Dagur - 05.12.1959, Blaðsíða 5
4
skrif'stoí'.i i H;tltiiitsir;»ti !)ll — Sitni 11<ÍG
••
klTSTJÓHÍ:
ERLÍN G IJ R I) A V í 1) S S (> N
.■Vuglýsingastjúii:
J ó \ S V M t E l, S $ O N
Árgangnrinn kostar kr. 75.00
ltlatVið ktintu tit á niiðvtkmlítgtim og
lattgardtiguni, (tcgar cfni stantla til
Ojaltldagi t-r 1. júlí
PRENTVERK OODS UJ()RNS-SO\AR H.F.
ÞURFA STARFSFRIÐ
ÞÓTT ráðherrarnir séu 7 að tölunni til
'virðast þeir ekki vera í sjöunda himni. Þing-
frestunartillaga forsætisráðlierrans ber því
ljóst vitni, að núverandi ríkisstjóm er ekki
viðbúin þeim vanda, sem hún hefur tekið
sér á liendur. En þar á hún þó alls enga af-
sökun. Þeir stjómmálaflokkar, sem nri
stjórna, höfðu stjómartaumana í sínum
höndum frá Þorláksmessu í fyrra og hafa þess
vegna aðstöðu til að vera öllum málum eins
kunnugir og verða má. Ekki greinir þá
heldur á um leiðir, því að aðalmálgögn
stjórnarflokkanna beggja hafa lýst því yfir,
sérstaklega þó Morgunblaðið, að flokkana
greini ekki á um meginúrræði. Er þetta og
i samræmi við stefnuskrár þessara flokka, sem
eru líkar eins og eineggja tvíburar.
En hvers vegna þora stjórnarflokkarnir þá
ekki að leggja stefnu sína fyrir háttvirt Al-
þingi, en biðja þingið um 2ja mánaða frest?
Aldrei hefur það áður þekkzt, að fjárlaga-
ræðan og fyrsta umræða fjárlaga færi
ekki fram áður en geíið er jólafrí á Alþingi.
Þetta þrjóskast þó stjórnin við að gera og
hefur viðhaft hinar furðulegustu vífilengjur,
þar til á miðvikudaginn, að fjármálaráðlierra
þorði ekki að viðhafa fleiri undanbrögð og
upplýsti, að búa yrði til nýtt fjárlagafrum-
varp til að leggja fyrir þingið eftir áramót
vegna væntanlegra efnahagsaðgerða. Hins
vegar þykir honum ekki æskilegt að gefa
þinghehni upplýsingar um efnahagsástandið,
og þaðan af síður að gefa kost á umræðum
um það mál málanna og er það furðulegt af
fjármálaráðherra landsins.
Um þingfrestunina er það að segja, að hún
er lítt afsakanleg. Nú þegar hafa yfir 30 mál
verið lögð fyrir Alþingi og mörg þeirra mikil-
væg. Formaður þingfloltks Sjálfstæðismanna
hefur afsakað þingfrestunina með þeim orð-
um, að stjórnin þurfi „starfsfrið“. En ekki er
sú afsökun í samræmi við lýðræði og þing-
ræði. Fram að þessu hefur verið litið svo á,
að þingið ætti að taka ákvarðanir stórra mála
og ráðherrar starfa og stjórna samkvæmt
þeim, en ekki öfugt. Afsökunin um „starfs-
frið“ er meira í ætt við þau fræði, sem þýzkir
tileinkuðu sér á dögum Hitlers en íslenzkt
lýðræði fram að þessu.
Ekki er því að neita, að efnahagsörðugleik-
ar eru fyrir dyrum. Bent var á að 250—300
milij. kr. uppbætur og niðurgreiðslur, sem
Emilsstjórnin bætti ofan á það sem fyrir var,
væri hreinn vanskilavíxill, sem síðar yrði að
greiða að fullu. Þessu neituðu Alþýðuflokks-
menn gersamlega og Sjálfstæðisflokkurinn
tók í sama streng og bar það blákalt fram
fyrir síðustu alþingiskosningar, að hagur Út-
flutningssjóðis stæði með blóma og einnig
ríkissjóðs. Nú er komið að skuldadögum. —
Sjálfur forsætisráðherra upplýsti á öðrum
degi ráðherradóms síns, að 250 millj. kr. halli
væri fyrirsjáanlegur á Útflutningssjóði —
þvert ofan í yfirlýsingar þriggja ráðherra
Emilsstjórnarinnar, sem allur landslýður
hlýddu á í útvarpi fyrir kosningamar 25. okt.
Ð A G U R
Laugardaginn 5. desember 1959 Laugardaginn 5. desember 1959
D A G U R
5
J0NAS J0NSS0N FRA HRIFLU:
ER STORSOKN SAMKEPPNISMANNA I ADSIGI!
Ólafur Trygsvi Ölafsson álfatíu og
Samvinnufélögin hafa undan-
farið búið við sæmilegan starfs-
frið, en tvennar kosningar sama
árið hafa orðið tilefni aukinnar
stríðshyggju í herbúðum sam-
keppnismanna. Er þá mörgu við
brugðið. Sambandið er fordæmt
fyrir hina glæsilegu framkvæmd
við ostaheildsöluna. Næst er
kært yfir að Reykjavíkurbær nái
ekki að leggja fimm milljóna
aukaskatt á félagsmannaviðskipti
SÍS og er samvinnulögunum frá
1921 kennt um hömlurnar. Þá
áfella samkeppnismenn SÍS
harðlega fyrir að eiga hluti í
Hinu íslenzka steinolíuhlutafélagi
og Esso, en þau fyrirtæki eru nú
undir rannsókn vegna meintra
fjármálaafbrota. Þá er SÍS og
deildir þess mjög fordæmdar fyr-
ir að hafa keypt og gert út olíu-
skipið Hamrafell, þar sem rekstr-
arhalli muni nú vera allt að 1
millj. króna á mánúði og geti vel
orðið meiri.
Af umræðum af þessu tagi
unaangengna mánuði er sýnilegt
að samkeppnismenn eru reiðu-
búnir til að halda við innbyrðis
óánægju í samvinnufélögunum,
brjóta niður skattavernd þá frá
1921, sem við Hallgrímur Krist-
insson stóðum fyrir að útvega
eftir 40 ára réttleysisaðstöðu, og
að notfæra sér út. í yztu æsar
þau vandkvæði, sem biðu sam-
vinnufélaganna af rekstri Hamra
fells, ef olíufarmgjöld haldast á
núverandi lágmai'ki.
Mér þykir ekki hlýða að sitja
hjá án þess að benda samvinnu-
félögunum á aðsteðjandi hættu.
Hef eg alltoft áður gerzt sjálf-
boðaliði þegar samvinnufélögin
hafa átt fleiri féndur en vini. Eg
vann á einni tíð kauplaust að því
að breyta fræðslusambandi
Þingeyinga í samvinnuheildsölu.
Annað sinn kvaddi Hallgrímur
Kristinsson mig með Jónasi Þor-
bergssyni, Tryggva Þórhallssyni
og Páli Jónssyni í Fagranesi til
að hrinda stórsókn samkeppnis-
manna. Eftir fráfall H. Kr. bað
stjórn SÍS.og allir framkvæmda-
stjórar þess mig á fundi norður á
Hólum í Hjaltadal, að standa fyr-
ir landvörn kaupfélaganna í
þrem samvinnumálgögnum, móti
bandalagi tveggja flokka, sem
vildu þjóðnýta, á vegum bæjar-
stjórnanna, alla sölu landbúnað-
arvöru í kaupstöðum landsins.
Sú vörn lánaðist og þessi um-
rædda hætta úr sögunni. Alloft
hafa góðvinir mínir í stjórn SÍS
leitað eftir og fengið stoð mína
við að koma trúnaðarmönnum
þeirra í þýðingarmikil embætti.
Hef eg stundum litið meira á
þeirra óskir heldur en mínar
skoðanir um sum þessi málefni.
Eg hef metið mikils heiður, ör-
yggi og sæmd Sambandsins og
gert ráð fyrir að leiðtogar þess
mundu aldrei biðja um aðstoð
nema þeir væru fullvissir að
stefnt væri að framtíðarheill í
þýðingarmiklum þjóðmálum. —
Einstaka sinnum hef eg orðið að
taka á mig þá ábyrgð að rétta
hlut samvinnufyrirtækja án
stuðnings frá réttum aðilum. —
Þegar H. í. S. hafði verið dæmt
í stórsekt og Sigurður Jónasson í
miklar fébætur og 30 þús. sam-
herjum í samvinnuhreyfingunni
sveið þessi óvænta niðurlæging,
bjargaði eg því sem bjargað varð
með tveim ritgerðum, sem kaup-
félögin komu á- framfæri um allt
land. Sannaði eg þá, að þó að
Sigurður Jónasson hafi ef til vill
hækkað vöru sína meir en form-
in leyfu, þá væri efnislega bót í
máli að félagið hafði þá, að sið
samvinnufélaga, endurgreitt við-
skiptavinum sínum margar millj.
kr. Verðhækkunin gat verið
lagabrot en ekki siðabrot, þar
sem gróða var skilað aft;ar til
viðskiptamanna. Eg batjð leið-
togum H. í. S. báðar þAssar rit-
gerðir fyrir endurgjald vegna
pappírs og prentunar, en félags-
stjórnin óskaði e’.cki eftir þessari
aðstoð. Þá var hlutafélagsandinn
kominn í hásjeti. Ekki var hugsað
sanngjarnlega til þeirra 30 þús-
und félagsmanna SÍS, sem liðu
fyrir vanhugsun eins eða tveggja
ógætinna fésýslumanna.
Vorið 1920 var aðalfundur SÍS
á Akureyri. Heildsalan var þá
hvítvoðungur í reyfum. Margir
samvinnubændur höfðu þá hagn-
ast á verðbólgu stríðsáranna og
áttu innstæður í kaupfélögum
sínum. Margir fundarmenn voru
bjartsýnir og lögðu til að SÍS
keypti millilandaskip og gerði
það út. Bjartsýnu mennirnir
vildu það eitt, sem þeir hugðu
gott fyrir félagsskapinn og buðu
að lána innstæður sínar í skipa-
kaupin. Hallgrimur hélt þá
snjalla ræðu. Hann fullyrti að
eftir nokkrar vikur yrði komið
ægilegt verðhrun og allra mest á
skipum. Hann sagði að ef SÍS
keypti millilandaskip mundi tap-
ið á.þeim kaupum nægja til að
leggja hina ungu samvinnuheild-
sölu í rústir. Bjartsýnu mennirn-
ir trúðu ekki þessum spádóm og
vildu samþykkja skipakaupin.
Hallgrímur kvað þeim heimilt að
ráðstafa fé sínu eins og þeim
sýndist, en ef fundurinn skipaði
SÍS að kaupa millilandaskip
mundi hann tafai'laust ganga úr
þjónustu SÍS, því að hann ætlaði
ekki að bera heildsölu Sam-
bandsins til grafar. Tillagan var
ekki borin fram. Verðfallið kom,
en SÍS lifði, fyrir framsýni og
manndóm forstjórans.
Eg vil ekki heldur fylgja SÍS
til grafar. Eg hef þar engin' völd
fremur en hin 30 þúsundin. En
vegna eldri skipta við samvinnu-
hreyfinguna leyfi eg mér að
benda forráðamönnum og félags-
mönnum á hættu, sem mætti
vera öllum jafnljós nú eins og
hættan við skipakaup var H. Kr.
1920. Eg get gefið bendingar og
góð ráð. Auðna ræður hvort þau
geta orðið til bjargar.
Eg vík stuttlega að ásökun sam
keppnismanna. — Ostasalan var
ranglega afflutt. Þar eru tryggð
vörugæði, ágæt forstaða, afar
heppileg húsakynni og fyrir-
myndar starfræksla á öllu sem
laut að þessari verzlun, en leið-
togum samvinnúfélaganna láðist
að útskýra þessa nýung fyrir
neytendum, sem þó var auðvelt
með ritgerðum og sýningum. Ef
samkeppnismenn halda áfram að
beita ósvífni, má benda þeim á
fiskverzlunina í landinu, sem er
í herfilegu ástandi, og bera sam-
an framkvæmd samvinnumanna
um sölu landbúnaðarvöru til
neytenda í bæjunum.
Kröfur samkeppnismanna um
skattgreiðslur af innstæðum sam
vinnumanna sem bíða nokkra
mánuði í kaupfélögunum, eru
svo marghraktar, að þar geta
starfsmenn kaupfélaganna kné-
sett talsmenn samkeppnismanna,
hvenær sem tekin eru fram hin
þrautreyndu vopn. Ef Emil lánar
Olafi 100 kr. í viku eða mánuð,
þá er Emil ekki að ríkari þó að
honum sé borguð skuldin. Engin
siðuð þjóð telur Emil skylt að
hækka framtal sitt, þó að Ólafur
hafi skilað peningunum.
Samvinnumenn eiga að bjóða
út lið oft og mörgum sinnum til
að skýra á fundum eða í rituðu
máli deiluefni eins og ostasöluna
og tvöfalda skattinn. SÍS og
kaupfélögin eiga í hundraða tali
félagsmenn og starfslið, sem get-
ur sótt og varið slík mál ágæt-
lega, bæði í ræðu og riti. Tveir
kaupfélagsstjórar, Björn Stefáns-
son á Siglufirði og Egill Thorar-
ensen á Selfossi, skrifuðu í haust
ágætar greinar í samvinnublöðin,
bæði vörn og sókn gegn and-
stæðingum samvinnufélaganna.
Slíkir menn verða áhrifamestir.í
landvörn samvinnufélaganna. —
Þeir þekkja bezt alla aðstöðu. —
Þeir geta öðrum betur hrakið
rökleysur andstæðinga, sem eru
venjulega lítt kunnir málavöxt-
um. Alveg sérstaklega geta
starfsmenn félaganna komið með
lifandi myndir úr athafnalífi sam
vinnufélaganna. Hin stuttorða
lýsing Björns Stefánssonar á
djúptækum áhrifum kaupfélag-
anna í byggðum og bæjum-, sem
áður voril niðurbæld og kúguð
undir járnhæl samkeppninnar,
gildir hvarvetna á landinu, þar
sem þarf að leysa erfið verkefni.
Síðan stríðinu lauk hefur Sam-
bandið og allmörg kaupfélög tek-
ið upp þá ráðabreytni að stofna
hlutafélag með samkeppnismönn
um til að græða fyrir samvinnu-
félögin. Hér var um algera
stefnubreytingu að ræða. Kaup-
félögin eru stofnsett til að verja
samvinnumenn fyrir ásókn og
veiðibrellum gráðugra og léttúð-
ugra fjárbrallsmanna og kaupa-
héðna. Það má jafnauðveldlega
sameina suðrið og norðrið eins og
að tengja gróðafélög og sam- i
vinnufélög með kærleiksbandi.
Þetta mátti sjá fyrirfram eins og
kreppuna á vordögum 1920. —
Samt hafa margir dugandi sam-
vinnuleiðtogar farið villt í
Keflavíkurþokunni og myndá'S
gróðafélög til að afla mikils fjár
með þessum hætti. En það hefur
farið á annan veg. Hlutafélögin
hafa hvorki grætt fyrir sig, hlut-
hafa eða kaupfélögin. Nálega alls
staðar hefur verið um tap að
ræða, og það alloft mjög mikið.
Þá hafa fylgt í slóð hlutafélag-
anna kærur, stefnur, málaferli og
sífelld brigsl um kaupfélags-
hreyfinguna fyrir allar helztu
tegundir auðgunarglæpa. Þar
sem slík málaferli standa oft ár-
um saman þar til lokadómar falla
þá er samvinnuhreyfingin alla þá
stund undir ádeilufargani, án
þess að þekkja málavexti. svo að
segja öll hin umræddu hlutafé-
lagsbrot eru verk örfárra gróða-
brallsmanna, sem hafa komizt
eftir lilutafélagsleiðum inn í frið-
lýstan hring. samvinnufélaganna.
í þessu efni eru ekki nema einar
útgöngudyr. — Samvinnumenn
verða að slíta öll fjárhags- og
samstjórnartengsli við hlutafé-
lögin og þeirra talsmenn og
postula. Þar getur komið til
greina fjárhagslegt tjón eins og
þegar heiðarlegur maður borgar
víxilskuld fyrir óreiðumann í
ábyrgðarflækju. En ef sam-
vinnumenn gera ekki hreint fyrir
sínum dyrum í þessu efni, er
þeim búinn mikill voði.
Hamrafellið er toppblómið á
hlutafélagsreynslu kaupfélag-
anna. Samvinnumenn hafa stofn-
að Olíufélagið með harðsvíruð-
um fésýslumönnum. — Síðan
Súezstríði lauk hafa olíufarm-
gjöld lækkað allt að því um
helming. Olíuskip af öllum stærð
um liggja nú aðgerðalaus hundr-
uðum saman á hvíldarhöfnum
víða um heim. Eigendum þessara
skipa þykir ódýrara að láta skip-
in liggja aðgerðalaus heldur en
Framhald á 7. siðu.
Árið 1782, sem kennt er við móðuharð-
indin, bjó að Skottastöðum í Svartárdal í
Húnavatnssýslu maður sá er Einar hét.
Hann varð bjargarlaus þegar líða tók á
veturinn, eins og fleiri á þeim ógnarárum.
Fólk hans dó úr hungri, nema dóttir hans
er Elín hét. Þegar enn þrengdi að fór Ein-
ar í ferðalag til að leita bjargar, en kom
ekki aftur. Dóttirin var í bænum til vors.
Þá yfirgaf hún hann og lagði land undir
fót. Á endanum komst hún að túngarðin-
um að Teigakoti í Tungusveit í Skagafirði,
en missti þá meðvitund. Þannig fann Gísli
bóndasonur hana og bar til bæjar og átt-
ust þau síðar. Dóttir þessara hjóna, sem
Þórey hét, var amma Olaís Tryggva Olafs-
sonar, Spitalaveg 15, scm varð 85 ára 1.
desember sl. En móðir Ólafs Tryggva var
Jóhanna Júlíana Jóhannesdóttir, og faðir
Ólafur Ólafsson. Ólafur Tryggvi er því
bæði húnvetnskrar og skagfirzkrar ættar.
En sjálfur seildist hann austur á bóginn
og eignaðist bárðdælska konu, Magneu
Jakobínu Magnúsdóttur, og áttu þau hjón-
in tvo syni og eina dóttur. Hja dóttur sinni
dvelst Ólafur nú, en hann er ekkjumaður.
Ólafur Tryggvi er einn þeirra fáu manna,
sem nú eru á líú, og var þó viðstaddur
hina miklu hátíð hér á.Akureyri þjóðhá-
tíðarárið 1874 En hann var þá í móður-
kviði eins og Churchill, og svo fæddust
þeir sama daginn, Ólafur á Borgarhóli í
Öngulsstaðahreppi. Sem ungur maður
gekk hann í Hólaskóla og kom þar sama
ár og Jósep J. Bjömsson tók við skóla-
stjórn, og var skólinn þá allt árið, og
brautskráði nemendur sína eftir tveggja
ára nám. Síðan gerðist hann starfsmaður
búnaðarfélagsins í Hólahreppi, en var síð-
an í Eyjafirði við jarðræktarstörf og barna
kennslu og átti heima í Hólshúsum. Eftir
það réðist hann til stórbóndans og kaup-
mannsins á Grund, Magnúsar Sigurðsson-
ar. Vann hann mikið að flutningum fyrir
verzlunina. Þá voru vörur fluttar á fjór-
hjóluðum hestvögnum en á sleðum á vetr-
um. Síðasta veturinn flutti Ólafur mest af
timbrinu í hina frægu og fögru Grundar-
kirkju, en alls var hann 3 ár í þjónustu
Grundarbóndans og stjórnað,i heyskap
fyrir hann á sumrin.
Vorið 1904 fluttist Ólafur til Akureyrar
og vann um skeið hjá Sigtryggi Jónssvni
timburmeistara. Sigtr. var þá að byggja
Menntaskólahúsið, sem enn stendur. En
um áramótin 1909—1910 verða þáttaskil.
Þá réði Hallgrímur heitinn Kristinsson
Ólaf i þjónustu KEA, en þeir höfðu áður
starfað saman á Grund og síðan vann Ól-
afur við kaupfélagið í samfleytt 47 ár.
Blaðið hitti Ólaf að máli á fimmtudag-
inn. Hann er mjög ern, hefur heyrn og
sjón í góðu lagi og er líkamlega hraustur
ennþá, að öðru leyti en því, að hann er
dálítið þungur upp á fótinn og eru það
líka einu ellimörkin.
Þú hefur unnið ýmis störf við kaup-
félagið, m. a. verið kjötbúöarstjóri?
Já, víst í ein 13 ár. En þá var nú margt
öðruvísi en nú er og ekki mikil þægindin.
Þá voru til dæmis engin tæki til að frysta
kjöt, en margs er þó að minnast sem
ánægjulegt er, segir Ólafur, og mörg atvik
spaugileg þá, ekki síður en nú.
Það voru einhver álög held eg, að
bændur sviku mig oft um kjötið í hvíta-
sunnumatinn, en þá. varð maður að panta
fyrirfram það er lóga átti og selja jafnóð-
um. Eg hafði eitt sinn pantað nautgripa-
kjöt að venju, en það kom ekki, og nú var
laugardagurinn fyrir hvítasunnu. Fór eg
nú til Hallgríms Kristinssonar og tjáði
honum vandræði mín. En bóndinn á Tré-
stöðum hafði lofað mér n.auti nokkru síð-
ar. Það varð að ráði að eg tók hjólið mitt
og flýtti mér út að Tréstöðum, kom naut-
inu til Akureyrar og á hvítasunnudags-
morgun fengu bæjarbúar gott kjöt, en
það mátti ekki tæpara standa í það skiptið.
Um áratugi var eg vigtarmaður og lengi
vann eg við kaffibætisgerðina og hin síð-
ari árin á skrifstofum félagsins.
Þú hefur verð í þjónustu ailra kaupfé-
lagsstjóranna við Kaupfélag Eyfirðinga?
Rétt er það, að eg átti því láni. að fagna,
og eg hef lifað það að sjá félagið sigra
marga erfiðleika með samstilltum átökum
hinna ágætustu manna,
Vilíu gefa stutta lýsingu á hverjum fyrir
sig?
Ekki get eg það umhugsunarlaust, segir
Ólafur, en þó hygg eg, að Hallgrímur
Kristinsson hafi verið þeirra mestur mað-
ur. Hann var harðduglegur hugsjónamað-
m' og lagði grunninn að framtíðarbygg-
ingu þessa félagsskapar. Hallgrímur gat
verið funabráður og fór ekki dult með
það. En augnabliki síðar var hann aftur
orðinn sami, góði og glaði félaginn. Sig-
urður bróðir hans var og er prýðismaður
og'mjög farsæll í stai'fi, en ekki jafnoki
bróður síns á verzlunarsviðinu.
Vilhjálmur Þór var fyrst sendisveinn, en
vann sig upp á skömmum tíma og sýndi
snemma óvenjulegan dugnað og hæfileika.
Hann er bæði hugsjónamaður og harðdug-
legur kaupsýslumaðm'.
Jakob Frímannsson kom einnig ungur
til starfa hjá Kaupfélagi Eyfirðinga. Hann
sýndi fljótt að hann var starfhæfur með
afbrigðum, sem síðar átti þó eftir að koma
enn betur í ljós.
Allir kaupfélagsstjórarnir reyndust mér
mjög vel, enda hinir ágætustu menn allir,
þótt ólíkir væru um marga hluti.
Samvinnumenn eiga hinum aldna heið-
ursmanni, Ólafi Tryggva Ólafssyni, mikið
að þakka. Starfsdagur hans var langur og
störf hans vel af hendi leyst. Engan á
hann óvildarmann, en marga vini, bæði
meðal samvinnumanna og annarra sam-
ferðamanna.
En Ólafur Tryggvi Ólafsson hefur
mörgum öðrum störfum gegnt um dagana.
Hann var við veðurathuganir í 15 ár, á
annan áratug hefur hann verið meðhjálp-
ari í Akureyrarkirkju og er enn, hann var
einn af stofnendum lúðrasveitarinnar og
Söngfélagsins Geysis.
Ólafur hefur liðsinnt hverju góðu máli
og því er hann vinsæll og virtur og getur
notið ævikvöldsins við yl minninganna.
Loðkragaefni
grátt, brúnt, svart.
Dökkblátt
| FóðursiIki
\ VERZLUN
í RAGNHEIÐAR O. BJÖRNSSON
öiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiinimiiiiiaiiiiiiMiiiiimiiiiiiiiiiMMiin
Þorsteinssoo sjöfíu og fimm ára
Þann 3. des. sl. varð Hólmgeir
Þorsteinsson frá Hrafnagili 75
ára.
Hólmgeir Þorsteinsson er oft-
ast kenndur við Hrafnagil, enda
var hann eigandi þess og bjó þar
rausnarbúi um 28 ára skeið, en
hann er fæddur að Dalsgerði í
Eyjafirði 3. des. 1884. Foreldrar
hans voru hjónin Þorsteinn Páls-
son og Kristjana Guðrún Ein-
arsdóttir. Hjá foreldrum sínum
ólst hann upp, ásamt systur sinni,
Auði, er var kona Pálma Þórðar-
sonar í Núpufelli.
Hólmgeir hóf nám í Gagn-
fræðaskóla Akureyrar haustið
1904. Að loknu námi mun hann
hafa ráðist sem verzlunarmaður
hjá Magnúsi Sigurðssyni, Grund,
er allir kannast við, einn af svip-
mestu mönnum innan Eyjafjarð-
ar á sinni tíð.
Haustið 1915 giftist Hólmgeir
Valgerði, dóttur Magnúsar, hinni
ágætustu konu, og eignuðust þau
4 dætur, er allar lifa. Konu sína
missti hann 1949.
Á Grund munu þau hjónin
hafa verið til ársins 1917, en þá
fiuttu þau til" Dalvíkur, er Hólm-
geir tók við forstöðu fyrir — að
eg hygg — fyrsta útibúi Kaupíé-
lags Eyfirðinga cg stóð fyrir því
í 2 ár, til 1919, en þá fluttist hann
aftur að Grund í Eyjafirði og bjó
þar á móti tengdaföður sínum
um 6 ára skeið, en þá kaupir
hann Hrafnagil. Þar bjuggu þau
hjónin til ársins 1945, að þau
flytjast til Akureyrar og síðan
hefur Hólmgeir verið búsettur
þar.
Það fór sem vænta mátti um
jafn fjölgreindan og starfshæfan
mann sem Hólmgeir Þorsteins-
son, að á hánn hlóðust mörg
störf í sveit og héraði. Hann sat í
hreppsnefnd Hrafnagilshrepps frá
1922 til 1941, þar af 20 ár oddviti,
jafnframt átti hann sæti í stjórn
búnaðarfélags hreppsins og
skattanefnd. Hann var kjörinn í
yfirskattanefnd Eyjafjarðar-
sýslu 1939 og er það enn. Fulltrúi
Eyfirðinga á Búnaðarþingi frá
1938—1954. Endurskoðandi Kaup
félags Eyfirðinga samfellt um 30
ára skeið, og varaþingmaður
Framsóknarflokksins í Eyjafirði
kjörtímabilið 1942—46. í blað-
stjórn Dags um fjölda ára.
Hér hefur verið stiklað á því
stærsta og mun eigi allt upptalið.
En það sem dregið hefur verið
fram er ærið nóg til að sýna hver
maðurinn er og hvert traust
hann átti. Það getur því naumast
hjá því farið, er Hólmgeir nú lít-
ur til baka yfir 75 ára farna leið,
að hann játi með nokkrum fögn-
uði, að framsýnin hefur farið vel
með hann og hamingjan verið
honum fylgisöm. Með það munu
allir óska honum til hamingju.
En eg efast heldur ekki um, þrátt
fyrir gæfuríka ævi og mikla til-
trú, að hann eigi líka einhvei'ja
skugga í viðskiptunw sínum við
samferðamennina, en það er að-
eins lögmál, sem gildir um alla,
er víða koma við almenn mál. —
Það gerir enginn svo öllum líki.
Við Hólmgeir mættumst fyrst
í Gagnfræðaskóla Akureyrar
1904, er hann innritaðist í skól-
hann ásamt fallegum, efnilegum
hópi Inn-Eyfirðinga, þeim Jakob
og Aðalsteini Kristinssonum,
Jóni Sigurgeirssyni í Hólum,
Þorsteini Sigurðssyni frá
Sti'júgsá, síðar kennara í Rvík,
og Helga Eiríkssyni, Þórustöðum.
Mér er þessi hópur minnisstæð-
ur, en þó einkum Hólmgeir Þor-
steinsson, af sérstöku tilefni, og
liggur ef til vill öfund, en eg
hygg öllu frekar aðdáun að baki.
Það var á fyrstu starfsdögum
skólaársins, að skólapiltar héldu
umræðufund. Um hvað var rætt
man eg ekki glögglega, enda
skiptir það engu máli. Það voru
efribekkingar sem deildu um
málið, og mun það undantekn-
ingarlítið hafa verið reglan, að
nýsveinar létu lítið til sín heyra
á fyrstu umræðufundum. En nú
brá út af reglunni, einn nýsveinn
inn kveður sér hljóðs, og upp
stendur fríður, snaggaralegur og
djarflegur strákur, Hólmgeir
Þorsteinsson, þá heyrði eg nafn
hans í fyrsta sinni. Það skal í fá-
um oi'ðum sagt, að eg varð svo
hrifinn af þeirri ræðumennsku er
hann sýndi þarna, að hún hreif
mig svo, að eg efast um að eg
hafi nokkru sinni orðið hrifnari
af ræðumanni en þessum ný-
sveini þá. Þessu hef eg aldrei
getað gleymt og mér fannst þá og
finnst enn, að hann hafi þá þegar
verið jafnþjálfaður ræðumaður
og hann er nú í dag. Þetta var
ólíkt því almenna á þeim tíma,
þegar ungir menn drógust með
heimóttarhattinn og minnimátt-
arkenndina í tonnatali, ef þá lík-
ingu má nota, og voru þeim
hreinn bölvaldur.
Því minnist eg þessa, að þessi
frjálsmennska hefur fylgt Hólm-
geiri Þorsteinssyni alla tíð og
gert hann að skeleggum funda-
manni, ljósum í hugsun, rökfim-
um, rökföstum og sérlega vel
máli förnum. Hann hefði áreið-
anlega sómt sér vel á þingbekkj-
um hefði leið hans legið þangað.
Þess má líka minnast í sambandi
við þetta, að fundastjórastörf láta
honum sérstaklega vel, enda hef-
ur hann oft skipað það sæti, t. d.
um 20 ára skeið samfellt fundar-
stjóri á aðalfundum Kaupfélags
Eyfirðinga.
Hólmgeir Þorsteinsson er
einkar skemmtilegur maður í
hópi kunningja, léttur í máli og
hrókur alls fagnaðar og hefur
jafnan margt að segja. En innst
inni er hann alvörumaður og
kemur það hvarvetna fram í
starfinu hans, þar er aldrei kast-
að að höndum, og má það ljóst
vera af þeim margþættu störfum
er honum hafa verið falin. Þau
bera manninum vitni, þögult,
yfirlætislaust, en örugglega.
Það mætti mikið um Hólmgeir
skrifa og þess vert, en eg mun þó
ekki lengja mál mitt meira. Eg
vil leyfa mér að færa Hólmgeir
Þorsteinssyni kveðju Eyfirðinga
með þökk fyrir margþætt trún-
aðarstörf. Fyrir hönd sveitunga
minna, Svarfdælinga, færi eg
honum heillaóskir og þökk fyrir
þau ár er hann dvaldi á meðal
þeirra og vann að áhugamálum
þeirra, útibúi KEA, er hann
stýrði með ágætum fyrstu
bernskusporin.
Að lokum færi eg honum
mína vinarkveðju með innilegri
þökk fyrir vináttu frá fyrstu
kynnum og samstarf um langt
árabil. Eg óska honum og allri
fjölskyldu hans heilla í framtíð.
Þór Kr. Eldjárn.
Draumurinn
eftir Hafstein Sigurbjarnar-
son. (Skáldsaga.) — Ak. 1959.
Bókaforlag Odds Björnssonar.
Eg tel rétt að vekja athygli al-
mennings á þessari nýútkomnu
bók Hafsteins Sigurbjarnarsonar.
Hún er hressandi og skemmtileg
aflestrar, skrifuð á léttu og lát-
lausu alþýðumáli og sögð með
glampandi frásagnargleði. Hraði
atburðanna er mikill og það lík—
ar mörgum ágætlega, enda hafa
margir okkar ágætu sagnamanna
haft þann hátt á í frásögnum sín-
um. Höf. er oftast blessunarlega
laus við málalengingar. Hann
virðist ekki í efnisskorti og þarf
því ekki að teygja lopann.
Mér er sagt, að höfundurinn
sé aldraður alþýðumaður, bóndi
vestur í Húnaþingi. Þetta er önn-
ur skáldsagan, sem Bókaforlag
Odds Björnssonar gefur út eftir
hann. Fyrri bókin kom út í fyrra.
Var það sagan „Kjördóttirin á
Bjarnarlæk“. Mér hefur skilizt,
að hún hafi verið mikið keypt og
jafnvel verið ein af metsölubók-
um ársins. Hins vegar sætti hún
nokkurri gagnrýni ritdómara. —
Var bent á, að ýmislegt væi'i þar
af vanefnum gert og annað ótrú-
legt og njeð litlum líkindum. —
Víst voru gallar á sögunni, — en
er það nokkuð annað en búast
má við á frumsmíði? Eru þær
ekki fáar gallalausar skáldsög-
umar? Eins mætti líka geta, að
ýmsir góðir kaflar ei'u í sögunni,
sem verðir eru góðrar viður-
kenningar og athygli.
Þessi nýja bók Hafsteins,
„Draumurinn“, sýnir að ætlan
minni, talsverða framför frá fyrri
bókinni. Mér fannst því rétt, að
vekja athygli á henni. Eg er þess
fullviss, að bókin gefur þeim,
sem les hana með athygli, ýmis
umhugsunarefni, og þeim, sem
vilja að sagan gangi fljótt og eitt-
hvað sé alltaf að gerast, — er
óhætt að kaupa og lesa „Draum-
inn“.
Vald. V. Snævarr.
Atvinna!
Ungur reglusamur maður
óskar eftir vinnu í bænum
nú þegar. Afgr. vísar á.
Til sölu
á tœkifœrisverði: Rafha-
eldavél, eldri gerð, . nýtt
gólfteppi 270x320 cm. —
Dökk, tvíhneppt karlm,-
föt nr. 39. — Nýr stakur
jakki á meðalmann.
Gunnl. Kristinsson,
Norðurbyggð 1.