuglsegg, sem eru heldur
smávaxin. Þessi egg eru hingað
kornin frá Dýrasalninu í Kaup-
mannahöfn.
Dýrasafnið í Kaupmannahtifn
hcfur lika látið í té húfuapa, leður-
blöku, broddgölt og höggorm.
Ttu sjaldgæf dýr.
Náttúrugripasafnið í Reykjavík
hefur líka sýnt safni okkar örlæti,
með því að leggja til breiðnef,
hreisturdýr, vatnaotur, hamstur,
naggrís, bifurrottu, greifingja og
gibbonapa. Enn fremur kakadú,
kólibrífugl o. fl.
Skordýrasafn.
Enn er von nýrra gripa til við-
bótar þeim, sem fyrir eru, og er það
skordýrasafn, er væntanlega kemur
á þessu ári Það er frá Halldóri
Björnssyni, Kvískerjum í Oræfum,
ferðafélaga Kristjáns frá Græn-
landsleiðangrinum í sumar. Nýir
safnmunir á árinu eru 80—90.
Náttúrugripasafnið opnað.
Nú verður safnið opnað almenn-
ingi næstkomandi laugardag, kl. 3
—5. En framvegis verður það opið
á sunnudögum aðeins frá kl. 1—3,
nema sérsaklega standi á, svo setn
í sambandi við kennslu skólanna,
ferðafólk cða aðrar sérstakar ástæð-
ur. —
Safnvörðurinn á Akureyri er á-
hugasamur maður í starfi sínu, og
verður safnið væntanlega hið merk-
asta í höndum hans, er tímar líða.
— Bæjarbúar og ferðamenn munu
njóta safnsins og eiga þangað erindi
til fróðleiks og hugsvölunar.
Nýtt safnahús á Akureyri.
Þótt telja megi gleðifréttir, I hve
öruni vexti safnið cr, verður þó að
hafa það hugfast, að Náttúrugripa-
safninu og fleiri söfnum í bænum
þarf að búa betri stað, svo að sæmi-
legt megi kallast. í því sambandi
er vert að minnast góðrar blaða-
greinar Steindórs Steindórssonar
menntaskólakennára og tillagna
hans í þcssu máli. Verður að taka
það mál upp að nýju og hrinda
í Irámkvæmd.
Frá Bindmdismálasýninguiini
Laxárvirkjun og Göngu
skarðsárvirkjun
tengdar
I þessari viku verður Laxárvirkj-
un vestra tengd Hvammstanga. Að
undirbúningi þessa hefur verið
unnið um tíma, og er innanbæjar-
kerfið á Hvammstanga nú tilbúið.
Jafnljliða þessu njóta góðs af þessu
nokkrir hreppar og fá rafmagn.
Torfalækjar- og Sveinsstaðahreppar
fá rafmagn og hluti Þorkelshóls-
hrepps. En síðar meir mun kerfið
verða fært út. Fyrirhugað er einnig
að tengja Gönguskarðsárvirkjun
þessu kerfi.
Ný veitingastofa
Björn Axelsson hefur opnað
nýja veitingastofu í Túngötu 2 hér
í bæ er nefnist Skálinn. — Hefur
hann orð á sér fyrir hæfni í starfi
sem veitingamaður. Þeir áttu kost
á að kynnast því, er gistu Forna-
hvamm í fyrrasumar, þar sem hann
stóð fyrir veitingum.
Líkan þetta af gervihnetti var nýlega sýnt í Bandaríkjunum.
Vísindamenn telja ekki ólíklegt, að gervihnöttur svipaður
þessum verði sendur út í geiminn 1957 eða ’58. Inni í hnetti
þessum eru ýmis mælingatæki og sjálfvirk senditæki, sem
senda munu upplýsingar til manna þéirra, sem fylgjast munu
með lneyfingum hnattar þessa í kringum jörðina.
Ýmis tíðindi úr nágrannabyggðum
A öðrum enda borðsms er ákavítisflaská og jafnvirði hennar
af matvörum á hinum. Er dæmið glöggt og vel upp sett. —
Góð netaveiði
Reynihlíð, 7. febr.
Nú er ekið á bílum um allt Mý-
vatn. Netaveiði er byrjuð, og er
veiði sæmilega góð. Veiðimenn fara
á jeppum fram á ísinn og leggja
netin undir ísnum með sérstökum
aðferðum.
Heyskaðar urðu nokkru meiri I
rokinu I fyrri viku en fyrri fréttir
hermdu. Sex fullorðnar ær komu í
leitirnar nú fyrir skemmstu. Voru
sumar austur í Búrfellshrauni en
aðrar komu sjálfar heim rétt áður
en rokið skall á. Allar voru þær í
góðum holdum óg vel útlítandi.
Skemmtilegt heimboð
Hólum, 7. febr.
A laugardaginn var buðu Hóla-
sveinar nemendum og kennurum
Löngumýrarskóla til fagnaðar að
Hólum. — Var þetta hin bezta
skemmtun.
Snjólítið' er orðið hér og ágæt
beitarjörð. Sauðfé er þó yfirleitt
ekki mikið beitt á þessum tíma.
Gott heilsufar í
Lawgaskóla
Laugaskóla, 7. febr.
Ileilsufar er óven jugott hér I
skólanum í vetur. Er það að nokkru
þakkað hinura erfiðu samgiingum,
scm lengst af Iiafa verið.
Ovenjulega mikill skákáhugi
greip um sig , og hcfur aldrei ver-
ið teflt Iic'-r ntcira en nú.
Elinn I. ferúar var að nokkru
lielgaður bindindishreyfingunni. —
Sátu allir að kaflidrykkju af því
tileíni, þegar rokið gekk yfir. Var
það heppilegt, að matmaferðir voru
litlar utanhúss, því að járnplötum
af þaki skólans rigndi eins og hrá-
viði allt um kring.
A Daðastöðúm, Lýngbrekku og
Hjalía urðu ntiklar skemmdir á úti-
húsum og hey fuku. Þó er ekki út-
lit þ'rir að heyskortur verði til-
finnanlegur á þessum bæjum í vet-
ur eða vor.
Skaðar á öðrum hvor-
um hæ
Blönduósi, 7. febr.
Hér varð geysilegt tjón af völd-
utn óveðursins. Má heita svo, að
skenmtdir hafi orðið á öðrum hvor-
urn bæ. Mestur heyskaði varð á
Þverá í Norðrárdal. Þar fuku tvö
hey, og voru í þeim um 200 hestar.
1 Stóradal fuku um 40 hestar af
heyi. Þök skemmdust víða, til dæm-
is hálft þak íbúðarhúss að Þverár-
dal og Miðgili. Á Syðra-Hóli fauk
það af fjóshlöðu og braut inn þak á
fjósi, og á Súlheimum tók þak af
fjóshlöðu.
Elzu menn muna ekki annað eins
ofsarok. í húsi á Skeggjastöðum
drukknuðu 23 kindur og 7 kindur
á Efri-Mýrum.
Á Blönduósi urðu litlir skaðar,
og Ásahreppur virðist einnig hafa
sloppið við versta veðrið. Veðrið
var harðást frá kl, 6—11 en gekk
þá í vestrið og dró úr mesta ofsan-
um.
Bændafundur var haldinn hér á
laugardaginn og þótti vel takast.
Var hann með líku sniði og Bænda-
klúbbsfúndirnir á Akureyri, og cr
framhakl þessarar starfsemi fyrir-
hugað.
Gott cr til jarðar fyrir hross og
sauðlé. Allir vegir eru akfærir.
Námskeið hílstjóra
Sauðárkróki, 7. febr.
Námskeið bifreiðastjóra til meira
prófs stcndur yfir og fer kennslan
fram í húsakvnnum barnaskólans
síðari hluta dagsins. Kennarar eru
þeir Vilhjálmur Jónsson, Bergur
Arinbjörnsson pg Geir Bachmann.
Mótorbáturinn Stígandi er byrf-
aður róöra og aflar sæmilega, um
41/2 tonn í róðri.
Góður afli, þegar á
sjó gefur
Ólafsfirði, 7. febr.
Aðeins tveir trillubátar eru á
floti. Gæftir eru stopular. En í fyrri
viku öfluðu þeir sæmilega vel, eða
allt að 3 þús. pund í róðri. Margt
fólk er farið á vertíð, og er því
daufara heima fyrir en annars hefði
verið.
Frá Skákfélagi Akur-
eyrar
Eyrir nokkru síðan tefldi Jóhann
Snorrason skákmeistari samtíma-
skák við meðlimi Skákfélags Akur-
eyrar og fleiri á 20 borðum. Fóru
leikar þannig, að Jóhann vann 12
skákir, gerði 4 jalntefli og tapaði
4 skákum.
Næstk. fimmtudag teflir Jón
Ingimarsson samtímaskák við með-
limi Skákfélagsins og aðra, er vildu
vera með. Menn komi með töll
með sér. Teflt verður í Ásgarði,
og hefst skákin kl. 8.30 e. h.
Nýlokið er skákkeppni í Skákfél.
Akureyrar, svokölluðum klukku-
tíinaskákum. Hafði hver keppandi
hálftíma til að Ijúka skákinni. Fóru
leikár þannig, að Júlíus Bogason
varð efstur með 13 vinninga, 2.-3.
Róbert Þórðarson og Jón Ingimars-
son með 12 vinninga. 4. Björgvin
Árnason 11 vinningn, 5. Haraldur
Ólaísson lOi/ó v. 6., 7. og 8. urðu
þeir Randver Karlsson, Haraldttr
Bogáson og Guðin. EiðsSon. Kepp-
endur voru 16.
Síðastliðna sunnudagsnótt tefldi
Skákfélag Akureyrar við Taflfélag
Hafnarfjarðar. — Teflt var á tíu
boröum. Leikar fóru þannig, að
-Hafnfiröingar uniiu rueð 5i/> vinn-
ingi gegn 4i/2.
Þeir sent unnu hértan voru Júlftts
Bogason og Kristinn Jónsson. Jafn-
tefli gerðu Jón Ingimarssón, Albert
Sigurðsson, Jónas Stefánsson, Jóh.
Snorrason og Guðm. Eiðsson.