Dagur - 14.11.1956, Blaðsíða 1

Dagur - 14.11.1956, Blaðsíða 1
XXXIX. árg. Akureyri, miðvikudaginn 14. nóvember 1956 59. tbl. Fylgist með því, sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. Dagur DAGUR kemur næst út laugardag- inn 17. nóvember. Framsóknarfélögin efna til spila kvölda í Eyjafirði Framsóknarfélögin í Eyjafirði hafa ákveðið að stofna til Fram- sóknarvistar á sem flestum stöð- um sýslunnar. Spilað verður þrisvar á hverjum stað, og eftir þessar þrjár umferðir verða veitt glæsileg verðlaun, þeim fimm sem heestir hafa orðið yfir alla sýsluna. Þó verður sú breyting á úthlutun verðlauna frá því í fyrra, að ekki fara nema ein þessara verðlauna í hvern hrepp. Enn eitt umferðaslys Á laugardaginn varð það slys að jeppi, staddur á hlaðinu á Fosshóli, rann aftur á bak og féll niður í árgljúfur Skjálfandaflóts, sunnan við brúna. Hafði bílstjór- inn brugðið sér frá, en farþegar tveir sátu eftir ,aldraður maður og 6 ára sveinn, sonur Páls H. Jónssonar kennara á Laugum. — Maðurinn komst út á síðustu stundu, en drengurinn ekki. — Steyptist bíllinn fram af klettun- um, 6—8 m. háum. Snerist hann í fallinu, en kom niður á hjólin. — Drengurinn höfuðkúpubrotnaði. Læknar frá Húsavík og Breiðu mýri komu fljótt á staðinn og gerðu að sárum til bráðabirgða, en sjúkrabíll, ásamt héraðslækni frá Akureyri ók austur og flutti sjúklinginn til Akureyrar. Ligg- ur hann í Fjórðungssjúkrahús- inu. Verðlaunin eru: Strauvél, ryk- suga, herraföt, dragt eða kápa, ljósakróna og 12 manna kaffistell. Undirbúningsnefndir á hverj- um stað munu síðar ákveða og auglýsa hvar og hvenær spilað verður. Áætlað er að keppni þessari verði lokið fyrir febrúar- lok. Á eftir spilunum verður dans- að, þar sem því verður við kom- ið. Fólki skal sérstaklega á bent, að það getur ekki komið til greina við verðlaunaúthlutun nema að hafa sótt allar þessar samkomur. Þó mega þeir, sem ekki geta mætt í eitt skipti, senda aðra, sem þá spila á nafni hins upphaflega þátttakanda. Er þess að vænta, að samkom- ur þessar verði fjölsóttar eins og síðastliðinn vetur, enda til góðra gripa að vinna. Eigum við að bíða? Hin ægilegu umferðaslys að undanförnu ættu að örfa til nýrra aðgerða í umferðamál- unum. Akureyringar eru enn- þá ekki búnir að reyna reglu- legt umferðaöngþveiti og hafa vonum framar kornist hjá slys um. Engu að síður er umferða- menningunni ábótavant og nauðsynlegt að bægja slysa liættunni frá dyrum, áður en lengra er farið. Daglega eru svo að segja all- ar umferðareglur brotnar á að- alumferðagötum af allra stétta fólki, akandi og gangandi. Slíkt hlýtur fyrr eða síðar að enda með válegum atburðum Eflaust tæki alinenningur því með þökkum, að hér yrði UM FERÐAVIKA, þar sem félög, skólar og einstaklingar aðstoð- uðu lögreglu í starfi. Umferða- vika, með ströngu eftirliti og leiðbeiningum, gæti haft hin ágætustu áhrif og e. t. v. fjar- lægt að mun þá geigvænlegu atburði, sem nú gerast tíðir og færast nær okkur með degi hverjum, ef sofið er á verðin- um. Tvær nýjar bækur eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, koma út fyrir jól Ný Ijóðabók, sem enn hefur ekki hlotið nafn og leikritið „Landið gleymda“ Ný bók eftir Davíð Stefánsson skáld er viðburður í bókmennt- um okkar. Nú eru í prentun tvær nýjar bækur hans: Ljóðabók, sem enn er ekki vitað heiti á. Er það áttimda ljóðabók höfundar, gef- in út hjá Helgafelli í Reykjavík, Eisenhower sigraði í forseta- kosningunum Slökkviliðið kallað út Á laugardagsnótt kviknaði í vélarrúmi Fjallfoss, er hann lá þá hér við Torfunefsbryggju. Hafði myndast skammhlaup í rafmagni viðkomandi upphitunar olíunnar. Tókst fljótt og vel að slökkva með kolsýru. Þó varð mikill hiti, svo að íkveikja varð annars stað- ar. Slökkviliðið beindi þá há- þrýstiúða að eldinum og kæfði hann þegar. Skemmdir urðu litl- ar. — Á laugardag var slökkvi- bíllinn aftur á ferðinni. Var eld- ur í skúr í Lækjargili. Hann var þegar slökktur og urðu skemmdir ekki teljandi. Þegar sýnt var, hver úrslit for- setakosninganna mundu verða í Bandaríkjunum, flutti Stevenson ávarp ,og því næst sendi hann orðsendingu til Eisenhowers for- seta, þar sem hann sagði m. a.: „Þér hafið ekki aðeins kosningarnar, heldur hefur am- eríska þjóðin einnig vottað yður fullkomið traust sitt. Eg sendi yður mínar innilegustu ham- ingjuóskir. í kvöld erum við hvorki demó- kratar né repúblikanar, heldur Ameríkanar. Við gerum okkur grein fyrir þeim alvarlegu vandamálum, sem bíða stjórnar yðar, og sem Ameríkanar tökum við öll höndum saman og óskum yður allra heilla í starfi yðar á ókomnum árum.“ i! Eisenhower forseti sendi um hæl eftirfarandi Stevensons: þakkarorð til „Eg er yður þakklátur fyrir góðar óskir í orðsendingu yðar. Stevcnson. Á þessum erfiðu og óvissu tím- um er það hvatning að fá full- vissu yðar um það, að eining rík- ir meðal þegna lands vors. Eg er yður sérstaklega þakk- látur fyrir loforð yðar um sam- vinnu þegar í stað og næstu fjög- ur ár.“ en prentuð í Prentverki Odds Björnssonar á Akureyri. Er hún rúmlega 170 síður og í henni ein- göngu ný kvæði, flest kveðin á síðastliðnu ári. Einnig er í prentun leikrit Da- víðs, áður óprentað, Landið gleymda, og kemur það einnig út fyrir jól. Er þetta leikrit hið fjórða í röðinni frá hendi höf- undar og landsmönnum að nokkru kunnugt. >|VIeð þessum tveim nýju bókum Davíðs Stefánssonar eru bækur lians alls orðnar 13 að tölu, þegar með er talinn Sólon Islandus, sem er í sérflokki. Verið er að leika Gullna hliðið í Stafangri í Noregi við mikla að- sókn og ágæta dóma. Það leikrit hefur áður verið sýnt í Osló og Björgvin. Norðmönnum fellur það mjög vel í geð og hafa sótt fast þær 100 sýningar, sem á því hafa verið þar í landi. Gulina hliijíið hcfur lílta verið flutt í útvarpi bæði í Noregi og Sví- þjóð, tvisvar sinnum á hvorum stað og er það óvanalegt. Leik- ritið hefur Iíka verið sýnt í Skot- Iandi ,Finnlandi og Kanada og vakið mikla eftirtekt. Samtals liefur Gullna hliðið verið sýnt 300 sinnum hér á landi og er- lendis. Höfundurinn samdi það hér á Akureyri fyrir 1940. Hinar nýju bækur þjóðskálds- ins verða hinum fjölmörgu aðdá- endum hans kærkomnar fyrir jólin og munu tæplega sökkva í því bókaflóði er nú fer í hönd næstu vikurnar. Stjórnmálanámskeið Ákveðið er að haldið verði hér á Akureyri, á vegur Fram- sóknarflokksins, stjórnmálanám- skeið fyrir unga menn. Er í ráði að það hefjist í næstu viku og verði lokið í byrjun desember. — Verða þar fluttir fyrirlestrar um ýmis þjóðmál og haldnar mál- fundaæfingar. Þá verða kenndar fundarreglur og fundarsköp. Þátttakendur geta látið skrá sig á skriístofu Framsóknarflokksins í Hafnarstræti 95, sími 1443. — Verða þar gefnar nánari upplýs- ingar um tilhögun námskeiðsins. „Loginn lielgi Leikfélag Akureyrar liefur frumsýningu á Loganum helga annað kvöld, fimmtudaginn 15. nóv. undir leikstjórn Guðmundar Gunnarssonar. Leikendur eru: Frú Jónína Þorsteinsdóttir, ungfrú Þórhalla Þorsteinsdóttir, ungfrú Brynhild- ur Steingrímsdóttir og ungfrú Anna Þrúður Þorkelsdóttir, Jó- hann Ogmundsson, Guðmundur Magnússon Gunnlaugur Björns- son og Jón Kristinsson. Leikurinn hefur verið æfður af kappi undanfarið, en tveir þættir síðari liluta leikritsins töfðust í póstsendingu mn hálfan mánuð og seinkaði frumsýningu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.