Dagur - 12.11.1958, Side 5

Dagur - 12.11.1958, Side 5
Miðvikudaginn 12. nóv. 1958 D A G U R 5 Frumsýning Leikfélags Akureyrar Gasljós, eftir Patrick Hamilton í jiýðingu Ingu Laxness. - Leikstjóri Guðmundur Gunnarsson Á föstudagskvöldið frumsýndi Leikfélag Akureyrar sakamála- sjónleikinn Gasljós eftir enska höfundinn Patrick Hamilton. — Þessu fyrsta verkefni Leikfélags- ins á þessu leikári var ágætlega tekið og það þakkað með lófataki og blómum í ieikslok. Leiklistin er verulegur þáttur í menningar- og skemmtanalífi bæjarins, og því nokkurs um vert hversu til tekst hverju sinni. Jafnan orkar tvímælis um val við fangsefna og vill þá svo fara, að sitt sýnist hverjum og mörg sjón- armið koma til greina. Leikhús- gestir eru vandfýsnir og eiga að vera það, en smekkur þeirra og almennt viðhorf til leikhúsmála er svo gjörólíkur að sjaldan eða aldrei verður öllum gert til hæf- is. Reynsla fyrirfarandi ára sýn- ir, að gamanleikirnir gefa meira í aðra hönd. Þorri fólks vill fyrst og fremst fara í leikhús til að hiæja og skemmta sér og á það sinn þátt í því, hve oft er gripið til gamanleikanna, bæði hér og annars staðar. Gasljós er þó enginn gaman- leikur. Hann fjallar um sakamál og er það nýjung hér. Húsbónd- inn á því heimili, þar sem leik- urinn er látinn fara fram, er hreint enginn öðlingsmaður. — Hann sker gamla kerlingu á háls, þó ekki fyrir augum áhorfenda, konu sína er hann að kyrkja, þegar að cr komið, fjölkvænis- maður er hann og þjófur. Um glæpi hans snýzt leikurinn, og er hann í senn spennandi frá upphafi til enda og hrollvekjandi á köflum. Leikstjórn Guðmundar Gunn- arssonar fór honum mæta vel úr hendi, hraðinn eðlilegur og bláþræðir ekki teljandi. Leik- sviðið betra en oftast áður og hin nýju leiksviðsljós, sem nú voru notuð í fyrsta sinn, eru mjög til bóta, þótt ekki sé búið að ná því samræmi milli þeirra og leikar- anna, sem síðar mun verða. Og enn munu vanta sterk hliðarljós. Guðmundur leikur auk þess eitt aðalhlutverkið, Rough leynilög- regluþjón. Gerfi hans er mjög gott, leikur hans frjálsmannlegur og skemmtilegur. Guðmundur hefur oft gert vel, en sjaldan betur.. í stöku stað mætti hann tala skýrar. Að tala hátt og tala skýrt er sitt hvað. Frú Björg Baldvinsdóttir leik- ur húsmóðurina og konu glæpa- mannsins. Það hlutverk er mjög erfitt. En hún nær þeim tökum á því, sem beztu leikurum einum er fært. Þó kann að orka tví- mælis, hvernig hún kveður bónda sinn. Jóhann Ögmundsson leikur glæpamanninn, Manningham. — Líklega er hann á rangri hillu í slíjj.u hlutverki. Þó gerir hann þ\d góð og jafnvel ágæt skil á köflum. Freyja Antonsdóttir leikur eldabusku og ráðskonu að nafni Elisabet. Sagt er, að engin hlut- verk séu svo lítil, að þau séu ekki þess virði að leggja rækt við þau. Þetta mun rétt vera og undir- strikar hin margreynda leikkona einmitt þetta sjónarmið með því að taka að sér þetta litla, og að því er virðist, vandræðahlutverk. Með því lyftir hún leiknum. Elín Guðmundsdóttir er eini nýliðinn að þessu sinni og leikur hún Nancy, þjónustustúlku. Þar hefur leikstjórinn syndgað og ekki veitt henni nægilega athygli og tilsögn. Elín kemur vel fyrir á leiksviðinu og sýnist ætla að fara sigurför. En henni bregzt boga- listin þegar kemur að nánum samskiptum við húsbóndann og kemst ekki yfir þann þröskuld að láta sína cigin persónu víkja fyr- ir léttúðar- og frekjudósinni Nancy. Ný leiksviðsljós hafa verið sett upp í Samkomuhúsinu, undir Landssíminn var aðeins tveggja ára þegar Páll Bjarnason sím- virki á Akureyri fæddist og eru þeir því nálega jafngamlir. Mikl- ar fæðingarhríðar fylgdu Lands- símanum og þær voru á lands- vísu og því ærið stórbrotnar. — Tæplega voru þær um garð gengnar þegar sveinn sá fæddist á Kambsstöðum í Ljóstavatns- hreppi, 10. nóvember 1908, sem síðan er á Akureyri meira kenndur við símann en flestir menn aðrir og þeirra vinsælast- ur. Þessi maður er Páll Bjarna- son. Nú er þróun símans svo á veg komin, að flest heimili landsins hafa hann til afnota. En hann getur bilað eins og önnur mann- anna verk og þá gerist það und- arlega, að allt ætlar af göflunum að ganga, rétt eins og síminn hefði verið líftaug kynstofnsins á liðnum öldum. Og þegar sam- (Framhald af 8. síðu.) flokkinn „Frauen, liebe und Le- ben“ eftir Schumann, sjö spænsk þjóðlög eftir de Falla, einnig mun hún syngja nokkur gömul ítölsk lög og loks lög eftir fjögur ís- lenzk tónskáld. Fritz Weisshapp- el verður við hljóðfærið. Guðrún Tómasdóttir hélt söng- skemmtun í Reykjavík í haust og sögðu tónlistargagnrýnendur blaðanna þar m. a. um söng hennar: ..... Söngurinn kemur frá hjartanu og túlkunin er vönduð cg fáguð, enda er söngkonan músikölsk, eins og hún á kyn til, og er auk þess ágætlega menntuð og framkoman öll hin geðfelld- asta. Alls þessa gætir í list Guð- rúnar. — Með Guðrúnu Tómas- Frcyja Antonsdóttir og Guð- mundur Gunnarsson. (Ljósm.: Edvard Sigurgeirsson.) stjórn Ingva Hjörleifssonar raf- virkjameistara. Þau munu verða að ómetanlegu liði, þegar frá þeim hefur verið gengið að fullu og lært að nota þau til hlítar við leiksýningar. Ingvi er Ijósameist- ari, Oddur Kristjánsson leik- sviðsstjóri, hárgreiðslu og bún- inga annast María Sigurðardóttir og Margrét Steingrímsdóttir. — Leiktjaldamálari er Aðalsteinn Vestmann. — E. I). bandið rofnar vita Akureyringar hvert þeir eiga að hringja. Þá er gott að leita til símvirkjans Páls Bjarnasonar. Guð gaf honum dvergaliendur og vaskleika í ríkum mæli og við þökkum báðum. Um þrjátíu og tveggja ára skeið hefur Páll unn- ið við símann, fyrst við línulagn- ir og viðgerðir, en síðan sem starfandi símvirki hér í bænum. Hann á því góðan hlut að því, að viðhalda hinu nauðsynlega sam- bandi, sem allir þurfa að hafa við náungann og umheiminn í nú- tíma samfélagi, gegnum símann. Nú er Páll Bjarnason fimmtug- ur. Gott er það hverjum manni að fá góðar óskir og vinarkveðjur á merkum tímamótum ævinnar. Betra er þó að hafa vel til þéirra unnið. Það hefur Páll gert og þess vegna fylgja hamingjuósk- irnar honum um ófarinn veg og létta honum gönguna. — E. D. hóp íslenzkra einsöngvara og hygg eg, að hennar bíði bráðlega hlutverk á sviði Þjóðleikhúss- ins. ..." (P. . í Morgunblaðinu.) „. . . . Framburðurinn er fá- gætlega skýr og greinilegur á hvaða tungumáli, sem hún syng- ur... . Þá söng Guðrún sjö þjóð- lög eftir spænska tónskáldið Manuel de Falla, og hefur ís- lenzkur söngvari vart heyrzt syngja hin blóðheitu sönglög Spánar af jafnmikilli nærfærni og innlifun og Guðrún gerði að þessu sinni.“ (audit Vísir.) „. . .. Guðrún Tómasdóttir virðist hafa fyllstu skilyrði til að komast í allra fremstu röð söng- kvenna vorra... .“ (B. F. í Þjóð- viljanum.) FIMMTUGUR: Pál! Bjarnason slmvirki ~ Guðrún Tómasdóttir syngur á Akureyri dóttur bætist góður liðsmaður f Hitaveita Akureyrar Svanasöngur Helga Valtýssonar og 20 ára kveðja Að hugsa það, óska þess, já, cnda vilja það. En — gcra það sjálfur, — nei, — skrattinn má slcilja það! (Pétur Gautur.) I. Ollu er útvarpað nú á tímum. Og nú heimta þeir sjónvarp líkai Þá verður nú gaman að lifa! Þá sézt og heyrist hver „hringa- vitleysan“ samtímis, svo að mað- ur nýtur hennar tvígildrar í stólnum sínum heima og þarf ekkert að hugsa. Já, þá verður gaman að lifa! — Og 20 ár verða þá ekki lengi að líða! En einu útvarpinu gleyma þeir enn: Utvarpi hugans. — „Sef- varp“ verður það sennilega nefnt. Eða þá „geimvarp“, þegar tekið vei’ður að útvarpa frá tunglinu. Og það er fallegt nafn! — Þetta er óefað elzta útvarp heims. Hclgi Valtýsson rithöfundur. Tilefni þessara hugleiðinga er einmitt það, að hér virðist vera um eins konar sefvarp eða geim- varp að ræða.... Fyrri hluta septembermánaðar sl. var Helgi Valtýsson þrásinnis að velta því fyrir sér, hvort hann ætti nú ekki — sennilega í síð- asta sinn — að stinga niður penna og ljúka fullum 20 ára áróðri sínum fyrir hitaveitu Ak- ureyrar! — Vildi hann þá minna háttv. bæjarstjórn á, að enn væri sólbjart sumar liðið hjá um nóttlausa voraldar veröld, án þess að hafizt hafi verið handa á þessum vettvangi í okkar elsku- lega bæ, Akureyri.*) En víðs vegar út um sveitir lands séu borar ríkis og bæja önnum kafn- ir, — og jafnvel hcimasmíðaði borinn á Sauðárkróki séhlaupinn undir bagga með Olafsfirðingum, eftir að hafa reynzt þarfur þjónn heima fyrir! Því miður mun bæjarstjórn Akureyrar ekki hafa hlotnast sú ágæta „hugdetta“, að vélsmiðir og aðrir völundar bæjarins gætu ef til vill „framleitt" (nú er sem sé allt „framleitt"!) einn for- kostulegan tilraunabor, sem þá gæti leitt bæjarstjórn í þann furðulcga sannleika, að sjálfs er höndin hollust, og eins hitt, að þá mætti leita af sér allan grun, eins og ‘ hann sagði maðurinn, sem leitaði að merinni sinni i búr- skápnum. — Og hver veit, nema *) Eftir að þetta var skrifað, las höf. af tilviljun í frétt af bæj- arstjórnarfundi (sbr. „Alþýðu- m.“ 28. sept. sl.), að hr. bæjar- stjórinn hafi skýrt frá, að athug- anir þær, sem Jarðhitadeild rík- isins hafði dregist á að gera hér í sumar, hefðu farizt fyrir, senni- lega sökum annríkis við hinar miklu boranir syðra í sumar, bæði austan fjalls og sunnan. — Hafði hr. bæjarstjórinn átt tal við yfirverkfræðinginn (hr. Gunnar Böðvarsson) um þessi mál, og má sennilega góðs af honurn vænta í náinni framtíð. — Þetta er gleðileg frétt, svo langt sem hún nær. heimagerður bor gæti komið að góðu haldi á réttum stað í slíku návígi! Sennilega hefur þessum heila- brotum H. V., sem héldu vöku fyrir honum marga nóttina, verið útvarpað á einhvcrri geimstöð, þar sem góður Akpreyringur er stöðvarstjóri. Enda virðist þá hafa verið brugðið við hart og títt: Stórfrétt birtist í einu eða fleirum Reykjavíkurblaðanna: Rætt um hitaveilu fyrir Akur- eyri á fundi Ilúseigcndafélags Akureyrar. Blaðamennirnir syðra hljóta að hafa haldið, að hér væri um afar merkilegt nýniæli að ræða! Ak- ureyringar væru svei mér karlar í krapinu! Þeir væru ekkert að núlla við svona smámuni, heldur myndu framkvæma þá í hvelli! Og H. V. hitnaði undir ugga, þótt honum væri málið iítið eitt kunnara: Guði sé lof! Akureyilngar eru þá glaðvakandi, og teknir að tala um hitaveituna á fjölmennum fundi! — Þá ætti nú heldur en ekki að færast líf í tuskurnar! Því miður höfðu tilkynningar um fund -þennan 27. sept. farið algerlega fram hjá H. .V., og þyk- ir honum mjög fyrir því. Og gaman hefði honum þótt að fá að sitja fund þennan og „heyra verkin tala“, eins og strákurinn sagði foröum að Laugarvatni. — Þar hlytu ýmis nýmæli að hafa verið á ferðinni, auk hinna „ýmsu merkilegu upplýsinga, sem fram komu í umræðun- um. . . ." II. Þetta ætti að nægja sem for- máli. „Greinargerð“ myndi það sennilega vera nefnt á Alþingi. — Skal nú vikið að aðalefni máls og í sem stytztu máli. — Við athugun á fréttinni í Reykja víkurblöðunum kemur brátt í ljós, að engin nýmæli hafa verið rædd á fundi þessuni. Aðeins hin gamla, tvítuga saga er.durtekin, eins og alloft hefur gert verið síðustu 20 árin, og liðlega þó. M. a. hefur Helgi Valtýsson ekki getað setið á strák sínum, frá því er hann kom til Akureyrar. Hvað eftir annað hefur hann hnippt í háttv. bæjarstjórn, stundum all- harkalega, svo að sumar ádrepur lians hafa verið allt að því ósvífnar! Enda hefur þá háttv. bæjarstjórn stundum tekið smá- fjörkippi eftir á. En þeir hafa brátt hjaðnað, og svo hefur lygnt á ný. Og Akureyri er afar veður- sæll bær. í Degi 8. og 12. sept. 1956 rakti H. V. í allýtarlegri grein Annál Laugarveitu Akureyrar u m 25 ára skeið og rökstuddi, að þar bæri fyrst að leita undirstöðu hitaveitu Akureyrar. Og 30. júlí 1957 skrifaði hann í sama blað stutta skopgrein í fyllstu alvöru í tilefni af lagafrumvai-pi á Al- þingi: 8. gr. laga um jarðhita, þar sem lagt er til, „að Ríkið eigi all- an rétt til umráða og hagnýtingar jarðhita, sem dýpra liggur, eða sóttur er dýpra en 100 m. undir yfirborð jarðar.“ — Taldi H. V. ólíklegt, að Akureyri væri að bíða eftir samþykkt slíkra laga! Þessa 20 ára sögu ætti ekki að þurfa að rifja upp. En þó vlrðist hún einmitt hafa verið undir- staða umræðna og aðalefni á fyrrnefndum fundi húseigenda- fél. Akureyrar. Og þar virðist hafa gætt sama skilningsskorts og athuganaleysis sem hjá háttv. bæjarstjórn undanfarin ár um langt skeiö. Öðru hvoru hefur (Framhald á 7. síðu.)

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.