Dagur


Dagur - 06.05.1959, Qupperneq 8

Dagur - 06.05.1959, Qupperneq 8
8 Bagur Miðvikudaginn 6. maí 1959 Afmæiiskveðja orðin að blaðamáli Staksteinahöfundi Mbl. og Islendingi svarað Skólaslit að Hóluni I skólanum voru 34 nem. 19 luku burtfararprófi Lítil takmörk eru því sett hve fjölbreytt og raunar furðuleg fyrirbæri geta fæðzt af mannleg- um breyskleika. í blaðaheimin- um koma stundum fyrir atvik af þvi tagi, sem í senn eru bros- leg, en þó að öðrum þræði hin óhugnanlegustu þegar betur er að gáð og orsakirnar liggja ljóst fyrir. Tvö stjórnarblöðin vitnuðu nýlega um lægri hneigðir blaða- manna en almennt gerist og bæði af sama tilefni og á svipaðan hátt og opinberuðu lesendum sínum á mjög áberandi hátt á h\/aða menningarstigi þeir og blöð þeirra eru stödd um þessar mundir. Tilefni þess, að stjórnarblöðin trvö, Morgunblaðið og íslending- ur, gáfu lesendum sínum innsýn í sitt einstæða hugarfar, var af- mæliskveðja Dags til Friðjóns Skarphéðinssonar dómsmálaráð- herra á fimmtugsafmæli hans. — Hún birtist á afmælisdegi hans hér í blaðinu, ásamt mynd af honum og var svohljóðandi: Friðjón Skarphéðinssos dóms- málaráðherra er fimmtugur í dag og er hann af því tilefni kominn hingað norður í stutta heimsókn. Um leið og blaðið árnar honum allra heilla vill það taka undir þá almennu ósk, að hann taki sem fyrst sitt fyrra sæti, sem bæjarfógeti á Akureyri og sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu. Þegar heiftin heltekur. Löngum hefur það tíðkazt á landi hér, að menn óski hver öðrum til hamingju á afmælis- dögum, takist í hendur eða sam- fagni afmælisbarninu á annan hátt. Fram að þessu hafa slíkar kveðjur ekki þótt vítaverðar eða verið gerðar að blaðamáli. En nú bregður svo undarlega við, að tvö íhaldsblöðin verða æfareið vegna afmæliskveðju Dags til Friðjóns Skarphéðinssonar. Þau telja, að hún beri vott um að „heiftin hafi heltekið“ Fram- sóknarmenn á Norðurlandi og að Dagur hafi beinlínis óskað þess, að Friðjón ylti sem fyrst úr ráð- herrastólnum! Eru það illar hvatir? Menn taki eftir því, að sú ósk Dags og þorra bæjarbúa, að Friðjón setjist sem fyrst í sitt Þetta segi ég nú: Mikils þykir um vert, að kommur séu á réttum stöðum. Mikil orka er lögð í það, sem fáir geta munað til fullnustu og engir læra af ánægju. í námsbókinni stendur: „Atvikissetningar: a) milli aðalsctningar annars vcgar og tilvísunarsetningar (Sjá § 118. ), orsakasetningar (Sjá § 119. ), afleiðingarsetningar (Sjá § 120.), tilgangssetningar (Sjá § 126.), skilyrðissetningar (Sjá § 122.), viðurkenningar- setningar (Sjá § 123.) og tíð- arsetningar (Sjá § 124.) hins vegar skal setja kotnmu.“ Þetta er örlítið dæmi þess, kvað æskufólki þessa lands er ætlað að læra í þessum fræð- WH. Er vel farið með tímann og orktuia? fyrra sæti, er hér gerð að árásarefni. Skyldi Morgunblaðið og íslendingur í alvöru vilja núa Akureyringum því um nasir, að það sé sprottið af „heift“ og öðr- um illum hvötum, að þeir vilji sem fyrst fá sýslumann sinn og bæjarfógetann heim aftur? Skyldi Friðjóni sjálfum finnast það bera vott um kulda í sinn garð af hálfu Akureyringa, að þeir vilja fá hann aftur í sitt fyrra sæti? Gott væri að þessi blöð gerðu nánari grein fyrir hinum illu hvötum bæjarbúa! Er þetta það, sem koma skal? Hvernig skyldi það annars vera að búa í því landi, þar sem eng- inn gæti sent afmæliskveðju eða nokkra aðra kveðju nema eftir pólitískum línum, án þess að þær væru stimplaðar sem „heift“ og illt eitt með þeim meint? — Kannski er þetta það, sem koma skal? *Ekki geta íhaldsblöðin borið bví við, að um ógát hafi verið að '■æða hjá þeim, þegar þau töldu afmæliskveðju Dags til Friðjóns vera sprottna af „heift“ og ekki getur það heldur verið nein af- sökun fyrir viðbrögðum þeirra, að í þetta sinn hefur hinn við- bjóðslegasti soi'i stjórnað penna þeirra, úr því só sori var fyrir hendi. Hins vegar verða þessi blöð að taka því, að á þetta sé bent, af því að þau hafa gefið endurtekið tilefni til þess. Þau hafa aðeins alið það hugarfóstur, sem íhaldið gengur alltaf með og vex við innstu hjartarætur, svo Fratnhald á 5. siðu. Fjárveitingar úr sýslusjóði S.- Þing. Aðalsýslufundur Suður-Þing- eyjarsýslu var haldinn dagana 21. —25. apríl. Sýslusjóðsgjöld voru áætluð kr. 210.000.00. Helztu fjárgreiðslur voru ákveðnar þessar: Til skóla kr. 26.000.00. — Til héraðsbókasafns kr. 11.244.00. — Til Héraðsskjalasafns kr. 6.000.00. — Til Byggðasafns kr. 10.000.00. — Til Myndasafns Laugaskóla kr. 3.000.00. — Til Árbókar Þingey- inga kr. 3.000.00. — Til annarra menningarmála kr. 4-500.00. — Til heilbrigðismála kr. 31.500.00. — Til atvinnumála kr. 59.000.00. — Til vegamála kr. 247.000.00. Fjöldi mála var afgreiddur fundinum. Á síðasta aðalfundi sýslunefnd- ar Suður-Þingeyjarsýslu, sem haldinn var í aprílmánuði, sam- þykkti nefndin eftirfarandi ályktun, í tilefni af hinum nýju tillögum um stjórnarskrárbreyt- ingu: „Nefndin telur, að íslenzkt lýðræði byggist að fornu og nýju á rétti héraðanna til sér- stakra fulltrúa á löggjafarþingi þjóðarinnar eg mótmælir því að sá réttur verði af þeim tek- inn. Sýslunefndin lítur sva á, að „Dómur reynslunnar“ " j Fyrir alþingiskosningarnar 1956 gaf Sjálftsæðisflokkurinn út áróðurspésa, með þessu nafni. — Voru Sjálfstæðisflokknum þar eignaðar allar þær framfarir er orðið hafa hér á landi síðustu áratugina, en allt sem miður hafði farið var auðvitað hinum flokkunum að kenna. Af þessu áttu svo kjósendurnir 1956 eðli- lega að draga þá ályktun, að Sjálfstæðisflokknum einum væri trúandi til að fara með umboð þeirra á Alþingi. Enda segir svo í pésanum: „Sjálfstæðisflokkur- inn ætlar sér hins vegar að ganga Iengra á þeirri framfarabraut, sem mörkuð hefur verið undan- farinn áratug og auka frjálsræði borgaranna.“ Fallega mælt þetta, en hrædd- ur er eg um að Ara Þorgilssyni, hinum fróða hefði þótt sitthvað missagt í pésa þéssum, t. d. stendur þar: „Sjálfstæðismenn hafa frá upphafi haft forystuna í raforkumálum. Stefnið ekki 10 ára rafvæðingaráætluninni í voða með því að fá duglausum at- kvæðabröskurum stjórnartaum- ana.“ Sitthvað orð og efndir. Nú standa Sjálfstæðismenn að því við afgreiðslu fjárlaganna, að skera niður framlög til raforku- framkvæmda í stórum stíl, vel vitandi það að raforkufram- kvæmdirnar eru þær fram- kvæmdir ríkisins, sem hinar dreifðu byggðir landsins bíða með mestri eftirvæntingu. Svo vissir þykjast þeir, nú þeg- ar, um framgang kjördæmabylt- ingarinnar, að þeir telja sér óhætt að byrja strax að sýna temiurnar gagnvart landsbyggð- inni. Hvað mun þá síðar verða, ef tilræðið heppnast? Svona fljótt sýna þeir í verki hvernig þeir ætla að framkvæma 10 ára rafvæðingaráætlunina. Þetta er það sem þeir kalla að ganga lengra á framfarabraut- inni, sem mörkuð hefur verið. — „Reynslan er réttlátur dómari,“ stendur í áðumefndum pésa. Er ekki framkvoma Sjálfstæðis- flokksins í kjördæmamálinu og við afgreiðslu fjárlaganna, næg reynsla til þess að sýna að þjóð- inni muni annað hollara en að fá slíkum „atkvæðabröskurum einmenningskjördæmi séu ör- uggasti grundvöllur að traustu þingræðisstjórnarfari og telur því eðlilegt að fjölgað verði einmenningskjördæmum í fjöl- mennustu byggðarlögunum. Það er áUt nefndarinnar, að öll stjérnarskráin þurfi endur- skoðunar við, en kappkesta verði að framkvæma breyting- arnar í samráði við alla þjóð- ina.“ Tillagan var samþykkt með 9 atkvæðum gegn 2. Einn fulltrúa vantaði á fundinn. Bændaskólanum ó Hólum var slitið 30. api'íl sl. Þar voru í vet- ur 34 nemendur, 19 luku burt- fararprófi, þar af 13 eftir tveggja vetra nám, en 6 eftir einn vetur (bændadeild). Hæstu einkunn hlaut Sigfús Olafsson frá Gi'öf á Höfðaströnd, 9,10 í meðaleinkunn. Árni Sigur- jónsson, Eútsstöðum í Svína- vatnshi'eppi, hlaut hæstu eink- unn eftir tveggja vetra nám, 8,82. Vei-ðlaun úr vei'ðlaunasjóðum bændaskólanna hlaut Árni Sig- urðsson, verðlaun frá SÍS Sigfús Ólafsson, Moi'gunblaðsskeifuna (fyrir tamningu hesta), Stefán Jónsson, Hi'epphólum, Hruna- mannahreppi, pappírshníf frá sama fyrirtæki Hilmar Einai'sson, Rvík. Ur minningarsjóði Tómasar Jóhannssonar , leikfimiskennai’a, voru nú í fyi'sta skipti veitt verð- laun fyrir beztu úx’lausnir í leik- Iðnskóla Akureyrar var slitið miðvikudaginn 29. apríl. Skólastjórinn, Jón Sigurgeirs- son, flutti skýi'slu um skólastai'f- ið á liðnum vettri. Skólinn starf- aði í fjórum deildum með 76 nemendum alls. Samkvæmt skýrslu skólastjóra voru húsa- smíðanemar fjölmennasti hópur- inn. 28 nemendur lutu burtfarar- pi'ófi við skólann. Hæstu eink- unnir hlutu: Sigmar Sævaldsson, rafvirkjanemi, I. ág. einkunn 9,09, Vegurinn verndaður Vegurinn yfir Vaðlaheiði var lokaður 25. apríl og var þá farinn að grafast. En síðan hafa verið stöðug frost á heiðum uppi. Til dærnis hefur verið 13—14 stiga frost í Fnjóskadal sumar nætur. Þykir gæta óþarflega strangrar vei’nd- unar á vegi þessum og, að umferð um hann hefði alls ekki skemmt hann á meðan hann er svo gaddfi'osinn sem nú er. Sýningin í GA Á sunnudaginn var lá stöðugur straumur fólks upp í Gagnfræða- skóla Akureyrar. Þar stóð yfir sýning á handavinnu nemenda, og dvaldist mörgurn Iengur en ætlað var við athugun á hinum fjölbreyttu munum ncmendanna. Saumaskapur og útsaumur af mörgu tagi bátu ungu stúlkunum gott vitni, cn bókband, smíðar og teikningar voru ekki síður at- hyglisverðar, • þótt takmarkað húsnæði þrengi meira að á því sviði, sérstaklega hvað smíðarnar áhrærir. Hinar árlegu og myndarlegu sýningar Gagnfræðaskólans gefa vissulega til kynna hver þáttúr hin verklega kennsla er í skóla- starfinu og að sá þáttur er ekki vanmetinn af forráðamönnum skólans. fimi. Þau hlutu Ingólfur Krist- jánsson og Skarphéðinn Sigurðs- son. Sjóður þessi var stofnaður 1957, en í ár eru 30 ár liðin frá dauða Tómasar. Hann kenndi við Hólaskóla frá 1922—1929. Nú var í fyista skipti tekið próf í tamningu hesta og gengu 12 menn undir próf í þeirri grein búfjári-æktarinnax'. Tamin voru 27 hi'oss undir leiðsögn Páls Sig- ui'ðssonar í Varmahlíð. í skólanum voru gerðir 58 smíðisgripir í vetur og bundnar 200 bækur. Verðmæti handa- vinnunnar má áætla að sé 70 þús. króna virði. Heilsufar var gott í vetur. Yt- ai'leg athugun fór fram vegna gruns og mikils umtals og ein- kennilegra blaðaskrifa um berklaveiki. Sú athugun var gerð bæði á fólki og fénaði og fannst ekkert athugavert. og Sveinn Tryggvason, hús- gagnasmiðui', I. ág. einkunn 9,06. Skólastjóri ræddi síðan ýmis- legt vai'ðandi skólastai-fið, nem- endaferðir, samræmingu náms- efnis í iðnskólum og síðast, en ekki sízt, húsnæðisþörf Iðnskóla Akureyi'ar. Skólinn hefur nú um tveggja ára skeið búið við leigu- húsnæði í Húsmæðraskóla Akur- eyrar og víðar. Taldi skólastjóri það há skólastarfinu mikið, að skólinn hefur ekki enn fengið sitt eigið húsnæði, þar sem unnt er að koma fyrir bráðnauðsynleg- um kennslutækjum, sem illt er að nýta og stundum ómögulegt í húsnæði, er tekið er á leigu til skamms tíma; þess vegna væri það brýn nauðsyn, að skólinn eignaðist á næsta áratug eigið hús, sem unnt væri að búa þeim tækjum, er nýtízku iðnskólar á tækniöld þyrftu að hafa. Að lokum afhenti skólastjóri brautski'áðum iðnnemum skír- teini þeii'i'a og flutti þeim ágætt ávarp, kveðjur skólans og góðar óskir. Að lokinni ræðu skólastjóra kvaddi sér hljóðs úr hópi iðn- nemanna Sigmar Sævaldsson. Flutti hann nokkur kveðju- og þakkai-oi'ð hinna bi-autskráðu iðnnema og afhenti 10 binda bókagjöf til skólans. Skólastjóri þakkaði gjöfina og góðan hug nemenda sinna. Sýning á teikningum iðnnem- Framhald a 4. siðu. TOGARARNIR Svalbakur landaði 276 tonnum ó Akureyri á sunnudaginn og mánudaginn. Aflað var á heima- miðum og- Austur-Grænlands- miðum. Hann er farinn áleiðis á Ritubanka. Kaldbakur hóf veiðar á Ritu- banka í fyiTadag og hinir Akur- eyrartogararnir hafa einnig snúið sér að kai'faveiðum þar vestra. GARÐAR HALLDÓRSSON. Sýslufundurinn mótmælir Einmenningskjördæmi bezta leiðin Iðnskóla Akureyrar slitið í gær Nemendur í vetur 76 - Húsasmiðir f jölmennastir

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.