Dagur


Dagur - 03.07.1957, Qupperneq 2

Dagur - 03.07.1957, Qupperneq 2
2 DAGUR Miðvikudaginn 3. júlí 1957 I Herðubreiðarlindir að Jónsmessu Þar sem allt er villt að irátturunnar eðli og skaparans geðþótta Það er ekið austur á bóginn úr Reykjahlíð í harðsnúinni Vípon- bifreið, sem herinn á Vellinum hefur átt, í samfloti við jeppa, og stefnt í áttina að Lindunum við Herðubreið. Eg hafði svo ótal oft séð leirhverina í Námaskarði og landið þar í kring, sem kunningi minn, Bretinn, hafði sagt, að minnti sig á Sýrland, að eg nennti tæplega að gjóa augunum út um gluggann, og þá minntist eg amerísku hermannanna af Keflavík, sem verið höfðu í or- lofi í fyrra-sumar og eg hafði túlkað fyrir í fex-ðinni þangað: Þeir höfðu ganað með rolleiflex- myndavélar sínar beint inn á hættusvæðið til þess að Ijós- mynda þetta kynjafyrirbæri eins og hernaðarleyndarmál óvinar- ins, rússneska úranium-námu eða eitthvað þvíumlíkt. Farþegar í Víponum sitja langs- um í vagninum, sitt til hvorr- ar handar, fjórir og fjórir, snú- andi bökum í bílrúðurnar; einn er frammi í hjá eklinum. Af þeim sökum veitist örðugt að horfa á landið nema að vinda sig og teygja í hálsliðunum, svo að auga nemi sýn af umhverfi út um framgluggann. En þetta hefur flestum þegar veitzt tóm til að sætta sig við, síðan lagt var af stað frá Akureyri. Það er sterkjuhiti óg sólin smýgur inn um hvern skjá og hverja smugu á bifreiðinni, en ferskur andvari af öræfunum berst inn um gal- opinn stafngluggann. Það hefur verið ekið greiðlega vegarspöl- inn að Jökulsá á Fjöllum, þar sem vegvísirinn bendir í suður fram með fljótinu og telur fjöru- tíu og níu kílómetra inn í Lind- irnar. Og nú knýr ekillinn enn ferðina yfir sanda og hraunflæmi, á meðan drottning öræfanna, Herðubreið, rís í sinni hátign, sveipuð hillingum, stök og stór- snúðug og lokkandi eins og þess- ari lafði íslenzkra fjalla samir. Liðið er að náttmálum, og nú er aðeins níu kílómetra spotti á áfangastað um torfarið hraun og þaðan yfir Lindá og enn yfir hraun. Nóttin fer að síga yfir Ódáðahraun, og tjaldað er á grösugum lækjarbakka í jökul- svölu háfjallaloftinu. Á meðan færist lognmjúkur hljóðleikur um andrúmsloftið og magnar sál- ina til kyrrlátrar hrifni eins og snerting við eilífðina. Þetta er kvöldið fyrir Jónsmessu, tjaldið er steinsnar frá skúta Fjalla-Ey- vindar, og niðurinn í litla fossin- urú í læknum berst okkur til eyrna. Og Herðubreið .... þar gnæfir hún og brosir til okkar, þar sem við lútum að fótskör hennar eins og meistarans, svo nærri, að leikur einn virðist að krækja í sólroðinn faldinn með hendinni út um tjaldopið. Snemma urn morgxuimn reik- um við að kofa Eyvindar og minnumst hans, þegar við horf- um niður í þrönga gjótuna og lítum þaðan til byggða og hugs- um um veturna hans og vega- léngdina til mannanna. Síðan stefnum við í áttina að Herðu- breið og göngum fram með svanavötnum, þar sem álftahjón sigldu með unga sína, þar sem fjallagolan þaut í sefinu við bakkana, og kjarrið og mosinn og hvönnin spruttu í lundunum og ilmuðu. Og svo tók hraunið við, endalaust hraun á alla vegu í ótrúlegri margbreytni. Við rætur fjallsins er vatn, sem hefur þorn- að að nokkru og sigið. Þar í skorþuiini sáum við hófspor.... greinilega strokuhests — skag- firzks gæðings vitnaðist síðar — sem hafði auðsæilega hlaupið tryllingur í, því að förin voru óvanalega djúp. Maður lifði þar aftur söguna eftir Þorgils Gjall- anda um Stjörnu. Hún hefur að líkindum gerzt á sömu slóðum. Við klífum nokkra faðma upp fjallið og hvílumst í mó- 'bergsslakka. Við horfum yfir ödáðáhráunið og til fjallanna úti við sjóndeildarhringinn. Að lifa þá stund var eins og að berast langt aftur í aldir, burt frá fánýti og nýjum siðum. Hér var upp- raunaleikinn, sem ríkjum réð, móðir nóttúra, sem veitir tilver- unni inntak og fylling. Á leiðinni til baka fann eg hraunflögu, sem eg bar eins og hvítvoðung heimleiðis. Það eru ýmsar fallegar myndir á hraun- grjótinu mínu. Nú hangir það á vegg heima hjá mér eins og afguð hússins, minning um pílagrímsför að Jónsmessu inn í Iierðubreið- arlindir. Það er búizt til brottferðar að nóni hallanda í sól og veðurblíðu. Skömmu áður borða eg góðan bita af hvannanjóla, sem fjalla- garpur á áttræðisaldri flysjar kunnáttusamlega fyrir mig með vasakutanum sínum. — Hvönnin er bezt um þetta leyti, segir garpurinn, áður en knappur- inn nær að springa og stöng- ullinn að tréna. — Mér finnst hvönnin bragðast eins sætlega og góðaldin, keimur hennar minnir á millibragð næpu og agúrku, og þess vegna fæ eg mér tvær til viðþófar,.sem hors d’ æuvre, áð- ur eg neyti flatkökunnar og hangikjötsins. Áður en stigið er upp í Vípon- inn, sem virðist bíða hlakkandi, fagnandi eftir vegleysunum á bakaleiðunum eins og stríðshest- ur fyrir orrustu, seytlar vinar- þelið frá þessum sælunnar reit inn í hugskot allra. Á leiðinni til Akureyrar er myndin í huganum ljóslifandi allan tímann, mynd af þessu hljóða veldi íslenzkra ör- æfa, þar sem drottning fjallanna er alltaf jafn-fögur, þar sem hraunið flytur mann aftur í aldir, þar sem allt er villt að náttúr- unnar eðli og skaparans geðþótta, þar sem hvönnin, mosinn, kjarrið anga í lundunum, þar sem fjalla- golan þýtur í sefinu við bakkana og álftir synda alls óáreittar á vötnunum, þangað sem stroku- hestur flýr með sorgina og heim- þrána og Fjalla-Eyvindur leitaði friðar fyrir mönnum. Akureyri, 28. júní 1957. Steingrímur Sigurðsson. Ljósmynd: Höfundurinn. Grænlandsmálið þolir enga bið segir dr. JÓN DÚASON í stuttu viðtali við blaðið Dr. Jón Dúason var nýlega hér á ferðinni, og greip blaðið tækifærið og ræddi við hann um stund. Ekki þarf að kynna hann lands- inönnum með mörgum orðum, svo þekktur vísindamaður er hann. Fæddiir er hann í Fljótum árið 1888 og af gagnmerkum bændaætt- um kominn, og meðal annars af Hvassafellsætt í Eyjafirði. Hann stundáði nám við Gagn- fræðaskólann á Akureyri frá 1907— 1909. Stúdentsprófi lauk hann árið 1913, og við framhaldsnám lagði hann stund á þjóðfélagsvísindi við Hafnarháskóla, með bankávísindi óg peningamál áð sérgrein. Hann varð doktor í liigum við Óslóarliá- skóla árið 1928. Frá barnsaldri luicigðist hugur Jóns mjög að Grænlandsmálum, og þeim hefur liann helgað krafta sína meira en nokkur annar maður fyrr eða síðar. Dr. Jón Dúason hefur skrifað óhemjumikið í formi bóka, bæk- linga, ritgerða og blaðagreina urn áratugi um rýttarstöðu Grænlands í fornöld og fornhelgan rétt íslend- inga á Grænlandi. Af tveim fræg- ustu bæklingum hans má nefna: „Die koloniale Stellung Grönlands" (= Nýlendustaða Grænlands), sem þjóðaréttarstofnun háskólans í Göt- tingen gaf út 1954, og ritgerðina „Die neueste Gestaltung der Grön- landsfrage" í ‘ „Europa-Archiv", að- altímariti Þjóðverja um utanríkis- mál, 1955, sérprentuð. Ennfremur hefur hann tvær stór- ar bækur í undirbúningi: Land- könnun og landnám íslendinga i Vesturheimi, og Réttarstaða Græn- lands, nýlendu íslands. Hefur hann unnið að því undanfarin ái, að búa bækur þessar undir prentun. Urn livad' fjalla þessar bcekur?, I þessum ritum er dregin saman saga og réttur íslcndinga til Græn- lands, svarar dr. Jón, og hinn aldr- aði maður geislar af áhuga, er hann í fáum og skýrum drátlum rekur söguna. En hvað iim dýrrnœta mtílma á Greenlandi? Fræðimannleg málmleit er enn ekki byrjuð á Grænlandi. Þó er vit- að um lieil fjöll og eyjar úr marm- ara við Umanakílóann. Sunnaji við þennan flóa eru mikif aúðæfi í jörðu. Þar cru kol og járn og jarð- fög mcð stéinólíu e'ru' 'einnig norð- vestast í landinu. Mikið ög ágætt asbest er víða, og hefur verið unnið bæði syðst í Eystribyggð og norðan Umanakhéraðs. Koparnámur hafa ög verið starfræktar á tveimur stöð- um í Eystribyggð. llvar cru krýolilnárnurnar? Þær cru nyrzt í Eystribyggð, og hafa gefið, í dönskum pcningum reiknað, um 20 milljónir króna á ári. Þar í grennd hafa fundizt aðrir málmar, segir dr. Jón Dúason enn- fremur. Séra ívar Bárðarson, sem var um 20 ára bif ráðsmaður í Görðum (1341 — 1360), segir í Græn- landslýsingu sinni, að gnéitt af silí- urmálmi sé í Grænlandi. 1 gamalli Eskimóahústóft og í bergsprungu rétt hjá Júlíönuvon liefur fundizt (úm 1850) heilmikið af óbræddum, hreinum silfurkristöllúm! — Þetta hljóta Eskimóar að hafa fundið ekki mjög fjarri, og lilýtur silfur- náman að vera auðfundin, strax og vísindalegar málmleitaraðferðir cru viðhafðar. Öll Eystribyggð er sund- urklofin af berggöngum, og þarna standá vónir til að auðugar námur finnist. Er það rétt, að cinnig hafi fund- izt auðugar úraniumnámur? Já, fundizt liafa úraníumnámur, og mun vera í ráði eða ákveðið,' að Niels Bohr, hinn frægi danski kjarn orkuvísindamaður, fari í sumar til Grænlands til að kanna þau svæði, sem úraníum og thóríum hefur fundizt á. — Mun skipsfarmur af grjóti lrá þessum slóðum verða fluttur þaðan til frekari rannsókna. Þessar námur eru við Skógarfjörð, sem liggur inn í Eiríksljörð. Skóg- arfjörður mun áður hafa heitið Langeyjarsund. Ekkert hcfur heyrzt urn gullœði í Greenlandi? Fyrrverandi forstjóri fyrir Græn- landi hélt fyrirlestur í Landfræðifé- laginu danska í febrúar 1947. Fyrir- lcslurinn var síðan gefinn út með viðbót frá hcndi höfundár. — Þar segir liann m. a. um þetta atriði, að ástæða sé fyrir því, að Grænland ha.fi verið lokað land til þessa. A- stæðan sé sú, að menn liafi búizt við því, að í Grænlandi fyndust dýrmætir málmar. Alls konar trant- aralýður myndi þá flykkjast inn í landið, ef frjálst væri, svo að stjórn- in réði ekki við neitt. Þessi ótti hafi heldur ekki vérið áslléðulaus, því að enn megi blVast'við‘úrikfum tíð-' indum á þessu sviði'. Téík hánn sem dæmi, að í Austur-Grænlandi væri. mikið af gulli, serii í engu væ'ri lak- ara en það, scm brotið cr í Alaska. En néi hcfur' aðstáðan til nýtingar slórlega batnað, bæði með tilkomu k jarnorkuvísindanna og einnig með auknum I lugsamgiriigum. Er landið þá hvergi narrri rann- sakað? Því fcr fjan i._segú. dr. JÓri Dúa- son. Auðugustu námusvæðin eru eflaust þau, scm í fornökl voru kölluð Grærrlandsóbyggðir, norðan 70. gráðu norðurbreiddar. Eftir 2 —3 ár munu Danir búnir að rann- saka landið svo, - að hin eiginléga leit að málmum geti hafizt. Og Jiað verður að sjálfsiigðu gert mcð flug- vélum, með aðstoð málmleitartækja. — An nokkurra málmleitartækja cr vitað um zink, blý og molybdén og fleiri málma. Fræðimaðurinn segir enn fremur, að til Grænlands sé ekki nema dæg- urs sigling frá Kolbeinsey. Hann bendir cinnig á hina geysimiklu fiskigengd, sem sé hin mesta, er þekkist í heiminu'm. Þessi auðæfi hafsins bíði íslenzkra sjómannáj en þau séu nú nytjuð af öðrum. Ilvað er þýðingarmest nú i Gram- landsmálinu? Grænland, auðæfi þess og réttur íslendinga til landsins er slíkt stórmál, að enginn má skella við því skollaeyrum. Málið þolir enga bið. Annars eigum við á hættu að svo verði litið á, að við liöfum geíið Grænland upp og höfum með aðgerðarleysi afsalað okkur fullum rétti til Jiess. — Slíkt væri ósegjan- leg svívirðing og óbætanlegt tjón og óalmáanleg smán, scgir dr. Jón Dúason að loktim. Blaðið þakkar lionum fyrir við- talið og lætur fylgja mynd af hon- um, scm tekin var á skrifstofu þess við þetta tækif'æri.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.