Dagur - 13.12.1957, Page 5
Föstudaginn 13. desember 1957
D A G U R
5
Magnús H. Gíslason, Frostastöðum:
Unglingafræðsfa Qlaís Thors
SYNNÖVE G. DAHL:
Drengurinn og
hafmærin
Mcð teikningum eftir Arne
Johnson. — Sigurður Gunn-
arss. skólastj. í Húasvík þýddi.
Bókaforlag Odds Björnssonar.
Akureyri 1957.
Það er meiri vandi en margur
hyggur að óreyndu, að semja
barnabækur, og ekki sízt þó æv-
intýri, sem börnum geðjast að og
skilja eitthvað gott eftir í sálum
þeirra. — Eg, sem skrifa þessi
fáu orð, hef lítið sem ekkert lesið
eftir höf. þessarar bókar, sem hér
skal vakin athygli á, — norsku
skáldkonun aSynnöve G. Dahl,
en hins vegar hef séð hennar lof-
samlega getið í norskum blöðum.
Eg hygg, að hún eigi þann vitn-
isburð skilið, að hún kunni þá
list að skrifa fyrir börn, enda tel
eg, að þessi bók hennar sýni það
ogs anni. Auk þess sem öll ævin-
týrin í bókinni eru skemmtilega
sögð, hafa þau þann góða kost,
að vera tilvalinn texti fyrir for-
cldra og kcnnara að samtali við
börnin um ýmis mikilsverð atr-
iði, svo sem samúðina með dýr
unum, móðurgleðina og góðvild-
ina. Sannarlega getur ævintýrið
um „froskinn óánægða“ gefið
börnunum margt að hugsa um.
Eins gæti ævintýrið um „Rauð-
brystinginn og gauksungami“
orðið grundv.llur fyrir gagnlegar
hugleiðingar, ef vel væri á hald-
ið. Eg tel vel farið, að bók þessi
skuli nú véra komin út á ís-
lenzku. Hún á erjndi til íslenzkra
barna á vissum aldri. Þýðingin
virðist hafa heppnast vel, enda er
nafn Sigurðar skólastjóra full
trygging fyrir góðu efnisvali og
vönduðu máli við barna hæfi. í
íslenzka búningnum, ekki síður
en í hinum norska, eru þessi æv-
intýri líkleg til að örva, glæða og
fegra ímyndunarafl ungra barna,
en það er þýðingarmeira en
margur hyggur. Eg mæli hið
bczta með bókinni.
Eins og jafnan á sér stað um
bækur frá Bókaforlagi og Prent-
verki Odds Björnssonar er allur
frágangur bókarinnar hinn prýði
legasti. Letrið skýrt og fallegt, —
og aðgengilegt jafnvel fyrir börn,
sem ekki eru orðin fullkomlega
læs. V. Sn.
SKRUDDA
RAGNARS ÁSGEIRSSONAR
ráðunauts.
Útgcfandi cr Búnaðarfél. íslands.
Skrudda. Bókarnafnið er ekki
fallegt. En að óreyndu vekur
þessi bók þó nokkra forvitni
vegna höfundarins, Ragnars Ás-
geirssonar. En hann er lands-
kunnur maður, sem þarf ekki að
kynna fyrir lesendum. Stein-
grímur Steinþórsson búnaðar-
málastjóri ritar formála og segir
þar meðal annars um höfundinn,
að hann hafi starfað meira en
aldarþriðjung hjá Búnaðarféalgi
íslands og sé elzti starfsmaður
félagsins. Hafi hann löngum
safnað þjóðlegum fróðleik á
ferðum sínum og sé þessi bók
hans safn þjóðlegra fræða í
bundnu og óbundnu máli.
f formála segir höfundur svo:
„Það var eitt vetrarkvöld fyrir
um 10 árum, að eg var á ferða-
lagi á Norðurlandi með þeim fé-
lögum mínum, hjá Búnaðarfélagi
íslands, Halldóri Pálssyni, Pálma
Einarssyni og Sveini Tryggva-
syni, og auk þeirra var Jón H.
Þorbergssin bóndi á Laxamýri
með í förinni. Við komum síðla
dags að Fosshóli og nutum gest-
risni Sigurðar bónda. Eftir kvlöd
matinn fórum við að segja sögur,
sem við höfðum heyrt eða lifað
sjálfir. Eg hugsaði mér að eg
skyldi sem fyrst gera góða blaða-
grein úr þessum sögum. En hún
varð aldrei skrifuð.“ En síðar tók
Ragnar að skrá sögur og sagnir
og færði í bók eina gamla, sem
gekk undir nafninu Skrudda á
heimili hans og var það heiti lát-
ið haldast.
Efnið er úr öllum landshlutum
og er skipt niður samkvæmt því
og kennir margra grasa. Er ekki
að orðlengja það, að hér eru
römmustu draugasögur, fyrir-
burðasögur, frásagnir af skips-
töpum, mannskaðaveðrum og
ýmsa slæðinga í sambandi við
válega atburði. Ennfremur marg-
víslegur kveðskapui' og væri
ekki rétt með farið, að segja hann
allan fagran. Enda jafnan ástæð-
ur til samkvæmt skýringunum
eða tildrögum, Sagt er frá nokkr-
um forspáum mönnum og draum
spökum. Bókin er fremur forn-
eskjúleg að efni og mögnuð
nokkuð, en þó skemmtileg af-
lestrar og fróðleg um margt.
MANNAMÁL
eftir
ÞÓRARIN GRÍMSSON
VÍKING.
Bókaútgáfan Norðri gaf út.
í þessari nýju bók, Mannamál,
eru skráðar minningar höfund-
ar, Þórarins Gr. Víkings, af eldri
viðburðum, og eru margar þeirra
hinar merkilegustu og vel ritað-
ar. Eflaust verður þátturinn um
Sólrúnu minnisstæðastur, bæði
vegna hinna skelfilegu atburða
og einnig vegna þess, að þar
kemur einn kunnasti maður
landsins, Einar Benediktsson
skáld, við sögu. Samkvæmt sög-
unni átti Sólrún þessi að verða
þunguð af völdum bróður síns.
En þau þekktust ekki fyrr en
bæði voru komin á þroskaár. Ó1
hún svo barnið og var sökuð um
að hafa fyrirfarið því. Einar
Benediktsson, sem þá var aðstoð-
armaður föður síns við sýslu-
mannsstörf á Héðinshöfða á Tjör
nesi, fékkst við málið, og yfir-
heyrði systkinin. Neitaði konan,
en pilturinn játaði. Þá fyrirfór
hún sér og lá ekki kyrr. Einar
Bencdiktsson var myrkfælinn
svo að af bar og mun hann hafa
trúað að Sólrún fylgdi sér fast
eftir. Losnaði hann aldrei við
kvalaóp hennar úr huga sér.
Höfundurinn fer mjúkum
höndum um sakborningana og
lætur látlausa frásögn geigvæn-
legra atburða draga upp skýra
mynd frá liðnum dögum, sem
ekki er lengra að baki en einn
mannsaldur eða svo.
Ferðaþátturinn Aldamót, er
skemmtilegur ferðaþáttur og
mjög vel ritaður. Sólskinsdagar í
svcit er líka á ýmsan hátt góður
kafli og sérstaklega um trúlofun-
ina.
Öll er þessi bók mjög læsileg
og í henni margur fróðleikur um
þjóðlega hluti. Hún er spennandi
aflestrar og höfundi til sóma. —
Manna mál er prentað í Prent-
smiðjunni Eddu h.f., Reykjavík.
NÝ BÖK EFTIR HÖFUND
ÆVINTÝRABÓKANNA:
Fimm á Fagurey
Það mun valda hinum mörgu
lesendum Ævintýrabókanna
nokkurri hryggð, að ekki er von
fleiri bóka í þeim flokki, þar eð
hin síðasta þeirra, Ævintýra-
fljótið, er nú komin út á íslenzku.
En nokkur harmabót má það
vera, að hafin er útgáfa á nýjum
flokki bóka handa börnum og
unglingum eftir Enid Blyton,
höfund Ævintýrabókanna. Fjalla
þær um félagana fimni, fjögur
börn og hundinn Tomma. Fyrsta
bókin er nýkomin út og nefnist
Fimm á Fagurey. Prýdd er hún
þrjátiu ágætum myndum, og sag-
an sjálf er engu síður spennandi
og skemmtileg en Ævintýrabæk-
urnar. Þarf ekki að efa, að þessi
nýi bókaflokkur muni erfa vin-
sældir Ævintýrabókanna. —
Þýðandi er Kristmundur Bjarna-
son, en Iðunn gefur út.
Nýjasta Ævintýrabókin:
Ævintýrafljótið
Út er komin áttunda og síðasta
bókin af hinum vinsælu Ævin-
týrabókum, sem öll börn og
unglingar þekkja. Nefnist hún
Ævintýrafljótið og er skreytt
miklum fjölda ágætra mynda
eins og fyrri bækurnar. Og
ósvikinn skemmtilestur er hún
ekki síður en hinar, ævintýraleg
og spennandi. — Höfundur þess-
ara bóka, Enid Blyton, mun vera
víðlesnasti höfundur barna- og
unglingabóka, sem nú er uppi,
því að bækur hennar koma út í
óvenjulega stórum upplögum á
nálega tuttugu tungumálum. —
Frú Sigríður Thorlacius hefur
þýtt allar Ævintýrabækurnar, en
Draupnisútgáfan gefið þær út.
(Framhald.)
Á Alþingi 1932 fluttu þingm.
Framsóknarflokksins frv. til laga
um samvinnubyggðir. Áður voru
ígildi gömul lög um nýbýli,
gagnslaus og úrelt. Frv. sofnaði í
nefnd, en á aukaþingi 1933 flutti
Eysteinn Jónss. þingsályktunar-
tillögu um að skora á ríkisstjórn-
ina að undirbúa löggjöf um ný-
býli og samvinnubyggðir og var
hún samþ. Eftir kosníngár 1934
gekkst Hermann Jónasson fyrir
samningu frv. og varð það að
lögum. Á árinu 1940 var fyrir at-
beina Framsóknarfl. undjrbúín
löggjöf um aukna aðstoð ríkisins
í nýbýlamálum. Var frv. samþ.
1941 og nefndist lög um landnám
ríkisins.
Á velmektardögum nýsköpun-
arstjórnarinnar var flutt til. um
breytingu á lögunum um Bygg-
ingar- og landnámssjóð. Helztu
ákvæðin voru að lána mætti allt
að 75% af kostnaðarverði húsa.
Vextir og afborganir séu ekki yf-
ir 2%% á ári í 42 ár. Voru áður
5%. Nýbýlasjóður verði samein-
aður Bygg,- og landnámssjóði. —
Ekki hlutu þessar umbætui' náð
fyrir augum ráðamannanna.
Á því heri'ans ári 1957 eru svo
ung-„bændur“ íhaldsins fluttir
suður til Rvíkur til þess að hlusta
þar á Olaf Thors lýsa forgöngu
íhaldsins um aðstoð við landnám,
nýbyggðir og endurbyggingar í
sveitum. Hvað hafa þessir vesal-
ings menn til saka unnið, að þeir
skyldu þurfa að hlusta á þess
konar þvætting?
VI.
Eins og kunnugt er, fór svo
um flest hagsmunamál bænda,
sem Framsóknarfl. barðist fyrir
á „nýsköpunarárunum", að þau
voru ýmist felld eða svæfð. Eitt
var þó barið í gegn: Frv. um
Ræktunar- og húsagerðarsamþ. í
sveitum. Á „bændaráðstefnunni“
þakkar Olafur íhaldinu það. Ekki
skeikar karli.
Fjárskiptalögin eru auðvitað
engum einum flokki að þakka.
Þótt einhver ágreiningur hafi
verið um einstök framkvæmda-
atriði í sambandi við fjárskiptin,
var hann á engan hátt pólitískur.
Og ekki veit eg betur en að það
hafi fyrst og fremst hvílt á Fram-
sóknarfl. að útvega nauðsynlegt
fjármagn til þess að standa undir
framkvæmd fjárskiptalaganna.
VII.
Og svo eru það rafurmagns-
málin. Hvað skyldu nú sveitirn-
ar eiga íhaldinu að þakka í þeim
efnum, Árið 1939 bar Jónas Jóns-
son fram frv. um rafveitur ríkis-
ins. Var málið borið fram af
þingnefnd árið áður, en hlaut
ekki afgreiðslu, og heldur ekki í
þetta skipti. Á framhaldsþinginu
um haustið ber svo Skúli Guð-
mundsson fram frv. um rafveitu-
lánasjóð. Andmæli komu strax
frá þremur Sjálfstæðism. Sig.
Kristjánsson bar fram rökstudda
dagskrá um frávísun málsins og
fékk það ekki jákvæða af-
greiðslu. Á þingi 1940 endur-
fluttu 5 Framsóknarm. frv. Fjár-
hagsn. klofnaði um málið. Minni-
hlutinn var á móti, en í honura
var m. a. Jón á Akri. Fóru svo
leikar að frv. var svæft gegn at-
kv. Framsóknarm. og Péturs
Ottesen. Eftir að nefndarálit um
frv. Framsóknarm. kom fram,
báru nokkrir þingm. Sjálfstæðis-
flokksins fram frv. um raforku-
veitusjóð. Fjárhagsn. E. d. skilaði
ekki áliti, og þar með var sá
draumur búinn. Þegar í þing-
byrjun 1941 fluttu Framsóknarm.
enn frv. um rafveitulánasjóðinn.
Þegar á eftir kom P. Ottesen með
frv. um raforkuveitusjóðinn. —
Framsóknarm. gengu á lagið,
hugðust kanna hvað djúpt stæði
áhugi íhaldsins og mæltu með
fi'v. Péturs, þótt seinna væri fram
boi-ið. Nú þótti íhaldinu syi'ta í
álinn, og til þess að bjarga því
sem bjai'gað vai'ð sáu þeir svo
um, að þeirra maður í fjárhagsn.
E. d. skilaði ekki nefndai'áliti. —
Þannig var málinu komið fyrir í
það sinn. Á þingi 1942 fluttu 5
þm. Framsóknai'fl. ásamt Pétri
Ottesen, fi'V. um í'aforkusjsóð. Æ
ofan í æ var gengið eftir svörum
fi'á Sjálfstæðism. við því, hveiTa
breytinga þeir óskuðu á frv. til
þess að vilja ljá því fylgi, en svo
liðu vikur, að ekki heyi'ðist hósti
né stuna úr þéirri átt. Seint og
um síðir var þó frv. þvælt til E.
d., en þar var það kistulagt sem
fyrr. Á sumarþinginu 1942 flutti
Fi'amsóknarfl. svo till. til þings-
ályktunar um rafurmagnsmálin.
og segir þar m. a.: Alþingi álykt-
ar að kjósa 5 manna nefnd, er
geri till. um fjáröflun til þess að
byggja rafveitur í því skyni, að
koma nægilegi'i raforku til ljósa,
suðu, hitunar og iðnrekstui's um
allai' byggðir landsins, á sem
skemmstum tíma, enda verði raf-
oi'kan ekki seld hærra verði í
dreifbýli en í stærstu kaupstöð-
um á hverjum tíma. Þetta þoldu
Sjálfstæðism. ekki og báru nú
fram frv. um raforkusjóð, að
miklu leyti samhljóða því, sem
þeir létu svæfa í E. d. á nætsa
þingi á undan. Kosningar voru á
næsta leyti. Framsóknarm. not-
uðu sér kosningaótta íhaldsins,
lögðu til að frv. yrði samþ., með
gagngerðum breytingum þó, og
það varð. Barátta íhaldsins gegn
því, að raforkan yi'ði seld á sama
vei-ði í þéttbýli og dreifbýli er
svo kapítuli út af fyrir sig og
ekki álitsfagur.
(Framhald.)
Ný skipasmíðastöð
í Danmörku
Danski skipaeigandinn A. P.
Möller er nú að láta í'eisa gcysi-
mikla skipasmíðastöð við Odens-
fjörð, og á hún að verða fullbúin
árið 1959. Þá á að vera hægt að
smíða skip allt að 100 þús. smá-
lestir að stærð.