Dagur - 14.10.1959, Síða 1
DAGUR
kemur næst út Iaugar-
daginn 17. október.
56, tbl.
Creiðfært úr Sölvsdal suður á hálendi
A
Einangrun Vest-
fjarða rofin
. Um síijustu mánaðamót var
merkum áfanga náð í samgöngu-
málum landsins. Þá varð Vest-
fjarðavegur fær bifi-eiðum. Á
nokkrum kafla er vegurinn þó
ekki fullgerður ennþá, en fær
traustum farartækjum. Vöð hafa
verið gerð á 8 óbrúuðum ám. Frá
Mjólká að Vatnsfirði á Barða-
strönd eru um 35 km. Þegar veg-
urinn er fullbyggður, verður
hægt að fara milli Isafjarðar og
Vatnsfjarðar á Barðaströnd á um
3 klukkustundum.
Vestfirðíngar fögnuðu mjög
opnun hins þráða vegar. Forset-
inn sendi þeim svohljóðandi
skeyti frá Bessastöðum:
„Eg sendi beztu heilla- og
árnaðaróskir til allra ísfirðjnga
í hinu gamla og óskipta kjör-
dæmi Jóns Sigurðssonar í til-
efni af opnun Vcstfjarðaveg-
ar.“
Skemmfun og
Framsóknarmenn efndu til al-
menns kjósendafundar að Laug-
um í Reykjadal föstudaginn 9.
október.
Fundarstjóri var Sigurður
Haraldsson bóndi á Ingjalds-
stöðum. Frummælendur voru
fjórir efstu menn á framboðslista
Framsóknarflokksins í þessu
kjördæmi.
Aðrir ræðumenn voru: Valtýr
Kristjánsson, Teitur Björnsson,
Hjörtur Tryggvason, Þráinn
Þórisson, Ketill Indriðason, Ás-
kell Sgurjónsson, Ingi Tryggva-
son og Steingrímur Baldvinsson.
Karl Kristjánsson flutti síðan
ræðu í tilefni þess, er fram hafði
komið í hinum almennu umræð-
um.
Á laugardaginn, 10. þ. m.,
héldu Framsóknarmenn kvöld-
skemmtun í Olafsfirði.
Karl Kristjánsson og Gísli
Guðmundsson fluttu stuttar
Varði doktorsritgerð
Á sunnudaginn varði Róbert
A. Ottósson doktorsritgérð sína
um Þorlákstíðir. Hófst doktors-
vþrnin kl. 2 e. h. í háskólanum.
Doktorsritgerðin fjallar um
skinnhandrit í Árnasafni, sem
talið er vera frá ofanverðri 14.
öld.
Báðir ar.dmælendurnir luku
miklu lofsorði á doktorsritgerð
Róberts A. Ottóssonar.
Ferðafélag Akureyrar leitar nýrra leiða fram
úr Eyjafirði suður á hálendið í sambandi við
Sprengisandsveg
GOTUM AKUREYRAR
Himdruð unglinga hindra umferðina svo lög-
reglan fær lítt við ráðið
'Eins og kunnugt er, hefur
Ferðafélag Akureyrar lengi haft
forgöngu um fjallaferðir, bygg-
ingu sælahúsa og könnun nýrra
leiða til óbyggða. Félagið hefur
jafnan haft miklum áhugamönn-
um og ódéigum á að skipa og
hefur enn.
Sæluhúsið í Herðubreiðar-
lindum er síðasta stóra verkefni
félagsins og mun byggingu þess
og öllum frágangi lokið á næsta
sumri. En nú þegar hefur það
komið í- góðar þarfir, því. að
fjöldi ferðamanna fer á sumri
hverju um þær slóðir, sérstak-
lega eftir að bílfært varð þangað-
Ferðafélagið er nú að kanna
þær leiðir fram úr Eyjafirði, upp
á hálendið og í sambandi við
Sprengisandsveg, sem líklegastar
þykja að komi til greina. Þann
19. september í haust lögðu 4
ferðafélagsmenn upp í körinun-
arferð á 2 jeppum og óku þeim
Magnús Guðmundsson og Bragi
Svanlaugsson, og " skoðuðu þeir
Þormpðsstaðadal, en urðu frá að
hverfa. Þeir sneru þó ekki heim
við svo búið, heldur fóru þeir
hinn gamla Vatnahjallaveg. En
hann hefur ekki verið farinn
undanfarin ár, enda ekki- við
haldið um. margra ára skeið, og
héldu til Laugarfells og gistu
þar. Næsta dag skyldi ekið út á
Frafnhald ú 7. si&u.
Á sunnudagskvöldið safnaðist
fjöldi unglinga saman í Hafnar-
stræti og Skipagötu og gerði sér
leik að því að stöðva umferðina.
Héldu þeir uppi stöðugri um-
ferð á hinum merktu- gangbraut-
um og lögðu hindránir á göt-
urnar.
Á mánudagskvöldið endurtóku
unglingarnir þessa „kvöld-
skemmtun“ sína og voru þá bæði
fjölmennari og aðsópsmeiri. —
Mannfjöldir.n í Hafnarstræti
mun hafa skipt hundruðum, mest
unglingar, og voru það bæði
skólanemendur og aðrir. Þetta
atferli minnir á gamlárskvöld, en
er annars óþekkt fyrirbiigði
endranær hér í bæ. Lögreglan
átti í hinum mestu erfiðleikum
við að dreifa mannfjöldanum og
halda uppi umferðínni. Hún tók
allmarga unglinga til yfirheyrslu,
bæði pilta og stúlkur, og stendur
rannsókn málsins yfir.
Framhald á 2. siðu.
Unga fóikið í
skólunum,
allt frá smábarnaskóla til
mennatskóla, þarf að kaupa
bækur og ritföng þegajr skólar
hefja starí. — Það var ös í
ritfangaverzlunum bæjarins
daginn sem skólarnir voru
settir og þá var mynd þessi
tekin í einni þeirra.
■ r
ræðu og auk þess fór Karl Krist-
jánsson með vísnaþátt, Jóhann
Konráðsson söng einsöng
undiileik Jakobs Tryggvasonar
og að síðustu var stiginn dans.