Dagur - 12.11.1958, Síða 8
8
I
Bagum
Miðvikudaginn 12. nóv. 1958
Mjólkursamlag KEA vífamínbætir skvriS
Neytendum cr þetta að kostnaðarlausu
Stjórn Mjólkursamlags KEA á
Akureyri hefur um nokkur und-
anfarin ár haft áhuga fyrir að
neytendur hér ættu kost á að fá
keypta mjólk, sem blönduð væri
með hinum svokölluðu D3 bæti-
efnum á líkan hátt og almenn-
ingur í bæjum og borgum
margra menningarlanda heims á
Auglýsingaverð
liækkar
. Auglýsingaverð Akureyrarblað-
anna hefur nú um skeið verið
drjúgum lægra en annars staðar,
eða 12.50 kr. dálksentimetrinn,
meðan verð Reykjavíkurblaða
hefur stigið í 18—20 krónur og
ísafjarðarblaða að sögn í 20 kr.
Verulegar hækkanir hafa orð-
ið á prentkostnaði, síðan hækk-
unin varð síðasta á auglýsinga-
taxta blaða hér, og hafa þau því
séð sig tilneydd að hækka taxta
sinn frá 15. þ. m. að telja í kr. 15
dálksentimetrann. 20% afsláttur
er veittur sem fyrr á 10 sm. aug-
lýsingum og stærri, en fastir við-
skiptavinir njóta og þess afslátt-
ar, þótt um smærri auglýsingar
sé að ræða.
Af hálf- og heilsíðuauglýsing-
um verður veittur 25% afsláttur.
Þakkarávörp og dánartilkynn-
ingar verða 70 kr.
nú kost á að kaupa til daglegrar
neyzlu.
Samkvæmt gildandi lögum hér
á landi er óheimilt að blanda í
neyzlumjólkina, sem seld er,
bætiefnum eða öðrum efnum,
nema með leyfi heilbrigðismála-
ráðuneytisins, er getur veitt und-
anþágu í þessu efni.
Mjólkursamlag KEA keypti
fyrir þremur árum síðan full-
komnustu tæki til ao fitujafna og
bætiefnablanda neyzlumjólk hér
á Akureyri, en fékk ekki leyfi
ráðuneytisins til að gera þetta,
nema aðeins í „tilraunaskyni“, en
þar sem uppsetningu og notkun
slíkra áhalda fylg'ir mikill kostn-
aður, þótti naumast fært að gera
slíka ,,tilraun“ og féll málið þá
niður að sinni.
Níels Dungal, prófessor við
rannsóknarstofu Háskólans í
Reykjavík er sá maður hér á
landi, sem mest hefur að undan-
förnu hvatt til, að neyzlumjólkin,
sem mjólkurstöðvarnar hér á
landi selja, verði bætt með D3
vítamíni og með allt að 1.000
vítamíneiningum á hvern lítra. —
Telur hann, að hvei't barn og
hver kona eða maðui', þurfi að
fá að minnsta kosti um 1.500 ein-
ingar á dag af D-vítamíni, en þar
Næsti bændaklúbbsf.
mánudaginn 17. nóv. — Frum-
mælandi: Pétur Gunnarsson
tilraunastjóri, og talar um fóð-
urgildi og fóðrun.
Samið um kayp og kjör á Vesífj.
I fyrsta sinn, sem samningar hafa verið gerðir á
Vestfjörðum milli atvinnurekenda og verkalýðs-
samtaka, án þess til uppsagna hafi komið
A nýafstöðnu þingi Alþýðu-
sambands Vestfjarða var samþ.
að óska eftir því við Vinnuveit-
endafélag Vestfjarða, að hlið-
stæðar kauphækkanir og til-
færslur milli launaliða, auk ann-
arra breytinga á kjaraákvæðum,
verði gerðar á samningi milli að-
ila um kaup og kjör landverka-
fólks á Vestfjörðum frá 31. maí
1955, eins og samið var um fyrir
skömmu milli Verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar í Rvík og
Vinnuveitenda sambands íslands,
án þess að til uppsagnar samn-
ingsins komi. En samkvæmt upp-
sagnarákvæðum hans gilti hann
til 1. desember næstk.
Vinnuveitendafélag Vestfjarða
tók þessari ósk vestfirzku verka-
lýðsfélaganna mjög vel, og hófust
viðræður milli fulltrúa félagsins
og samninganefndar A. S. V. og
stjórnar Verkalýðsfél. Baldurs á
ísafirði 21. okt. sl.
Árangur þeirra viðræðna varð
gá, að samkomulag náðist um
nýjan kaup- og kjarasamning, er
gekk í gildi 1. nóvember sl., og
nær samningurinn til allra félaga
á sambandssvæði A. S. V., en
innan verkalýðsfélaganna á
Vestfjörðum eru um 1850 með-
limir.
Eins og fyrr segir gekk hinn
nýi samningur í gildi 1. nóvem-
ber sl. Þetta er í fyrsta sinn, sem
samningar hafa verið gerðir á
Vestfjörðum milli atvinnurek-
enda og verkalýðssamtakanna, án
þess að til uppsagnar hafi komið
á fyrri samningi. Heildarsamn-
ingur um kaup og kjör landverka
fólks hefur verið í gildi milli A.
S. V. og Vinnuveitendafél. Vest-
fjarða síðan 1949. Ennfremur
hefui' A. S. V. samið um kjör
vélbátasjómanna síðan árið 1952,
og ná þeir samningar til síld-
veiða, botnvörpuveiða og línu-
veiða.
JÓNAS KRISTJÁNSSON,
samlagsstjóri.
sem við íslendingar lifum við
meira skammdegismyrkur en
aðrar þjóðir, muni ekki veita af
að bæta hvern mjólkurlítra með
1.000 D-vítamíneiningum, og geti
menn á þann hátt fengið 2/3
hluta af vítamínþörf sinni full-
nægt með því að drekka einn
slíkan mjólkurlítra á dag'.
Prófessor Níels Dungal segir
ennfremur, að heilsufari manna
verði veitt mikilsvert lið með því
að bæta D3 vítamíni í neyzlu-
mjólkina; möi'g börn muni þá
losna við beinkröm og fá meira
mótstöðuafl gegn ýmsum kvill-
um, einkum kvefsótt og lungna-
bólgu. — Við efumst ekki um, að
prófessorinn hefur þarna rétt
fyrir sér, enda er þetta álit hans
í fullu samræmi við álit fjöl-
margra erlendra vísindamanna í
þessum efnum.
Mjólkursamlag KEA hefur því
miður ekki ennþá fengið fullnað-
arleyfi fyrir að mega á þennan
hátt vítamínblanda neyzlumjólk-
ina, sem hér er seld. Hins vegar
(Framhald á 7. síðu.)
Laugamenn heimsækja G. Á.
Nemendur kepptu í knattspyrnu og sundi
Laugardaginn 8. þ. m. kom 36
manna hópur nemenda og kenn-
ara frá Laugum í heimsókn til
Gagnfræðaskóla Akureyrar í
kynningai'- og keppnisferð.
Jóhann Frímann skólastjóri
Gagnfræðaskólans bauð gesti
velkomna með góðri ræðu að
Hótel KEA, er snæddur var há-
degisverður.
Ef'ir hádegi var keppt í knatt-
spyrnu á Þórsvellinum. Leikar
fóru svo, að G. A. vann með 2 : 1.
Dómari var Haukur Jakobsson.
Klukkan 2 hófst sundmótið. —
Jóhann Frimann setti mótið,
hvatti til dáða og drengskapar í
leik og starfi, og taldi góða kynn-
ingu sigi'i betri. Hófst svo keppn-
in og fór sem hér segir:
100 metra bringusund karla.
Stefán Oskarsson Laugum 1,25,7.
Oalfui' Atlason Laugum 1,25,8.
Júlíus Björgvinsson G. A. 1,28,3.
(Framhald á 4. síðu.)
Á aðalfundi Bændafélags Þing-
eyinga, sem haldinn var að
Hólmavaði 1. nóvember síðastl.
Jón Sigurðsson bauð gesti vel-
komna, setti fundinn og flutti
skýrslu stjórnarinnai'.
í upphafi fundarins var Jóns
Haraldssonar minnzt. En hann
var frá upphafi til dauðadags í
stjórn félagsins.
Fundarstjóri var Baldur
Baldvinsson. — Eftirfarandi var
samþykkt:
Landhelgismál.
„Fundur í Bændafélagi Þing-
eyinga þakkar ríkisstjórninni og
öðrum þeim, sem unnið hafa
að útfærslu fiskveiðilögsögunnar
í 12 mílur. Einnig þakkar fund-
urinn landhelgisgæzlunni einarð-
lega og gætilega framkomu og
hvetur ríkisstjórnina til að hlut-
ast til um, að áhöfnum varð-
DAS-bifreið til Akureyrar
Á laugardagsmorgun tók Guðmundur Aðólfsson, Akureyri, á móti
góðum vinningi, sem hann hlaut í DAS-happdrættinu, og sézt hann
hér á myndinni ásamt hinni nýju Moskovitschbifreið.
("Ljósmynd: E. D.).
Giíðrún Tómasdóttir syngur á Ak.
Næstkomandi laugardagskvöld
mun ung, íslenzk söngkona halda
fyrstu söngskemmtun sína hér í
bæ. Heitir hún Guðrún Tómas-
dóttir og ei' dóttir Tómasar Jó-
hannssonar, sem var kennari við
Bændaskólann á Hólum. Guðrún
er af söngelsku fólki komin, en
föðursystir hennai' ei' Jóhanna
Jóhannsdóttir, söngkona, sem
margir hér í bæ munu minnast
frá því að hún átti hér heima,
Móðurbróðir Guðrúnar er Olafur
Magnússon frá Mosfelli, einnig
þekktur söngvari. Guðrún var
stúdent frá M. A. vorið 1948 og
dvaldi hér í bænum 3 síðustu
skólaár sín, starfaði hún þá á
sumrin við símaafgreiðslu á Hó-
tel KEA, Guðrún söng hér með
Karlakór Akureyrar m. a. á
Luciuhátíðum. Þá söng hún og
nokkur ár með útvarpskórnum í
Reykjavík. Undanfarin 5 ár hef-
ur Guðrún verið við söngnám í
New Yoi'k hjá einkakennara,
Júgóslavanum Mirko Pugelj, er
var á sínum tíma kunnur söngv-
ari víða í Evrópu. Einnig söng
Guðrún með Robert Shaw kórn-
um í New York.
Á hljómleikunum á laugardag-
inn mun Guðrún syngja laga-
(Fratnhald á 5. síðu.)
skipanna verði greidd rífleg
áhættuþóknun meðan hið alvar-
lega óstand helzt.“
Landgræðslumál.
„Fundurinn telur landgræðslu-
mál, þ. e. varnii' gegn uppblæstri
og græðslu öi'foka lands, þess
eðlis, að hverjum vinnufærum,
íslenzkum ríkisborgara ætti að
vera skylt að veita því beinan,
fjárhagslegan stuðning, eftir
ástæðum a .m. k., nokkurt árabil
á meðan verið er að stöðva stór-
fellda eyðingu í byggðum og af-
réttum. Fyrir því leggur fundur-
inn það til, að Alþingi tryggi
máli þessu, auk hlutfallslegs
framlags á fjárlögum við önnur
ræktunarmál, ákveðið brot dags-
verkavirðis, einn fjórða til þrjá
fjórðu miðað við nettotekjur
hvers gjaldanda, með sérstökum
lögum.“
Lífeyrissjóður bænda.
„Aðalfundur Bændafél. Þing-
eyinga, haldinn að Hólmavaði 1.
nóv. 1958, fagnar þeirri hugmynd
um lífeyrissjóð bænda, sem fyrst
var rædd opinberlega á fundi
bændafélaganna á Norður- og
Austurlandi og gerð samþykkt
um.
Felur fundurinn stjórn Bænda-
félagsins að hafa samband við
stjórn Búnaðarfélags íslands og
væntanlega milliþinganefnd í
þessu máli og sjá til þess, að
þetta mál — lífeyrissjóður bænda
— verði vel útskýrt fyrir öllum
búnaðarfélögum í landinu.
Félagsheimili.
„Fundururinn lítur svo á, að
það sé röng stefna, að einstök
sveitarfélög reisi félagsheimili,
sem rúmað geti margfaldan
mannfjölda þeirrar sveitar, þar
sem byggingin er reist.
Telur fundurinn að eðlilegt sé,
að hver sveit byggi að vísu fé-
lagsheimili, sem sniðin séu fyrir
fólksfjölda viðkomandi sveitar.
Jafnframt sé að því stefnt, að
hvert hérað sameinist til félags-
legra átaka um stofnun héraðs-
heimila, sem tekið geta á móti
verulegum mannfjölda og að-
fengnum skemmtikröftum þegar
henta þykir. Fundurinn sam-
þykkir að kjósa þriggja manna
nefnd til athugunar á þessu
máli.“