Dagur - 10.12.1959, Side 1
r i
Fylgizt með því sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst út laugar-
daginn 12. desember.
XLII. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 10. desenli>,er 1959
68. tbl.
Frestun Alþingis er móðgun við
þingið og þjóðina
Er brot á lögum og þingvenjum, er mjög í ein-
ræðisátt og sýnir vel ráðleysi ríkisstjórnarinnar
Akureyrarkirkja. — (Ljósmynd: E. D.).
Merkilegf sfarf Ákureyrarkirkju
Fyrsta helgisiðanámskeiðið hér á landi
í íyrstu viku desembermánaðar
var haldið' helgisiðanámskeið við
Akureyrarkirkju. Hélgisiðir eru
táknmál kirkjunnar, sem söfnuður-
inn þarf að vita full skil á.
Forráðamenn Akureyrarkirkju
héldu þess vegna þetta námskeið og
er það hið fyrsta sinnar tegundar
Iiér á landi og þótti takast mjög
vel. Séra Sigurður Pálsson á Selfossi
vcitti námskeiðinu forstöðu. Hann
flutti-erindi um helgisiðina og sýndi
skuggamyndir til skýringar. Tekin
voru til meðferðar margvísleg efni,
svo sem: Messan og messusiðir,
skrúði prcsta, þjónusta leikmanna,
helztu kirkjuleg tákn, kirkjuleg em-
bætti og almennur prestdómur..
Loks var æfður æfaforn tíðasöngur.
Námskeiðinu lauk með hátíðlegri
guðsþjónústú í Akureyrarkirkju sl.
sunnudag og var hún harla óvenju-
leg og þjónuðu fjórir prestar og
var messan mjög fjölsótt.
Mikil gróska.
Mikil gróska er í kirkju- og safn-
aðarlífi á Akureyri. Má þar til
ncfna til viðbótar, að í sunnudagá-
skóla kirkjunnar eru 5-600 börn.
Dagana 28. og 29. nóvember hélt
Æskulýðsfelag kirkjunnar foringja-
námskéið. Sóttu það 30 unglingar
frá Akureyri, Húsavík og Siglu-
iirði ásamt þremur prestum. I’ar
var leiðtogum og verðandi leiðtog-
um æskulýðsfélaganna úr leik-
mannahópi veitt tilsögn í starfi og
þar fluttu prestarnir séra Kristján
Róbertsson, séra Kristján Búason
SÖLUBÚÐIR
verða opnar til kl. 22 laugardag-
inn 19. des., en til kl. 24 á
Þorláksdag.
og séra Pétur Sigurgeirsson erindi
um trúarleg elni en prófasturinn
á Húsavík, séra Friðrik A. Friðriks-
son prédikaði.
Eftir útvarpsumræðurnar um
þingfrestunina er margt Ijósara
en áður og voru þær hinar gagn-
Icgustu.
1. Stórfelldustu kosningasvik
Sjálfstæðisflokksins við bænd-
ur Iandsins eru frant komin.
Þingfrestunin Iíka við það
miðuð. Hin illræmdu bráða-
birgðalög tekin fyrir á síðasta
degi þingsins — og afgr. til
annarrar umræðu, væntanlega
í febrúar. — Lögin falla úr
gildi 15. descmbcr.
2. Stjórnin svíkst unt að gera
þingheimi grein fjrir efna-
hagsmálum þjóðarinnar, sem
þó er skylt. Efnahagssérfræð-
ingar Sjálfstæðisflokksins eru
í heilt ár bunir að rannsaka
allar sérfræðilegar skýrslur
frá tíð vinstri stjórnarinnar.
Þær liggja fyrir ásamt nýrri
efnahagsathugunum og eru í
höndum ríkisstjórnarinnar. Af-
sökun fyrir því að halda þess-
unt sérfræðilegu skýrslum
leyndum fyrir þingi og þjóð,
fyrirfinnst engin. Ánnað er það
þótt tillögur stjórnarinnar séu
ekki tilbúnar.
3. Þingfrestunin er brot á þing-
ræði af þeirri ástæðu, að ekki
hefur verið fullnægt reglum
um málsmeðferð, sem að fram-
an getur. Stjórnarandstæðingar
voru sviptir málfrelsi. Rökræð-
ur nefnda, málþóf til afsök-
unar.
4. „Nú verður kosið um stöðvun-
arstefnu Alþýðuflokksins,“ og
„Alþýðuflokkurinn stöðvaði
verðbólguna.“ „Hann einn þor-
ir að taka á málum gegn verð-
bólguflokkunum ölliun.“ Hag-
ur útflutnings- og ríkissjóðs
stendur með blóma. Þessi orð
Alþýðuflokksráðherranna og
blaða þeirra fyrir kosningar,
eru afhjúpuð sem stórfelld-
ustu kosningablekkingar síðari
ára. Enda æpir nú stjórnin:
„Óðaverðbólga — óðaverð-
bólga“ er skollin á, 250—300
milljónir vantar í útflutnings-
og ríkissjóð á næsta ári að öðru
óbreyttu! Ekki getur nokkur
stjórn gefið sjálfri sér stærri
snoppung en í þcssu efni var
gert í útvarpsumræðunum. Of
margir kjósendur létu ginnast
af fagurgalanum fyrir kosning-
ar. Ilvað segja þeir nú?
5. Þingmenn eru leystir frá störf-
um þar til um mánaðamót jan-
liar—fcbrúar. Þeir voru sviptir
starfsfriði og þjóðin hluta af
þingræði. Stjórnin segist þurfa
„starfsfrið“ — slagorð nazista,
og hið stutta þinghald mjög í
einræðisstíl.
6. Yfir 90% bænda á svæðinu frá
V.-Skaft. til Dalasýslu, að báð-
um meðtöldum, þ. e. Suður- og
Suðvcsturlandi, greiddi atkv.
með sölustöðvun á mjólk til að
mótmæla gerræði því, sem
bráðabirgðalögin um búvöru-
verðið er.
7. Stjórn Alþýðusambands Is-
lands hvetur vcrkalýðsfélögin
til að hafa lausa samninga og
vera viðbúin átökum. Og ver-
tíðin hefst 1. jan. n.k. og efna-
hagsmálin í meiri óvissu en
nokkru sinni fyrr, m. a. vegna
þess að síaðreyndum er haklið
leyndum. — Öll þessi atriði
eru vítaverð og nauðsynlegt að
menn geri sér þau ljós.
Nýjar efnahagsaðgerðir hafa
verið boðaðar og er það von
manna að þær aukizt.
Útibú TóbakseinkasöEunnar á Ák.
Bæjarstjórnin lætur mál þetta til sín taka i
Áður var hér í blaðinu rætt
um þá einkennilegu og óvinsælu
Nýjar sumarbúSir viS Hólavaln í Eyjal.
Ungt fólk opnar jólamarkað til fjáröflunar
þessari myndarlegu framkvæmd
Við Hólavatn í Eyjafirði eru að
rísa upp myndarlegar sumarbúð-
ir á vegum KFUM og K á Akur-
eyri. Sumarbúðirnar standa í
fögru umhverfi við Hólavatnið.
Fyrirhugað er að í framtíðinni
rísi þarna sams konar sumarbúð-
ir og eru í Vatnaskógi. í þessum
sumarbúðum dvelst ungt fólk í
viku eða lengur í senn og er öll-
um heimil þátttaka. Sumarbúðir
sem þessar eru mjög vinsælar
hvarvetna sem þeim hefur verið
komið á fót, en hingað til hafa
Akureyringar ekki átt þess kost
að senda unglinga til slíkrar dval
ar þeim til skemmtunar og upp-
byggingar. Ætlunin er að byggja
að Hólavatni rúmgóðar og full-
komnar sumarbúðir, þar sem
geta dvalizt um 30—40 manna í
senn. Áherzla verður lögð á að
skreyta umhverfið með gróður-
setningu, að fá báta á vatnið,
knattspyrnuvöll o. m. fl. En allar
þessar framkvæmdir eru mjög
umfangsmiklar og dýrar, og að
þessum framkvæmdum stendur
aðeins ungt fólk, sem hefur gefið
alla sína vinnu.
Eins og kunnugt er hafa
KFUM og K undanfarin vor haft
sölu á fermingarskeytum og hafa
bæjarbúar ekki legið á liði sínu
með því að kaupa skeytin. En
þessar tekjur hrökkva skammt
og hefur því KFUM ákveðið að
opna jólamarkað að Hafnarstræti
96 (happdrætti SÍBS og DAS).
Gefst nú Akureyringum kostur á
að styrkja gott málefni urn leið
og keyptar eru jólagjafirnar og
stuðla að kristilegu unglinga-
starfi.
Að þessum jólamarkaði stend-
ur einnig Bókaverzlun Jóhanns
Valdemarssonar, en KFUM mun
njóta góðs af sölu bókanna. (Sjá
nánar auglýsingu í blaðinu.) ,
ráðstöfun, að leggja niður umboð
Tóbakseinkasölunnar á Akureyri.
En það skapar verzlunum mikið
óhagræði.
Nú hefur bæjarstjórn látið
málið til sín taka og hefur sam-
þykkt eftirfarandi:
„Bæjarstjóm Akureyrar beinir
þeim eindrcgnu tilmælum til
þingmanna Norðurlandsltjör-
dæmis eystra, að þeir beri fram á
núverandi Alþingi frv. til laga
um brcytingu á lögum nr. 58 frá
8. sept. 1931 um Tóbakscinkasölu
ríkisins, sem fcli í sér, að Tóbaks
cinkasölunni verði skylt að setja
upp útibú á Akureyri fyrir Norð-
urland. Enda verði það fyrirtæki
útsvarsskylt á Akureyri.“
Við Hólavatn cr nátlúrufegurð mikil og vcðursæld. Þar vinnur ungt fólk í sjálfboðavinnu við framkv.