Dagur


Dagur - 31.05.1957, Qupperneq 5

Dagur - 31.05.1957, Qupperneq 5
Laiígardaginn 31. mai 1957 D A G U R 5 ÞÓRARINN BJÖRNSSON, skólameistari: Nýlega eru út komnar skóla- skýrslur Menntaskólans á Akur- eyri frá árunum 1948—1952. Auk u.pplýsinga um nemendur og skólastarf eru í riti þessu birtar nokkrar ræður skólameistara, sem ekki hafa áður komið á prentio Allar eru þær ágætar og hollur Jestur hverjum manni, og því fór blaðiS þess á leit við Þór- arinn skólameistara að hann leyfði því að birta kafla ur einni þeirra, skólaslitaræðu frá 1950, og leyfði hann það. Fer ræðu- kaflinn hér á eftir. ,.. .. í byrjun aldarinnar ríkti tiltöluleg bjartsýni. Þá bjartsýni má meoal annars lesa úr reistum burstum þessa virðulega húss, sem vér nú erum stödd í, en það er reist ó fyrstu árum aldarinnar (1904). Þá bjartsýni má sennilega að nokkru rekja til þess, að vér íslendingar vorum þá í þann veginn að öðiast aukin völd í sjálfra vcr málum. En aldan kom lengra að utan, utan úr löndum. Hinn vestræni heimur trúði á framfarir. Vísindin höfðu þá þeg- ar unnið ýmsa sigra, og menn þóttust vissir um, að fleiri mundu á eftir íara, sem ög varð. Margir ætluðu, að með tímanum myndi vísindunum takast að leysa hin torræðustu vandamál, jafnvel sjálfa ráðgátu tilverunnar. Eink- unnai’orð vísindanna var „deter- minismi“. Hann kenndi, að efnis- heimurinn allur væri háður ákveðnum lögmálum, þar sem oi’sakalögmálið var allsráðandi. Þegar þessi lögmál væru fundin, væri fenginn lykillinn að leynd- ai'dómum náttúrunnar og um leið vald yfir þeirri orku, sem hún hefði að geyma. Þannig gæfist kostur á að taka náttúruöflin í þjónustu mannkynsins. Oendan- legir möguleikar til friðsamlegra framfara virtust blasa við. Trúin á vísindin og getu þeirra var sá hoi-nsteinn, sem bjartsýnin var reist á. Og það var ekki aðeins, að menn héldu, að vísindin myndu ná tökum á hinni dauðu náttúru. Aðferðum vísindanna skyldi og beitt við sjálfan mannsandann, sálina í líkamanum. Hún átti einnig sín lögmál. Þær rúnir vai’ð að ráða með vísindalegum aðfei’ðum, tilraunum og rnæling- um. Sama gegndi og um þjóðfé- lögin. Þau áttu sín lögmál, hag- fx’æðileg og siðferðileg. Lögmálin varð að finna, og þá hlaut lausn vandamálanna einnig að finnast. Ollu skyldi að síðustu stjórnað með skynsemi og vísindalegum reikningum. Þá yrði trú og til- finningum ofaukið. Þannig munu ýmsir haía hugsað á fyrsta tug þessarar aldar, áður en fyrri heimsstyi-jöldin skall á. Vestræn nrenning leit fi-amtíðina björtum augum. Vísindin áttu að skapa þægindi og farsælla líf, létta éi’f- iði mannsins, bægja burt hungi’i, kulda og sjúkdómum,_ færa mann kyninu meira öryggi. En mai’gt fer öðru vísi en skammsýnir menn ætla. Vísindin hafa að vísu haldið áfram að uppgötva ný og ný sannindi, ná valdi á nýjum og nýjum öflum, auka margvísleg þægindi og vinna bug á fái’legustu pestum. En eru menn að sama skapi ham- ingjusamari en áður eða öryggis- kenndin meii’i? Munu ekki sumir telja, að sjaldan hafi ríkt meii-i óvissa og uggur í mannheimi en einmitt nú?1) Jafnvel efnisheim- ui'inn, sem menn töldu, að væri skoi’ðaður óhagganlegum lögmál- um, virðist á leið að gliðna sund- ur í höndum vísindamannanna sjálfra. Oi’sakalögmálið sjálft, sem verið hefir hornsteinn heims mj'ndai’innai’, lxefir beðið hnekki. Þið vitið, að í atóminu eru ör- smáar agnir, sem alltaf eru á fleygiferð. Hi-eyfing sumi-a þess- ara agna virðist frjáls og óháð lögum, eftir því sem mér er tjáð. Duttlungar einir eða hending eða dulinn fi’jáls vilji vii’ðist í’áða kasti þeirra. Hér vei’ður ekki allt séð fyrir né reiknað út. Hér þi’ýt- ur veldi orsakalögmálsins. Hefir mér jafnvel skilizt, að sumir hafi látið sér detta í hug, að það frelsi, sem þai’na hefir fundizt í innsta kjarna efnisins, kynni að eiga eitthvað skylt við það frelsi; frelsi til að velja og hafna, sem oss mennskum verum finnst, að búi í sjálfra vor bai’mi. Innsti kjarni tilverunnar væi’i frjáls. Orsakalögmálið næði aðeins til skux-nsins. Efnið sjálft er ekki lengur efni, líkt og það var áður skilið, heldur oí’ka, hreyfing, bundin hið yti’a, en fi’jáls hið innra. Að baki öllu byggi hinn óháði máttui’. Og um mannsandann er það svo, að þar sem menn höfðu von- að að finna skynsamleg lögmál, verður það nú Ijósai-a, að rökvís hugsun nær einkum til efsta borðsins. Undir niðri í hugar- djúpum þruma villtar hvatir, sem erfiðlega vei’ður komið lög- um yfir. Eins og nú er komið með öll þau sannindi, sem vísindin hafa leitt í dagsljósið, og alla þá ox-ku, sem þau hafa leyst úr læðingi, vitum vér ef til vill síður en nokkru sinni áður, hvar vér stöndum, efnislega og andlega. Þið vitið, að hálfmenntuðum mönnum hættir til að miklast af þekkingu sinni og ætla sér lærð- ari en þeir eru. Mér vii’ðist, að í byrjun aldai’innar hafi vísindin vei’ið ískyggilega nærri þessu stigi hálfmenntunar. Nú er lengra komið. Ymsir vísindamenn virð- ast hafa öðlazt auðmýkt hinnar 1) Þetta er sagt ,þegar horfur í heimsmálum voru einna ískyggilegastai’. sönnu þekkingar. Þeir viður- kenna vanmátt mannlegrar rök- hyggju frammi fyrir innsta kjai-na tilverunnar. Þeir gerast dultrúarmenn, viðurkenna hinn óræða mátt alheimsins, hvei’ju nafni sem þeir kunna að nefna hann, hvort þeir kalla hann guð eða eitthvað annað. Trúin á al- mætti vísindanna er bi’ostin. Vís- indin geta aðeins verið þjónn. En þjónn hvei’s? Hér vandast málio, og ég ætla mér ekki þá dul á þessum fáu mínútum að svai-a þeiri’i spui’n- ingu. En ég' held, að fleirum og fleirum sé að skiljast, að við- fangsefnin, sem bíða úrlausnar, eru ekki fyi’st og fremst vísinda- legs eðlis, heldur mann’legs eðlis, siðferðilegs eðlis, jafnvel trúar- legs eðlis. Vísindin, sem eru lög- málsbundin, ná ekki til þess, sem í eðli sínu er frjálst. Þess vegna vei’ður vandi hins frjálsa manns aldrei leystur endanlega, aldi’ei með stæi’ðfræðilegri nákvæmni. Kver einstaklingur verður að leysa vandann daglega, við hvert fótmál, svo að segja. í þessu er fólginn mikilleiki mannsins. Þess vegna er hvei’jum einstaklingi, sem vill heita maður, fengið það veglega hlutverk, að bera ábyi’gð á sjálfum sér. Hvernig sem heim- urinn veliist, þó að þið áx’ið 2000 verðið farin að bregða ykkur til annai’ra hnatta í sumai'leyfinu, eða hvaða undur önnur sem kunna að gerast í mannheimi, vei’ður aldrei af ykkur létt vand- anum að lifa. Þær stefnur og þau ríki, sem kunna að láta sér detta í hug að taka af mönnum þann vanda, gei’a manninn minni og eru fyrr eða síðar dauðadæmd, af því að þau vinna gegn eðli lífsins. Vandinn er og vex’ður um fram allt einstaklingsins.... “ Heimreiðin Sveitabæir, þeir sem metnað hafa, snyrta heimreiðina. Akur- eyrai’kaupstaður á marga fagra staði þegar komið er inn í bæinn. En gleymzt hefur að snyi’ta heimreiðina. Vegfax-endum að nox-ðan heilsa ruslahaugai-nir í Gleráx’þoi’pi. Þeim sem velja loftleiðina, heils- ar firna mikill ruslahaugur á krossgötunum vestan flugvallar- ins, þar sem ekið er í bæinn frá flugstöðinni. Sjóleiðin ein getur forðað bænum frá þeirri minnk- un, sem óþi’ifnaðurinn að sunnan og nox’ðan veldur. En með því að hér var ekki ætlunin að mæla með einu farar- tæki öðru fremur og líklegt er að bifreiðir og flugvélar verði not- aðar eitthvað fyi’st, á svipaðan hátt og verið hefur, væri athug- andi hvort bærinn treystist ekki til atlögu við nefndan ófögnuð og það heldur fyrr en seinna. í tímaritinu „The Norse- man“, sem gcfið er út í Bret- landi og einkum fjallar um málefní Norðurlanda og skipti þeirra við Bretland, birtist sl. vetur athyglisverð grein eftir brezkan mann, Llewllyn Chan- tei’. Færir höfundur rök að því, áð litlu hafi munað, að Bretar hafi tekið yfiráðin yíir Islandi af Dönum. Áhrifamikill Breti vann að því öllum árum og gekk til velvild til íslend- inga, sem liarm hélt að myndu eiga betri ævi undir brezkri stjórn en danskri. Brezkur aðalsmaður, Sir Jo- seph Banks, náttúruskoðari og landkönnuðui’,. hafði verið félagi og samferðamaður hins heims- fræga landkönnuðar James Cook, er hann fann ýmis lönd á suðurhveli jarðar og aflaði mik- illar þekkingar á þessum hluta heims, svo sem frægt er orðið. Cokk fór sína fyrstu ferð suður þangað 1768, en er hann undir- bjó næstu fei’ð sína á svipaðar slóðii’, urðu þeir ósáttir Banks og hann. Sir Jaseph fór því ekki með Cook, heldur venti sínu kvæði í kross og fór rannsóknar- för til íslands. Þetta var 1772. Með Banks fóru í íslandsleið- angurinn sænskur grasafræðing- ur, ungur læknir og 3 myndlist- armenn, sem máluðu og teikn- uðu mikið í ferðinni. Það er skemmst frá því að segja, að ferð Sir Joseph Banks hingað og dvöl hans hér á landi vai’ð til þess, að hann fékk mik- inn velvildai’hug til lands og þjóðar, hann reyndist íslending- um hinn mesti haukur í hox’ni seinna á ævinni ,eins og alkunna er af sögunni, en hitt er síður kunnugt, að hann barðist fyrir því eindi’egið, að Bretar tækju ísland af Dönum, því að honum þótti sem þá rnundi fyrst í’ofa til hér á laixdi, er fslendingar væru lausir úr böndum einokunarinn- ar og hefðu fengið milda, brezka stjói'n yfir sig. Er þetta mál var mest á döfinni, áttu Danir í stríði við Bi’eta, svo að jai’ðvegurinn var góður til slíkrar sáningar, en ekkert spratt upp af sæðinu. Hefur það reynzt örlagaríkt fyr- ir oss íslendinga. Þó telur gi’ein- ai’höfundur, að brezk stjórnar- völd hafi verið komin á fremsta hlunn með að taka ísland oftar en einu sinni, og eitt sinn hafi það vei’ið ráðið, en í það sinn hrökklaðist forsætisráðherran frá völdum áður en af þessu vax’ð. Sauðburður erlendis. í norsku blaði var nýskeð sagt fi-á á, er bar 6 lömbum, og lifðu öll lömb- in. Einnig var þar sagt frá sex- fættu lambi og öðru þrí-fættu, og lifðu bæði! Til er bréf, sem Sir Joseph Banks í’itaði Magnúsi Stephen- sen 1801, en hann var þá mesti valdamaður hér á landi'. Er hann þar harðoi’ður í garð Dana og býr Magnús undir hertöku landsins, ef íslendingar ákveði ekki sjálf- ir í skyndi að gerast brezkir þegnar. Talið er fullvíst, að bréf þetta hafi verið skrifað með fulli’i vitund og að undii’lagi brezku ríkisstjórnarinnar. En bréf þetta var aldrei sent, því að rétt um það leyti lét foi’sætisráðherrann, William Pitt yngi’i, af völdum, eins og áður er sagt, og þá var hætt við allt saman. Árin 1807 og 1808 mun ekki hafa munað miklu að Bretar létu verða af sinni fyrri ætlun um ís- land, en einhverx-a hluta vegna varð aldrei úr framkvæmdum. — Banks hélt málinu vakandi. í einu bréfi sínu til brezks ráð- herra leggur hann eindregið til, að Bretar gefi íslendingum kost á því að gerast brezkir þegnar til þess að forðast allar blóðsúthell- ingai’. Hefur hann auðsýnilega vei’ið viss um, að hollusta ís- lendinga við Danakonung mundi ekki vei’a svo mikil, að fyi’ii’staða væri í, heldur myndi fólkið fagna því að komast undan dánskri stjói-n. Hælir hann íslendingum í bréfinu, segir að þeir séu „trú- aðir, siðugir, heiðarlegir og hraustir." Hann bætir því við, að dansleikir og aðrar skemmtanir séu óþekktir meðal íslendinga og þeim stökkvi' aldrei bros. En Bretar hikuðu enn og ekkert vai’ð af töku íslands, ekki einu sinni þegar Jörundur hundadaga konungur hafði sýnt þeim, hve létt vei’k það var, en reyndar mun ekki hafa munað miklu í það sinn, að Bretar tækju ís- land. Það er dálítið gaman að gei’a sér í hugai’lund, hver oi’ðið hefðu örlög lands okkar og þjóðar, ef Bi’etar hefðu tekið landið af Dönum, þó að slíkar tilgátur og hugsanir séu auðvitað vita gagns lausai’. Líklegt þykir mér, að verzlunarmálin hefðu færzt í betra horf fyrir íslendinga og velmegun vaxið hér á landi fyrr en ella, en hætt er við, að Bretar hefðu reist hér strandvirki, sem enn stæðu, og vafalaust hefðu fiskimenn þeii’i’a notað sér að- stöðuna hér miklu fi’emur en Danir og ekki er líklegt, að leið- in út úr brezka heimsveldinu hefði orðið okkur jafngreiðfær og út úr danska í’íkinu. Að öllu samanlögðu þui’fum við íslendingar ekki að harma, hvernig fór. Ur því að við þurf- um að vera undir annari’a stjórn um aldabil, þá höfum við líklega verið lánsamir, að það voru Dan- ir en ekki Bretar eða Norðmenn, sem við þurftum að sækja sjálf- stæði okkar í hendurnar á að lokum. Ö. S.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.