Dagur - 12.09.1956, Blaðsíða 4
4
D A G U R
Miðvikudaginn 12. sept. 1956
DAGUR
Ritstjóri: ERLINGUR DAVÍÐSSON.
Afgreiðsla, auglýsingar, innbeimta:
Þorkell Bjömsson.
Skrifstofa í Hafnarstræti 90. — Sími 1166.
Árgangurinn kostar kr. 75.00.
Blaðið kemur út á miðvikudögum.
Gjalddagi er l. júlí.
PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F.
Skæruhernaður stjórnar-
andstöðunnar
ENGUM, SEM FYLGZT hefur með málflutn-
ingi Sjálfstæðisfl. undanfarna mánuði, dylst,
að veruleg breyting hefur orðið á vinnuaðferðúm
í þeim herbúðum. Um og eftir kosningarnar í
sumar var íslenzkum málefnum meiri gaumur
gefinn á erlendum vettvangi en áður hefur verið.
Stafaði það einkum af samþykkt Alþingis um
endurskoðun varnarsamningsins við Bandaríkin
frá 1951 og þeirri yfirlýsingu þingsins, að samn-
ingnum bæri að segja upp ef ekki semdist, svo
sem við höfum fulJan rétt til samkvæmt ákvæð-
um samningsins sjálfs. Var þessi afstaða okkar
túlkuð á ýmsan veg erlendis og oft af vanþekk-
ingu eða byggt á röngum og villandi upplýsing-
um, sem fengust héðan að heiman.
Starfsmenn Morgunblaðsins og Vísis sendu
erlendum stórblöðum hverja rosafréttina af
annarri um þessi mál. Var fréttum þessum
hagrætt og þær litaðar af flokkshagsmunum
Sjálfstæðisflokksins og þeim síðan slegið upp
hér heima sem áliti útlcndinga. Gekk svo
lengi og var málstaður Islands affluttur og
rangtúlkaður. Svo langt gekk þessi áróðurs-
herferð, að mönnum gat ekki dulizt um síðir,
hvað hér var að gerast. Ekki minnkaði
bægslagangurinn þegar myndun hinnar nýju
ríkisstjórnar tókst. Keyrði þá fyrst um þver-
bak. Svo virtist sem sigur yfir andstæðingun-
unum ætti að vinna í cinni lotu með skyndi-
áhlaupi. Nú er öllum ljóst orðið, að þessu
herbragði íhaldsins lyktaði eins og til þess
var stofnað, það mistókst með öllu. Þess
vegna er nú skipt um áróðursaðferðir.
MÁLSTAÐUR OG AFSTAÐA ÍSLANPS var
affluttur og rangtúlkaður í þeim tilgangi að spilla
fyrir sambúð landsins og Vesturveldanna. Einskis
hefðu þessir ötulu starfsmenn Sjálfstæðisflokksins
óskað fremur en að Vesturveldin gripu til hefnd-
arráðstafana gagnvart okkur. Þeir óskuðu bein-
línis eftir erlendri íhlutun um íslenzk málefni.
Þannig er þá komið afstöðu þess flokks, sem
kennir sig við sjálfstæði.
í hinni gagnmerku ræðu, sem forseti fslands,
herra Ásgeir Ásgeirsson, flutti við embættistöku
sína hinn 1. ágúst síðastliðinn, tók hann þessi mál
m. a. til umræðu og leiðrétti þær missagnir og
rangtúlkun, sem átt höfðu sér stað á erlendum
vettvangi. Er ekki að efa, að meira mark hefur
verið tekið á orðum hans en á röngum upplýsing-
um frá starfsmönnum Sjálfstæðisflokksins. Það
sem hann sagði var skoðað sem rödd þjóðarinnar
eins og eðlilegt var. Ber að fagna því að svo
skyldi til takast. Eftir það hefur erlendu rosa-
fréttunum um ísland fækkað og nú sjást þær
ekki lengur.
Athyglisverð er sú staðreynd, að starfs-
menn Morgunblaðsins og Vísis hafa ekki sent
fréttir af aðgerðum ríkisstjórnarinnar í efna-
hags- og dýrtíðarmálum til erlcndra stór-
blaða. Það hefur víst ekki þótt heppilegt til
framdráttar hagsmunum hinnar „hörðu stjóm
arandstöðu". I stað þess hefur styrjöld
fhaldsins nú snúist upp í
skæruhernað hér heima fyrir.
Nú er allt kapp lagt á það að
rægja saman bændur og verka
menn og þá gegn ríkisvaldinu.
ALLT KAPP hefur verið lagt
á það, af málgögnum Sjálfstæð-
isflokksins, að gera hinar nýju
ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í
dýrtíðarmálunum tortryggilegar
í augum launþega og bænda.
Ýmist er það staðhæft, að bænd-
ur stórtapi á þessum aðgerðum,
eða þá að verkamenn hafi verið
svjknir um réttlátar kjarabætur
sem þeim.bar samkvæmt saran-
ingum og þurfi auk þess að
greiða aukna skatta til þess að
starida- straum af niðurgreiðslum
landbúnaðarafurða, en bændur
sleppi skaðlausir. Annað veifið er
því syo haldið fram, að verið sé
að framkvæma tillögur Sjálf-
stæðisflokksins, sem þeir báru
fram í síðustu ríkisstjórn. Þannig
er tvísöngurinn iðkaður dag frá
degi. Sýnir þessi málflutningur
raunar betur en nokkuð annað,
að flokkurinn á sér engin stefnu-
mál, engin önnur en þau að
brjóta á bak aftur þá ríkisstjórn,
sem hefur tekið sér fyrir hendur
að bjarga efnahagsmálunum frá
algjöru hruni. Flestum er það því
ljóst, að stefna flokksins er ekki
miðuð við vilja fólksins, sem hef-
ur stutt hann til áhrifa, heldur af
gróaðhyggjumönnum höfuðborg-
arinnar, sem meta fjárhagslega
eiginhagsmuni ofar öllu. Áfram-
haldandi verðbólga er þeirra lifi-
brauð. Þeim er það lífsspursmál,
að Sjálfstæðisflokkurinn eflist til
áhrifa og valda, svo að þeir. verði
ekki truflaður ífjárplógsstarfsemi
sinni. Þeirra höfuðmarkmið er
því að sölsa völdin undir Sjálf-
stæðisflokkinn á ný, hvað svo
sem það annars kann að kosta
allan alrrienning og þjóðina í
heild. — Hinar áhrifaríku að-
gerðir hinnar nýju ríkisstjórriar
virðast hafa fjarlægt óskadraum
og höfuðmarkmið stjórnarand-
stöðunnar.
Frá Knattspyrnumóti Norðurlands
Húsvíkingar hafa nú heimsótt
Akureyrrnga til knattspyrnu-
keppni. Háðu þeir tvo kappleiki,
þ. e, við „KA“ og „Þór“. Lauk
léiknum við „KA“ með 5 mörk-
um gegn 0 „KA“ í vil, en leikn-
um við „Þór“ með 6 gegn 1
marki fyrir „Þór“. Ekki gefur
þessi markafjöldi rétta hugmynd
um gang leiksins, því að „Völs-
ungar“ i áttu oft góðan leik og
skemmtilegan; samleik og
ágengni með festu og góðri hugs-
un fyrir uppbyggingu. Voru
áhlaup þeirra allvel uppbyggð,
en enduðu oftast utan vítateigs
vegna auðsýnilegrar vöntunar á
æfðum „skyttum“ og hörkuvarn-
ar Akureyringa með markjöfur-
inn Einar Helgason efst á varn-
arlista.
Heildargeta „Völsunga" virt-
ist þó lítið minni en Akureyringa
í þessum tveim leikjum, en þeir
áttu hins vegar betri einstakl-
inga og fleiri; einstaklinga, sem
mörgum þeim, er vit hafa á,
finnst að mundu sóma sér vel og
skipa stöðu sína fullkomlega í
landsliðsflokki knattspyrnunnar.
Auðsætt var, að „Völsunga“
skorti marga hverja æfingu ,enda
er mér tjáð, að lítið hafi verið
hægt að æfa þar eystra undan-
farið utan síðastl. hálfan mánuð.
Valda því vitanlega atvinnu-
hættir leikmanna. En harðir
voru þeir af sér og úthald í leik
með bezta móti. — Mætti segja
mér að þeir yrðu brátt leikmenn
góðir og sigursælir með bættum
æfinga-möguleikum. — Mistæk-
ur fannst mér leik-dómarinn
vera og þá sérstaklega í fyrri
leiknum. Eftirtekt ábótavant og
stjórn leiksins þar af leiðandi í
molum. Eiga línuverðir vissulega
sinn þátt í því. — Seinni
leikinn dæmdi hann mikið betur
og lét oft allmjög að sér kveða.
Var sá leikur allharður á köflum
og tíðar vítaverðar aðgerðir
beggja liðanna, og þá sérstaklega
„Þórsmanna", sem hann tók
réttum tökum, að áliti margra
áhorfenda.
Sérstök ástæða hefði verið til
að hafa lækni á vellinum af hálfu
mótsstjórnarinnar, þar sem um
kappleik var að ræða. Það fór
líka svo, að 2 „Völsungar" urðu
að yfirgefa völlinn vegna
meiðsla, annar á höfði, en hinn á
öxl eða handlégg og virtust þau
meiðsl all-veruleg, (máske brot
á viðbeini eða öxlin gengið úr
liði)? En þeirri lagalegu eða a.
m. k. sjálfsögðu skyldu að hafa
lækni til öryggis og aðgerða á
hlotnum meiðslum leikmanna,
virðist mótstjórnin annað hvort
hafa hundsað eða gleymt, sem og
hiriu, að mæta sjálf á völlinn svo
virk, að hún kæmi hinum slös-
uðu til aðstoðar og flytti þá til
læknisaðgerða. Fyrir því urðu
Húsvíkingar sjálfir að sjá í eigin
bíl og eru það lítil meðmæli
mótstjórnar. Ef til vill er það við
tekin venja hér að hafa ekki
lækni viðstaddan á kappleikjum
og mun það ,ef svo er, nær eins-
dæmi, venja, sem vitanlega er
sjálfsagt að leggja niður. Meiðsli,
sem fyrir geta komið í knatt-
spyrnukappleikjum, eru þess
eðlis að læknishjálp, sem fyrsta
hjálp, getur hæglega gert út um
framtíðarheilbrigði hins slasaða
leikmanns.
Um gang leikjanna tveggja og
einstaka leikmenn ætla eg ekki
að ræða. Það munu aðrir gera,
sem þekkja leikreglur og leik-
menn betur en eg. Hins vegar
get eg sagt, að eg bjóst við mikið
betri leik Akureyringanna yfir-
leitt á þessu móti, en raun varð
á, vegna þess að eg var svo hepp-
inn að sjá hinn glæsilega leik
þeirra gegn úrvali knattspyrnu-
(Framhald á 7. síðu).
Heilsuverndarstöð Akureyrar
Fimmtudaginn 13. sept. 1956 hefur Heilsuverndar-
stöð Ákureyrar nýjan þátt í starfsemi sinni, sem er
eftirlits- og ráðleggingarstarfsemi fyrir barnshafandi
konur. Starfsmenn stöðvarinnar við þessa starfsemi
verða þau Bjarni Rafnar læknir og yfirljósmóðir fæð-
ingardeildar Fjórðungssjúkraluiss Akureyrar. Fyrst utn
sinn fer starfsemi þessi fram á fimmtudögum kl. 4—5
e. li. í santa húsnæði og Berklavarnirnar eru nú, og er
barnshafandi konum ráðlagt að snúa sér þangað til
athugunar eftir þrjá fyrstu mánuði meðgöngutímans.
Þar sem starfsemi þcssi getur komið að miklu gagni,
vonar-Heilsuvermiarstöðin að.sem flestar barnshafandi
konur notfæri sér hana. (Frá héraðslækni).
(Jr nágrenninu
í góðviðrinu sunnudagsmorguninn 9. þ. m. lagði
v.b. lijörgvin af stað frá Ilalvík til Ólafsfjarðar með
presta, safnaðarfuiltrúa og fleira lóik, en þar átti að
endurvígja kirkjuna og lialda hinn árlega héraðsfund
F.yjafjarðarprófastsdæmis að þessu sinni.
Núverandi Ólafsfjarðarkirkja er fyrsta kirkjan, sem
byggð hefur verið þar í þorpinu, og er hun orðin all-
gömul og var farin að láta allmjög á sjá. Áður var
sóknarkirkjan á Kvíabekk frammi í sveitinni. Stendur
gamla kirkjan þar enn að vísu, en er nú orðin ntjög
lirörleg að sögn. Kirkjunni í þorpinu var líka farin að
verða ærin þörf á endurbótum, þegar söfnuðurinn lióf
endurbætur þær, sem ýmist er lokið eða standa nú yfir.
Innan húss er þeim lokið, en eftir er að mála kirkjuna
að utan og rnáske eittlivað fleira. En þeim umbótum
verður víst senn lokið.
Kirkjan hefur fengið þessar umbætur innanhúss:
Veggir hafa verið einangraðir, á gólf sett svo kallað
„linotcl", söngloft stækkað og bætt og lýsingin endur-
bætt, ef ég veit rétt. Er kirkjan Taflýst, bæði nteð
„beinni" og „óbeinni" Iýsingu. Hún,er og iiituð frá
hitaveitu bæjarins. Kirkjan er hvítmáluð að mestu,
ltvelfingin er Ijósblá með mörgum gylltum stjörnum.
Er hún hið prýðilegasta guðshús eftir aðgjörðina og
söfnuðinum til sæmdar. Uppi ylir altarinu er stór lýs-
andi kross, gjörður úr plasti, að ég held, af'Jóni Þórð-
arsyni þaðan úr sveitinni, Dregur krossiun atliygli
trianna að sér, enda er hann kirkjuprýði, að áliti þess,
er þetta skrifar. Altarið er ljósum' prýtt og fögru klæði.
Auk þessa var kirkjan blónnim skreytt við þetta tæki-
færi.
Endurvígslan hófst ki. 14. Prestar gengu skrúðgöngu
í kirkju. Fremstir gengu prófasturinri og prestur stað-
aritis alskrýddir og svo viðstaddir prestar, tveir og tveir
saman, skrýddir rykkilínum. — Til vígslunnar mættu
fimm prestar pyrófaltsdæmisins, auk prófasts og sóknar-
prests staðarins, og einn prestur úr Suður-Þingeyjar-
prófastsdæmi (sr. Þorvarður í Laufási). Þjónustu íyrir
altari önnuðust prófastur, sóknarprestur staðarins og
Akureyrarprestarnir, en sóknarpresturinn, séra Ingólf-
ur Þorvaldsson prédikaði út af guðspjalli dagsins. —
Vígsluna framkvæmdi prófasturinn með aðstoð prest-
anna. Fór athöfnin mjög virðulega fram. Kirkjan var
fullskipuð og meira en það. Meðal kirkjugestanna voru
konur prestanna flestra. Söng annaðist kirkjukór Olafs-
fjarðar undir stjórn organleikarans, Guðm. Jóhanns-
sonar. Enn fremur söng Kristinn Þorstcinsson söngvari
frá Akureyri með kórnum liið fagra lag Ora pro nobis.
Var söngurinn hin mesta messuprýði.
Strax að lokirini vígsluguðsþjónustunni flutti pró-
fasturinn setningarræðu héraðsfundarins og að lienni
lokinni fór Vald. V. Snævarr með fjóra sálma frumorta
og þýdda. Var þá gengið úr kirkju í kaffiboð sóknar-
nefndar og bæjarins. Samsætinu stýrði bæjarstjóri As-
grímur Hartmannsson. Undir borðum voru fluttar
nokkrar ræður og sungið á milli.
El’tir samsætið var héraðsfundinum haldið áfram í
kirkjunni. Hclztu mál fundarins, auk lögmæltra mála,
voru þessi: Rafmagnsmál kirknanna, kirkjugarðarnir,
endurreisn biskupsstóls nyrðra og gamla kirkjan á Kvía-
bekk. í sambandi við síðasttalda málið lýsti Kristinn
Sigurðsson, formaður sóknarnefndarinnar, því yfir, að
liann myndi gefa kr. 10.000.00 til endurbóta á gömlu
Kvíabekkjarkirkjunni, ef hún fengizt viðurkennd af
kirkjustjórninni. — Tillögur í framangreindum málura
voru samþykktar, en þær liggja ekki fyrir liér.
Að héraðsfundi loknum neyttu aðkomnir fundar-
menn kvöldverðar hjá bæjarbúum, svo scm prestinum,
bæjarstjóranum, íækninum o. tl. Allir aðkomumenn
munu liafa átt liinum beztu móttökum að fagna, og
munu geyma minninguna um daginn og Olafsfirðinga
í þakklátum huga. — Góðviðrið hélzt óbreytt allan dag-
inn. — Má þess að lokum geta, að svo blíðlyndar voru
Ægisdætur þann daginn, að enginn varð sjóveikur á
leiðinni að og frá Dalvík. Voru þó margir óvanir sæ-
ferðum. En gott er, þegar slík ævintýri gjörast.
10. sept. 1956.
V. Sn.