Dagur - 31.05.1957, Side 4

Dagur - 31.05.1957, Side 4
4 D A G U R Laugardaginn 31. maí 1957 DAGUR Ritstjóri: ERLINGUR DAVÍÐSSON 'Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta: Þorkell Björnsson. Skrifstofa í Hafnarstræti 90. — Sími 116a6. Árgangurinn kostar kr. 75.00. Blaðið kemur út á miðvikudögum. Galddagi er 1. júlí. „Það sást til lians“ SÍÐUSTU VIKURNAR kvað hafa verið allfjör- ugt á Alþingi. Mörg mál til umræðu, sem Sjálf- stæðisflokkurinn, — er lofaði „harðri stjórnarand- stöðu“ — óttast. Finnst nú Sjálfstæðisflokknum að vonum sem jörðin logi undir fótum sér. Svíður í iljar, tvístígur því og hoppar stundum — og gefur frá sér hljóð, sem suma furðar á. Bjarni Benediktsson er höfuðkappi flokksins. Hann er þjóðkunnur fyrir mikla ræðumanns- hæfileika, en ef málstaðurinn er slæmur gagnar orðfærnin ekki til réttlætingar. Eitt frumvarpið, sem lá fyrir þinginu, var um skatt af stóreignum. Allir vita að Sjálfstæðis- flokkufinn er viðkvæmastur fyrir slíkum skött- um. Bjarni gerði mikla hríð að frumvarpinu. Sagði að af því mundi leiða atvinnuleysi og „ves- öld“, — ef það yrði að lögum, — aukna dýrtíð og verkföll. Eysteinn Jónsson svaraði Bjarna með fyndni — og stálhörku. Segir pallagestur héðan að norðan, að mikil skemmtun hafi verið að hlýða á ræðu hans, enda mikið hlegið á áheyrendapöllunum. Höfðu menn sín á milli ýmsar getur uppi um það í hverju „vesöld“ hinna ríku, — milljónamær- inganna, sem eingöngu á að skattleggja, — myndi helzt lýsa sér. Eysteinn sýndi með ýmsum dæmum, hvernig Sjálfstæðisflokkurinn legði sig fram til þess að vinna skemmdarverk um þessar mundir. Þar á meðal grafa undan verðgildi peninganna í land: inu. Beitti allri flokkslegri orku sinni til þess að reyna að koma í veg fyrir að aðgerðir ríkisstjórn- arinnar og Alþingis í efnahagsmálunum gætu orð ið að liði. Bjarni Benediktsson skrifaði t. d. Sagði E. J., í Morgunblaðið nafnlausar hvatningar til verka- manna um að gera kaupskrúfur og verkföll og hampaði þar storkunaryrðum til þeirra verka- lýðsforingja, sem vildu viðhalda vinnufriði. En á Alþingi létist hann vera hinn þjóðhollasti maður á móti verkföllum. Hann minnti á strák, sem kastaði grjóti í glugga í myrkrinu, en hlypi frá og létist hvergi hafa nærri komið. En það þýðir ekkert fyrir hann að neita, sagði ræðumaðurinn. Menn vita hvað hann hefst að í myrkrinu. Það sást til hans. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN er með sinni neikvæði stjórnarandstöðu að vinna skemmdar- verk í þjóðfélaginu, þótt hann beri á móti því Hann mun líka gjalda þess. Honum þýðir ekkert að þræta fyrir og neita. Það sést til hans og gleymist ekki. Hinir almennu borgarar í landinu vita það mæta vel að hlutverk stjórnarsamstöðunnar er þýðing- armikið og því fylgir ábyrgð. Sjálfstæðisflokkur- inn hefur kastað frá sér ábyrgðartilfinningunni og lætur sér sæma að vinna skemmdarverk á við- sjálum og hættulegum tíma. Af þeim skemmdar verkum mun hann verða dæmdur að verðleikum. Eðli flokksins og innsti kjarni varð mjög augljós í umræðum um stóreignaskattinn. Þar var sem komið væri við opið sér er þeir ríku átti að borga. Síðastliðinn sunnudag boðaði sóknarpresturinn að Möðruvöll- um, séra Sigurður Stefánsson prófastur, til messu cg hófst hún kl. 2 e. h. Á fólkssíraumnum, sem lá að kirkjunni var auðsætt að eitthvað óvenjulegt stóð til, því að þarna kom fólk úr öðrum sóknum og meðal annarra all- margt Akureyringa. , Og allir vissu að þennan dag myndi fögur tónlist hljóma að stirndum himni kirkjunnar, en það sem olli eftir- væntingu kirkjugesta var eink- um sá boðskapur, að öll tónlist messunnar, þ. e. sálmalögin, for- spil og lokaþáttur hennar, væri samið og.leikið á orgelið af org- anista kirkjunnar, Jóhanni Ólafi Haraldssyni. Einnig söng organ- istinn sjálfur stólvers, einsöng með eigin undirleik. Prófastur flutti skörulega ræðu og að lokinni messu ávarpaði hann organistann og þakkaði honum sérstaklega fyrir þessa óvenjulegu og hugðnæmu tónlist og söngkórnum fyrir hans þátt í athöfninni. Taldi hann að það myndi vera einsdæmi hér á landi að öll lög við einu og sömu messu væru samin og flutt af organista kirkjunnar. Einnig þakkaði pró- fastur eldri organistanum, Jóni Kristjánssyni, Hjalteyri, er fyrir nokkrum árum hætti organista- starfi fyrir aldurs sakir. En í dag væri hann meðal söngmanna í kórnum og hefði fært kirkjunni að gjöf orgelstól góðan og vand- aðan grip, er hann fyrir hönd sóknarbarnanna tæki á móti með þakklæti. Þessi stund í kirkjunni var öll hin virðulegasta og með miklum hátíðablæ og innileik. Strax er Jóhann hafði í messu upphafi lokið forleik sínum, fannst mér sem hugur kirkju- gesta hefði samstilzt og opnast fyrir áhrifum æðri máttar, og er hann lék tónverk sitt í f-moll á hinni hljóðu og áhrifaríku bæn- arstund, náði loígjörð messunnar til innstu hjartaróta. Og þsgar síðustu tóna rorgelsins dvínuðu í lok tónverksins, er hann lék að messulokum, mun mörgum hafa fundizt sem augnablik frá upp- hafi hennar og var messan þó lengri en venjulega gerist. Menn undruðust einnig hve vel organ- istanum hafði tekizt að laða fram hrifnæman og fágaðan söng eftir aðeins tvær æfingar ,og er það ekki í fyrsta sinn, sem eg hef orðið þess var að Jóhann býr yfir sérstökum töframætti til áhrifa á þá, sem syngja undir stjórn hans. í sálmalögum Jóhanns kemur ekki fram nejnn þungi sterekra storma, né buldur brims við klettótta strönd, en þau eru hvert öðru fegurra, eins og Eyjafjörð- urinn, þar sem hann er fæddur og uppalinn við mjúkar línur blárra fjalla, og í hverju lagi opnast innsýn í nýjan vog og vík fjarðarins og um leið í þeim heimi trúar og vonar, sem við öll stefnum að. Það er auðfundið að lögin eru með miklum skyld- leikablæ hvert við annað, en allt- af eitthvað nýtt í hverju lagi, og þau minna öýll á þá fögru must- erisbyggingu, sem Eyjafjörðurinn r, baðaður í vorsins sól. Það er staðarlegt og fagurt að líta heim að Möðruvöllum í Hörgárdal, þegar farið er eftir veginum vestan Stórhæðar. Og margar minningar eru bundnar við þennan merka stað fyrr og síðar. Og í dag er enn mikil reisn yfir húsaskipan þar, en kirkjan setur lotningar- og virðuleikablæ á staðinn. — Þetta veglega tákn um hagleik og list byggingameistarans - Þorsteins Daníelssonar frá Skipalóni. í ræðu sinni óskaði prófastur að þessi sunnudagur mætti í hug um kirkjugesta verða minninga- ríkur í sögu staðarins. Og það er mér kunnugt um, eftir að hafa talað við ý"msa kirkjugesti, að prófasti mun verða að ósk sinni. Messan jók enn hróður hins gamla og góða sögustaðar fyrir tilstilli prófasts og hins fjölhæfa organista, enda þrungin af lotn- inga og tilbeiðslu fegurðar og trúartrausts. Kirkjiígestur. í kappleik milli tveggja danskra knattspyrnufélaga um daginn vann annað með 1—0, og er slíkt ekki í frásögur færandi, en er leikmennirnir, sem lægra hlut höfðu beöið, voru að klæða sig í búningsklefanum eftir leikinn, kallaði einn úr liðinu: „Nei, heyrið mig piltar! Við höfum leikið allan leikinn með 12 mönn um!“ Það var farið að telja, jú, það reyndist vera svo. Enginn hafði tekið eftir því, að þeir voru einum fleiri en þeir áttu að vera, og þoir komust heldur aldrei að þeirri niðurstöðu, hverjum þeirra hefði verið ofaukið! Forstjóri General Motors verk- smiðjanna, Harlow H. Curtise, fékk lækkun launa sinna á síð- asta ári, svo að nam 80300 doll- urum. Ekki er þó talið, að hann hafi soltið heilu hungri þess vegna, því að laun hans voru samt 696100 dollarar. Dönsku vikublöðin, Hjemmet og Familie-Journal, hafa í mörg ár keppt um það, hvort hefði stærra upplag. Um langt skeið hefur Familie-Journal haft for- ustuna, en nú.er Hjemmet komið fram úr. Það er gefið út í 303 þús. eint. á viku, en Familie- Journal í 297 þús. eintökum. — Talið er, að sögur eftir Ib Henrik Cavling, sem birtast í Hjemmet, eigi sinn þátt í umskiptuiium. Gagríræðingar frá Gagnfræðaskóla Ákureyrar 1957 Bóknámsdeild. 1. Aðalbjörg Rósa Jónsdóttir I. 7.91 2. Anna Lilly Daníelsdóttir I. 7.95 3. Anna María Jóhannsdóttir I. 7.52 4. Ásdís Elva Jónsdóttír I. 8.64 5! Ásta Einarsdóttir I. 7.73 6. Björg Ásdís Kristjánsdóttir I. 7.92 7. Elín Guðmundsdóttir III. 5.88 8. Gígja Hermannsdóttir II. 6.33 9. Guðjón Reynir Valtýsson I. 808 10. Guðmundur Frímannsson I. 728 11. Guðrún Sóley Sveinsdóttir I. 8.40 12. Halldóra S. Ágústsdóttir I. 8.15 13. Heiðdís J. Norðfjörð II. 6.60 14. Héðinn Baldvinsson II. 6.00 15. Hildur Bergþórsdóttir II. 6.22 16. Hildur M. Sigursteinsdóttir II. 6.92 17. Heiðar Orn Gíslason II. 6.13 18. Ingibjörg Hafliðadóttir II. 6.58 19. Ingólfur B. Hermannsson I. 7.54 20. Jónína Jónsdóttir II. 6.94 21. Klaus H. H. Scheel III. 5.79 22. Margrét Rögnvaldsdóttir I. 7.88 23. María Björk Eiðsdóttir II. 6.84 24. María Jóhannsdóttir I. 8.07 25. Sigurður Kr. Oddsson I. 7.89 26. Smári Þröstur Leiísson II. 6.65 27. Ævar Karl Ólafsson II. 6.87 V erknámsdeild. 1. Bryndís Þorvaldsdóttir II. 6.29 2. Davíð G. Jónsson II. 6.36 3. Elinborg J. Pálmadóttir II. 6.90 4. Erla Þ. Ingólfsdóttir II. 6.38 ■ 5. Guðmundur Rafn Pétui’sson I. 7.94 6. Guðrún Sigurjónsdóttir II. 6.00 7. Gunnlaugur M. Jónsson I. 7.33 8. Helen Þoi'kelsson II. 6.82 9. Hrafn Óskai'sson III. 5.90 10. Hreindís Guðmundsdóttir I. 7.70 11. Hörður Svei’risson II. 6.52 12. Jóhann Fi'iðþórsson II. 6.57 13. ísveig Ingibjörg Sigfúsdóttir II. 6.70 14. Karly Björg Karlsdóttir II. 6.02 15. Marta A. Þói'ðardóttir II. 6.63 16. Ólafur Larsen II. 6.96 17. Ólöf Hallbjörg Árnadóttir II. 6.66 18. Rúna Hrönn Kristjánsdóttir II. 7.01 19. Sigríður G. Toi’fadóttir I. 7.77 20. Sigríður Jóna Þorvaldsdóttir I. 8.18 21. Sigríður Þorvaldsdóttir III. 5.80 22. Sigurður Þ. Guðmundsson III. 5.35 23. Sigurjón E. Sigurgeirsson III. 5.60 24. Sonja Gunnarsdóttir II. 6.22 25. Sólborg Árnadóttir II. 6.42 26. Sólveig G. Snæland II. 6.53 27. Svanhvít A. Magnúsdóttir II. 6.09 28. Vébjörn Eggertsson III. 5.87 29. Völundur Heiðreksson II. 6.10 30. Þórey Jai’þrúður Jónsdóttir II. 6.43 31. Þyri Þorvaldsdóttir II. 7.14 32. Örn Óskarsson II. 6.32 Væotanlegt eftir næstu helgi GÓLFTEPPI .. ýmsar stærðir. ELDHÚSGLUGGA- TJALDAEFNI fjölbreytt úrval. KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA Vefnaðarvörudeild

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.