Dagur - 25.02.1956, Side 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur. —
Kaupið Dag. Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út mið-
vikudaginn 29. £ebr.
XXXIX. árg.
Akureyri, laugardaginn 25. febrúar 1956
11. tbl.
Eftirlit úr lofti
Eisenhower forseti stakk upp á því við Rússa, að Bandaríkja-
menn og Rússar leyfðu hvor öðrum ljósmyndatöku úr lofti
yfir löndum sínum og hernaðarbækistöðvum. Rússar höfn-
uðu tillögunni, eins og þeir hafa gert við allar tillögur, sem
raunverulega stefndu í átt til friðar. — Hér sést fulltrúi
Bandaríkjanna hjá S. Þ. vera að sýna myndavélar, kort og
ýmis rannsóknartæki til myndatöku úr lofti, en það myndi
taka um hálft ár að ljósmynda Bandaríkin cða Sovétríkin
úr lofti hvort um sig.
Skákþingi Horðlendinga lokið
júJíus Bogason varð Norðurlandsmeistari
m
Hæflulegur vegakafli á ÖxnadalsheiSi
Hallandi svellbunkar að hengiflugi í
Klifinu - Umferð lífsættuleg - Ekkert
aðhafst til úrbóta
Þegai' umferð loksins var hafin milli Akureyrar og Reykja-
víkur, eftir aðgerðir móður náttúru, voru allmiklir svell-
bunkar á Öxnadalsheiði og hjá Bakkaseli. í langvarandi þíð-
viðri tók svellin af hjá Bakkaseli en fram á Öxnadalsheiði,
í Klifinu svokallaða, voru svellalögin orðin þykk.
Skákþingi Norðlendinga lauk á
fimmtudaginn, og var slitið það
kvöld með samsæti. Jón Hinriks-
son, skákstjóri, stjórnaði hófinu.
Skákmönnum og starfsmönnum
öllum var boðið, svo og bæjarráði.
Júlíus Bogason varð skaákmeistari
Norðurlands.
Skákstjóri sagði frá keppninni
og úrslitum og afhenti hinum nýja
skákmeistara, Júlíusi Bogasyni,
verðlaunagrip. E
það er haglega
útskorinn hrók-
ur, gefinn af
þeim feðgunum
Sigurði og Guð-
brandi Hlíðar.
Ennfremur hlaut
hann verðlaunapening skákþings-
ins, sem á er letrað: Skákmeistari
Norðurlands 1956.
Friðrik Olafsson, skákmeistari,
sem tefldi sem gestur á mótinu,
fékk að gjöf við þetta tækifæri,
fagurt málverk af Akureyri, til
minningar um heimsóknina. Þrá-
inn Sigurðsson frá Siglufirði,
Kristinn Jónsson og Unnsteinn
Stefánsson, sem voru jafnir að
vinningatölu hlutu einnig verð-
launapeninga. Og Þráni var færð
að gjöf bókin Akureyri í myndum.
Ræður fluttu, auk skákstjórans,
bæjarstjórinn, Steinn Steinsen og
Jón Ingimarsson, formaður Skák-
félags Akureyrar.
Ao síðustu fór fram bændaskák.
Basndur voru Friðrik Olafsson og
Júlíus Bogason og kijisu þeir sér
sína 12 skákmenn hver. Vann
flokkur Friðriks með 81 en flokk-
ur Júlíusar fékk 63.
Skíðamót Akureyrar
Skíðamót Akureyrar verður háð
á sunnudaginn kennir, og fer það
fram við Ásgarð. Hefst það kl. 2
e. hád.
Kepp verður í A, B, C- og í
drengjaflokkum.
Lagt verður af stað kl. 10 f. h.
frá Hótel Kea.
Búizt er við, að skíðamót þetta
verði fjölmennara en skíðamót hafa
verið hér á Ákureyri nú undanfar-
ið, Snjór er nægur, og gott fyrir
áhorfendur að komast á mótsstað,
ef veður helzt.
Á Akureyrarmótinu keppa beztu
skíðaménn Akurcyrar.
Fjölmenn jarðaför
Útför Sveins Eiríkssonar, Möðru-
yaljastræti 9 hér í l)æ, sem fórst í
flugslysi á Holtavörðuheiði þann
12. þ. m„ fór fram frá Akureyrar-
kirkju síðastl. laugardag. Sr. Pétur
Sigurgeirsson jarðsiing, Hánn flutti
bæri. í heimahúsum og ræðu í kirkj-
unni. Við húskveðjuna flutti prest-
uririn einnig kvæði eftir fónas Jak-
obsson. Þá ílutti Stefán Ág. Krist-
jánsson þar og frumsamið kvæði.
Eftir ræðu préstsins í kirkjúnni
flutti hann kveðju í ljóðum frá
tveimur skólabræðrum Sveins sál.
Mikið fjölmenni var við jarðarför-
ina, svo að kirkjan var þéttskipuð.
Starfsfólk frá Flugfélagi Jslands
kom liingað norður til að vera við
jarðarförina.
Oll var athöfn þessi hin virðu-
legasta.
Góð gjöf til Náttúru-
gripasafnsins á Ak.
Hjörtur Eldjárn, bóndi að Tjörn
í Svarfaðardal, sem nýlega var
staddur i bænum, færði Náttúru-
gripasafninu að gjöf sjaldgæfa
eggjategund. Var það keldusvíns-
egg og vantar þá safnið aðeins egg
þriggja íslenzkra fugla: Jaðrakans,
litla svartbaks og haftyrðils. Egg
haftyrðilsins munu aðeins finnast
í Grimsey og eru friðuð þar. En
vera kann að einhver ætti þau í
fórum sínum og vildi láta Nátt-
úrugripasafnið á Akureyri njóta
þeirra.
Kristján Geirmundsson, safn-
vörður, hefur beðið blaðið að færa
gefanda þakkir og vill minna fólk
á, að láta sig vita um fundi sjald-
gæfra hluta.
Mikil aðsókn hefur verið að
Náttúrugripasafninu, síðan það
var opnað að nýju í Hafnarstr. 81.
Eisenhower harmar
framkomu háskóla-
stúdenta í Alabama
Washington. — Eisenhower sagði
í dag á blaðamannafundi, að hann
harmaði mjög framkomu þeirra,
sem meinuðu svertingjastúlku
skólavist við Alabamaháskólann.
Kvað hann dómsmálaráðuneytið
vera að rannsaka ástandið í þess-
um Suðurríkjaháskóla.
Hann minntist þess, að sam-
kvæmt úrskurði hætsaréttar bæri
héraðsdómum að sjá um, að kyn-
þáttamisrétti sé ekki viðhaft í
skólum landsins. Hann kvaðst vera
þeirrar skoðunar, að háskólarektor,
deildarstj. eða stúdentaráð hefðu
ekki rétt til þess að skera úr þessu
méli. Sagðist hann vona að allir,
jafnt fylkisstjórinn sem aðrir,
myndu beita sér fyrir því, að sam-
komulag næðist í þessu máli.
Svertingjastúlkan, sem deilan
stendur um, heitir Autherine Lucy.
Hún hefur starfað sem einkaritari
i borginni Birmingham og er 26
éra gömuli. Er hún hafði innritast
í háskólann í Alabama, hófu nem-
endur kröfugöngu í mótmælaskyni.
Kennarar skólans visuðu henni
úr skóla „þangað til annað yrði
ákveðið" og var það gert af örygg-
isástæðum.
Lögfræðingur stúlkunnar hefur
beðið um, að brottvikning hennar
úr skólanum verði tekin aftur og
henni heimilað að sækja tíma á
nýjan leik.
Hallar fram af hengiflugi.
Á meira en eins kílómetra
kafla á þessum stað eru svell-
bunkar svo hættulegir að raunar
er mesta furða að bifreiðastjórar
skuli ekki, allir sem einn, neita að
aka bifreiðum sínum þessa leið.
Svellunum hallar fram af
hengifluginu og má engu muna,
þótt ekið sé svo sem bezt má
verða. En samkvæmt umsögn bif-
reiðastjóra, væri ekki um neina
björgun að ræða, ef eitthvað bæri
út af, og væri raunar furðulegt að
ekki væru þegar orðin stórslys.
• ..... )
A sama stað varð slys.
Er mönnum enn í minni, að á
þessum stað hrapaði bíll, fyrir fá-
um árum fram af svellbunka og
niður í gljúfrið. Nú eru vegir all-
góðir milli Reykjavíkur og Akur-
eyrar, og hafa verið um tíma. Að-
eins á þessum stutta kafla, á Öxna-
dalsheiðinni er vegurinn hættu-
legur. Einn kílómetri á 500 km.
leið ógnar umferð milli landshluta.
Þar hefur ekkert verið gert til úr-
FRAMSÓKNARMENN!
Munið sameiginlegan fund
framsóknarfél. í Lands-
bankahúsinu á sunnudag-
inn kl. 3, stundvíslega.
Ólafur Jóhannesson, pró-
fessor, mætir á fundinum.
bóta, þegar undan er skilin aug-
lýsing um hættuna.
„Umferð lífshættuleg“
Fulltrúi vegamálastjómarinnar,
Karl Friðriksson hefur athugað
staðinn en látið svo um mælt að
hann væri hættulegur og of
hættulegur, til að leggja líf sitt í
hættu með því að fara yfir hann,
á venjulegum bíl, en viðgerð væri
mjög dýr.
Með allri virðingu fyrir því
sjónarmiði að spara peninga hins
opinbera, má þó benda á hvað gert
er fyrir umferðamálin annarsstað-
ar á landinu, og greitt af almanna-
fé.
Viðgerð eða algert
umf erðabann.
Þess verður að vænta að vega-
málastjórnin taki þetta mál tafar-
laust til endurskoðunar. Ef fé er
ekki fyrir hendi, sem auðvitað er
hreinn fyrirsláttur, á að loka veg-
inum þegar í stað.
Um leið og blaðið var að fara
í pressuna, bárust þær fregnir af
Öxnadalsheiði, að vegurinn hafi
mjög skánað síðustu dagana og sé
ekki hættulegur bifreiðum.
Stangast þessi umsögn ferða-
manna mjög á við auglýsingar
vegamálastjórnarinnar í gær. Af-
sakar þó fregn þessi, ef sönn er,
ekki staðhæfingu blaðsins um
ástand vegarins, fram að þessu.
Myndin sýnir svellbunka á Öxnadalsheiði, þar sem bifreið
hrapaði 60 metra fyrir tveimur árum. Bifreiðaeftirlitsmaður
stendur á vegarbrún. Upphöggvin rás í svellið, náði ekki
alla leið og bifreiðin steyptist fram af, þar sem rásinni lauk.