Dagur - 31.07.1959, Síða 8
8
Baguk
Föstudaginn 31. júlí 1959
VIGSLUBISKUP HEFUR VERIÐ
KJÖRINN í HÓLASTIFTI
Sigurður Stefánsson prófastur á Möðruvöllum
verður vígður að Hólum í næsta mánuði
Ymis fíðindi úr nágrannabyggðum
EINS og kunnugt er af fréttum,
hefur nýlega farið frani kjör vígslu-
biskups í Hiilastifti forna í stað sr'.
Friðriks J. Rafnars, sem lézt 21.
marz sxðastliðinn.
Kosinn var sr. Sigurður Stefáns-
son, sóknarprestur á Möðruvöllum,
og hlaut liann 15 atkvæði, en 28
prestar kusu. Sr. Friðrik A. Frið-
xiksson, sóknarprestur ;i Hxisavík,
fékk 11 atkvæði, og scra Benja-
mín Kristjánsson, sóknarprestur í
Grundarþingum, 2 atkvæði.
Séra Sigurður Stefánsson er 55
ára að aldri, fæddur 10. nóv. 1903 á
Bjargi við Reykjavík, og voru for-
eldrar hans hjónin Stefán Hannes-
son frá Litla-Botni og Guðrún
Matthíasdóttir frá Fossá í Kjós,
sx'ðar veitingakona í Reykjavík.
Sigurður lauk sttxdentsprófi 1924
og embættispráfi í guðfræði við
Háskóla íslands í febrúar 1928, og
hafði þá áður um skeið stundað
nám við Hafnarháskóla. Hann tók
prestsvígslu vorið 1928 til Möðru-
vallaklausturs, og var þá aðeins 24
ára. Hefur hann þjónað því brauði
síðan og Bægisárprestakalli forna
að auki frá 1941, er það var saln-
einað Möðruvöllum.
Sr. Sigurður hóf búskap á Möðru-
völlum þegar við komu sína þáng-
að og bjó þar lengi stóru búi, en
hefur nú minnkað við sig og leigt
hluta prestsetursjarðarinnar undan
farin þrjú ár. Hús öll liefur hann
byggt upp, íbúðarhúsið eftir brun-
ann 1937 og sléttað hið víðlenda,
gamla tún og fært út að miklum
mun.
Skólamál og mörg fleiri menn-
ingarmál í héraði hefur séra Sigurð-
ur látið til sfn taka og ritað nokkuð
i' blöð og tímarit. Utvarpserindi
hans, einkum um ævi séra Jóns Þor-
lákssonar á Bægisá, hafa vakið at-
hygli, en séra Sigurður er nú að
skrifa bók um þennan fræga fyrir-
rennara sinn.
í sýslunefnd hefur séra Sigurður
átt sæti síðan 1951, og í fleiri trún-
aðarstöður hefur liann verið kjijr-
inn af sveitungum sínum og hér-
aösbúum.
Prófastur í Eyjaf jarðarprófasts-
dæmi varð hann 1954, og sumarið
1956 var hann fulltrúi vígslubisk-
ups Hólastiftis á Skálholtshátíðinni
og oftar kjöri séra Friðrik J. Rafnar
hann að staðgengli sínum síðustu
árin. Við formennsku hans í Presta-
félagi hins forna Hóiastiftis tók sr.
Sigurður árið 1955.
Sr. Sigurður Stefánsson á Möðru-
völlum er mikils virtur kennimaður
og mjög vinsæll. Hann er snjall
ræðumaður og hinn virðulegasti
maður, hvar sem lxann fer. Vel
nxun hann valda þeirri særnd, sem
hann hlaut við hið norðlenzka
biskupskjör.
Sr. Sigurður er kvæntur Maríu
Agústsdóttur, cand. phil. úr Reykja
vík, og eiga þau fjögur böm.
Ráðgert er, að biskupsvígsla fari
fram seint í næsta mánuði að Hól-
Frá Hagstofu íslands
KAUPLAGSNEFND hefur reiknað
út vísitölu framfærslukostnaðar í
Reykjavík 1. júlí 1959, og revndist
hún vera 100 stig eða óbreytt frá
grunntölu vísitölunnar 1. marz sl.
um, og verður sr. Sigurður hinn
fjórði vígslubiskup i Hólastifti. Eru
hinir:
Séra Geir Sæmundsson, Akureyri,
1910-1927.
Séra Hálfdan Guðjónsson, Sauð-
árkróki, 1928-1937.
Séra Friðrik J. Rafnar, Akureyri,
1937-1959.
Séra Sigurður Stefánsson.
Tóku þeir allir vígslu í Hóla-
dómkirkju, en fyrsta biskupsvígsla
fór þar fram 30. jx'ilí 1797, er síðasti
Hólabiskup, Sigurður Stefánsson,
vígði Geir Vídalín Skálholtsbiskup
og siðar biskup yfir öllu landínu.
Geta má þess til gamans, að Sig-
urður Stefánsson Hólabiskup var
einmitt vígður prestsvígslu til
Möðruvalla í Hiirgárdal eins og al-
nafni hans, hinn nýkjörni vígslu-
biskup, og gegndi þar prestsemb-
ætti um nokkur ár.
Undanfarna daga hefur ferða-
mannastraumuninn verið mjög
mikill .á Norðurlandi. Margt er
um útlendinga. Ferðaskrifstofur
upplýsa, að aldrei fyrr hafi eins
margir útlendingar gist landið,
sem ferðamenn.
En ferðaskrifstofur og gistihús
veita hins vegar ekki upplýsingar
um fjölda ferðamanna í heild og
geta það ekki, vegna þess hve
margt ferðafólk sneiðir nú hin
síðari ár fram hjá gististöðum.
Þetta fólk ekur á sínum eigin
bifreiðum, hefur með sér tjald og
nesti og hvers konar viðleguút-
búnað og leitar friðsælrarinnar á
fögrum stöðum, helzt langt frá
glaumi þéttbýlisins, og þarf
minni eyðslueyri en ella mundi.
Hið dásamlega veðurfar und-
anfarnar vikur dregur fólkið
’hingað norður, og víst er það
velkomið. Það slær upp tjöldum
á fögrum stöðum, svo sem hvar-
vetna má sjá nálægt þjóðvegum.
Börn og fullorðnir njóta sólar,
útivistar og friðsældar hina fögru
sumardaga. Og fararskjótinn
stendur tilbúinn til heimferðar ef
veðurguíimir skipta skapi. En
hin milda veðrátta undanfarið
hefur síður en svo raskað þeim
unaðssemdum ferðalanganna, að
eiga nokkurra daga samneyti við
Fréttaritarar blaðsins í næstu
sýslum segja grassprettu óvenju
góða en þurrka daufa þar til nú
um helgina.
Hólum í Hjaltadal 29. júíí.
Þurrkleysur hafa verið fram að
siðustu helgi, en þá kom góður
þurrkur. Hey voru töluvert
hrakin ,en grassprettan er betri
en undanfarin sumur. Sumir
bændur eru að enda við að slá
fyrri sláttinn og er grasið orðið
úr sér sprottið. Súgþurrkun er
óvíða á bæjum, en þar sem hún
er, gengur heyskapurinn mun
betur.. — í Húnavatnssýslum
munu þurrkar hafa verið betri.
Ófeigsstöðum 29. júlí.
Hér er sólskin og blíða, góðir
þurrkar um helgina, en stopulir
þangað til. Ástandið hefði ekki
verið gott, ef súgþurrkunar, sem
nú er hér á flestum bæjum, hefði
ekki notið við. Flestir bændur
munu vera búnir að hirða fyrri
slátt. Nú ná saman fyrri og síðari
sláttur eftir að tún urðu svo stór,
sem nú er.
Sprettan er ágæt á túnum, en
útengjaheyskapur er víðast hvar
alveg úr sogunni. *
„Eg hef haft,“ sagði fréttamað-
urinn ennfremur, „ágætt hey-
skaparfólk úr Reykjavík —
framkvæmdastjórn SÍS, og þá
gekk nú, — hirtum hey í hlöður
um 5 þús. kr. virði á tveim
dögum.“
Skógrækt ríkisins er að ljúka
við að girða Fellsskóg í landi 6
jarða.
náttúru landsins þegar hún
skartar sínu fegursta.
Hins vegar takmarkar gisti-
húsaskorturinn erlendan ferða-
mannastraum og virðist allfjarri
skapgerð íslendinga að laða
hingað erlenda gesti í því skyni
að afla með því gjaldeyristekna.
Sá háttur var á hafður í þetta
sinn, að fé var ekki rúið fyrr en
um 20. júlí.
Lítið hefur veiðzt af laxi í
Fljótinu ennþá. Vatnið er flesta
daga kolmórautt vegna hitanna.
Sauðárkróki 29. júlí.
Héraðsmót ungmennafélaganna
fór fram um helgina, en var lítið
sótt, því að allir voru önnum
kafnir við heyskapinn. — Mikið
hefur verið hirt af heyjum síð-
ustu daga.
Atvinna er hér góð og afli tog-
báta góður, afli handfærabátavar
einnig góður, þar til nú, að hann
er misjafnari.
HVARVETNA þar, sem er-
lendur her dvelst, gengur hið
svokallaða siðferði úr skorð-
um, því að ekki tíðkast það
ennþá, þrátt fyrir fjölbreytt-
an og fullkominn útbúnað
hermannanna, að þeir hafi
með ser konur. Sannast þá hið
fornkveðna, að „þótt náttúran
sé lamin með lurk, leitar hún
út um síðir“.
Verndarar okkar hinir banda-
rísku leita íast eítir félagsskap ís-
lenzkra kvenna undir yíirskyni vin-
áttunnar, ekki sízt vegna þess meðal
annars, að hér er kvennahold ekki
opinber verzlunarvara, svo sem víða
tíðkast annars staðar.
. Þingvellir, liinn fornhelgi staður
íslendinga, hefur oít verið leik-
vangur drykkjuóðra manna og
kvenna, sem félagasamtök hafa hó-
að þar saman til fjöldafunda.
En þegar hinir erlendu verndar-
ar tóku að stunda ólifnað með ís-
lenzkum konum á þessum stað i
stórum stíl, rumskuðu menn og
fundu til nokkurs sársauka. Jafnvel
hinurn frjálslyndustu þótti ekki
hæfa að þjóðgarðurinn á Þingvöll-
um væri gerður að lyrsta opinber-
um saurlífisstað landsins.
Bliiðin víttu framferðið og kröfð-
Nú er Sauðárki'ókur síldarbær.
Búið að salta hér urn 2 þúsund
tunnur, en undanfai'in sumur
hefur varla sézt hér síldar-
branda.
Fosshóli 29. júlí.
Ljómandi veður, hitinn var
fast að 30 gráður í Bárðardal um
helgina. Sprettan er feikna mikil
og algert einsdæmi. Eg var að
skoða nýræktarsléttu hérna um
daginn og gekk þá fram á 4
kindur, sem eg sá ekki fyrr en eg
kom fast að þeim, svona var
grasið hátt. En þurrkleysur,
jafnhliða góðri sprettutíð, valda
því að víða vex grasið of mikið
Framhald á 7. siðu.
ust synjunar fararleyfa hermanna
á Þingvöll, og bar það viðunandí
árangur.
Hneykslið á Þingvöllum sýnir
það glöggt, að íslenzk stjórnarvöld
þurfa sterkt aðhald alménnings-
álitsins og skelegga baráttu þjóð-
hollra tnanna fyrir helgum, söguleg-
um verðmætum.
NORÐUR á Siglufirði urðu þau
tíðindi á laugardaginn var, að
hundruð ölóðra manna brutu meg-
inhlifta af húsbúnaði á Hótel Höfn,
flestar rúður hússins og skrámuðu
innveggi þess svo mjög, að talið er
að þurfi nokkrar vikur til að gera
það samkomuhæft á ný.
Á laugardaginn var landlegudag-
ur og fjöldi manns í landi. Lög-
reglan beitti táragasi, flutti fjölda
manns í steininn og um borð í
skipin, ýmist dauðadrukkna eða öl-
óða. Hér var ekki útlendingum um
að kenna þau æðislegu skrílslæti og
spellvirki, sem framin voru. Stór-
kostleg slagsmál urðu, misþyrming-
ar og þjófnaður framinn.
Blöð og útvarp hafa skýrt ræki-
lega frá atburði þessum og birt
myndir af verksunnnerkjum.
Þcssi atburður er smánarblettur
á íslenzkri sjómannastétt og þjóðar-
skömm.
Berserksgangur og ölæði ís-
lenzkra sjómanna á Siglufirði og
ástríða sunnlenzkra kvenna til
þerriblaðsþjónustu við erlenda her-
menn eru hliðstæður og eiga rætur
í svefndrukkinni siðferðisvitund
þjóðarinnar.
Nótinoi kastað af
bátaþilfarinu
Skýrt hefur verið frá merki-
legri nýjung, sem vélbáturinn
Guðmundur Þórðarson frá Rvík
hefur notað á síldveiðunum fyrir
norðan. Hefur báturinn enga
nótabáta, heldur hringnót, sem
kastað er af bátaþilfarinu. í ann-
ai'l’i bátasiglunni stjórnborðs-
megin, sem áður var notuð fyrir
nótabát, er komið fyrir blökk og
nótin dregin eingöngu inn með
henni.
Lætur skipstjórinn, Haraldur
ðgústsson, vel af þessari veiðiað-
ferð, og telur að nú sé gengið úr
skugga um, hvernig bezt sé að
beita henni með góðum árangri.
1 30 ár hefur mikið magn smasíldar verið á Pollinum og Eyjaiirði
innanverðum, en Iítið verið hagnýtt. Hér er verið að seíja síldina í
beitukassa og krían lætur slíkt hnossgæti ekki fram hjá sér íara.
(Ljósmynd: E. D.).
Mikill ferðaman nastraumur um
Norðurland undanfarna daga
BERSERKIR Á SIGLUFIRÐI OG
ÓLIFNAÐUR Á ÞINGVÖLLUM