Dagur - 04.11.1959, Blaðsíða 8

Dagur - 04.11.1959, Blaðsíða 8
Daguk Miðvikudaginn 4. nóvembcr 1959 Fordson Major yfirbyggður á Akureyri Grímur Valdimarsson, bifreiða-yfirbyggingasmiður á Akureyri, hefur nýlega byggt hús það á Fordson Major dráttarvél, sem með- fylgjandi mynd sýnir. Það er sterkt mjög og talið þola veltu og vel smíðað, að því er séð verður. — Dráttarvél þessi er tekin til starfd við Akureyrarflugvöll. — Vegna hinna tiðu slysa í sambandi við alístur dráttarvéla, er nauðsynlegt að fylgjast með öllum nýjungum, sem til þess mættu verða, að veita meira öryggi í meðíerð þessara tækja. — (Ljósmyndina tók E. D.). Norðmenn fefa í slóð íslendinga Jens Steffensen, form. fiskifé- lags Noregs, sagði nýlega í við- tali við Aftenposten, að framtíð norskra fiskveiða byggðist á 12 mílna landhelgi. Ef ráðstefnan í Genf yrði árangurslaus, væri ekki um annað að gera fyrir Norðmenn en að feta í fótspor ís- lendinga og færa landhelgina út í 12 mílur. Margir sviptir ökuleyfi á þessu ári Olvun er tíð við akstur og hart á því tekið í gær munu tveir eða þrír menn hafa verið sviftir ökuleyfi vegna ölvunar. En alls munu þeir vera um eða yfir 30, sem af þessum sökum hafa verið sviftir ökuleyfi hér það sem af er þessu ári, og er það mun meira en á sama tíma í fyrra. Vera kann, að ölvun sé þó ekki meiri en verið hefur, en eftirlit- Kuldaúlpurnar Kuldaúlpurnar eru sennilega beztu skjólfötin, sem íslendingar hafa nokkru sinni átt. Þær eru nú orðnar svo algengar, að kalla má þær eins konar þjóðbúning íslendinga. Framleiðsla þeirra er um tveggja áratuga gömul og er mjög vaxandi. , Norðlendingar kannast við Hekluúlpurnar. Erlendis vekja þessar úlpur mikla og verðskuld- aða athygli. En vegna innflutn- ingstolla í öðrum löndum hefur útflutningur í stórum stíl ekki getað orðið. Illræmdar mannætur Enn eru órannsökuð stór en torfarin landsvæði í Nýju Gíneu. Þar búa hinir illræmdu hausa- veiðarar og mannætur. Ur flug- vélum hafa menn horft yfir land þeirra og er þar sýnilega nokkur verkmenning, svo sem áveitur. En frumskógar og fjallgarðar hafa torveldað alla rannsókn á þessum þjóðflokkum til þessa. ið strangara, og þykir það lík- legra. — Yfirleitt mun þess ekki hafa verið gætt sem skyldi, að ölvun og akstur fer illa saman, og er meira en mál til komið fyr- ir ökumenn að hugsa alvarlega um þessa hluti. Löndunartregða. Hinn 25. okt., kosningadaginn, varð hörð rimma á fjölmennum fundi fisklöndunarmanna í Grimsby. Samþykkt var þó á endanum, að landa úr íslenzka togaranum Karlsefni, sem þá var á leiðinni þangað með fisk. Þar með var hið nýja löndunarbann úr sögunni, a. m. k. í bráðina. Ymis fíðindi úr nágrannabyggðism Síldarverksmiðjan athuguð Húsavík 3.' nóvember. Smáföl er á jörð og fremur stopular gæftir. Hingað kom nýlega tæknilegur framkvæmdastjóri Síldarverksmiðja í'íkisins til at- huga möguleika á stækkun síld- arverksmiðjunnar hér og gera áætlanir þar um. Byrjað er að leggja gangstéttir hér í kaupstaðnum. Nýlega er lokið viðgerð og endurbótum á vatnsveitu kaupstaðarins. Lögð var aðalvatnsæð í norðurhluta hans og er þar með bætt úr lang- vinnum vatnsskorti í þeim bæj- arhluta. Kirkjukórar á æfiiigu Reynihlíð 3. nóvember. Á sunnudaginn var komu allir kirkjukórar í Suður-Þingeyjar- sýslu saman í Skjólbrekku. Hófst samkoman með kaffidrykkju, en einstakir kórar sungu á meðan uppi á leiksviðinu. Þarna voru saman komin 240 manns. Ræður voru fluttar og sameig- inleg söngæfing að borðhaldi loknu og að lokum var dansað fram á nótt. Fundur þessi mun hafa verið haldin til undirbún- ings söngmóti næsta vor. Mikið er unnið að byggingum. Sex íbúðir eru í smíðum í sveit- inni og nokkur útihús, bæði fjós og hlöður. Ennfremur hefur ver- ið unnið að kirkjubyggingunni í Reykjahlíð í sumar. Ekki er hið nýja guðshús fokhelt orðið, en þó komið undir þak. Nokkrir hafa farið til rjúpna, en veiði verið misjöfn og yfirleitt lítil. Kennarafundur á Sauðárkróki Sauðárkróki 3. nóvcmber. Föl er á jörðu en veður gott. Afli hefur verið hinn sæmilegasti að undanförnu. Nýlega var haldinn hér sam- eiginlegur fundur kennara fyrir Húnavatns- og Skagafjarðarsýsl- ur og prestum boðið á fundinn. Á fundi þessum voru 41 og þar af 35 starfandi kpnnarar. Stefán Jónsson námsstjóri flutti erindi um móðurmálið og hættur þær, sem að því steðjuðu. Séra Lárus Arnórsson flutti er- indi um kristindómsfræðslu í skólum og Þoi'steinn Einarsson íþróttafulltrúi um líkamsrækt og iðkun íþrótta í skólum. Þá sýndi Gestur Þorgrímsson skuggamynd ir og kynnti notkun þeirra í kennslu og Jón Björnsson ávarp- aði fundinn og flutti skorinorða tillögu um áfengismál. Fundti heita uppsprettu Blönduósi 3. nóvembcr. Eftir- leitarmenn á Eyvindarstaðaheiði fundu heita uppsprettu í Tjarn- ardragi uppi undir Hofsjökli. — Mýi-ardrag þetta, hið svonefnda Tjarnardrag, er ógreitt yfirferð- ar, en sér vel yfir, svo að gangna menn munu ekki oft hafa um það farið. En að þessu sinni var sá mað- ur með í för, sem vel kannaðist við hverahrúður og önnur þau litbrigði, sem venjulega fylgja Hvað eiga þeir gömlu að gera? Langlífinu fylgja mörg vandamál Vincent Asky, forseti lækna- félags Bandaríkjanna, sagði ný- lega, að líkur bentu til þess að meðalaldur manna myndi bráð- lega verða 100 ár eða jafnvel 125 ár. Þá ágizkun rökstuddi hann m. a. með því að benda á þróun Þreftán nýir menn sifja á Álþingi Töluverðar breytingar verða á skipan Alþingis eftir þessar Selja dætur sínar Samkvæmt erlendum fréttum fer það mjög í vöxt í Japan, að fátækir foreldrar selii dætur sín- ar til leynilegra pútnahúsa. Lög- reglan þar í landi hefur látið það uppi, að fyrstu 6 mánuði þéssa árs hafi 2850 ungar stúlkur verið seldar á þennan hátt. Vændishús hafa að vísu verið bönnuð þar í landi með lögum, en í þess stað eru tehús, gistihús og vínkrár, sem að nokkru þjóna sama hlut- verki. Verðið er um 500 krónur fyrir 14—20 ára stúlkur, misjafnt eftir vexti og verkhæfni. kosningar. Til dæmis fjölgar þingmönnum úr 52 upp í 60. Þrettán nýir þingmenn taka nú sæti á þingi. Þeir eru þessir: Garðar Halldórsson, Jón Skapta- son, Sigurður Ingimundarson, Jón Þorsteinsson, Birgir Finns- son, Pétur Sigurðsson, Birgir Kjaran, Alfreð Gíslason, Geir Gunnarsson, Bjartmar Guð- mundsson, Jónas Pétursson, Auður Auðuns og Eðvarð Sig- urðsson. Nokkrir menn víkja nú af þingi, sem áður hafa setið þar lengi, svo sem: Bernharð Stef- ánsson, Páll Zóphoníasson, Björn Olafsson, Sigurður Bjarnason, Jón Pálmason og Áki Jakobsson. Óvíst hvenær Alþingi hefst. undanfarandi ára og hinna stór- stígu framfara læknavísindanr.a, ásamt bættum lífskjörum fólks í ýmsum löndum. En með lengdu æviskeiði skap- ast ýmis ný þjóðfélagsvandamál, sagði hinn bandaríski læknir. — Það er til dæmis nauðsynlegt að hverfa frá þeirri firru, að láta menn hætta störfum á sjötugs- aldri. KRAKKAR Sjáið þáttinn ykkar á sjöundu síðu. — Geymið hann! hinum heitu stöðum. Þóttist hann sjá þess merki í mýrar- dragi þessu, að þar myndi heitt vatn, og var þetta þá rannsakað og reyndist rétt vera. Ekki er um það vitað, að menn hafi fyrr orð- ið þessa jarðhita varir. Á laugardaginn kemur halda stuðningsmenn B-listans sam- komu í Húnaveri og mun hún verða vel sótt eftir hin góðu kosningaúrslit í Norðurlands- kjördæmi vestra. Um mánaðamótin opinberuðu trúlofun sína Bjarni Sigurðsson, Barkarstöðum, og ísgerður Gunn arsdóttir, Þverárdal, ennfremur Sigfús Guðmundsson, Eiríksstöð- um, og Jóhanna Björnsdóttir, Gili. Fólk þetta er allt í Bólstað- arhlíðarhreppi. Byrjaði að snjóa fyrsta vetrardag Ólafsfirði 3. nóvember. Hér tók að snjóa fyrsta vetrardag og er kominn ofurlítill snjór. Þó hefur Lágheiði verið fær bifreiðum fram að þessu. Fiskafli hefur verið heldur tregari en áður. Ógæftir hafa líka hamlað veiðum. Ekki voru farnir nema þrír róðrar í síðustu viku. Búið er að spila félagsvist í þrjú kvöld. En fram undir þetta hafa allir haft nóg að starfa, bæði við sjóinn og einnig við bygg- ingaframkvæmdir. Nú hefur verið gripið inn í og torveldað vinnu til sjós og lands. En menn mega vera ánægðir, því að haustið hefur verið með ágætum hvað atvinnu og alla afkomu snertir. Slátrun í Haganesvík Hagaiiesvík 3. nóvember. Slátr- un lauk 12. október. Alls var lógað 4021 fjár og var meðalvigt dilka 14.66 kg., en var í fyrra 13.75 kg. Aðgætandi er, að mör- inn fylgir ekki skrokkunum, en hann er um 1 kg. Þyngsti dilkurinn var 25 kg. Eigandi Alfreð Jónsson, bóndi, Reykjarhóli. En mesta meðalvigt dilka var 17.395 kg. hjá Hart- mann Guðmundssyni, Þrasa- stöðum í Stíflu. Sjaldan hefur verið farið á sjó, en aflast vel. Siglufjarðarskarð er nú talið teppt, en jeppi fór þar þó um í dag. Enn sfanda ógnir af mæðiveikinni Hún hefur stuiigið sér niður við ísafjörð Liðið er nokkuð á annan ára-1 Nú í haust varð mæðiveiki tug síðan fjárskipti vegna mæði- vart á bænum Múla í Nauteyrar- veikinnar hófust. Hinn stórfelldi hreppi við ísafjaroardjúp. niðurskurður í heilum landshlut- um og . fjárskiptin, öllu bænda- stéttinni gífurlegu tjóni. Vonir manna um algerða út- rýmingu mæðiveikinnar hafa brugðist, þrátt fyrir hinar miklu Niourskurður var fyrirskipað- ur þegar í stað á öllu fénu á bænum, 220 fjár. Engin skýring heíur fengist á því, hvernig veikin hefur borizt í Nauteyrar- hrepp, þar sem ósýkt svæði liggja þar að.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.