Dagur - 28.11.1956, Side 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 28. nóv. 1956
Pálmi Hannesson rektor
fæddur 3. jan. 1898 -
(Flutt „á Sal“ í Menntaskólan-
um á Akureyri að morgni hins
23. nóvember.)
Síðdegis í gær var hringt til
niín úr Menntaskólanum í
Reykjavík og mér sagt, að Pálmi
rektor væri látinn. Mig setti
hljóðan. Daginn áður um sama
leyti hafði Pálmi talað við mig í
síma. Datt mér þá ekki í hug, að
það yrði í síðasta sinn, að ég
heyrði rödd hans, þcssa hlýju og
fallegu rödd, sem var svo lík
honum sjálfum, ef svo má segja.
Pálmi rektor varð bráðkvadd-
ur í Menntaskólanum í Reykja-
vík. Hann féll á hólmi starfs og
skyldu. Þó að hann væri ekki
gamall, tæpra 59 ára, vissu allir,
að hann hafði ekki gengið lieill
til skógar undanfarin ár, og sjálf-
ur hefir hann eflaust verið við
því búinn að hlýða kalli dauðans
á hvaða stund sem var, cins og
hann hafði áður jafnan hlýtt kalli
lífsins.
Pálmi Hannesson varð rektor
Menntaskólans í Reykjavík 1929
og hafði því gegnt rektorsstarfi
rúm 27 ár eða lengur en nokkur
annar, að ég held. Má fullyrða,
að hann hafi slitið kröftum sín-
um, sem ekki voru litlir, fyrir
aldur fram í þjónustu þeirrar
gömlu og merku menntastofnun-
ar. Að vísu kom hann víðar við.
Hann var þingmaður um skeið,
sat í ýmsum nefndum og ráðum,
t. d. Menntamálaráði, og kom
margvíslega við menningarmál
þjóðarinnar. En Menntaskólinn
var liöfuðbólið. Það mun hann
hafa fundið æ betur, eftir því sem
lengra leið á ævi, og þar vildi
hann standa Iengst á verði, —
þangað til yfir lyki.
Pálmi Hannesson var fæddur
að Skíðastöðum í Skogafirði,
kominn af kjarnmiklum bænda-
ættum norðlenzkum og hafði
hlotið að erfðum mikla hæfileika.
Hann var karlmenni og glæsi-
menni, svo að af bar. Hann var
glaður í góðra vina hópi og betri
félagi varð ekki fundinn. Hann
var frábær kennari, skýr, lifandi
og skemmtilegur. Hann var
margfróður um náttúru landsins
- dáinn 22. nóv. 1956
og Iandshagi að fornu og nýju.
Hann unni landi og þóð. Hann
var góður sonur sinnar ís-
lenzku móður. Hann var
ágætlega máli farinn og tal-
aði og ritaði fegurri íslenzku og
hreinni en flestir aðrir. Hann var
listrænn og listelskur. Og að Iok-
um: hann var mannkostamaður.
Hann var drengur góður, hollur
og velviljaður, hlýr og tryggur,
svo að ekki brást.
Pálmi Hannesson var gamall
nemandi þessa skóla, gagnfræð-
ingur héðan 1915. Og hér hóf
hann kennaraferil sinn. Er hann
hafði lokið háskólaprófi í nátt-
úrufræðum, var hann kennari
liér Jjrjá vetur, 1926—29. Alla
stund síðan var hann einn holl-
asti og tryggasti vinur þessa
skóla, og breytti þar engu um, þó
að hann hefði tekið annan skóla í
fóstur. En hjarta Pálma Hannes-
sonar var stórt. Hann var göfug-
ur maður.
Til þakklætis fyrir vináttu
hans og drengskap og til virðing-
ar við merkt ævistarf hans og til
samúðar við syrgjandi ástvini og
starfsbróður vorn, Menntaskól-
ann í Reykjavík, verður kennsla
látin niður falla í skólanum í dag.
ÞÓRARINN BJÖRNSSON.
Molskinnsjakkar
°g
kuldaúlpur
fást í GRÁNU
Þórhalla Jónsdóttir
sjötug
Á sunnudaginn var átti Þórhalla
Jónsdóttir frá Brekknakoti, kona
Konráðs Vilhjálmssonar skálds og
fræðimanns hér í bæ, sjötugsafmæli.
Þórhalla er Þingeyingur og var
um langt árabil húsfreyja að Hafra-
læk í Aðaldal en hefur nú átt heima
hér á Akureyri um aldarfjórðungs-
skeið. Hefur heimili hennar hér
verið nánast eins konar Þingeyinga-
hótel, og að kunnugra sögn ekki
sérlega arðbært fyrirtæki á verald-
lega vísu, en þó mun luisfreyjan nú
eiga gildan sjé)ð þeirrar myntar,
sem ein fcllur aklrei í vcrði. Er
harla undarlegt, að það skyldi falla
í hlut Þórhöllu að eiga svo lengi
heima í húsi, sem kallað er „Norð-
urpóll", því að heimili hennar lief-
ur ætíð verið hlýlegt og bjart, og
hlý og glöð er lnin sjálf.
Dagur óskar henni innilega til
hamingju.
HURÐARSKRÁR og
HANDFÖNG
UNION, kromuð.
INNIHU RÐ ARSKRÁR
HANDFÖNG
HLIÐLOKUR, KRÓKAR
LAMIR, 3x31/9 tommu
HURÐAGORMAR
SMEKKLÁSAR og
LYKLAR
HENGILÁSAR
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Vörubifreið til sölu
Til sölu er lítið keyrð og
vel með farin Clievrolet
vörttbifreið, model ’46.
- Afgr. visar d.
Mænusóttarbólusetning
Til leiðbeiningar fyrir það
fólk, sem bólusetja lætur börn
sín á aldrinum 1—6 ára, í Skjald
börg, föstudaginn 30. nóv. og
laugardaginn 1. des., skal eftir-
farandi tekið fram:
Á föstudaginn mæti þau börn,
er hafa númer 1—50 kl. 10 f. h.
Númer 51—100 mæti kl. 10.30 f.
|h. Númer 101—150 mæti kl. 11
f. h. Nr. 151—200 kl. 11.30. Nr.
201—250 kl. 13. Nr. 251—300 kl.
13.30. Nr. 301—350 kl. 14. Nr.
351—400 kl. 14.30. Nr. 401—450
kl. 15. Nr. 451—500 kl. 15.30. Nr.
501—5L0 kl. 16. Nr. 551—600 kl.
16.30.
Á laugardaginn 1. des. mæti
fólk á sömu tímum eins og um
getur á föstudag 30. nóv., og
mætir þá fyrsti hópurinn nr. 601
—650 kl. 10 f. h., og 50 barna
hópur áframhaldandi númer á
hverjum hálftíma, eins og skráð
er á númerakort barnanna. Það
skal tekið fram að þau börn, sem
bólusett hafa verið gegn mænu-
sótt á heilsuverndarstöðinni eft-
ir 1. nóvember, mæti þar aftur til
annarrar bólusetningar mánuði
eftir að fyrsta bólusetning fór
fram.
Sjá nánar auglýsingu í blað-
inu. Héraðslæknir.
- Sumartíð . . .
(Framhald af 5. síðu.)
nýræktum. Nokkrir grasblettir
voru slegnir hér í bænum og
Gunnar bóndi á Reykjum í
Fnjóskadal sló túnblett með
dráttarvél 16. nóv. Var þar all-
vel sprottið.
Állir vegir voru snólausir fram
til síðustu helgar og jörð auð upp
á fjallabrúnir og alveg klakalaus
í byggð. Lítilsháttar snjóföl á
sunnudaginn og 2ja stiga frost,
minnti hógværlega á veturinn.
Kvenarmbandsúr
TAPAÐIST sl. sunnudags-
kvöld á samkomu á Sval-
barðsströnd. Skilvís finn-
andi geri aðvart í síma 1623
Akureyri.
Ottoman til sölu,
110 sm breiður.
Uppl. i sima 2027.
BLÚNDUR
MILLIVERK
KÖGUR
SILKIBÖND
SKÁBÖND
FLAUELSBÖND
HNAPPAR
TÖLUR
SMELLUR
KRÓKAPÖR
og margt fleira af
smávörum.
V ef naðar vör udeild.
Saumavél til sölu
Uppl. í síma 2148.
IBÚÐ
Stýrimann á togara vant-
ar litla íbúð frá 1. janúar
næstkomandi. — Upplýs-
ingar Jijá
Þórði V. Sveinssyni,
sími 1955.
Sjófatnaður
02
vinnufatnaður
fæstí GRÁNU
Skipagötu 7. - Sími 2393.
K A P U R
t. desemher gefum við W° afslátt af
öllum KÁPUM.
Hér sést á götu í Biúlapest rússneskur stríðsvagn, sem frelsisvinir
hafa tekið. Köstuðu Jieir að lionum „Molotovcocktail“, gerðu hann
úvirkan og stráfelldu J»á, sem í honum vöru. — Nafnið „Molotov-
cocktail“ varð til í frelsisíríði Finna, sem eyðilögðu marga rússneska
skriðdreka með honum, J». e. flösku fylltri með benzíni.
Enn fremur seljum við 1. og 3. desem- |
ber mikið af KÁPUM á krónur ;
9S5.0Ö og 1385.00 i
Gerið góð kaup! •