Dagur - 30.04.1960, Page 7
7
- Á DORG Á SVARTÁRVATNI
Framhald. af '5. siðu.
þeir, sem fyrst koma á vett-
vang til að nema ný lönd.
Rafsíöðin og silungurinn.
í Svarárkoti er merkileg
heimilisrafstöð við upptök
Svartár, rétt við hlaðvarpann.
En fallhæðin er innan við einn
metra. Til þess að fá þó þessa
fallhæð, var vatnið dýpkað
með fyrirhleðslu. En við það
að vatnsborðið hækkaði um
eitt fet eða svo, óx silungurinn
svo mjög í vatninu,, að sumir
álíta, að veiða þurfi ósleitilega
til að forða offjölgun. Skilyrði
á fyrsta aldursskeiði eru senni-
lega mjög góð og viðkoman
mikil. En fjöldi vatnafiska
verðm' ávallt að miðast við
fæðuskilyrðin, ef þroski og
bragðgæði eiga að haldast.
Silungsveiðin í Svartárkoti
eru mikil hlunnindi og silung-
urinn getur að nokkru rakið
ættir sínar til hins fræga sil-
ungastofns í Mývatni. Þaðan
hefur silungur verið fluttur í
Svartárvatn til að blanda blóði
við héimasilunginn, og er þá
engin furða þótt hann sé góður.
Sumarfegurð í Svartárkoti.
Sumarfegurð er talin mikil
og sérstæð í Svartárkoti. Víður
fjallahringur með fögrum lit-
brigðum er fögur umgjörð
mikilla og gróskuríkra heiða-
landa í allar áttir. En hið næsta
er vatnið góða, fullt af silungi
Þökkum innilega öllum, sem auðsýndu okltur samuð og
veittu okkur hjálp við andlát og útför
ÞÓRU JÓHANNESDÓTTUR.
Einnig viljum við þakka þeim, sem á einn eða annan hátt,
veittu aðstoð í hinum langvinnu veikindum hennar. Sérstak-
Jega þökkum við læknum og hjúkrunarliði Sjúkrahúss
Akureyrar.
Guðvin Gunnlaugsson, börn og tengdasonur.
Hjartans þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð og
kærleika við andlát og jarðarför
SIGURLAUGAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
Mógili. — Guð blessi ykkur öll.
Sigmar Jóhannesson.
Helga Sigmarsdóttir. Kjartan Magnússon.
Gerður Sigmarsdóttir. Árni Bjarnarson.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og jarðarför litlu dóttur okkar
MARÍU LILJU,
sem andaðist 23. þ. m. — Ennfremur þökkum við læknum
og hjúkrunarliði Sjúkrahúss Akureyrar og Barnadeildar
Landsspítalans í Reykjavík fyrir góða hjúkrun.
Bára Sigurðardóttir.
Sigurjón Sigurðsson.
__
og fugli, margra tegunda auk
svanahjónanna heimaríku. f
Svartárvatn rennur engin á og
ekki nema litlar lækjarspræn-
ur, en úr því rennur Svartáin,
töluvert vatnsmikil. Uppsprett-
ur eru víða á vatnsbotninum
og a. m. k. á einum stað svo
gífurlega miklar, að þar ólgar
yfirborðið eins og gos væri í
aðsigi.
Margir hafa lagt leið sína til
Svartárkots, fremsta bæjar
Bárðardals, til að njóta fegurð-
ar í víðsýni hins afskekkta
heiðabæjar. Jafnvel hinn kald-
ranalegi Dimbilvikudagur dyl-
ur ekki með öllu töfra staðar-
ins, sem freistar til annarrar
ferðar þegar vorið hefur leyst
vetrarböndin af hinni gróandi
náttúru og magnað þá töfra,
sem hvert íslenzkt sumar býr
yfir, hvort sem það kemur vik-
unni fyrr eða seinna. E. D.
Auglýsingar þurfa að
berast fyrir hádegi dag-
inn fyrir útkomudag.
- Beðið eftir Godot
Framhald af 6. síðu.
og of djúpan skilning á eymd-
arstrengjum mannlegs lífs til
þess að allur fjölinn kunni að
meta hann. Miklum leiklistar-
unnendum er því eindregið ráð-
lagt að sjá leikinn sem fyrst.
Ólafur Gunnarsson.
ÖHum þeim mörgu, nær og fjær, sem auðsýndu mér sam-
úð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginkonu minnar,
GUÐRÚNAR GUÐNADÓTTUR,
votta eg mitt innilegasta þakklæti.
Sverrir Guðmundsson.
ui 11111 it n iii tiiiiiiiimiii 111111111111 ii 1111111111111111111111»
NÝJA-BÍÓ
Sími 1285
\ Aðgöngumiðas. opin frá 7-9 i
i Næsta mynd:
TÓNAREGN
í (MUSIK PARADE.)
I Bráðskemmtilg, ný, þýzk
§ söngva- og músikmynd.
i Aðalhlutverk leikur hin nýja
i stjarna
I BIBI JOHNS
H. & V.:
yj HULD 5960547, IV/V — Lokaf.
Slysavarnafélagskonur Akur-
eyri. Skemmtifundur verður í
Lóni laugardaginn 30. apríl, fyr-
ir telpurnar kl. 5 síðdegis og
konurnar kl. 9. — Konur!
Gjörið svo vel að taka með
ykkur kaffi. — Stjórnin.
Frá Amtsbókasafninu. Allir
þeir, sem haldið hafa bókum
lengur en hálfan mánuð, gjöri
svo vel og skili þeim nú þegar.
Bókamóttaka alla virka daga til
14. maí.
Kvennadeild Slysavarnafél.
hér barst 500.00 króna minning-
argjöf um Guðnýju Björnsdótt-
ur frá ónefndri konu.
VIÐTÖL VIÐ BILSTJÓRA
i og i
PETER ALXANDER. 1
\ — Danskur texti. — i
Frá Kvenfélaginu Hlíf
Um sumarmálin á ári hverju
leitar Kvenfélagið Hlíf til bæj-
arbúa um fjárstuðning við dag-
heimilið Pálmholt. Nú sem
fyrr hafa bæjarbúar brugðizt
vel við í þessu efni. Viljum við
hér með flytja öllum, sem lögðu
hönd að verki eða létu eitthvað
af hendi rakna okkar innileg-
ustu þakkir. Sérstaklega viljum
við þó þakka leikflokki frá
bindindisfélaginu „Dalbúinn" í
Saurbæjarhreppi fyrir þá vin-
semd að sýna endurgjaldslaust
leikinn „Alice frænka“ til
ágóða fyrir félagið.
Bæjarbúar! Okkar innilegustu
þakkir fyrir góðan stuðning við
málefni barnanna. — Stjórnin.
ÁVARP
frá Mæðrastyrksn. Akureyrar.
Góðir Akureyringar!
Ef þið hafið aflögu föt, eru
þau góðfúslega þegin hjá
Mæðrastyrksnefnd Akureyrar.
— Skrifstofa nefndarinnar í
Strandgöngu 7 er opin á þriðju-
dögum kl. 4.30—6.30. Einnig
taka undirritaðar konur á móti
gjöfum til nefndarinnar: Ingi-
bjöi’g Eiríksdóttir, Ásabyggð
17. — Margrét Antonsdóttir,
Austurbyggð 8. — Sólveig Ein-
arsdóttir, Páls-Briemsgötu 20.
— Guðrún Melstað, Bjarmastíg
2. — Guðrún Jóhannesdóttir,
Sandvík, Glerárhverfi. — Soffía
Toharensen, Strandgötu 25. —
Ingibjörg Benediktsd., Strand-
götu 13. — Guðný Magnúsdótt-
ir, hjúkrunarkona við Barna-
skólann.
ALIANDAREGG
Ljúffeng til átu, afbragðs-
góð í bakstur. — 38.00 kr.
kílóið.
LITLI BARINN
Framhald af 4. siðu.
Sveinn Jónsson
Sveinn Jónsson frá Hærings-
stöðum er einn þeirra mjólkur-
bílstjóra úr Svarfaðardal, sem
orðlagður er fyrir dugnað.
Enda hentar ekki öðrum en
duglegum mönnum að stunda
þá atvinnu norður þar, því að
Svarfdælingar flytja mjólk
hvort sem vegir eru færir eða
ekki.
Sveinn befur stundað þessa
atvinnu í 11 ár á lengstu leið-
um samlagssvæðisins og þeim
snjóþyngstu. Svarfdælsku bíl-
stjórarnir þurfa að aka 150—
200 km vegalengd á dag.
Hvað hefurðu verið lengstan
tíma á leiðinni frá Dalvík til
Akureyrar?
Rétta 36 klukkutíma. Þá vor-
um við á ferðinni á þremur
trukkum en bílstjórarnir voru
til skiftanna í þeirri ferð.
Yfirleitt hefur verið gott að
aka í vetur, sennilega bezti
veturinn síðan ég byrjaði. Þó
vorum við einu sinni rúman
sólarhring að sækja mjólkina
fram í dalina og flytja hana til
Akureyrar.
Sjáið þið nokkuð dularfullt á
ferðum ykkar?
Ég hef aldrei séð nein dular-
full fyrirbrigði. En aðrir hafa
orðið þeirra varir, til dæmis
hafa rnargir orðið varir við
reimleika á Hámundarstaða-
hálsi. Um þá eru til ýmsar
sagnir og bílstjórar hafa séð
þar mann á ferð, ætlað að
spara honum sporin og numið
staðar við hlið hans á veginum
til að taka hann upp i. En þá
hefur hann horfið algjörlega
og er ekki laust við að menn
hafi orðið skrekkaðir, þegar
maðurinn gufar upp.
Finnst þér atvinnan erfið?
Já, hún er töluvert erfið og
sérstaklega bindandi. Yfir
sumartímann þarf maður á fæt-
ur upp úr kl. 5 á morgnana og
er ekki laus fyrr en um kl. 11
á kvöldin, að vísu með svona
tveggja til þriggja tíma hvíld
um miðjan daginn.
Ilvað finnst þér skemmtileg-
ast við starfið?
Maður kynnist mörgu fólki,
sem oftast er til hinnar mestu
ánægju. Vegna þessa starfs
verður maður líka þátttakandi
í flestu því, sem er að gerast í
Svarfaðardal, eða svo finnst
manni að minnsta kosti. Enda
er það svo, að bílstjórarnir
leggja jafnan eitthvað af mörlc-
um í sjálfsagðri og eðlilegri
fyrirgreiðslu.
Minnið æfist vel í þessu
starfi, enda þarf á því að halda
að vera ekki allt of gleyminn.
Margt þurfið það að kaupa
fyrir bændur?
Já, allt frá tvinnakeflum upp
í stærstu jarðyrkjuvélar.
Stundum kemur það fyrir, þeg-
ar húsbóndinn eða húsfreyjan
fara í kaupstaðinn, að þau
gleyma bæði einu og öðru. Þá
eru bílstjórarnir beðnir að
kaupa það næsta dag, og í guðs
bænum að gleyma því nú ekki!
Aldrei velt bílnum?
Nei, en einu sinni fór stýrið
úr sambandi og ók ég þá á
nokkurri ferð út í mó. Bíllínn
fór þó ekki af hjólunum. Far-
þega, sem með mér var, varð
þá að orði: „Hvern- andskotann
ertu nú að fara, Sveinn“. Ég
gat bundið stýrisarminn við
togstöngina og ekið til Dalvík-
ur. Annars er bifreiðunum
ágætlega við haldið. Oft er fall-
egt á þessari leið, einkum
snemma morguns að sumarlagi
og þá gleymast allir erfiðleikar
frá vetrinum. — E. D.
| Framfærsluvísitala |
[ 104 stig |
Kauplagsnefnd hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaðar í
byrjun apríl 1960 og reyndist
hún vera 104 stig, eða 3 stigum
hærri en hún var í marzbyrjun
1960. Verðhækkanir síðan 1.
marz 1960 af völdum gengis-
breytingar og vegna hins nýja
söluskatts námu 6,6 vísitölustig-
um, en þar á móti kom 2,8 stiga
vísitöluhækkun vegna hækkun-
ar fjölskyldubóta frá 1. apríl
1960. Lækkun vísitölunnar af
þessum sökum verður alls 8,5
stig, og hefur því nú verið tek-
inn inn í vísitöluna þriðjungur
þeirrar lækkunar.
(Frá Hagstofunni.)
Æskulýðsblaðið
J
1. hefti þessa árs er komið út.
Fjölbreytt og fagurt að vanda.
Af efni þess má nefna: Við-
horf mitt til framtíðarinnar eft-
ir Sigríði Hannesdóttur, M. A.
Hinn nýi æskulýðsfulltrúi
þjóðkirkjunnar skrifar grein,
sem hann kallar: „Þú sagðir
já.“ Þá er þýdd grein eftir Pal
Boone um framtíð æskumanns-
ins.
Aðalritstjóri þessa heftis er
sr. Sigurður Haukur Guðjóns-
son.