Dagur


Dagur - 13.01.1960, Qupperneq 5

Dagur - 13.01.1960, Qupperneq 5
Miðvikudaginn 13. janúar 1960 D A G U R 5 ÁGAMLAÁ Forsætisráðherrann núverandi, Ólafur Thors, flutti ræðu í út- varpið á gamlaárskvöld. — „Þau hin miklu mál,“ sagði ráðherr- ann „,liggja mér svo þun?Jt á hjarta, að eg get ekki náð flug- takinu.“ Hann kvaðst ekki geta „lyft sér yfir“ miklu málin og yrði því að sleppa því að tala um „hugþekkara umræðuefni á há- tíðlegri stund.“ Þeir, sem heyrðu eða lásu hina glamuryrtu æsingaræðu, sem minnir á Landsfund Sjálf- stæðismanna í fyrravetur, kunna að hafa glott að samlíkingunni og talið bættan skaðann, þótt loft- ferðamaðurinn næði ekki „flug- takinu“ á þessu gamlaárskvöldi, heldur ekki örvænt um, að hann nái því á ný við stjórnarskipti eða fyrir næstu kosningar. Engum finnst það óviðeigandi þótt stjórnarformaður tali um al- vörumál á áramótum. Sannleik- urinn ■ er sá, að um leið og ráð- herrann missti af flugtakinu, lánaðist honum að flytja vel um- talsverða ræðu og umhugsunar- verða, sem gefur tilefni til at- hugasemda og rökræðna um mikilsverð mál. Ráðherrann minntist þeirra tíma „þegar verkamennirnir við Reykjavíkurhöfn hömuðu sig á bersvæði meðan þeir biðu þess, að sú náð félli þeim í skaut, að fá stritvinnu greidda með nokk- urra aura tímakaupi." Vissulega voru þetta „hættutímar" fyrir marga, þótt ekki væri sérstaklega að því vikið. Síðan kom hann að núverandi „hættutímum“ og reyndist hættan þar, sem vænta mátti, annars eðlis. Hann talaði um verðbólgu og háskalega þró- un. Hann sagði að þjóðin hefði lifað í „vellystingum praktug- lega“ og á síðustu 5 árum „eytt“ 1000 millj. kr. meira en hún hefði aflað. „Eyðsluna“ hefði hún greitt með erlendum lánum. Hann sagði, að á sama tíma hefði verið varið nálega jafn hárri upphæð til kaupa á „lúxus“- vörum til þess að fá af þeim tolla í verðbólgusjóð. Þó þyrfti enn að bæta við 250 milljónum króna í byrjun þessa árs, að öðru óbreyttu, til að jafna fyrirsjáan- legan halla, en við það myndi vísitalan (sem nú er 100) hækka um 5—6 stig, sem almenningur yrði að gefa eftir á næsta ári. — Með tilliti til þessa benti allt til, að íslendngar væru „tilneyddir að breyta tafarlaust um stefnu í efnahagsmálum.“ „Rþkisstjórnin hikar ekki,“ sagði ráoherrann. „Hún er einhuga um stefnubreyt ingu. Menn eru aðeins að safna gögnum og skoða og bera saman þær leiðir, sem til greina geta komið,“ Engin stjórn mætti „blekkja þjóð sína“ eða „skirrast við að horfast í augu við stað- reyndir." í áramótaræðunni var margt vel mælt, annað miður. En í Ijósi sögunnar falla á hana skuggar frá ýmsum hliðum. Hollt hefði það verið, ef formaður stjórnar- andstöðunnar hefði flutt, þótt ekki hefði verið nema eina slíka ræðu í tíð vinstri stjórnarinnar, í stað þess að standa á bak við hvatningar til ótímabærra kaup- hækkana og árásir á þá verlca- lýðsleiotoga, sem samþykktu stöðvun verðlags og launa haust- ið 1956. Og hægari væri sess stjórnarformannsins nú, ef þessi stjórnarformaður hefði verið bú- inn að uppgötva þann sannleika t. d. 1942 og 1944, að ríkisstjórn ber að horfast í augu við stað- reyndir, m. a. í efnahagsmálum. „Tóku þó ýmsir verðbólgunni vel, þegar hún fyrst kvaddi dyra,“ sagði ráðherrann á einum stað í ræðu sinni. „Töldu þar gott ráð til að dreifa auðnum og ekki síður til að láta útlendinga greiða meira fyrir vinnu í þágu hers- ins.“ Kunnugt er um einn stjórn- málamann, sem tók verðbólgunni vel „þegar hún kvaddi dyra“ og mælti með henni með þeim rök- um, að hún væri hentug aðferð til auðjöfnunar. Það var sjálfur Olafur Thors, forsætisráðherr- ann, sem ekki náði „flugtakinu“ sl. gamlaárskvöld. Nú er það komið í ljós, að verðbólga er ekki aðferð til auðjöfnunar, því að hennar vegna hafa sumir orðið auðugir og aðrir snauðir. Og ekki verður gengisbreyting nú, ef framkvæmd yrði, vel fallin til að „láta útlendinga greiða meira fyrir vinnu í þágu hersins", heldur þvert á móti. Sú bú- mannlega hugsjón að græða á þeim, sem stóðu í stríðinu gegn nazismanum, virðist nú hafa glatað gildi sínu. Það er rétt hjá forsætiráðh., að óhyggilegt er að þurfa að afla tekna í verðbólgusjóð með þeim hætti að flytja inn miður nauð- synlegar vörur til þess að geta tekið af þeim hátolla. Það verða menn þó að hafa í huga, að eins og þjóðartekjurnar eru nú og lífskjör margra góð, mun inn- flutningur þessi eiga sér stað, nema komið sé í veg fyrir hann með innflutningshöftum. Þeir, sem vilja spara þjóðinni þennan innflutning, mega þá ekki halda fast við kenninguna um „frjálsa verzlun“. En sú staðhæfing, að þjóðin hafi „eytt 1000 millj. kr. sl. 5 ár umfram aflað fé og tekið þetta „eyðslufé“ að láni erlendis, er, sem betur fer, ýkt og á misskiln- ingi byggð og fær ekki staðist. Ráðherrann gei'ði ekki. grein fyrir því í ræðu sinni, hvernig hin háa tala, 1000 millj. kr„ væri reiknuð út. Um það verður þó ekki rætt hér, hvort sú tala, t. d. í samanburði við lántökur er- lendis, sé rétt eða nærri lagi. En þjóðin hefur á þessum tíma haft með höndum aukningu atvinnu- tækja og framkvæmdir, sem óhugsandi var að hún gæti greitt fyrir af árlegum þjóðartekjum nema að nokkru leyti. Þeim föstu, erlendu lánum, sem ríkið hefur tekið, hefur verið varið til þessara framkvæmda, til þess að treysta grundvöll þjóðarfram- leiðslunnar og auka hana, þar á meðal útflutningsframleiðsluna, eða framleiðslu vara, sem áður voru fluttar inn. Það mun ekki of í lagt, að 100 millj. kr. af hin- uan erlendu lánum séu vegna kaupa á fiskiskipum, umfram það, sem kaupendur og innlend- ar lánastofnanir hafa lagt fram. Til kaupa á millilandaflugvél- um og flutningaskipum hafa ver- ið tekin mörg stór lán erlendis. Virkjun Efra Sogs kostar fram undir 200 millj. króna og þrír fjórðu hlutar þess kostnaðar er erlent lánsfé. Sementsverksmiðjan hefur ver- ið byggð fyi'ir nokkuð mikið á annað hundrað millj. kr„ meiri hlutinn erlent lánsfé. Stórar aflstöðvar hafa verið reistar á Austurlandi og Vest- fjörðum, auk alls annars, sem framkvæmt hefur verið í sam- bandi við rafvæðingu landsins. Auk skipalána erlendis var tekið erlent lán handa Fiskveiða- sjóði til starfsemi hans innan- lands og einnig fékk Ræktunar- sjóður talsvert af erlendu lánsfé, sem varið var til sívaxandi fram- kvæmda í sveitum. Hér er um að ræða framkvæmdir, sem enn væru óunnar, ef ekki hefði til komið erlent fé. Mun þó talið, að allt annað, sem íslendingar, hið opinbera og einstaklingar hafa byggt upp á ýmsum sviðum á þessum tíma með innlendu fjár- magni og vinnu, sé fyllilega um- talsvert. Það nær auðvitað engri átt, að kalla erlend lán af því tagi, sem getið er hér að framan, „eyðslulán". Slík lán styðja þjóðarbúskapinn og aðstöðu landsins í gjaldeyrismálum fram- vegis, a. m. k. ef greiðsla þeirra fer fram á hæfilegum tíma. Það er of snemmt fyrir þessa þjóð að minnka föst, erlend lán og flytja þannig út fjármagn. Við þurfum á nýjum lánum að halda, sem svara núverandi afborgunum og meira ef vel á að vera. Hingað til hefur verið tekið tiltölulega lítið af erlendum lánum til að byggja hafnir, og verður nú varla hjá því komizt að freista þsss að fá slík lán, samanber frumvarp Framsóknarmanna um þetta, sem nú liggur fyrir Alþingi. Ef drag.i á úr hinni raunveru- legu „eyðslu“ hér innanlands hjá einstaklingum og hinu opinbera, er það sérstakt mál og þessu óskylt, en um það ræddi forsæt- isráðherrann ekki. Hann bar eklci fram að þessu sinni nein úrræði til að sporna við því, sem með réttu má telja eyðslu. Ekki ræddi hann heldur um sparnað á fjái'lögum. Er það e. t. v. vork unnarmál, en kemur þeim senni- lega nokkuð á óvart, sem lagt hafa nokkurn trúnað á skrif Morgunblaðsins um „ríkisbákn- ið“ og sparnað á ríkisfé, þegar Sjálfstæðisflokkurinn fór ekki með fjármál og einkum þegar hann var utan ríkisstjórnar. Yfirlýsingin í áramótaræðunni um að nú vanti 250 millj. í verð- bólgusjóð, ef ekki eigi að verða halli á þessu ári, er staðfesting á því, sem Morgunblaðið kvað Olaf Thors hafa sagt á Varðarfundi þrem vikum eftir haustkosning- ar. Um sannleiksgildi þeirrar tölu verður ekki dæmt hér frem- ur en 1000 milljónirnar, þar sem aðeins var birt niðurstaða dæm- is en „uppsetninguna" vantaði. En ef þessi tala hefur við rök að styðjast, hefur því í tvennum kosningum verið ranglega haldið fram, að stjói'narflokkarnir hafi „stöðvað" verðbólguna í ársbyrj- un 1959. Hitt er rétt, að vísitölu- frádráttur í fyrravetur varð til þess að draga úr, en ekki til að stöðva verðbólguna. En aðgerðir og málsmeðferð stjórnarflokksins að öðru leyti voru til þess ætlað- ar að leyna verðbólgu til bráða- birgða og láta hennar ekki verða vart fyrr en að kosningum lokn- um. Um þennan þátt í aðgerðum stjórnarflokkanna má nota þá líkingu, að þjóðinni hafi verið boðið að skrifa upp á óútfylltan víxil, og það hafi meiri hluti hennar gert í þeirri trú, að ekki væri um neina teljandi upphæð að ræða og að samþykkjandi og útgefandi sjái um afgreiðslu plaggsins henni að kostnaðar- lausu. Nú er upplýst, að á víxlinum standi 250 milljónir króna, sem ábekingar verða að greiða á ár- inu 1960. Eðlilega vilja menn, áður en greiðsla fer fram, ganga úr skugga um, hvort upphæðin sé raunverulega svona há. Ekki mun þýða að neita að greiða þá upphæð, sem rétt sýnist. Og ekki skal því haldið fram, að núver- andi stjórnarflokkar hafi einir til hennar stofnað. En ráðstafanir til að leyna skuldinni fram undir áramótin eru þeirra verk og ekki í samræmi við það boðorð, að ríkisstjórnin eigi að „horfast í augu við staðreyndir". Forsætisráðherrann talaði djarflega, þegar hann sagði, að stjórnin væri hiklaus og „ein- huga um stefnubreytingu“ í efnahagsmálum. Samkvæmt um- mælum hans sjálfs er hikleysið þó ekki meira en svo, að stjórnin var enn, þegar ræðan var flutt, að „bera saman þær leiðir, er til greina geta komið.“ Menn spurðu að vonum: Hvernig geta þessir 7 ráðherrar verið svona hiklausir og einhuga ef þeir eru enn að bera saman leiðir — ef enn er ekki búið að ákveða leiðina? Ef stjórnin situr áfram, kemst hún sjálfsagt ekki hjá því að velja einhverja leið. Þeim, sem stuðla að því að litið sé raunsætt á þjóðmál, kemur það auðvitað ekki á óvart, að einhverra að- gerða sé þörf. Framsóknarmenn treysta núverandi ríkisstjórn ekki vel til þess að hafa forgöngu um val úrræða og framkvæmd þeirra. Þegar þau koma fram, munu þeir þó að sjálfsögðu taka til þeirra málefnalega afstöðu. Á Alþingi í fyrra gerðu Fram- sóknarmenn andstæðingastjórn kleift að koma fram dýrtíðarráð- stöfunum. í vetur kusu þeir fremur, að bændurnir tryggðu sig gegn ranglæti með friðar- samningum en áframhaldandi stríði. Þeir munu þó hafa hlið- sjón af þeirri staðreynd, að ef breyta skal miklu mannvirki, getur, ef breytingarnar eru mjög miklar og vandasamar, verið betra að fresta þeim um stund en að fela þær byggingameistara, sem reyndur er að mistökum í starfi. Hitt munu þeir nú sem fyrr telja óhæfu, að tefja þann „meistara“, sem fyrir verki stendur hverju sinni og að spilla árangri af jákvæðu starfi, þótt æskilegt þætti, að öðrum væri verkið falið. — N. Sögur af Óskari Wilde Enski rithöfundurinn Óskar Wilde (1856—1900) var eitt sinn í matarveizlu heima hjá skáld- konu nokkurri, sem talaði bæði hátt og mikið en þoldi ekki, að nokkur gerði að gamni sínu. Er þau fylgdust að inn í matsalinn, sagði hún: — Óskaplegt veður er þetta! — Ojá, svaraði Wilde, en hvernig gætum við trúað á ódauð leik sálarinnar, ef aldrei félli snjór úr lofti? — Mjög svo eftirtektarverð orð, sagði skáldkonan, en hvað eigið þér eiginlega við? — Það hef eg ekki minnstu hugmynd um, svaraði Wilde. Þegar bækur Óskars Wilde komu út hjá bókaforlaginu „Os- good, Mellvanie & Co.“, auglýsti forlagið, að allar bækur þess kæmu út samtímis í London og New York. Dag nokkurn kom vinur einn í heimsókn og sagði við Wilde: — Hefurðu séð blöðin í dag? Osgood er dáinn. Óskar Wilde þagði andartak, en svo sagði hann: — Vesalings Osgood. Þetta er mikill skaði fyrir okkur. — Svo bætti hann við: — En eg býst við, að hann verði grafinn samtímis í London og New York. mestu snilld og oft af gamansemi, svo að ákærandinn átti erfitt með að stjórna skapi sínu. Dæmi: Ákærandinn: Drekkið þér kampavín? Wilde: Já, ískalt kampavín er einn af eftirlætisdrykkjum mín- um, þó að læknir minn ráði mér frá því. Ákærandinn: Rétturinn hefur engan áhuga á að vita, hvað læknirinn yðar segir. Wilde: Það hef eg heldur aldr- Hinn óskammfeihii og greindi rithöfundur Frank Harris var mjög hrifinn af sjálfs sín ágæti. Einn dag sat hann við borð í Café Royal ásamt mörgum kunningj- um cg hrósaði sér hástöfum af því, hve vel hann væri séður hjá öllu helzta fólki Lundúnaborgar. Loks gat Wilde ekki setið á sér og sagði: — Já, kæri Harris, þetta er al- veg rétt hjá þér. Þér hefur verið boðið inn á öll helztu heimili Lundúnaborgar — einu sinni. í hinum nafntoguðu ipálaferl- urn gegn Óskari Wilde reyndi ákærandinn við yfirheyrslurnar sífellt að láta líta svo út sem Wilde væri mjög spilltur maður. Hann kom með ótal spurningar, sem Wilde svaraði óðara af hinni Á ferðalagi sínu um Bandarík- in var Óskari Wilde sýnd fræg myndastytta af Washington. — Þetta var sannarlega mikill maður, sagði leiðsögumaðurinn. Aldrei heyrðist af vörum hans eitt einasta ósatt orð. — Nú, hann hefur þá bara tal- að í gegnum nefið eins og allir aðrir Ameríkumenn, svaraði Wilde. íslenzkir skíðamenn kepptu í Sviss Tveir ísl. skíðamenn, þeir Kristinn Benediktsson frá ísa- firði og Eysteinn Þórðarson frá Reykjavík, kepptu í Adelboden í Sviss sl. laugardag og sunnu- dag. Eysteinn var úr leik í seinni umferð í svigi, en Ki'istinn varð 27. í röðinni. í stórsvigi varð Eysteinn 35. cg Kiistinn 36. Keppendur voru um 100 frá 15 löndum, þar á meðal allir beztu svigmenn heims. Báðar þessar gi-einar vann Þjóðvei'jinn Leidner, en hann var 3. og 5. í þessum sömu grein- um í fyrra. Það kom mönnum mjög á óvart, og þá sérstaklega Austur- ríkismönnum, að hann skyldi vinna. Kristinn og Eysteinn keppa um næstu helgi í Wengen, en síðasta stórmótið, sem þeir takar þátt í, fer fram í Kitzbúhl í Austurríki 15.—17. janúar. Þeir munu koma heim upp úr 20. þ. m.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.