Dagur - 06.02.1960, Blaðsíða 8

Dagur - 06.02.1960, Blaðsíða 8
Bagijr Laugardaginn 6. febrúar 1960 ÆFIR ÞÚ KNATTSPYRNU? Knattspyrnuunnandi og heimsfrægur knatt- spyrnumaður hafa orðið í þessari grein Knattspyrnan hefur undramik- inn seiðmátt, sem kunnugt er. Hún er meðal vinsælustu íþrótta- greina, gerir miklar kröfur til leikmanna, en færir þeim ótelj- andi ánægjustundir. I þessari grein hafa tveir menn crðið. Hinn fyrri er gamall íþróttamaður og sérstakur knatt- spyrnuunnandi og áhorfandi á öllum knattspyrnukappleikjum hér á Akureyri og víðar um fjölda ára. > Knattspyrnuunnandi segir: Fyrir nokkrum árum var eg í Hafnarfirði á þessum árstíma og sá hóp ungra manna, á að gizka 25 manns, hlaupa í íþróttabún- ingum út úr bænum. Þetta gerðu þeir a. m. k. tvisvar í viku. Loks- ins eru strákarnir orðnir alveg vitlausir, heyrði eg einhvern segja þar. Piltarnir í Hafnarfirði voru að búa sig undir knattspyrnukapp- leikina næsta sumar, en voru að- eins byrjendur í þessari íþrótt. Þjálfari þeirra vissi, að ekki er nægilegt að læra knattmeðferð, keppendurnir verða einnig að hafa mikið þol á úrslitastundum kappleikjanna. Eg hugsaði þá norður til Akur- eyrar. Og enn er eg að hugsa um knattspyrnuna hérna hjá okkur. Æfa knattspyrnumenn í vetur? Æfa þeir innanhúss og utanhúss? Æfa þeir hlaup til að auka þolið? Hvers vegna eru ekki utanhúss- æfingar hér á vetrum eins og í öðrum löndum? Er einhver þjálf- ari ráðinn fyrir okkar úrvalslið? Þessar spurningar koma í hug- ann og þeim þarf að svara. Ekki með þögn og tómlæti, heldur með æfingum og undirbúningi. Eigum við Akureyringar að liggja undir eftirfarandi dómi iþróttafréttaritara Morgunblaðs- ins frá I sumar, þar sem segir meðal annars: „Leikur þessi sannaði átakan- lega hvað breiddin er ennþá lítil í knattspyrnu okkar. Hvorugt þeirra liða, sem kepptu þennan úrslitaleik virðast eiga annað er- indi í fyrstu deild, en að falla aft- ur nður í II. deild, nema því að eins a ðum mikla framför verði að ræða.“ Svo mörg voru þau orð um Akureyringa og Vestmannaey- inga í úrslitaleik íslandsmeistara- mótsins á Melavellinum í Reykja- vík föstudaginn 21. ágúst 1959. Og enn vil eg bera fram þá spurningu, hvort knattspyrnu- menn á Akureyri geri sér ljóst hvaða ábyrgð hvílir á þeim gagn- vart bæjarfélaginu í heild? Og hvað er verið að gera nú við íþróttavöllinn? Fáir munu borga glaðari en eg til íþróttamála, og eg held að fáir telji það eftir að töluvert sé gert fyrir íþróttirnar af hálfu bæjarins. En okkur er ekki sama um íþróttaheiðurinn. Næsta sumar verða sennilega leiknir hér fleiri knattspyrnuleikir en nokkru sinni fyrr. Þá viljum við fá að sjá okkar pilta í beztu röð og veg þeirra, og um lei ðokkar allra, sem mestan. Góðir knattspyrnumenn! Glat- ið ekki tíma og tækifærum, æfið dyggilega nú í vetur og gefið ykkur örlítinn tíma til að hugsa um spurningar mínar ykkur til uppörfunar. Og þá hefur knattspyrnuunn- andi lokið máli sínu að sinni. Sá heimsfrægi segir: Knud Lundberg hefur um tvo áratugi leikið með danska liðinu AB, er læknir að menntun og blaðamaður að atvinnu. Hann skrifar mikið um knattsþyrnu, t. d. í Familie Journal. Hann segir m. a.: Líkamsbygging mín er alls ekki heppileg fyrir knattspyrn- una. Eg er of hægfara og of lang- ui’. En allt frá því fyrsta hef eg haft mjög gaman af knattspyrn- unni, meira en flestir aðrir. Það er líklega þess vegna að eg hef leikið yfir 70 landsleiki í þrem íþróttagreinum: knattspyrnu, handknattleik og körfuknattleik. Sem strákur hafði eg mikinn hraða og gott úthald. En þegar eg fór að taka út vöxtinn, varð eg að hægfara og þolinu ábóta- vant. Þá varð eg að leggja meiri áherzlu á knattmeðferð og auk- inn skilning á leiknum. í knatt- spyrnu reynir á að vera fljóturað hugsa og framkvæma, en um síð- asta leikinn þýðir ekki að brjóta heilann, eins og i skák. Það er mjög skjallandi og ógleymanlegt, þegar menn hafa haldið því fram, að eg væri bezti knattspyrnumaðurinn í víðri ver- öld, ef eg væri örlítið fljótari. En þetta er alveg út í hött. Þótt eg hafi verið liðinu til einhvers gagns, er það hreint ekki af því að eg hefði „fjögur lungu og gull- fætur“, heldur vegna þess, að eftir að eg varð fullvaxinn og þunglamalegur, fór eg að „Iæra“ knattspyrnu. Yfirleitt hafa knattspyrnu- dómarar verið mér vinveittir, sumir alveg úr hófi. Það er e. t. v. vegna þess, að við fyrstu sýn verður maður svo hissa á því, að slíkur gíraffi skuli leika knatt- spyrnu, að frammistaðan er of- metin. Oft hef eg verið spurður ráða í knattspyrnu. ítali nokkur vildi t. d. fá hjá mér uppskriftina að því, hvernig ætti að koma knettinum í netið, allt frá fyrstu spyrnu og þar til knötturinn hafnaði í marki andstæðingsins, þannig að engum vörnum yrði komið við. Það tók mig klukkutíma að út- skýra það fyrir honum, að slík fyrirfram gerð áætlun gæti því aðeins staðist, að mótleikir and- stæðinganna væru fyrirfram þekktir. Drengir á öllum aldri hafa leit- að ráða hjá mér um knattspyrnu og alla langar þá til að komast í landsliðið. Tómstundirnar eru okkar mannréttindi. Það hafa allir ein- hverjar tómstundir, líka þeir, sem eru í skóla, séu þeir í rétt- um bekk. Leikgleðin er gulli betri, og hún er mest virði þegar erfiðleik- ar steðja að. * Sfórir menn í liflu húsi Sigurður M. Helgason, settur bæjarfógeti, og Gísli Ólafsson yfirlögregluþjónn kvöddu nýlega blaða- menn á sinn fund og skýrðu mörg atriði lögreglu- mála svo og aðstöðu lögreglunnar til starfa Tveir í viðbót. Eins og flestir vita eru 10 starf- andi lögregluþjónar hér í bæn- um. Þar af greiðir ríkið laun tveggja en bæjarfélagið átta. — Fjárhagsáætlun Akureyrarkaup- staðar fyrir yfirstandandi ár ber það með sér, að ráðgert er að fjölga enn lögregluþjónum af bæjarins hálfu. En miðað við fólksfjölda telja þeir, sem lög- reglumálum eru kunnugastir, nauðsynlegt að fjölga þeim um tvo. Kæmi þá væntanlega i hlut ríkissjóðs að greiða tólfta lög- regluþjóni bæjarins, samkvæmt því, sem annars staðar hefur skipazt. Við Akureyringar teljum bæ- inn okkar rólegan bæ og svipi í því efni til reglulegs iðnaðarbæj- ar, svo sem eðlilegt er og gagn- stætt þeim bæjum landsins, sem miklir fólksstraumar liggja að og frá eftir árstíðum. Næst mesta umferðamiðstöð landsins. Þó er Akureyri önnur mesta umferðamiðstöð landsins og telur 1300 bíla í bæ og sýslu. Sam- kvæmt umferðateljara, hefur um- Happdræffi Ferðamálafélags Ák. Ölæði í miðbænmn Öðru hverju ber töluvert á öl- æði hér í bæ. Síðast í fyrrakvöld varð lögreglan að skerast í leik- inn og f jarlægja með valdi nokkra borgara úr miðbænum og setja undir lás og slá. — Hópur manna safnaðist við lögregluvarðstofuna að því Ioknu, en óspekktir urðu þó ekki þar. Viðbótarlán til Ú. A. úr framkvæmdasjóði Á fundi bæjarstjórnar Akur- eyrar fyrra þriðjudag var sam- þykkt að lána Útgerðarfélagi Ak- ureyringa kr. 400 þús. af fé því, sem veitt var til Framkvæmda- sjóðs bæjarins á fyrri ári. Hafa þá alls verið lánaðar til Ú. A. 1,5 millj. kr. af framlagi Fram- kvæmdasjóðs 1959. 500 þús. kr. voru veittar til Vallarráðs vegna byggingar við íþi’óttavöllinn og 500 þús. kr. af fé sjóðsins er enn óráðstafað. Loksins var dregið í þessu happdrætti og eru bæði ár og dagar liðnir fram yfir lögskilinn tíma, og sennilega flestir happ- drættismiðar glataðir hjá fólki, sem studdi málefnið á sínum tíma. Eftirfarandi barst blaðinu fi’á Ferðamálafélaginu: Þann 19. jan. sl. fór fram, á skrifstofu bæjarfógeta, útdráttur í happdrætti Ferðamálafélags Akureyrar. Eftii-talin númer hlutu vinn- ing: 1. Flugfar fyrir tvo Rvík— Hamborg—Rvík nr. 22061. 2. Flugfar fyrir tvo Rvík— K.höfn—Rvík nr. 17981. 3. Flugfar fyrir tvo Rvík— London—Rvík nr. 17751. 4. Flugfar fyrir tvo Rvík— Hamborg—Rvík nr. 8906. 5. Flug'far fyrir tvo Rvík— K.höfn—Rvík nr. 2066. 6. Flugfar fyrir tvo Rvík— London—Rvík nr. 2265. 7. Flugfar fyrir tvo —Akureyri —Rvík—Akureyri nr. 11091. 8. Flugfar fyrir tvo Akureyri— Rvík—Akureyri nr. 14299. 9. Flugfar fyrir tvo Akureyri— Rvík—Akureyri nr. 10328. 10. Flugfar fyrir einn Akureyri —RvíkAkui’eyri nr. 16992. 11. Flugfar fyrir einn Akui’eyri —Rvík—Akureyri nr. 10706. 12. Flugfar fyiir einn Akui’eyri —Rvík—Akureyri nr. 864. — (Bii’t án ábii-gðar.) Vinninga sé vitjað til Kristins Jónssonar, forstjóra, Brekkugötu 30, símar 2006 og 2007. DÁLVIKINGAR fengu 70 rauðmaga Dalvíkingar lögðu hrognkelsa net undan Sauðanesi fyrir fnán- aðamót og fengu 70 í-auðmaga í fyrstu lögn. Virðist rauðmaginn ganga venju ’fyrr að landinu þetta árið. Um 800 þúsund fjár á fóðrum Sauðfé hefur fjiilgað nijög hér á landi hin síðari ár, eftir ao sauð- fjársjúkdómum var að mestu út- rýnu með stórfelkium niðurskurði og fjái’skipum, sem fram fóru svo að segja um land allt. Talið er, að í vetur séu um 800 þús. fjár á fóðrum og flcira cn nokkru sinni áður. Stórfelld atikn- ing þessarar búgreinar virðist ekki miklum takmörkunum háð, enn sem komið er, þvl að hvort tveggja er, að ræktarlönd má nota til sauð- fjárbeitar en hefur lítt verið gert, víðáttumiklar auðnir má græða upp með tækni nútímarfs og auka annan gróður með framræslu og notkun áburðar á heiðalöndin. Hrossum fækkar og eru þau nú talin rúmlega 30 þús. og nautgripir eru um 48 þús. En geitur cru aðeins nokkrir tug ir og þarf að gera ráðstalanir til að forða algerri útrýmingu þeirra. ferð bifreiða tvöfaldast á þi’emur áruiu í bænum og næsta ná- grenni. Þessi öra þróun skapar mörg vandamál, er tekur til lög- reglu og bifi’eiðaeftii’lits. Þá eru siglingar vaxandi og einng útgerð og síðast ,en ekk sízt, er hér mik- ið og margbreytilegt skemmtana- líf, bæði í bænum sjálfum og þó enn meira í næsta nágrenni hans. í sambandi við umferðamálin má óhætt fullyrða, að umferða- reglur eru meira og minna þver- brotnar hér í bænum á hverjum einasta degi ársins. í opinberum skýrslum frá bæjarfógetaembætt- inu eru bókfærð brot á umferða- lögum og lögreglusamþykkt sam- tals 191, auk bifreiðaárekstra, sem voru 106 sl. ár. Þar fyrir ut- an hefur lögreglan fengist við nær 500 umferðamál, þar sem áminningar og leiðbeiningar hafa verið látnar nægja. Varðstofan er of lítil. Ölvun er stundum nokkuð mik- il hér á Akureyi’i. Ekkei’t skal þó fullyrt um slík mál í samanburði við aði’a kaupstaði landsins. Engu að síður er það staði’eynd, að öl- óða menn verður að taka úr um- fex’ð öðru hvoru og stundum marga í senn, séi’staklega um helgar eða þegar skip eru í höfn. Lögregluvarðstofan á Akur- eyri var byggð árið 1939 og var xá hx’óflað upp af vanefnum. Þá var bærinn lítill, íbúar fáir og ökutæki af skornum skammti. — Lögi’egluvai’ðstofan er eitt lítið hei’bei’gi, annað ennþá minna hei’bei’gi eða kompa, gangur og 3 fangaklefar. Hvergi er afdrep til yfirheyrslu, bai’smíðar og ölæði fanga yfirgnæfa mannamál í nessu húsi, hvergi er geymsla fyrir hvei’s konar muni, sem lög- reglan vei’ður að taka í sína vörzlu, og ekki einu sinni hægt að hengja upp yfii'hafnir eða annað nema við útidyr. Hefur það hent hina fingralöngu vini lögi-eglunnar, að þegar þeir hafa horfið frá stofnuninni og eru á leið til feguri’a lífs, er hið vand- aða efni lögreglubúninganna við útidyrnar fyrsta freistingin. Það kostar 1 milljón. Settur bæjai’fógeti og yfirlög- regluþjónn bentu á, að sam- kvæmt áætlun myndi það kosta um eina milljón króna að byggja mjög viðunandi vai’ðstofu með nægu húsrými, ef hún yrði byggð sem viðbótarbygging við slökkvi- stöðina. Þar af greiðir ríkið helming. , Fangaklefar þurfa að vera 7— 10 og tvö góð herbergi, auk varð- stofu og geymslu. Sjálfsagt er að búa vel að lög- reglunni og ætla henni einnig mikil stöi’f. Réttmætt er líka að athuga þessar áætlanir og finna þá úi’lausn, sem bezt gæti leyst húsnæðisvandamál lögreglunnar á hagkvæman hátt.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.