Dagur - 25.02.1956, Blaðsíða 7

Dagur - 25.02.1956, Blaðsíða 7
Laugardaginn 25. febr. 1956 DAGUR 7 Sængurveradamask Blúndur og milliverk Slankbelti* allar stærðir Flónel, margir litir og m. fleira. Verzlunin LOND ON EYÞÓR H. TÓMASSON Verkfæri nýkomin: Rifjárn Þvingur Skrúfstykki Heflar Tréborar Járnborar Smergelhjól Brjóstborar Véla- og búsáhaldadeild Blómapottar — 6 stærðir Skálar undir potta Blómagrindur Plast blómapottahlífar 4 stærðir Blómamold Undirbúið ræktunar- störfin í tíma! Blómabúð KEA Telpukápor! Fallegar og ódýrar poplih kápur á telpur 4—14 ára Verð frá kr. 187.00 * Loðkragaefni! Nýkomið brúnt loðki'agaefni Verð kr. 218.00 mtr. Helduúlpur! Með giamla verðinu. — Aðeins nokkur stykki óseld. Klæðaverzlun Sig. Guðmundssonar h.f. Hafnarstr. 96 — Sími 1423 Björn Hermannsson Lögjrœð iskrifslofa íHafnarstr. 95. Sími 1443. ir Undanfarin 8 ár hafa skrifstofur Loftleiða og farþegaafgreiðsla fé- lagsins verið til húsa í Lækjargötu 2 í Reykjavík. Hafa Loftleiðir bú- ið þar síðari árin í tvíbýli, fyrst með Áburðarverksmiðjunni en síð- ar Iðnaðarbankanum. Voru af- greiðslur bankans annars vegar en Loftleiða hins vegar í sal á fyrstu hæð, en skrifstofur víðs vegar uppi í húsinu. Var þetta fyrirkomulag báðum aðilum ófullnægjandi og að flestu leyti óhentugt. Fyrir þvi tóku Loftleiðir að leita fyrir sér um hentugt húsnæði fyrir skrifstofur. Tókust samningar um það milli Loftleiða og Sölufélags garðyrkjumanna, að Loftleiðir fengju leigt fyrir skrifstofur sínar í húsi, sem Sölufélagið er nú að reisa við Reykjanesbraut 6. Stend- ur hús þetta rétt sunnan við gatna- mót gamla Laufásvegar og Reykja- nesbrautar. Fluttu Loftleiðir skrif- stofur sínar þangað fyrir nokkrum dögum. Eru húsakynni þessi rúm- góð og verða hin vistlegustu. Afgreiðsla Loftleiða verður áfram í húsi því, sem Nýja Bíó er í, Lækjargötu 2. Sú breyting verð- ur þó á, að hún hefur nú verið flutt úr afgrúiðslusal þeim, þar sem Iðnaðarbankinn hafði einnig bækistöð, í húsnæði það, sem á sínum tíma var kennt við Bíóbúð, en þar hefur á undanförnum árum verið skrifstofa Loftleiða. I afgreiðslu þessari munu veittar allar upplýsingar um ferðir félags- ins og farmiðar seldir, svo sem fyrr hefur verið. Símanúmer félagsins í afgreiðslu og skrifstofum verður eftirleiðis hið sama og fyrr, 81440. Loftleiðir halda nú uppi sex ferðum til og frá Rvík á viku hverri. I aprílbyrjun er gert ráð fyrir að fjölga þeim upp í 8 og eft- ir miðjan maí er búizt við að flugvélarnar verði 12 sinnum í viku hér á leið vestur eða austur yfir Atlantshafið. - Lögtaksreglur (Frarhhald af 5. síðu). í ljós, hvort það væri samkvæmt anda og tilgangi sjúkrasamlags- laganna, að sumir framfylgjendur þeirra mættu féfletta vissa ein- staklinga. — Mér var ekki að skapi að kosta til þess að vísa lögtaksgjörningn- um til Hæstaréttar, þótt það væri opin leið, því á meðan að á sliku vafstri hefði staðið, jafnvel um lengri tíma, hefði jörðin orðið að vera í þeim óþverraböndum, sem lögtaksfremjendur hnýttu að henni 24. október s.l. Páll gjaldkeri stynur því upp í lok greinar sinnar, að hann þykist hafa „orðið fyrir ámæli fyrir lin- lega framgöngu við innheimtu sjúkrasamlagsgjalda“ hjá mér. Slæm „ámæli“ það! Og mættu þeir, sem þau hafa viðhaft, birta nöfn sín, en af þeim virðist hann hafa stjórnast sér til vansæmdar. —Ég var líka búinn að heyra, að nokkrir hreppsbúar hefðu í hótun- um að hætta að greiða sín iðgjöld. Aumingja mennirnir. Ætli þeim hafi fundizt, að þeir væru ekki að greiða gjöldin fyrir sig og fengju lítið eða ekki neitt á móti fyrir þau? Þetta hefir nú líklega sem „bet- ur fer“ jafnað sig allt saman, þar eð fyrir skömmu varð sú breyting, að samlagsgjaldkerinn gerði hinum óánægðu gjaldgreiðendum til geðs og ánægju að vinna eintstætt „af- reksverk fyrir þá. Og líklega hefir hann hlotið hrós þeirra að launum. Þeir hljóta nú að vera óvenju sælir og heilbrigðir eftir að hafa fengið bót við „sjúkleika“ sínum fyrir á- hrif meðalanna, er keypt voru fyr- ir peningana, sem gjaldkeranum heppnaðist svo „snilldarlega" að ná af hjónunum frá Sörlatungu. — Og fjárhag Sjúkrasamlags Skriðu hrepps er borgið. Gjaldkerinn aflaði fjárins með sjaldþekktri „röggsemi“. — En að síðustu vonar Páll gjald- keri, að „menn geti ýmislegt lært af hinni prúðmannlegu jólakveðju G. Hafdals." Já, ég vona það líka. Þeir mættu meðal annars læra að rannsaka sálarástand mannsins, sem ofsótti náunga sína! Sauðárkróki 27. desember 1955. G. S. Hafdal.. . SVEINN EIRIKSSON Kveðjuorð llve tregt er tiingu a® lmera, og tillinningar bæra í brjóstum enduróm frá æðri andans djúpum. I auðmýkt hjartans krjúpum, \ið mildan, mjúkan klukknahíjóin. Því hvað er tár og tregi, að traust á drottin megi ei bæta allt vort böl. Hann læknar sviðasárin, bg sól hans þerrar tárin, í unað breytir angri' og kvöl. Hann lagði á loftsins vegi, á ljósum vetrardegi, hinn ungi, svási Sveinn. Ur föður-, móðurfaðmi og fjarðar mjúkum baðmi, svo fjarri glaumi flaug hann einn. En sólu sortinn huldi, og sínar hæðir duldi hin gamla fósturfold. Hún faðrnar fagra drenginn, en för hans tefur enginn, því andinn lifir laus við hold. Hann vildi vængjum líða um vegi loftsins Jtýða, og hugur stefndi hátt. Nú enn ])á ofar stefnir hans andi, en lijartað nefnir Jjau öll, er hafa ást hans átt. 1 kærleik hann Jtau kveður, og kraftj drottins meður hann kyssir móðurkinn. Og systkinum hanti sendir sitt bros, er hærra bendir og síðast faðrnar föður sinn. Stefán Águst. Möðruvallaklaustursprk. Messað í Skjaldarvík sunnud. 26. febr. kl. 4 e.h. og á Möðruvöllum sunnud. 4. marz kl. 2 e.h. Grundarkirkja. Til viðbótar áð- ur auglýstu, hefur kirkjunni enn borizt peningagjöf, að upphæð kr. 5.000.00 frá systkinunum frá Víði- gerði, þeim: Hannesi Kristjánssyni, Jónasi Kristjánssyni og Guðrúnu Kristjánsdóttur. Fé þessu skal var- ið til lýsingar kirkjunni og er gef- ið til minningar um foreldra þeirra Hólmfríði Kristjánsdóttur og Kristján Hannesson. Frá Ísl.-ameríska félaginu: Kvikmyndasýningin fellur niður n. k. mánudag. í þess stað verður hún á fimmtudag kl. 9 e. h. Skautamóti íslands, sem halda átti um helgina, hefur verið frest- að um viku, og verður háð dagana 3. og 4. marz n. k. Skráðir kepp- endur eru 12, þar af 4 frá Reykja- vík. Námskeið í bókbandi hefst í æskulýðsheimili templara í Varð- borg miðvikudaginn 29. febrúar. Kennari verður Lárus Zophónías- son, bókbindari. — Námskeið í teikningu hefst mánud. 27. febr. Kennari Jónas Jakobsson. Vænt- anlega verður námskeið í því að brenna í tré (með Ungarntæki) og kennir Emil Andersen verzl.maður þá grein. Væntanlegir nemendur geta látið skrifa sig í sima 1481 milli kl. 6 og 7 daglega. Á vegum Æskulýðsheimilis templara eru nú starfandi námskeið í þjóðdönsum ljósmyndagerð, flugmodelsmíði og skák. Leikstofur heimilisins opnar á sömu tímum og vanalega. — Æskulýðsheimili templara í Varð- borg. .. Gjafir til ekkjunnar á Einars- stöðum í Glæsibæjarhreppi: G. J. 100, H. J. 100, Á. O. 100, S. O. 100, H. J. 100, S. G. 500, V. E. 100, H. J. 100, Á. Þ. 500, B. J. 150, E. E. 200, ónefnd 200, Pál- ína 100. Frá starfsfólki á fiskverk- unarstöð Utgerðarfél. Akureyringa kr. 2255. Alls kr. 4605,00. Með þökkum móttekið. Anna og Þorkell Björnsson. Slysavarnarfélagskonur Akur- eyri. Aðalfundur deildarinnar verð- ur í Alþýðuhúsinu, föstudaginn 2. marz kl. 8,30 e. h. — Gjörið svo vel og takið með ykkur kaffi. — Stjórnin. Framsóknarvistin í sýslunni. Framsóknarvistin hélt áfram að Sólgarði í Saurbæjarhreppi á mið- vikudaginn. Þorleifur Þorleifsson stjórnaði. Að Árskógarskóla var spilað á sunnudaginn var. Marinó Þorsteinsson stjórnaði. Skíðamót Akureyrar hefst við Ásgarð á morgun (sunnud.) kl. 2 e. h. Keppt verður í svigi A- B- C- og drengjaflokki. Keppendur og starfsmenn mæti stund- víslega kl. 10 f. h. við Hótel KEA. Stjórn Þórs * i ■ 111111 ■ 1111111 ■ ■ ii 111 ■ ■ 11 ■ 111111111111 ■ 1111 ■ 111 ■ i ■ i ■ 1111111111 ■ 11 • • *iiiiiitii*iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii ið í DEGI - Grænmetisverzlunin (Framhald af 5. síðu). Sveinn Guðmundsson, Akranesi, skrifar 5. apríl þ. á.: „Eg get ekki séð, að það sé á neinn hátt hagkvæmt framleiðend- um, að G. R. sé lögð niður og sölu- nefnd stofnsett í hennar stað; ég hef aldrei heyrt neinn framleið- anda tala um slíkt.“ Eins og málum er nú skipað, er mikið vald í höndum framleiðslu- ráðs landbúnaðarins, þ. e. fulltrúa bænda, að því er tekur til verzlun- ar með kartöflur. Þannig er á valdi þess að ákvarða verð kartaflna á hverjum tíma. Það er einnig á valdi ráðsins að skipa matsmenn á kartöflum. Hvort tveggja þetta: verð,lagið og vörugæðin — skiptir höfuðmáli bæði fyrir framleiðend- ur og neytendur, hvort sem er um þessa vöru eða aðrar, eins og kjöt- vörur og mjólkurafurðir. Framleiðsluráð hefur hins vegar ekki á hendi verzlun með þessar né neinar afurðir, hvorki beint né óbeint. Að fá því þetta hlutverk eða stofnun, sem það stjórnar, er nýmæli í íslenzkri löggjöf, og getur ekki verið æskilegt né heppilegt að binda slíkt með lögum, og er áður að því vikið. — Hitt er svo rétt að taka fram, að samkv. gild- andi lögum er verzlun með inn- lendu kartöflurnar frjáls, en niður- greiðsluskipulagið hefur eftir fyrir- mælum ríkisstjórnarinnar orðið til þess, að kartöfluverzlunin hefur nær öll komizt á hendur Græn- metisverzlunarinnar. En hvenær sem niðurgreiðslunar hætta, getur verzlunin komizt á hverjar aðrar hendur. — Framleiðendur munu hér eftir sem hingað til telja það höfuðatriði fyrir sig, jafnhliða verð ákvörðuninni, að geta selt fram- leiðsluna á heppilegum tíma. Þetta hefur þeim að jafnaði tekizt með aðstoð verzlana sinna og Græn- metisverzlunarinnar, og hefur nú- verandi skipulag ekki á neinn hátt verið þeim til trafala x því efni. Áhugi framleiðenda almennt fyrir breyttu skipulagi virðist ekki fyrir hendi, með örfáum undan- tekningum, en vakni sá áhugi, geta þeir eða félög þeirra tekið málið í sínar hendur að óbreyttum lögum. Breytingar á núverandi skipu- lagi eru því aðeins æskilegar og forsvaranlegar, að þær séu til bóta, en slíkt ekki sjáanlegt um þessar tillögur að þeirra manna áliti, sem lengst og mest hafa unn- ið að þessum málum og ættu að þekkja þau bezt. Að lokum skal á það minnst, að í tveimur bréfum, sem rituð voru landbúnaðarnefnd neðri deildar 29. apríl og 2. mai þessa árs um þetta mál, er nokkru nánar bent á ókosti einstakra ákvæða í frum varpi því, er Alþingi þá fjallaði um, og á margt af því einnig við hið nýja frumvarp. Um einstakar greinar frumvarpsins verður ekki rætt að þessu sinni fram yfir það, sem sagt er um frumvarpið í heild. Er það gert í því trausti, að frumv. verði ekki afgreitt.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.