Dagur - 04.11.1959, Blaðsíða 2

Dagur - 04.11.1959, Blaðsíða 2
2 D A G U R Miðvikudaginn 4. nóvcmber 1959 KVEÐJUORÐ Snæbjörn Þorleifsson bifreiðaeftirlitsmaður Það var sannarlega þung raun að verða að bergja þann beiska bikar, sem við hjónin urðum að gera og aðrir vinir Snæbjarnar Þorleifssonar fulltrúa, er við fiéttum lát hans sunnudags- morguninn 25. þ. m., og erfitt að átta sig á því, svo mjög sem það kom á óvænt, þótt þyngst hafi raunin orðið hjá ástvinum hans. En enginn ræður sínu skapa- dægri, öll verðum við að hlíta kallinu þegar það kemur. Það er sannarlega stórt skarð höggvið í hóp samborgaranna hér á Akur- eyri við fráfall hans. Hann var mjög vinsæll maður, greiðvikinn í orðsins fyllstu merkingu, dag- farsprúður og drengskaparmað- ur hinn mesti. Eg, sem þessar línur rita, hef, og heimili mitt, átt því láni að fagna að eiga hann að vini. Hann var ætíð boðinn og búinn að verða við óskum ann- arra, hvernig sem á stóð hjá honum. Eg get aldrei fullþakkað honum það sem hann var mér og mínu heimili. Hann var hinn hlýi, glaði og góði gestgjafi. Margar ógleyman- legar ánægjustundir höfum við átt á heimili hans og þeirra hjóna. Jarðarförin fór fram frá Akur- eyrarkirkju laugardaginn 31. okt. að viðstöddu fjölmenni. Það sýndi þar, hve vinsæll maður Snæbjörn Þorleifsson var og all- ir vissu hve vel hann rækti störf sín í þágu hinna mörgu sem við- skipti höfðu við hann. Hina kirkjulegu athöfn önn- uðust • prestarnir, skólabræður séra Birgis, sonar hans, og nánir vinir fjölskyldunnar, séra Sig- urður Haukur Guðjónsson á Háfsi, sem jarðsöng og flutti að- alræðuna, og séra Ingimar Ingi- marsson á Sauðanesi, sem flutti kveðju' óg þákkarorð frá sér og' bekkjarbræðrum. Nú er vinur minn, Snæbjörn, horfinn sjónum okkar, en minn- ingin um hann tendrar Ijós og yl í hjörtum okkar. Að síðustu bið eg Guð að blessa og styrkja ást- vini hans, sérstaklega beini eg þeirri ósk minni til konu hans, vinkonu minnar Jóhönnu Þor- valdsdóttur. Helga Jónsdóttir frá Öxl, Á laugardaginn var fylgdu Akureyringar og Eyfirðingar einum vinsælasta ' samborgara sínum, Snæbirni Þorleifssyni fulltrúa, til grafar. Snæbjörn var. yngstur 13 syst- kina, ættaður frá Grýtu í Eyja- firði, sonur Þorleifs Jónssonar bónda þar og Júlíu Flóventsdótt- ur konu hans, og fæddur 22. marz 1901. Hann ólst upp með foreldrum sínurn og hinum stóra systkina- hóp við lítil efni, en fór ungur til dvalar á Munkaþverá til merkis- bóndans Stefáns Jónssonar. — Þaðan tók hann sig upp 19 ára gamall og hélt til Hvanneyrar og útskrifaðist þaðan árið 1922. En ekki lá þó leið hans til búskapar, enda seinfarin þeim, sem efna- lausir voru á þeim tíma. Snæbjörn flutti til Akureyrar og lagði stund á bifreiðaakstur. Okuskírteini hans var hið 14. í röðinni. Hann vann lengi hjá Bifreiðastöð Akureyrar og ók bifreiðum árum saman á lang- leiðunum, bæði austur og suður, og þótti með færustu ökumönn- um. Á þessum árum eignaðist Snæbjörn óteljandi vini, því að hann var, auk þess að vera flest- um hæfari ökumaður á erfiðum vegum, hvers manns hugljúfi vegna alúðlegrar framkomu sinnar og óvenjulegrar greiða- semi. Árið 1937 varð Snæbjörn full- trúi bifreiðaeftirlitsins og gegndi því starfi hér í bænum til dauða- dags. í því starfi var hann vin- sælli en almennt gerist um opin- bera starfsmenn, jafn ófús að beita hörku réttvísinnar og að þola yfirgang þeirra mörgu, sem ekki taka nægilegt tilht til ann- arra í vaxandi umferð og æfin- lega fús til að greiða hvers manns götu. Á yngri árum var Snæbjörn hinn vaskasti íþróttamaður og var oft sóttur til keppni þegar mikils þótti við þurfa á Akureyri. Hann var mjög góður knatt- spyrnumaður, og eitt sinn mun hann hafa jafnað íslandsmet i 800 metra hlaupi. Snæbjörn var gæddur fumlausri og drengilegri keppnishörku á leikvangi íþrótt- anna og hana átti hann alla tíð, þótt hógværð, háttprýði og vel- vilji væru þeir eðlisþættir, sem alla tíð einkenndu hann mest, bæði í starfi og utan þess. Eftirlifandi kona hans er Jó- hanna Þorvaldsdóttir og varð þeim þriggja barna auðið. Snæbjörn Þórleifssoh hafði kennt sér vanheiísu síðustú árin, en varð bráðkvaddur 24. október. Nú, sem ætíð áður, eru daprar stundir við dánarbeð og syrgj- endur sárir í hjarta. Þá knýr ráðgátan mikla um líf og dauða ástvini og aðra til umhugsunar um ferðina miklu, sem framund- an er. Við vegamótin eru hin svokölluðu veraldargæði eftir skilin. En góðir menn eiga þó gildan farareyri til hinna ókunnu stranda. Farareyririnn er vinátta allra þeirra, sem eftir standa og hlýhugur samborgaranna, og hann mun öllum auði betri við þáttaskil á kveðjustund. Þá vin- áttu vil eg votta hinum látna heiðursmanni, Snæbirni Þorleifs- syni fyrir mína hönd og annarra samferðamanna, sem blessa minningu hans, með þakklátum huga. — E. D. - Nýja sjúkraflugvélin Framhald aj 1. siðu. Tryggvi Helgason fór svo til Bandaríkjanna fyrir fimm vik- um, til að festa kaup á flugvél. Er hann hafði undirbúið kaupin og gengið frá þeim, skrapp Aðal- björn Kristbjarnarson flugstjóri vestur til að aðstoða Tryggva við heimferðina. Þeir félagar lögðu svo af stað frá Bradley Field, sem er litlu norðar en New York, og héldu heim á leið á miðvikudaginn var. Fyrst flugu þeir norður að Houlton við landamæri Kanada og hafði íslenzk flugvél aldrei sézt þar áður. Þaðan var haldið til Goos Bay og síðan Saglek. — Þaðan var flogið beint til Grænlands og lent í Syðri Straumfirði og tók sá áfangi 5,30 klst. Á þessari leið urðu þeir fé- lagar veðurtepptir einn dag. Á sunnudagsmorguninn var enn lagt af stað og flogið þvert yfir Grænlandsjökul, í stefnu til Reykjavíkur. En þegar ófarnar voru um 80 mílur eða svo, var stefnunni breytt til norðausturs, flogið yfir Snæfellsnes og beina leið til Akureyrar. Þá hafði flugvélin verið 23,55 klst. á lofti. Vel búið farartæki. Hin nýja sjúkraflugvél er búin mjög fullkomnum blindflugs- tækjum og miðunarstöð. í henni eru tveir radiokompásar. Hún er tveggja hreyfla af Piper Apache- gerð. Hver hreyfill hefur 150 hestöfl. Einkennisstafir eru: TF—JMH. Þessi flugvél hefur 6,30 klst. flugþol og má auka það veru- lega með varabenzíngeymi. — Flughraði 150—170 mílur. Hún tekur 4 farþega eða sjúkrarúm og einn til tvo fanþega. Fullhlað- in þarf hún 300 metra langa flugbraut, en mjög létthlaðin ekki nema 120 metra völl. Nýja sjúkravélin getur lent á öllum •, jTiqi’kjtunj-, flugvöllum við venjulég skílyrði. Hún mun kosta um 700 þús. krónur með nauðsynlegum varahlutum. Eigendur eru: Tryggvi Helga- son flugmaður, Rauðakrossdeild- in og Slysavarnadeild kvenna. — Tryggvi verður flugstjóri, og er hann búinn að fljúga um 11 ára skeið, síðustu árin hjá Flugfélagi íslands, og nytur mikils trausts allra þeirra, sem til hans þekkja. Sjúkraflug geta nú hafizt hér innan skamms. Vélin verður staðsett hér á Akureyri. Gæfan fylgi henni hvert sem hún fer. m rékknesk rafeldavél, nijög nýleg. — F.nn fremur ensk- ur Collaro-plötuspilari með innbyggðum magnara, í ágætu lagi. Afgr. vísar á. Nokkrar stúlkur óskast Gætum einnig bætt í Hraðfrystihus Ú. A. við nokkrum stúlkum seinni hluta dagsins N Ý K O M I Ð Taftsilki, 12 litir Slankbelti Baðhandklæði Flónel, köflótt Rennilásar og mikið af alls konar SMÁVÖRUM. SPILAKVOLD Munið SPII.AKVÖLD skemmtiklúbbs Léttis föstudag- inn 6. nóvember kl. 8.30 e. h. í Alþýðuhúsinu. Mœtib slundvíslega, góð skemmtun. SKEMMTINEFNDIN. 00 A12 Hesputré með gárnvindu NÝKOMI N. Verð kr. 156.00. Nauðsynleg fyrir alla KNIT FAX-eigendur. Póstsendum. BRYNJÓLFUR SVEINSSON H.F. Sími 1580. - Pósthólf 225. Laugarborg # r * f , : /i’. ’ DANSLEIKUR laugardagskvöldið 7. þ. m. kl. 9.30. JÚNÓ-kvartettinn leikur. — Sætaferðir. U. M. F. Framtið — Kvenfélagið lðunn. SKAGFIRÐINGAFÉLAGIÐ Á AKUREYRI heldur AÐALFUND sinn að Túngötu 2, laugardaginn 7. þ. m. kl. 5 e. h. Vejijuleg aðalfundarslörf. STJÓRNIN. Jörðiri MERKIGIL í Hrafnagilshreppi er til sölu og laus til ábúðar í næstu fardögum. Á jörðinni er stein- steypt íbúðarhús, fjós fyrir 32 kýr og hlaða, sem tekur 1500 hesta af heyi, hvort tveggja nýlegt. — Tún allt vél- tækt, vel ræktað. Stærð ca. 30—35 hektarar. — Ræktan- legt land mikið. — Sími, rafmagn lrá Laxárvirkjun. — Jörðin liggur 14 km frá Akureyri. — Vélar og bústofn getur fylgt ef óskað er. — Venjulegur réttur áskilinn. — Allar upplýsingar gefur eigandi jarðarinnar PÁLL JÓNSSON, Mcrkigili, simi um Grund.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.