Dagur - 18.04.1956, Side 12

Dagur - 18.04.1956, Side 12
12 Bagum Miðvikudaginn 18. apríl 1956 Slutt en góð reynzla þegar fengisi iarðfiósinu á Norðurlandi Tilraun gerð að Hofi í Arnarneshreppi Stuttu fyrir síðastliðin áramót, var fyrsta hjarðfjósið, er hyggt hefur verið á Norðurlandi, tekið í notkun. Var ]>að að Hofi í Arnarneshreppi. Eigendur eru bræðurnar Bjarni og Gunnlaugur Páhnasynir. — Hjarðfjósin eiga sér enga sögu hér á landi og eru alger nýjung. Er því fróðlegt að fylgj- ast með þessari fyrstu tilraun. KYRNAR ERU HREINAR OG FRJÁLSLEGAR. Hjarðfjós var byggt við eldra fjós og með það fyrir augum að það yrði 20 bása fjós, ef reynslan sýndi að básar hentuðu betur. Eru nú 20 gripir í fjósinu og virðast mega vera fleiri. Við lauslega athugun og heim- sókn í þetta nýja fjós var strax auðséð, að vel gengur að halda kúnum hreinum. Mykjan treðst vel niður á milli plankanna í gólf- inu og kýrnar eru frjálslegar og stirðna ekki upp vegna þess hve þaer hafa mikla hreyfingu. Þegar komið er með heyið á fóðurgang- inn, kemur hreyfing á hópinn, og allar vilja verða fyrstar, og ekki er laust við að ráðrikið geri vart við sig, eins og hjá kindum á garða. „MAN EG ÞAÐ EG MOKAÐI FLÓR.“ Fjósamaðurinn er alveg laus við að moka flórinn, og er það góður verksparnaður. Það er líka gott að vera laus við að setja upp dýrar milligerðir, klafabönd og brynn- ingardalla, eins og þurfa að vera í básafjósunum og vel þarf að vanda. I hjarðfjósum er nauðsynlegt að hafa sérstaka mjaltabása, þar sem kýrnar eru mjólkaðar. Þar á að vera svo hæg aðstaða að mjalta- maðurinn geti staðið nokkurn veg- inn uppréttur við mjaltastörfin, og sagt er að kýrnar raði sér upp og komi hver af annarri, og alltaf í sömu röð, i mjaltabásinn, þegar þær fara að venjast því. Að Hofi vantar þetta ennþá, og eru allar kýrnar mjólkaðar í gamla fjósinu, og þar er þeim einnig gefinn fóð- urbætirinn. Er því enn ekki hægt að gera sér þess fulla grein hver verksparnaðurinn kann að vera. GELDUR HÖFUÐPRÝÐI SINNAR. Margir óttast, að kúnum hætti til að stíga á spenana, hver á ann- arri. Reynslutíminn á Hofi er ekki langur, en ekkert óhapp hefur enn hent af þessu tagi. Kýrnar mjólka eins vel, að því I Framsóknarfólk! 1 Athygli Framsóknarmanna l l skal vakin á því, að skrifstofa j | flokksins verður framvegis op- \ I in allan daginn frá kl. 9—12 og j \ 1—7. Eru Framsóknarmenn úr i j bæ og sýslu eindregið hvattir j i til að hafa sem nánast samband 1 j við skrifstofuna. Síminn er j I 1443. er bændunum virðist, í nýja fjós- inu. En ekki hefur þótt ráðlegt að hafa þá einu homóttu kú, sem til var á bænum, í nýja fjósinu. Hef- ur hún goldið fyrir þessa höfuð- prýði sína með þvi að hírast ein í gamla fjósinu. KALDA LOFTIÐ EINANGRAR. Hjarðfjósið er fremur loftgott, og er þó ekki hátt undir loft. — Áburðarkjallinn þarf að vera vel þéttur og loftsúgur má ekki vera þar. Myndast þá kalt og kyrrstætt loft yfir áburðinum og varnar upp- gufun að miklu leyti. En á þennan hátt aðskilst ekki mykja og þvag og hefur það efalaust sina galla og ef til vill kosti líka. Grindurnar, sem kýrnar ganga á eru úr 5x3” og tveggja þumlunga bil á milli. Bændur hafa ekki enn fundið eða fengið þá fyrirmynd að fjós- um, er að öllu leyti líkar. Jafnvel mjög „vönduð“ og dýr fjós eru oft- ar en hitt meingölluð. Þess vegna munu hjarðfjósin verða til athug- unar fyrir þá er enn eiga eftir að byggja varanlega yfir nautpening sinn. Hjarðfjósið að Hofi, sem er það fyrsta sinnar tegundar á Norð- urlandi, ætti að geta gefið nokkra reynslu í þessu þýðingarmikla máli bændanna. Framsóknarvistinni lokið Lokið er nú hér á Akureyri þriggja kvölda spilakeppni, sem Framsóknarfélögin hér gengust fyrir. Síðasta umferð var spiluð síðastliðið laugardagskvöld, og að henni lokinni var tveim efstu dömunum og tveim efstu herrun- um veitt góð verðlaun. 1. verðlaun kvenna hlaut Lilja Sigurðardóttir og var það ávísun á dragt eða kápu, saumaða á SaumastofuGefj- unar. Önnur verðlaun kvenna var armbandsúr, og hlaut það Pála Björnsdóttir. Fyrstu verðlaun karla hlaut Friðrik Eriðriksson, og voru þau föt eða frakki, en önnur verðlaun var armbandsúr, sem Haraldur Oddsson hreppti. Þá gengust Framsóknarfélögin í Eyjafirði fyrir sams konar spila- kvöldum víðs vegar um héraðið, og eru úrslit þaðan nú kunn. Veitt eru fimm verðlaun, þeim sem hæstir hafa orðið yfir allt svæðið. 1. verðlaun, hrærivél, hlaut. Guð- rún Jónsdóttir, Hrísey, hafði 538 slagi samanlagt. 2. verðlaun var ryksuga og hlaut hana Helga Lax- dal, Svalbarðseyri, með 520 slagi. 3. verðlaun er ljósakróna, en hana hreppti Sigrún Guðbrandsdóttir, Svalbarðseyri, 516 slagi. 4. verð- laun er straujárn, sem Jórunn Hrólfsdóttir á Eyvindarstöðum í Saurbæjarhreppi hlaut, hafði 515 slagi, og fimmtu verðlaun, 12 manna kaffistell, hreppti Haukur Berg, Svalbarðseyri, með 514 slagi. Verða verðlaunagripir þessir sendir til ofangreindra eigenda næstu daga. Kýrnar eru að ljúka við gjöíina. jasi spara ■ !i Á aðalfundi Áburðarverksmiðj- unnar, sem haldinn var nýlega, skýrði formaður verksmiðjustjórn- ar, Vilhjálmur Þór, frá því að verksmiðjan hefði sparað þjóðinni 47 milljónir króna í gjaldeyri. Lagði formaður áherzlu á, að bætt yrði við verksmiðjuna, þann- ig, að einnig mætti framleiða fos- foráburð. Afköst hafa farið fram úr áætl- un og reksturinn gengið mjög vel. Nú starfa 82 menn við margvísleg störf við verksmiðjuna. En áætlað var að starfsm. þyrftu að vera 125. Á fyrsta raunverulega reksturs- árinu voru framleiddar 18340 smá lestir af Kjarna. Áburðarverðið var aðeins lægra en verðið hefði verið á sams konar áburði erlend- um. Endurbætur hafa verið gerð- ar á kornastærð áburðarins, svo að hann er auðveldari í notkun og geymist betur en áður. Ulfliildur Frá MjóSkursamíðgí K,Þ, Endanlegt verð til bænda kr. 2.46,5 Miðvikudaginn 11. þ. m. var að- voru 25 þús. lítrar af rjóma. Úr alfundur Mjólkursamlags Kaupfél. Þingeyinga haldinn i Húsavík. — Mættir voru á fundinum fulltrúar frá öllum mjólkurdeildum sam- lagsins, auk félagsstjórnar, kaupfé- lagsstjóra og mjólkursamlags- stjóra. Innvegin mjólk yfir árið varð 1.917.127 kg. og 20.225 kg. rjómi og reyndist mjólkurmagnið 13% aukning frá árinu áður. 15.8% af mjólkinni fór beint til neyzlu, úr hinu var unnið, nema hvað seldir Á fullskipuðum fundi í stjórn og fulltrúaráði Framsóknarfélag- anna á Akureyri, ,var eftirfarandi tillaga samþykkt með atkvæðum allra viðstaddra: „Fundur í Fullti’úaráði Fram- sóknarfélaganna á Akureyri, 12. apríl 1956, samþykkir, fyrir hönd Framsóknarflokksins á Akureyri, að ganga til samstarfsVið Alþýðu- flokkinn í væntalegum alþingis- kosningum á sumri komanda og vinna að fremsta megni að kosn- ingu frambjóðanda Alþýðufl. - Samþykkir fundurinn að kjósa 3ja manna nefnd til þess, ásamt jafn fjölmennri nefnd frá Alþýðu- flokknum, að leggja frumdrög að væntanlegu samstarfi flokkanna við kosningarnar." I nefndina voru kosnir eftirtald ir menn: Ásgrímur Stefánsson, forstjóri. Brynjólfur Sveinsson, mennta- skólakennari. Arnór Þorsteinsson, verksm.stj mjólkinni var unnið: 35 tonn mjólkurostur, 6 tonn mysuostur, 55 tonn smjör, 57 tonn skyr og auk þess töluvert af kasein. Endanlegt verð til bænda varð kr. 2.46,5 pr. ltr. I fundarlok var Haraldi Gísla- syni mjólkursamlagsstjóra þakkað fyrir ágætt starf á árinu, bæði af form. féiagsstjórna rog fulltrúum. Rakarastofa Valda Undanfarna daga hefur farið fram breyting á húsakynnum Rak arastofu Sigvalda og Birgis i Hafn- arstræti 105. Hefur stofan verið stækkuð nokkuð og máluð, innan- stokksmunir fengnir, smekklegir að gerð. Gólfrúm hefur aukizt mikið, og i alla staði er hin ný breytta rakarastofa hinum tveim ungu mönnum til sóma. Rakarameistararnir Sigvaldi Sig- urðsson og Birgir Sigurðsson hafa rekið rakarastofuna við Hafnar- stræti undanfarin 6 ár og notið vinsælda. sjónleikur Páls H. Jónssonar, hef- ur nú verið sýndur af Leikfélagi Akureyrar nokkrum sinnum og fengið góðar viðtökur leikhúss- gesta. Leikfélagið hefur undanfar- in ár reynt að þóknast bæjarbú- um með leikritavali til sýninga, þannig, að skiptzt hafa á gaman- leikir og leikrit alvarlegs efnis. — Einnig hefur félagið reynt að sýna íslenzk leikrit, að öðru jöfnu, en Ieikrit, sem þurfa mikils með í leiktjöldum, búningnum og þess háttar, eru að sjálfsögðu kostnað- arsöm í sviðsetningu og krefjast því meiri inntekta í aðgangseyri en þau leikrit, sem minna þarf að kosta til. Þar sem leikhúsið er leigt öðr- um fljótt upp úr næstu mánaða- mótum, þarf að hraða sýningum svo sem unnt er og svo, að þeim verði lokjð um mánaðamót. Það eru vinsamleg tilmæli Leikfélagsins, að þeir, sem ætla að sjá sjónleikinn Úlfhildi, geri það sem fyrst, svo að þeir missi ekki af því að sjá rammíslenzkan leik eftir norðlenzkan höfund. Upplýsinga- og aðgöngumiða- sími 1639 milli kl. 1 og 2 alla daga. Lúðrasveitin leikur á Ráðhús- torgi kl. 2 e. h. á sumardaginn fyrsta, ef veður leyfir. fíadmintonmót K. A. Fyrri hluti Badmintonmóts KA fór fram um sl. helgi. Úrslit urðu þessi: Jón Stefánsson—Haraldur Sigurðsson 11:2, 11:0, Kristján KriStjánsson—Haukur Leósson 11:2, 11:3, Jón Bjarnason— Gunnar Hjartarson 11:5, 11:5, Kristján Kristjánsson—Haraldur Sigurðsson 11 : 7, 10: 12, 12 : 10, Gunnar Hjartarson—Haukur Le- ósson 11 : 5, 11 : 1, Jón Stefáns- son—Jón Bjarnason 11 : 2, 11 : 2. Frarnhaid mótsins verður á sunnudaginn kemur.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.