Dagur - 30.04.1960, Síða 8

Dagur - 30.04.1960, Síða 8
8 Vörukynningarnámskeið á Norðurlandi Þeir ivíhlaða trillurnar Þáttakendur frá norðlenzkum kaupfélögum. Olga Ágústsdóttir veitti námskeiðinu forstöðu Nú er nýlokið fyrsta norð- lenzka vörukynningarnámskeið- inu, og var það haldið á vegum Húsmæðrafræðslu SÍS. Ungfrú Olga Ágústsdóttir veitti nám- skeiði þessu forstöðu, en það fór fram að Hótel KEA, verzl- unum félagsins og verksmiðjum samvinnumanna hér í bæ. Nám- skeið þetta er fyrir búðar- og verzlunarfólk, þar sem því er kennt að kynna vörurnar fyrir kaupendunum, og ýmislegt ann- að í sambandi við dagleg verzl- unarstörf. Fyrst var þriggja daga nám- skeið og kennt í fyrirlestrum og með kvikmyndasýningum, en síðan hófst hin verklega vöru- kynning í verzlunum KEA, þar sem 850 manns brögðuðu ljúf- fenga rétti. Námskeiðið sótti fólk frá kaupfélögunum á Norðurlandi og hafði það bæði gagn og gam- an af. Jakob Frímannsson setti námskeiðið, en erindi fluttu, auk forstöðukonunnar, sem kenndi vörukynningu, verk- smiðjustjórarnir Ragnar Ólason, Björgvin Júníusson, Jónas Kristjánsson og Valdimar Har- aldsson og fjölluðu þau um vörur verksmiðjanna, sem þeir veita forstöðu. Auk þess talaði Kristinn Ketilsson um búðaeft- irlit og kjörbúðir, Gunnlaugur Kristinsson um fræðslumál og Baldur Ágústsson aðstoðaði við undirbúning. Ovenjuleg fiskigengd er nú við Grímsey Fréttaritari Dags í Grímsey skýrði blaðinu svo frá í stuttu viðtali í gær, að óvenjulega mikill fiskafli væri nú við eyna og hefði verið síðan fyrir páska. Trillurnar koma fullfermdar kl. 3 á daginn og fara strax 'aft- ur og er stutt á miðin. Fjórtán aðkomubátar, flestir frá Eyjafjarðarhöfnum, eru nú í höfninni. Fiskurinn veiðist allur á handfæri. Bjargfuglinn er farinn að leita varpstöðvanna, en oftast byrjar hann að verpa upp úr miðjum maímánuði. ni 0 AV: Grásleppa enn Dalvík 29. apríl. — Ennþá er mikil glásleppuveiði. Mjög gott er talið að fá 20 stk. í 60 faðma net. Reiknað er með 800 gr. af hinum dýrmætu hrognum úr hverri grásleppu. Grásleppan er hengd upp og seld sigin, t. d. til Reykjavíkur, og er herramannsmatur, þegar hún verkast vel. Syndaselurinn, gamanleikur- inn sem hér hefur verið sýndur við góðan orðstír, verður enn. sýndur í kvöld, og svo á Húsa- vík um helgina, ef ekkert óvænt kemur fyrir. Stundum tekur hann Reyiihljð 29. apríl. — Nú er kuldi og rénningur en lítill snjór. Beitarjörð hefur verið góð í vetur og mikið notuð. Óttast er um, að silungurinn hafi drepizt í stórum stíl í vet- ur í Laxá, vegna vatnsskorts, þegar rennslistruflanirnar urðu sem mestar. Mikill ís er á Mývatni, en heldur lítil veiði. Þó tekur hann dag og dag, en aðra daga fæst ekkert á dorg. Hvergi er farið að sleppa fé ennþá. Fundir samvinnu- manna á Blönduósi Blönduósi 29 .apríl. — Fundir samvinnumanna hefjast hér mánudaginn 9. maí, aðalfundir kaupfélags, sláturhúss og mjólk ursamlags. Próf eru hafin í barnaskólan- um og lýkur þann 7. maí. Steinunn Hafstað hefur tekið Kvenanskólann á leigu í júlí og ágúst í sumar og rekur þar gistingu og greiðasölu eins og í fyrra. Fá ekki í matinn Hrísey 29. apríl. — Hér er svo fisklaust, að maður fær ekki einu sinni fisk í soðið. — í morgun komu góðir gestir, en það Voru rjúpumar, sem fljúga til fjalla á vetrum, en koma hingað þegar vorar. Og það leynir sér ekki, að þær kannast við sig þessar, því að þær gera sig heimakomnar, fara strax inn á húslóðir og vappa þar um eins og alifuglar. í dag er jarðsungin frá Foss- vogskirkju Kristín Benedikts- dóttir, fyrrum húsfreyja í Bröttuhlíð á Árskógsströnd. — Síðustu æviárin dvaldi hún hjá Hrefnu dóttur sinni í Rvík. Aflinn að glæðast Ólafsfirði 29. apríl. — Nú er aflinn að glæðast hér í Ólafs- firði og hafa trillur fengið sæmilegan færafisk, 1500—2000 pund, og hafa aflað þetta út á Polli og á Héðinsfirði. Mótor- báturinn Anna kom með 11 tonn af færafiski eftir fjögurra daga veiðiferð til Grímseyjar, en þar er góður afli. í fyrrakvöld fannst lík Axels heitins Péturssonar, sem fórst með trillubátnum Kristjáni Jónssyni. Leitarmenn komust á bát upp í Sýrdalsvoga og gengu þaðan inn fjörurnar og fundu lík Axels hjá svonefnd- um Forvaða og þar var einnig stýrishús bátsins og fleira brak. Afmælishóf U.M.F.Æ. Breiðabóli 25. apríl. — Laug- ardaginn 23. apríl sl. minntist UMF Æskan 50 ára afmælis síns í samkomuhúsi Svalbarðs- strandar með veglegri sam- komu. Fjölmenni var og hittust þar eldri og yngri félagar, sum- ir langt að komnir. Hafði hófið verið vel undirbúið. Veizlu- stjóri var Haukur Berg, for- maður félagsins. Setti hann það með sköru- legri ræðu og stjórnaði því af myndarskap. Sameiginlegt borðhald var. — Ræður fluttu: Guðmundur Benediktsson, er rakti sögu félagsins. Tryggvi Kristjánsson sagði minningar frá veru sinni í félaginu og nokkrar kímnisögur. Stefán Stefánsson skemmti með ferða- sögu o. fl. Jón Bjarnason ræddi áhrif félagsskapar og lét góð- látlegar visui- fljóta með, mönn- um til ánægju. Jóhannes Laxdal flutti félaginu beztu framtíðar- óskir. Sigurbjörg Benedikts- dóttir minntist sveitarinnar og félagsins einkar hlýlega. Jóhann Konráðsson söng með undirleik Áskels Jónssonar, við afburðagóðar undirtektir. Meðan á borðhaldinu stóð var almennur söngur. Stjórnaði honum Sigurbjörn Benedikts- son í Ártúni. Flutti hann, eins og aðrir ræðumenn, félaginu fagrar og innilegar afmælis- óskir. Sýndur var sjónleikurinn: „Misheppnuð tilraun." Hófið fór í alla staði virðu- lega fram. Það stóð alla nóttina. Félaginu bárust peningagjaf- ir, sem renna eigá til sundlaug- arbyggingar. •- Félagið fékk mörg heilla- skeyti, sem sýndu tryggð og hlýhug sendenda til þess. Þakk- aði veizlustjóri gjafir, hamingju óskir og velvild alla til félags- ins fyrr og nú, og óskaði að það mætti alltaf verða fært um að rækja hlutverk sitt með heiðri og sóma. — G. B. Reytingsafli Sauðárkróki 26. apríl. Skag- firðingur losaði 50 tonn hér á Sauðárkróki í gær. Bátarnir fá reitingsafla. Vegir eru orðnir sæmilegir. Leikfélag Siglufjarðar sýndi hér sjónleikinn Forríkur fá- tæklingur bæði á laugardag og sunnudag. Aðsókn var ágæt. Sjóveður er sæmilegt og gæft- ir hafa verið góðar í vikutíma. {Hátíðaliöldin 1. maíf Samkvæmt upplýsingum frá I. maí-nefnd verkalýðsfélag- anna hér í bæ, verða hátíða- höldin 1. maí fjölbreytt á Akur- eyri. Ræðumenn verða: Jón Sig- urðsson, bóndi, Yztafelli, Guðm. J. Guðmundsson, Rvík og Bjöm Jónsson alþingismaður. Lúðra- sveitin leikur og farin verður kröfuganga. — Útifundur þessi hefst kl. 2 e. h. Síðar um daginn hefjast svo fjölbreyttar skemmtanir, kl. 3.30 í Samkomuhúsinu, og síðar í Landsbankasalnum og Al- þýðuhiísinu. — Sérstök bama- skemmtun^ verður í Alþýðuhús- inu kl. 3.30. Merki dagsins verða seld á götunum. Síðásti Bændaklúbbs- fundurinn á þessu vori verður haldinn að Hótel KEA mánudagskvöldið 2. maí næstk. kl. 9. — FUhdatefni: SAUÐ- FJÁRRÆKTIN. Frúmmælandi verður Páll Zóphoníasson, fyrr- verandi búnaðarmálastjóri. ÞEGAR MENN TYNA ÁTTUNUM Þegar sjófuglar villast svo langt upp á land, að þeir sjá ekki sjó, gleyma þeir að fljúga og má taka þá með höndunum. Því er líkt farið með Braga Sigurjónsson, síðan hann gerðist handbendi íhaldsins, og er síðasti Alþýðumaðurinn glöggt dæmi um það. Hann segir, að sérstök lög, sem vernda sam- vinnufélögin við ranglátri skattlagningu, séu fyrir löngu orðin ranglát. Þetta er hin mesta skynvilla. Hafi samvinnufélögin nokkru sinni átt vernd þjóðféálagsins skilið, vegna sérstakra starfshátta sinna, eiga þau hana engu að síður skilið nú, eftir að reynslan hefur sýnt árangur- inn af starfi þeirra. Bragi er orðinn svo villtur, að honum finnst það i sannleika hart, að KEA skuli gera kröfur til að nota orku frá Rafveitunni og hafa afnot af höfninni og telur líka vafasamt, að því er helzt verður skilið, að samvinnumenn hafi lagt nóg til gatnagerðar í bænum (til þess að mega ganga á götunum?) Stærri er sú villa ritstjórans, að tala nú máli íhaldsins í skattamálum, þar sem ihaldið vill taka þann rétt af samvinnumönnum, að mega sjálfir ávaxta sparifé sitt og leggja einnig veltuútsvar á félagsmannaviðskipti samvinnu- félaga. Bragi er víst búinn að gleyma því, hver er munur á verzlun samvinnufélaga og kaup- manna. Hann er hættur að skilja það, að til eru sérstök lög um það, á hvern hátt tekjuaf- gangi slíkra félaga er ráðstafað, auk þess sem aðalfundur getur ákveðið, þar sem allir hafa málfrelsi og allir fulltrúar atkvæðisrétt. Og hann er búinn að gleyma því líka, að einstakl- ingsverzlun getur ráðstafað sínum tekjuafgangi og einnig öllum eignum að eigin vild og geð- þótta. Og svo lágt leggst Bragi, að hann vill þrengja hag og starfsgetu samvinnufélaganna, af því að það komi illa við Framsóknarflokkinn. „Fjár- magn það, er Framsóknarflokkurinn fær hjá kaupfélögunum, hlýtur að minnka,“ segir hann og bætir svo við: „eða þau verða að taka hin auknu útsvör (veltuútsvörin) nærri sér í ein- hverri mynd.“ Þetta hefur nú verið kallað, að hengja bakara fyrir smið. Eitt augnablik virðist Bragi fá ofurlitla glóru og talar þá eins og Þingeyingur, og segir að „heiðarlega rekin kaupfélagsverzlun sé eðlilegri og æskilegra vérzlunarform en kaup- mannasverzlun, m. a. vegna arðsfyrirkomulags- ins. . . . “, einnig vegna þess, að þau byggi upp og haldi í fjármunina í heimkynnum sínum „og er bæði ljúft og skylt að viðurkenna slíkt og þakka“, bætir hann við. En samt vill hann þjóna íhaldinu í því að gera félögin máttvana. Alþýðuflokkurinn barðist gegn harðýðgi kaupmanna og braskara og taldi þjóðnýtingu bezta formið til að losna undan „þrældómsok- inu“. Nú hefur hann kastað frá sér gömlum baráttumálum, vinnur jafnvel mjög ötullega að þeim málum nú, sem hann fordæmdi allra mest fyrir nokkrum árum, samanber söluskatt- inn. Vegna skynvillu sinnar berst hann nú við hlið íhaldsins gegn samvinnufélögunum, af því að honum er sagt, að það hljóti að vera Fram- sókn til bölvunar. Allir sjá, hve steinrunnin sú pólitík er, sem þannig er rekin. íhaldið hefur það sér til afsökunar, að það er andstæðingur samvirmufélaganna, eins og það hefur verið frá fyrstu tíð. Afsökun Al- þýðuflokksins er sú, að hann villtist of langt frá stefnu sinni og markmiðum, týndi áttun- um og flúginu í gjörningaveðri íhaldsins. Þá tók íhaldið hann með höndunum og brúkar hann síðan að vild.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.