Dagur - 22.02.1956, Blaðsíða 8
8
Baguk
Miðvikudaginn 22. febr. 1956
Æðikollurinn frumsýndur á laugardaginn
Menntaskólaleikurinn „Æðikollurinn", eftir Holberg, verður væntanlega sýndur í Sam-
komuhúsinu á laugardaginn kemur. Leikendur eru 19 og allir úr M. A. Leikstjóri er Jónas
Jónasson. Myndin er tekin af leikurunum á einni æfingunni. — Ljósm. Eðvarð Sigurgeirss.
í framhaldi af því, sem áður var
sagt í blaðinu, á laugardaginn, hef-
ur þetta gerzt:
A föstudaginn fóru leikar svo að
Friðrik vann Randver, Júlíus vann
Guðmund, Þráinn vann Unnstein.
Margeir og Haraldur gerðu jafn-
tefli og biðskák varð hjá Jóni og
Kristni.
Laugardaginn 18. febrúar voru
tefldar biðskákir og fóru þær svo:
Þráinn og Guðmundur gerðu jafn-
tefli, Randver vann Guðmund, Jón
vann Harald, Júlíus og Randver
gerðu jafntefli, Jón og Kristinn
gerðu lika jafntefli og Júlíus og
Jón gerðu jafntefli.
Mánudaginn 20. febrúar hélt
skákin enn áfram og urðu þá úrslit
sem hér segir:
Júlíus og Þráinn gerðu jafntefli,
Haraldur vann Randver, Kristinn
og Margeir eiga biðskák, Guð-
mundur og Jón eiga líka biðskák
og Friðrik og Unnsteinn eiga bið-
skák.
Teflt var í gærkveldi og er blað-
inu ekki kunnugt um þær skákir.
En líklegt er að.Skákþinginu verði
slitið á morgun.
Friðrik teildi á 60 borðum.
Á sunnudaginn tefldi Friðrik
Ólafsson, skákmeistari, á 60 borð-
um í Alþýðuhúsinu. Var þröng á
þingi og vildu þó fleiri komast að
en hægt var að koma fyrir. Frið-
rik vann 51 skák, tapaði 6 og gerði
3 jafntefli.
Þeir sem unnu Friðrik voru
Guðmundur Benediktsson, Halldór
Elígsson, Herbert Tryggvason, Jón
Ólafsson, Kristján Jóhannsson
(Dalvík) og Sigurður Halldórsson.
Jafntefli náðu systkin frá Þverá
í Öngulsstaðahr., Guðrún Árna-
dóttir, hjúkrunarkona og Jón Árna-
son, svo og Þorgils Sigurðsson,
Dalvík.
Guðrún var eini þátttakandinn
af kvenna hálfu á mótinu og þótti
hlutur hennar, eftir atvikum, góð-
ur, þar sem hún var ein af þeim 3
keppendum er náðu jafntefli við
Friðrik.
Samtímaskák í Húsavík
Friðrik Ólafsson mun tefla sam-
tímaskák við áhugamenn í Húsa-
vík og úr nágrenni, á föstudaginn
kemur. Hefur Skákfélag Húsavík-
ur gengizt fyrir þessu og mun
hyggja gott til að kynnast skák-
snilld Friðriks.
Mjólk á flöskum.
I gær var sú nýbreytni tekin
upp í útibúi KEA í Brekkugötu
47, að selja þar flöskumjólk, en
ekki í lausu máli og til þess ætlazt
að mjólkinni verði ekki helt í önn-
ur ílát þar á staðnum. Flösku-
mjólkin er afgreidd beint úr kæli-
skáp. Er þessi ráðstöfun gerð
vegna áskorana fólks, er hefur við-
skipti við útibúið.
Aðalfundur ungra Framsóknar-
manna í Eyjafirði
Síðastliðinn sunnudag var aðal-
fundur Félags ungra Framsóknar-
manna í Eyjafirði haldinn að
Hótel KEA. I stjórn voru kosnir:
Þórir Valgeirsson, Auðbrekku,
formaður, Eggert Jónsson, Hall-
gilsstöðum, varaformaður, Jó-
hannes Kristjánsson, Hellu, ritari,
Kristján Hannesson, Víðigerði,
gjaldkeri og Þórólfur Ármannsson,
Myrká, meðstjórnandi. Þá voru
einnig kosnir fulltrúar til að mæta
á næsta flokksþingi Framsóknar-
flokksins.
Á fundinum mættu einnig Sig-
urjón Guðmundsson, skrifstofustj.
Frakkar kaupa 3000
lestir af áburði
Um þessar mundir er verið að
ganga frá samningum um sölu á
um 3000 lestum af áburði frá
Áburðarverksmiðjunni h.f. til
Frakklands.
Ekki hefur þó endanlega verið
gengið frá formsatriðum þessarar
sölu. Það eru sömu frönsku
aðilarnir, sem kaupa þetta magn
og þeir, sem keyptu af Áburðar-
verksmiðjunni í fyrra, en þá nam
magnið um 400 lestum.
Hér er um að ræða köfnunar-
efnisáburð (ammóníum-nitrat), og
munu Frakkar hafa verið mjög
ánægðir með áburðinn í fyrra og
festa nú aftur kaup á verulegu
magni.
Ekki er enn ákveðið, hvaða skip
flytji áburðinn út, en samningar
munu einnig standa yfir um það.
í Reykjavík og Björn Hermanns-
son erindreki flokksins. Talaði
Sigurjón um stjórnmálaviðhorfið
og svaraði fyrirspumum. Urðu
miklar umræður og almennar.
F ramsóknarvistin
Fjórða og síðasta umferð verð-
ur spiluð næstkomandi föstudags-
kvöld á sama stað og sama tíma.
Að þeirri umferð lokinni verða
verðlaun veitt, en þau eru fimm:
Utvarpstæki, ryksuga, fatnaður,
(herraföt, kápa eða frakki, saumað
eftir máli) flugfar fram og til baka
til Reykjavíkur og 12 manna kaffi-
'ttell.
Að þremur umferðum loknum
eru þessir hæstir:
Ragnheiður Karlsdóttir, 531 slagir
Þórhildur Skarphéðinsd. 517 slagir
Steingerður Pálmad., 516 slagir
Fanney Eggertsdóttir, 512 slagir
og Jón Kristinsson 510 slagir.
Mjólkurflöskur
sprungu
Kuldarnir í Evrópu hafa haft
margt illt í för með sér. Skip og
önnur farartæki komast ekki leið-
ar sinnar, og margt fólk hefur
króknað. En margt annað hefur
gerzt, þótt ekki sé um það getið
í heimsfréttunum.
Um daginn sprungu í Kaup-
mannahöfn 75 þúsund mjólkur-
flöskur, vegna þess að mjólkin í
þeim fraus.
Ýirsis fíSindi úr nágrannabyggðum
Þessi mynd er frá samtímaskákinni í Alþýðuhúsinu á sunnu-
daginn. Skákmeistarinn Friðrik Ólafsson og Guðrún Árna-
dóttir, hjúkrunarkona, athuga taflstöðuna. Þau gerðu jafn-
lefli. — Ljósm. Eðvarð Sigurgeirsson.
Fyrsti sjónleikurinn
í Skjólbrekku
Reykjahlið 25. íebrúar 1956.
I gær 16. febrúar hafði Ung-
mennafélagið Mývetningur frum-
sýningu í Skjólbrekku, á leikritinu
„Upp við Fossa“, eftir Pál H.
Jónsson á Laugum. Leikritið er í
þremur þáttum, samið upp úr sam-
nefndri skáldsögu eftir Þorgils
Gjallanda, sem kom út árið 1905
og var þá umdeild og vakti mikla
eftirtekt. Áður en sýning hófst tal-
aði Jón Gauti Pétursson, oddviti,
um frumhöfundinn og þau áhrif, er
sagan hafði, er hún kom út og gat
þess að vel hefði þótt hlýða að
fyrsta verkið, sem flutt væri á
þessu leiksviði, væri eftir Mývetn-
ing. Hófust æfingar snemma í vet-
ur, en hafa tafizt vegna ótíðar og
burtfarar sumra leikenda. Þráinn
Þórisson stjórnaði æfingum og var
leikstjóri. Búningana annaðist Ás-
gerður Jónsdóttir. Leiktjöld mál-
aði Hóimfríður Pétursdóttir. Leik-
sviðsstjóri var Þorgrímur Starri
Björgvinsson. Ljósameistari, Sig-
fús Bárðarson. Hlutverkaskrá er
þessi: Brandur, bóndi á Efra-Fossi
(Ketill Þórisson), Gróa, kona hans
(Hildur Ásvaldsdóttir), Jón, vinnu-
maður (ívar Stefánsson), Sigga,
vinnukona (Elín Inga Jónsdóttir),
Gunna, vinnukona (Vilborg Frið-
jónsdóttir), Séra Jósteinn (Böðvar
Jónsson), Þuríður (Birna Björns-
dóttir), María (Vilborg Friðjóns-
dóttir), Sveinbjörn (Hreinn Her-
mannsson), Geirmundur (Pétur
Þórisson), Bjarni á Felli( Stein-
grímur Kristjánsson), Fyrsti bóndi
(Ivar Stefánsson), Annar bóndi
(Steingrímur Jóhannesson), Fyrsta
bóndakona (Helga Axelsdóttir),
Onnur bóndakona (Elín Inga Jón-
asdóttir). Höfundur, Páll H. Jóns-
son, var viðstaddur. Húsfyllir var
og margt fólk úr öðrum sveitum.
Búizt er við að sýna á Húsavík
og aftur í Skjólbrekku. Leiksvið
hins nýja húss er ágætt og tóku
sýningarnar sig mjög vel út þar.
Frammistaða leikenda, sem flestir
eru viðvaningar á þessu sviði, þótti
ágæt. Leikritið vakti mikla athygli
og er mjög áhrifamikið á köflum.
Pétur Jónsson.
Góður afli í Hriseý
Hrísey 21. febrúar.
Þrir 7—8 tonna dekkbátar hafa
róið undanfarið og fengið mjög
sæmilegan afla. En þeir hafa sótt
fram undir Grímsey. Fiskurinn er
heldur smár og er hann ýmist salt-
aður eða hertur. Rauðmagi er far-
inn að veiðast lxtilsháttar.
Fjölsótt skíðanámskeið
Dalvik 21. febrúar.
Ekkert af stærri bátunum er á
floti en trillubátar hafa róið öðru
hvoru og fengu góðan afla eftir
síðustu helgi.
Skíðanámskeið stendur yfir á
Dalvík og er kennari Jónas Ás-
geirsson frá Siglufirði. Þátttaka er
mikil og veðurblíða á hverjum
degi. Eru æfingar hinar ánægjuleg-
ustu og snjór er nægur, en of harð-
ur.
Páll heitinn Friðfinnsson var
jarðsunginn að Ufsum í gær, að
viðstöddu fjölmenni.
r
A jeppa þvert yfir
Fljótsbeiði
Fosshóíi 21. febrúar.
Samkomur hafa verið haldnar
að Ereiðumýri, í Kinn og víðar,
eftir að veður og vegir bötnuðu.
Kjartan Stefánsson í Holti í
Reykjadal ók á jeppa þvert yfir
Fljótsheiði, nú fyrir skemmstu og
gekk vel. Harðfenni er á heiðum
og bilfært á snjó. Sigurður á Foss-
hóli hyggur gott til veiðiferða á
heiðarvötnum, ef veður og færi
haldast óbreytt næstu daga.