Dagur - 31.07.1959, Page 1
Fylgizt með því sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út fimmtu-
daginn 6. ágúst.
XLII. árg
Akureyri, föstudaginn 31. júlí 1959.
40. tbl.
Frá fjórðungsmóti hestamanna á Sauðárkróki
Snæfcll, Akureyri, með 1834 mál síldar á Ieið til Krossancss. — ("Ljósmynd: E. D.).
SÍLDARAFLINN ER NÚ ORÐINN YFIR
MAL OG
TUNNUR
Minni veiði í nótt — Flotinn hefur nú fært sig
nokkru austar — Snæfell hefur aflað 9700 mál
og tunnur — Sigurður Bjarnason hefur aflað
rúmlega 7000 mál og tunnur
Síldarleitin Siglufirði 30. júlí.
Minni veiði var í nótt undan-
farið. Aðalveiði var á Grímseyj-
arsundi og nokkur skip fengu
síld á Þistilfirði. Veiðievður var
gott.
Krossancsi 30. júlí.
Hingað eru komin 15500 mál í
bræðslu og sennilega kemur eitt-
hvað í dag. Síðustu skipin, sem
komu með síld, voru Snæfell
með rúm 1500 mál og Sigurður
Bjarnason með 524 mál.
Stöðva níu konur
Heklu og Esju?
Þernurnar á Esju og Heklu
hafa boðað verkfall frá og með 5.
ágúst n.k. hafi samningar ekki
tekizt fyrir þann tíma. Fara þær
fram á prósentur af seldu fæði
með sömu skilyrðum og þernur á
m.s. Gullfossi hafa, en þernurnar
á Heklu og Esju hafa til þessa
haft fast mánaðarkaup oggreidda
yfirvinnu. Er hér um að ræða 5
þernur á Heklu og 4 á Esju. Ná-
ist ekki samkomulag við þern-
urnar fyrir 5. ágúst stöðvast
Hekla og Esja.
Hjalteyri 30. júlí.
Um 23 þús. mál í bræðslu og
2200 tunnur í salt. Akraborg
landaði 673 málum í gær og hef-
ur alls landað hér 4800 málum
til verksmiðjunnar og Haförnin
um 6000 málum.
Hrísey 30. júlí.
Hér er búið að salta í 2 þús. tn.
síldar. Síðast í gær kom Garðar,
Rauðuvík, með 500 tunnur.
Ólafsfirði 29. júlí.
Nokkur síld barst hingað í gær
og í dag. Hún veiddist út af
Siglufirði og var því ný og fersk,
en blönduð, svo að mjög mikið
gekk úr henni. Kristján kom í
gær með 350 tn„ Þorl. Rögn-
valdsson með 400 mál og lagði
Búið mun vera að salta nær
140 þús. tn. samtals. Eti búið
var að semja um sölu á 150
þús. tunnum. Er því brátt bú-
ið að salta upp í samningana.
Fulltrúi frá Sovétríkjunum er
staddur hér á landi og við-
ræður um meiri sölu síldar til
Rússlands fara nú fram, en
um niðurstöður af þeim við-
ræðum er blaðinu ókunnugt.
130 tn. af því í frystihúsið, en hitt
fór í bræðslu. í dag kom Kristján
aftur með 350 tn., Stjarnan með
600 tn., Stígandi með 330 tn. og
Farsæll með 400 tn.
Söltunarstöðvar eru tvær og
búið að salta um 6 þús. tunnur.
Þorskafii er að glæðast.
Dalvík 30. júlí.
Búið mun vera að salta fast að
14 þús. tn. síldar. Hér eru nú
skipin Fagriklettur með ca. 1100
tn., Bjarmi EA með 350, Bjarmi
VE með 200 og Baldvin Þor-
valdsson með 150 tn. Saltað er á
þrem söltunarstöðvum.
Mikill glæsibragor og f jöldi gæðinga
reyndur þar á kappreiðunum
HIN síðari árin hcfur þróun hrossa
ræktar á íslandi beinzt inn á nýjar
brautir. Véltækniti leysti hestinn
af hólnii að mcstu leyti sem þarf-
asta þjón búandmanna og eina far-
artækið um strjálbyggt og ógreið-
fært land.
En íslenzki hesturinn, seni hefur
samhæfzt landinu í þúsund ár, er
allra liesta þolnastur og fóthvatast-
ur, gerir minni kröfur til fóðurs en
aðrir hestar og hefur undraverða
fjölbreytni í gangi, scm er algerlega
einstök. Skeið og tölt þekkist ekki
hjá nokkru öðru hestakyni og cr
algerlega íslenzkt fyrirbrigði og dá-
samlegir eiginleikar. hessi fjölhæfni
í gangi virðist tæplega eiga sér
nokkur takmörk, þar sem gæðing-
ar og góðir hestamenn leggjast á
eitt.
Hrossarækt, svo og meðferð tam-
inna lirossa, beinist nú að því að
koma upp rciðhrossum, gæðingum,
körlum og konum til skemmtunar
fyrst og fremst. Reiðmennskan er
jafngömul íþrótt og landsins byggð
og auðvitað varð hún til aí brýnni
nauðsyn, en er nú ánægjuauki og
heilsubrunnur þéttbýlisfólks fyrst
og fremst, sem með því að fara á
hestbak og hleypa úr hlaði við-
heldur lífsnauðsynlegum samskipt-
um við náttúru landsins.
Hestamenn um land allt hafa
stofnað hestamannafélög og sam-
bönd hestamannafélaga. Þeir eiga
fjölda stóðhesta, sem yndi er á áð
horfa og efalaust verða feður fjöl-
margra snjallra gæðinga framtíðar-
innar, og þeir halda stór mót, þar
sem sýndir eru beztu hestar lands-
ins, viðstöddum til ánægju og sam-
anburðarfróðleiks.
FjórÖimgsmótio á Sauðárkróki.
Dagana II. og 12. júlí var haldið
fjórðungsmót hestamanna á Flugtl-
skeiði við Sauðárkrók. Þar voru
saman komnir úrvalsgripir úr Norð
lendingafjórðungi, og Reykvíking-
ar fjölmenntu einnig að sunnan og
voru vel ríðandi. Hver gæðingurinn
^var þarna öðrum fegurri og snjall-
ari, svo að unun var á að horfa.
Margt var þarna líka góðra hesta-
manna, þótt ekki væri án lýta.
Mótið liófst á laugardaginn 11.
júlí. Þá fóru fram undanrásir í
kappreiðum, hrossamarkaður o. 11.
A sunnudaginn var mótinu fram
haldið með þeim hætti, að hesta-
menn riðu í fylkingu um Sauðár-
krók og til skeiðvallarins undir fán-
um. Var það hin íegusta sjón og
vakti verðskuldaða athygli. Þá var
ldýtt á blessunarorð sr. Gunnars
Gíslasonar, setningu mótsins og
ræðu Þorst. Sigurðssonar, formanns
Búnaðarfél. íslands. Logn var, heið
skírt veður og hiti mikill. Jiirðin
nötraði aí hófaspili gæðinganna og
30—40 stóðhestar létu til sín heyra.
Tamdar hryssur.
Hrafnhildur I’éturs Þorvaldsson-
ar á Akureyri varð hlutskörpust af
tömdum stóðhryssum. Onnur varð
Fluga frá Sauðárkróki, en þriðja
Drottning frá Víðimýrarseli..
Góðhestar.
Fyrstu verðlaun góðhesta hlaut
Haukur Guðm. Sigurðssonar á
Sauðárkróki, annar varð Draumur
írá Kristnesi en þriðji Blakkur frá
Heiði eða Nautabúi. Fn þar voru
vissulega fleiri góðhestar og hreinir
snillingar saman komnir.
Stóðhestar.
Dómnefnd úrskurðaði Goða lrá
Alftagerði bezta stóðhestinn. Fig-
andi hans cr Hrossaræktundarsam-
band Nofðurlands. Annar var And-
vari frá Varmahlíð, og þriðji í röð-
inni Hrafn frá Hólum.
Ekki var trútt um að stóðhestarn-
ir vildu láta meira að sér kveða en
til var ætlazt á þessum stað. Segja
má, að þeir væru tilbúnir í hvað
sem var. Þeir léttt til dæmis ekki
tímann fara til spillis, ef eigendur
þeirra tóku tal samati og taumur-
inn leyfði, en heilsuðust svo sein
slíkum er títt mcð grenjum miklum
og ögrunarlátbragði. Svo varð þcim
Framhald á 2. síðu.
Hópreið inn á Fluguskeið. — (Ljósntynd: E. D.).