Dagur - 21.11.1959, Blaðsíða 1
Fylgizt með því sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 25. nóvember.
XLII. árg.
Akureyri. laugardaginn 21. nóvember 1959
64. tbl.
Tl ÚLAFS
RAÐHERRAR ERU SJÖ - ÞAR AF ÞRIR
FRÁ ALÞÝÐUFLOKKNUM
Emil Jónsson baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti
sitt á fimmtudaginn. Ólafur Thors tók að sér
myndun nýrrar ríkisstjórnar að beiðni forsetans.
Hin nýja stjórn tók við völdum í gær og hugðist
lýsa stefnu sinni að lokinni setningu reglulegs Al-
þingis síðdegis í gær.
Ráðherrar fyrir Sjálfstæðisflokkinn: Olafur
Thors forsætisráðh., Bjarni Benediktsson dóms- og
iðnaðarmálaráðherra, Gunnar Thoroddsen fjár-
málaráðherra og Ingólfur Jónsson landbúnaðar-
ráðherra. — Ráðherrar Alþýðuflokksins eru: Guð-
mundur í. Guðmundsson utanríkisráðherra, Emil
Jónsson sjávarútvegsráðherra pg Gylfi Þ. Gíslason
viðskipta- og menntamálaráðherra. Myndun hinn-
ar nýju stjórnar er tæplega eins mikill viðburður
og oft endranær er ný ríkisstjórn er mynduð. Þetta
stjórnarsamstarf er ekki nýtt heldur framhald af
stjórn yfirstandandi árs að því breyttu, að Sjálf-
stæðisflokkurinn sezt í ráðherrastólana í stað þess
að standa á bak við þá.
Uggvænlegt ástand sunnanlands
Hey enn úti, tún jafnvel óslegin og mjólkur-
f ramleiðslan svo lítil að til vandræða horfir
Harður aðgangur er dýrin kenndu grunns og voru drep-
in, en sjórinn var blóðlitaður langt út á víkina
Fyrir um það bil þremur. ára-
tugum var gerð tilraun að reka
marsyínavöou á land á Dalvík, en
mistókst. í fyrradag sáu skip-
verjar- á Bjarma, en formaður
á honum er Jóhannes Jónsson,
marsvínavöðu ' skammt undan
Sauðanesi, en þar var báturinn
við þorskanet.
Sneru þeir sér þá að hinni
miklu veiði og ráku marsvínin í
átt til Dalvíkur og gekk það vel
allt að hafnargarðinum. En þá
komu þrír þilfarsbátar og 8 trill-
ur til hjálpar og voru dýrin rekin
fyrirhafnarlítið upp í fjöru, svo
sem 100 metra innan við hafnar-
garðinn. Þar óð Færeyingurinn
Hans Pauli á móti þeim og banaði
fyrsta dýrinu.
Við landtökuna urðu mikil og
férleg sporðaköst og gusugangur,
enda margir menn í f jörunni, sem
tóku á móti skepnunum með
drápsvopn í höndum og hjuggu
og lögðu á báðar hendur. Blóðið
ranh í stríðum straumum' og sjór-
inn litaðist blóði langt fram. Æði
rann á menn í þessum blóðuga
bardaga, svo sem títt er við hvala
dráp. Öll dýrin náðust, og voru
um þrjú hundruð og fjörutíu,
og eru þau stór, þau stærstu um
það bil tvö tonn. Svo heppilega
vildi til, þegar þetta gerðist, að
háflæði var.
Eftir að dýrin höfðu verið
drepin voru þau dregin á land
með tveim jarðýtum og trukkum,
og opnuð. Haft var samráð við
verkstjóra hvalveiðistöðvarinnar
í Hvalfirði og var hann svo á
leiðinni hingað norður í gær, er
þetta er ritað, og ætlar að leið-
beina um hvalskurðinn og með-
ferð kjötsins.
Hvalkjötið er í háu verði er-
lendis, ef rétt er með það farið.
Áríðandi er að skurðurinn gangi
fljótt og vel og hægt sé að frysta
kjötið hið bráðasta. (Frh. á 2. s.).
Gegndarlausar haustrigningar á
Suðurlandi valda því, að bændur
eru víða illa undir veturinn bún-
3r. Síðan um höfuðdag hefur
tæpast þornað á steini, segir í
Suðurlandi, nýlega út komnu.
Og veturinn gekk snemma í garð.
Margir bændur hafa gripi'ð til
þess ráðs að aka hinu marg-
hrakta heyi út fyrir túngarðinn,
þegar örvænt þótti, að það yrði
að nokkru gagni sem fóður.
í nóvemberbyrjun var bæði
flatt hey á túnum og í drýlum
og ljótt um að litast. Sumir eiga
jafnvel enn óslegin tún, jafnvel
upp í helming túna sinna, t. d. í
Framhald á 2. síðu.
Myndirnar á síðunni lók í fyrradag Pálmi Jóhannsson, Dalvík.