Dagur - 10.12.1959, Qupperneq 1

Dagur - 10.12.1959, Qupperneq 1
r i Fylgizt með því sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. DAGUR kemur næst út laugar- daginn 12. desember. XLII. árg. Akureyri, fimmtudaginn 10. desenli>,er 1959 68. tbl. Frestun Alþingis er móðgun við þingið og þjóðina Er brot á lögum og þingvenjum, er mjög í ein- ræðisátt og sýnir vel ráðleysi ríkisstjórnarinnar Akureyrarkirkja. — (Ljósmynd: E. D.). Merkilegf sfarf Ákureyrarkirkju Fyrsta helgisiðanámskeiðið hér á landi í íyrstu viku desembermánaðar var haldið' helgisiðanámskeið við Akureyrarkirkju. Hélgisiðir eru táknmál kirkjunnar, sem söfnuður- inn þarf að vita full skil á. Forráðamenn Akureyrarkirkju héldu þess vegna þetta námskeið og er það hið fyrsta sinnar tegundar Iiér á landi og þótti takast mjög vel. Séra Sigurður Pálsson á Selfossi vcitti námskeiðinu forstöðu. Hann flutti-erindi um helgisiðina og sýndi skuggamyndir til skýringar. Tekin voru til meðferðar margvísleg efni, svo sem: Messan og messusiðir, skrúði prcsta, þjónusta leikmanna, helztu kirkjuleg tákn, kirkjuleg em- bætti og almennur prestdómur.. Loks var æfður æfaforn tíðasöngur. Námskeiðinu lauk með hátíðlegri guðsþjónústú í Akureyrarkirkju sl. sunnudag og var hún harla óvenju- leg og þjónuðu fjórir prestar og var messan mjög fjölsótt. Mikil gróska. Mikil gróska er í kirkju- og safn- aðarlífi á Akureyri. Má þar til ncfna til viðbótar, að í sunnudagá- skóla kirkjunnar eru 5-600 börn. Dagana 28. og 29. nóvember hélt Æskulýðsfelag kirkjunnar foringja- námskéið. Sóttu það 30 unglingar frá Akureyri, Húsavík og Siglu- iirði ásamt þremur prestum. I’ar var leiðtogum og verðandi leiðtog- um æskulýðsfélaganna úr leik- mannahópi veitt tilsögn í starfi og þar fluttu prestarnir séra Kristján Róbertsson, séra Kristján Búason SÖLUBÚÐIR verða opnar til kl. 22 laugardag- inn 19. des., en til kl. 24 á Þorláksdag. og séra Pétur Sigurgeirsson erindi um trúarleg elni en prófasturinn á Húsavík, séra Friðrik A. Friðriks- son prédikaði. Eftir útvarpsumræðurnar um þingfrestunina er margt Ijósara en áður og voru þær hinar gagn- Icgustu. 1. Stórfelldustu kosningasvik Sjálfstæðisflokksins við bænd- ur Iandsins eru frant komin. Þingfrestunin Iíka við það miðuð. Hin illræmdu bráða- birgðalög tekin fyrir á síðasta degi þingsins — og afgr. til annarrar umræðu, væntanlega í febrúar. — Lögin falla úr gildi 15. descmbcr. 2. Stjórnin svíkst unt að gera þingheimi grein fjrir efna- hagsmálum þjóðarinnar, sem þó er skylt. Efnahagssérfræð- ingar Sjálfstæðisflokksins eru í heilt ár bunir að rannsaka allar sérfræðilegar skýrslur frá tíð vinstri stjórnarinnar. Þær liggja fyrir ásamt nýrri efnahagsathugunum og eru í höndum ríkisstjórnarinnar. Af- sökun fyrir því að halda þess- unt sérfræðilegu skýrslum leyndum fyrir þingi og þjóð, fyrirfinnst engin. Ánnað er það þótt tillögur stjórnarinnar séu ekki tilbúnar. 3. Þingfrestunin er brot á þing- ræði af þeirri ástæðu, að ekki hefur verið fullnægt reglum um málsmeðferð, sem að fram- an getur. Stjórnarandstæðingar voru sviptir málfrelsi. Rökræð- ur nefnda, málþóf til afsök- unar. 4. „Nú verður kosið um stöðvun- arstefnu Alþýðuflokksins,“ og „Alþýðuflokkurinn stöðvaði verðbólguna.“ „Hann einn þor- ir að taka á málum gegn verð- bólguflokkunum ölliun.“ Hag- ur útflutnings- og ríkissjóðs stendur með blóma. Þessi orð Alþýðuflokksráðherranna og blaða þeirra fyrir kosningar, eru afhjúpuð sem stórfelld- ustu kosningablekkingar síðari ára. Enda æpir nú stjórnin: „Óðaverðbólga — óðaverð- bólga“ er skollin á, 250—300 milljónir vantar í útflutnings- og ríkissjóð á næsta ári að öðru óbreyttu! Ekki getur nokkur stjórn gefið sjálfri sér stærri snoppung en í þcssu efni var gert í útvarpsumræðunum. Of margir kjósendur létu ginnast af fagurgalanum fyrir kosning- ar. Ilvað segja þeir nú? 5. Þingmenn eru leystir frá störf- um þar til um mánaðamót jan- liar—fcbrúar. Þeir voru sviptir starfsfriði og þjóðin hluta af þingræði. Stjórnin segist þurfa „starfsfrið“ — slagorð nazista, og hið stutta þinghald mjög í einræðisstíl. 6. Yfir 90% bænda á svæðinu frá V.-Skaft. til Dalasýslu, að báð- um meðtöldum, þ. e. Suður- og Suðvcsturlandi, greiddi atkv. með sölustöðvun á mjólk til að mótmæla gerræði því, sem bráðabirgðalögin um búvöru- verðið er. 7. Stjórn Alþýðusambands Is- lands hvetur vcrkalýðsfélögin til að hafa lausa samninga og vera viðbúin átökum. Og ver- tíðin hefst 1. jan. n.k. og efna- hagsmálin í meiri óvissu en nokkru sinni fyrr, m. a. vegna þess að síaðreyndum er haklið leyndum. — Öll þessi atriði eru vítaverð og nauðsynlegt að menn geri sér þau ljós. Nýjar efnahagsaðgerðir hafa verið boðaðar og er það von manna að þær aukizt. Útibú TóbakseinkasöEunnar á Ák. Bæjarstjórnin lætur mál þetta til sín taka i Áður var hér í blaðinu rætt um þá einkennilegu og óvinsælu Nýjar sumarbúSir viS Hólavaln í Eyjal. Ungt fólk opnar jólamarkað til fjáröflunar þessari myndarlegu framkvæmd Við Hólavatn í Eyjafirði eru að rísa upp myndarlegar sumarbúð- ir á vegum KFUM og K á Akur- eyri. Sumarbúðirnar standa í fögru umhverfi við Hólavatnið. Fyrirhugað er að í framtíðinni rísi þarna sams konar sumarbúð- ir og eru í Vatnaskógi. í þessum sumarbúðum dvelst ungt fólk í viku eða lengur í senn og er öll- um heimil þátttaka. Sumarbúðir sem þessar eru mjög vinsælar hvarvetna sem þeim hefur verið komið á fót, en hingað til hafa Akureyringar ekki átt þess kost að senda unglinga til slíkrar dval ar þeim til skemmtunar og upp- byggingar. Ætlunin er að byggja að Hólavatni rúmgóðar og full- komnar sumarbúðir, þar sem geta dvalizt um 30—40 manna í senn. Áherzla verður lögð á að skreyta umhverfið með gróður- setningu, að fá báta á vatnið, knattspyrnuvöll o. m. fl. En allar þessar framkvæmdir eru mjög umfangsmiklar og dýrar, og að þessum framkvæmdum stendur aðeins ungt fólk, sem hefur gefið alla sína vinnu. Eins og kunnugt er hafa KFUM og K undanfarin vor haft sölu á fermingarskeytum og hafa bæjarbúar ekki legið á liði sínu með því að kaupa skeytin. En þessar tekjur hrökkva skammt og hefur því KFUM ákveðið að opna jólamarkað að Hafnarstræti 96 (happdrætti SÍBS og DAS). Gefst nú Akureyringum kostur á að styrkja gott málefni urn leið og keyptar eru jólagjafirnar og stuðla að kristilegu unglinga- starfi. Að þessum jólamarkaði stend- ur einnig Bókaverzlun Jóhanns Valdemarssonar, en KFUM mun njóta góðs af sölu bókanna. (Sjá nánar auglýsingu í blaðinu.) , ráðstöfun, að leggja niður umboð Tóbakseinkasölunnar á Akureyri. En það skapar verzlunum mikið óhagræði. Nú hefur bæjarstjórn látið málið til sín taka og hefur sam- þykkt eftirfarandi: „Bæjarstjóm Akureyrar beinir þeim eindrcgnu tilmælum til þingmanna Norðurlandsltjör- dæmis eystra, að þeir beri fram á núverandi Alþingi frv. til laga um brcytingu á lögum nr. 58 frá 8. sept. 1931 um Tóbakscinkasölu ríkisins, sem fcli í sér, að Tóbaks cinkasölunni verði skylt að setja upp útibú á Akureyri fyrir Norð- urland. Enda verði það fyrirtæki útsvarsskylt á Akureyri.“ Við Hólavatn cr nátlúrufegurð mikil og vcðursæld. Þar vinnur ungt fólk í sjálfboðavinnu við framkv.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.