Dagur - 10.12.1959, Qupperneq 8

Dagur - 10.12.1959, Qupperneq 8
8 Fimmtudaginn 10. desember 1959 Baguk Þing Landssambands hestamanna Næsta fjórðungsmót verður á Vestfjörðum lögregluþjónn, Hafnarfirði, og var hann endurkjörinn. Aðrir í stjórn sambandsins eru: Steinþór Gestsson, Hæli, Hreppum, form., Sigursteinn Þórðarson, Borgar- nesi, ritari, Jón Brynjólfsson, Reykjavík, gjaldkeri, og Samúel Kristbjarnarson, Reykjavík. Formaður sambandsins, Stein- þór Gestsson, minntist í upphafi fundarins Ara heitins Guð- mundssonar, verkstj., Borgarnesi, en hann var ötull áhugamaður um stofnun og starf sambandsins og sat í stjórn þess frá stofndegi, enda kunnur hestamaður um land allt. Fundarmenn heiðruðu minningu hans með því að rísa úr sætum. -® Steinunn Ingimundardóttir. Fyrsfa stálskipið af þreffán komið Austur-þýzkt skip, 94 rúmlestir að stærð ' Nýlega er komið 94 smálesta stálskip til Vestmannaeyja, smíð- að í Austur-Þýzkalandi og hið fyrsta af 13 slíkum skipum, sem eru í smíðum fyrir íslendinga. — Heitir það Eyjaborg og eigandi Sigurður Þórðarson útgerðar- maður. í þessum mánuði koma til landsins eftirtaldir bátar af sömu stærð: Leó, eigendur Oskar Matt híasson og Sigmar Guðmundsson, Vestmannaeyjum, Mímir III, eig- andi Mímir h.f., Hnífsdal, Straum nes, eigandi Kögur h.f., ísafirði, og Ófeigur, eigendur Þorsteinn Sigurðsson og Ólafur Sigurðsson, Vestmannaeyjum, Auk þessara fimm báta eru átta bátar sömu Síðasti Bændaklúbbsfundurinn Þangað f jölmenntu nú húsfreyjur i fyrsta sinn Frummælandi var Steinunn Ingimundardóttir 10. ársþing Landssambands hestamannafélaga var haldið í Rvík 20.—22. nóv. í sambandinu eru 17 hestamannafélög til heim- ális víðs vegar á landinu. Mættu fulltrúar frá flestum þeirra 36 að tölu. Forsetar þingsins voru kjörnir Egill Bjarnason, ráðunautur, Sauðárkróki, og Jón M. Guð- mundsson, Reykjum, Mosfells- sveit. Auk reikninga sambandsins og landsmótsins við Skógarskóla, tók þingið fyrir til afgreiðslu ýmis mál var-ðandi hestamennsk- una, svo sem umferðamál, kapp- reiðareglur, skipulag dómstarfa, sýningar og mál varðandi út- flutning hrossa, auk ýmissa inn- anfélagsmála. Næsta fjórðungsmót sambands- ins verður í Vestfirðingafjórð- ungi. Úr stjórn sambandsins átti að ganga Kristinn Hákonarson, Akureyringar á skaut- um við Blönduós Skautamenn á Akureyri eru áhugasamir eins og fyrri daginn, en svellalög bregðast. Þá er leitað í næstu sveitir og sýslur. Um helgina fóru 12 skautamenn til Blönduóss, fundu ágaétt svell þar skammt frá og héldu skauta- mót. Veður var gott, en hvessti er leið á daginn. — Áhorfendur urðu margir, því að forvitnileg iþótti íþrótt þessi vestur þar. SJUKRAFLUG Nýlega flutti sjúkraflugvél- in á Akureyri fyrsta sjúkling- inn. Hann var frá Grímsey. Tryggvi flugmaður fór aðra sjúkraferð til Ólafsfjarðar í fyrradag. f gær var nýja sjúkraflugvélin enn á ferðinni og fór til Ólafsfjarðar, Rauf- arhafnar og Þórshafnar. Vélin er skjót í förum, búin beztu öryggistækjum og flugmaður- inn öruggur. Dylgjur um villiflug og litla hæfni hinnar nýju sjúkra flugvélar til sjúkraflugs við misjöfn skilyrði, missa alger- lega marks. f sambandi við mjög frek- legt ranghermi í Morgunblað- inu um eina ferð vélarinnar, er rétt að taka fram, að sú frá- sögn var Ieiðrétt síðar. í haust var góður afli við Gríms- ey, sem eyjarbúar notfærðu sér vel. Gæftir vorú góðar í októbermánuði, og var þá Íiskað vel. Róið er á trillubátum og er oftast einn á báti. Kostnaður er lítill og fiskurinn kemur óskemmdur til hafnar og er hin ágætasta vara. Fyrir nokkrum dögum var ný dieselrafstöð tekin í notkun í Sand- vík í Grímsey 'og er hún 35 kíló- wött og mun í ráöi að setja upp aðra til viðbótar. Raflagnadeild Mánudagskvöldið 7. des. hélt Bændaklúbburinn einn.af sínum velþekktu fundum að Hótel K. E. A. Fundurinn var að því leyti sérstæður, að þangað fjölmenntu nú húsfreyjur og heimasætur úr héraðinu til að hlýða á fræðslu- erindi ungfrú Steinunnar Ingi- mundardóttur húsmæðrakennara um hagnýtingu ísl. fæðuefna og grænmetis. Steinunn Ingimund- ardóttir er orðin landskunn fyrir störf sín sem húsmæðrakennari og nú síðustu árin. hefur hún haldið fjölda matreiðslunám- skeiða um land allt, en hún starfar nú sem ráðunautur hjá Kvenfélagasambandi íslands. Á þessum fundi mættu 80 manns og voru 2/3 hlutar fund- argesta konur. í framsöguerindi sínu. lagði Steinunn höfuðáherzlu á nauðsyn þess, að hin daglega fæða væri holl og heppilega samsett að nær ingarefnum og bætiefnum í hlut- falli við þarfir hvers og eins á hinum ýmsu aldursskeiðum og við mismunandi störf. Nefndi hún í því sambandi fjölda dæma HEYBRUNI í fyrradag varð heybruni í Haukagili í Vatnsdalshreppi og brunnu 40—50 hestar heys. — Slökkvilið var kvatt til aðstoðar við slökkvistarfið. Snjólaust er þar vestra og fé lítt eða ekki á gjöf, nema lömb. KEA sá um uppsetningu hennar. F<)lk er með fæsta rrföti í eynni nú, eða 50 manns, en 60 eru á manntali. Aðeins einn snjóskafl var á eynni um síðustu lielgi. Við mcssu síðastliðinn sunnudag söfnuðust 1900 krónur tii flótta- mannahjálparinnar. Mikið af fugli er í björgunum, eins og jafnan þegar tíð er góð. Snarpur jarðskjálftakippur kom í Grímsey :í þriðjudagsmorguninn, laust eftir kl. 7. og sýndi töflumyndir til skýring- ar máli sínu. Að loknu erindi Steinunnar hófst kaffisamdrykkja fundar- gesta að venjulegum hætti, en að henni lokinni fjörugar umræður um fyrrgreint málefni. Guð- mundur Karl Pétursson yfir- læknir var mættuf á fundinum og flutti hann skemmtilega ræðu. Kom læknirinn víða við. Meðal annars varaði hann mjög við hinni miklu ofnotkun almennings á pillum og skömmtum ýmiss konar sem menn eiga nú aðgang að með og án lyfseðla í lyfjabúð- unum. Þá benti hann á þá hættu sem mörgu fólki er búin af ofáti, eða ofneyzlu kolvetnaríkrar fæðu Lögregluþjónn einn í Japan hefur fundið upp aðferð til að hræða menn frá að drekka sig fulla. Aðferðin er eingaldlega þessi: Þegar drukkinn maður er fluttur á lögreglustöðina, eys hann úr sér skömmum og ókvæð isorðum, eins og títt er um drukkna menn. Hann öskrar og lætur öllum illum látum, þegar hann verður þess var, að hann er fangi lögreglunnar. Allur þessi þáttur er tekinn á segulband, án þess að viðkomandi sökudólgur viti af. Næsta morgun fær hann svo að hlusta á sjálfan sig. Þetta fær svo mikið á marga, að þeir skammast sín og lofa bót og betrun, og það fylgir fréttinni, að þeir standi oftast við orð sín. Jólahefti Heima er bezt er komið út og flytur m. a.: Bernskujólin mín eftir H. J. Magnússon, Bræðurnir frá Efstu- Grund verða úti 1912 eftir Árna Árnason, Æviminningar Bjargar Dahlmann eftir Þóru Jónsdóttur. Enn skrifar Stefán Jónsson þátt unga fólksins og um Strandar- kirkju. Guðrún frá Lundi og Ingibjörg Sigurðardóttir eiga þarna sínar framhaldssögur ög margt fleira er í þessu hefti. og þar af leiðandi óhæfilegrar fitusöfnunar. Þetta þyrftu hús- mæður sveitanna einnig að taka til athugunar, þó að svo sé, að sveitafólkinu stafi jafnaðarlega minni hætta af offitu en fólki, sem stundar hægari störf. Á fundinum voru fluttar marg- ar ræður og fyrirspurnir bornar fram, bæði af konum og körlum, en Steinunn svaraði með tveimur ágætlega fræðandi ræðum, auk framsöguerindisins. Fundarstjóri var Jónas Krist- jánsson. Fundinum lauk kl. 1,45 eftir miðnætti. Síðasti fundur. Þetta mun verða síðasti fund- ur Bændaklúbbsins á þessu ári, en gert er ráð fyrir, að hinir vin- sælu fundir klúbbsins hefjist að nýju eftir áramótin. , Hér á íslandi hefur verið stung- ið upp á að taka af slíkum kvik- mynd. Ekki mælum vér með því. Segulbandsupptakan er mein- lausari. Áfengisvarnanefnd Akureyrar. Um helgina voru gluggar verzlana mjög skreyttar hér í bæ. Staðnæmdust vegfarendur fyrir utan þá og nutu þess að horfa á vöruvalið. Ekki var hægt að sjá neinn fátækrablæ innan við gluggaglerið, en mismunandi handbragð útstillingarfólksins setti sinn sérstaka svip á hverja verzlun. Óhófsvörur, dýrar vörur og lélegar vörur, voru áberandi og er ekki til fyrirmyndar, ef allt Dánardægur Gísli Sveinsson, fyrrverandi sendiherra og Alþingisforseti lézt í Reykjavík 30. nóv. sl., 79 ára að aldri. Hann var, þjóðkunnur maður og merkur, Oræfingur að ætt. stærðar í smíðum í A.-Þýzka- landi, og eru þeir væntanlegir á næsta ári. Aðalmál. Aðalmál Eyjabergs eru þessi: Öll lengd 25,004 metrar. Lengd milli lóðlínu 21,60, breidd á bandi 6,00, dýpt 2,00. Skipið er smíðað eftir fyrir- mælum þýzka flokkunarfélagsins Germanischer Lloyd fyrir fiski- skip á Norður-Atlantshafi og styrkt fyrir siglingu í ís. Ennfremur er skipið smíðað samkvæmt íslenzkum reglum og eftir teikningum Hjálmars R. Bárðarsonar, skipaverkfr., Rvík. Skipaskoðun ríkisins hefur haft eftirlit með smíði skipsins í sam- ráð við austui'-þýzka eftirlitð DSRK, og hafa vélfræðingarnir Kári S. Kristjánsson og Jóhann Þorláksson haft eftirlit með hönd um í Austur-Þýzkalandi. Skipið er úr stáli og allt raf- soðið saman. Aðalvélin er 400 hestafla MWM vél og hjálparvél er 25 hestöfl. VEL TIL KVENNA Nýlega komu hörundsdökkir söngvarar til höfuðstaðarins og skemmtu Reykvíkingum. Aðrir landsmenn heyrðu óminn af skemmtan þessari f viðtölum við sunnanblöðin, segjast þeir víða hafa farið, og mun það rétt vera, og kynnzt konum margra landa, og má satt vera, en hvergi hafi þeim orðið eins vel til kvenna og í Reykja- vík! Ofsalegri kvenhylli hafi þeir aldrei notið, því að giftar konur og unnustur hafi skilið sig frá mönnum sínum og hlaupið þeim í fang svo að kveðjustundir hefðu orðið annríkar mjög. Um síðustu ummælin skal ekkert fullyrt, en ekki er það ný bóla, að hvítar konur séu hinum dökku leiðitamar til nokkurra kynna. fer saman, þótt einhver fegurð fyigi- Sem betur fer, er kaupgeta al- mennings töluvert mikil og margir geta veitt sér einhver kaup fram yfir venju, til gagns og gleði, nú fyrir jólin. En nú, sem endranær, er kaupendum vandi ,á höndum að velja og hafna. Nokkrar verzlanir hafa á síð- ustu árum komið fyrir ljósa- skreytingum utanhúss og lífgar það bæinn upp og er þakkarvert og sízt vanþörf í svartasta skamm deginu. Gaman væri að taka upp þann sið, að veita verðlaun fyrir feg- urstu, smekklegustu eða list- rænustu sýningarglugga í bæn- um. Hver vill gangast fyrir því? Fimmfíu manns eru nú í Grímsey En tekjur þeirra eru góðar og velmegun í eynni Ný aðferð við drukkna menn Jófaskreyfingar verzlana á Ák. Gaman væri að veita verðlaun fyrir fegurstu, smekklegustu eða listrænustu sýningargluggana

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.