Dagur - 05.05.1960, Page 4
4
5
BÆNDUR GERÐIR AÐ SKATT-
ÞEGNUM BÆJANNA
SAMKVÆMT frumvarpi ríkisstjómarinnar,
sem lagt hefur verið fyrir Alþingi, skulu sam-
vinnufélög greiða útsvar af veltu sinni „en velta
telzt heildarsala vöru, vinnu og þjónustu, jafnt
hjá félagsmönnum, sem utanfélagsmönnum, ef
um samvinnufélag eða önnur félög er að ræða,
áður en frá eru dregin nokkur gjöld vegna starf-
seminnar.“
Frá sjónarmiði bóndans lítur þetta þannig út:
Hann leggur framleiðsluvörur sínar inn í reikn-
ing í næsta kaupfélagi, og kaupfélagið greiðir
honum sannvirði fyrir þessar vörur, þ. e. endan-
legt söluverð varanna, að frádregnum kostnaði.
En ríkisstjórnin vill ekki láta þessa starfsemi af-
skiptalausa. Nú skal leggja veltuútsvar á kaup-
félögin. Þetta útsvar, sem hér rennur til bæjar-
sjóðs Akureyrarkaupstaðar, dregst frá því verði,
sem bóndinn endanlega fær fyrir vörur sínar, og
skattheimtan endurtekur sig, ef framleiðsluvör-
urnar eru sendar í aðra landshluta til sölumeð-
ferðar þar, t. d. til Reykjavíkur, þar sem stærsti
markaðurinn er, og þá greiðir bóndinn öðru
sinni veltuútsvar af kjötinu eða mjólkurvörun-
um og nú í bæjarsjóð Reykjavíkurbæjar, því að
aftur verður sá kostnaður dreginn af verði fram-
leiðsluvara. Ef bóndinn framleiddi vörur fyrir
150 þús. kr. og veltuútsvarið væri ákveðið 2%
hér á Akureyri, drægjust 3000.00 krónur frá inn-
legginu. Væru svo þessar vörur seldar annars
staðar á landinu, drægist þar annar sams konar
skattur frá. Nú keypti sami bóndi tilbúinn áburð,
fóðurbæti og aðrar rekstrarvörur til bús síns
fyrir sömu upphæð, eða 150 þús. kr., verður þá
kaupfélag hans að standa skil á veltuútsvari til
bæjarsjóðs, einnig af þeirri vöru„ og enn einar
3000.00 krónur til viðbótar. Þetta eru í sannleika
harkalegar ráðstafanir gegn bændastéttinni og
verða til þess, ef framkomið frumvarp stjórnar-
innar verður lögfest, að soga fjármagnið
úr sveitunum til bæjanna. Að sjálfsögðu ættu
veltuútsvörin og falla viðkomandi sveitarfélagi í
skaut, og væru þau þá lítið eitt réttlætanlegri.
Hvarvetna snúast sveitamenn til varnar þess-
um fyrirhuguðu ráðstöfunum. Fjöldafundir
bændanna mótmæla þeim nær eindregið. Jafn-
vel harðsvíruðustu Sjálfstæðismenn snúast gegn
flokki sínum og greiða atkvæði með harðorðum
mótmælum, samanber fundi bændafélaga á
Hólmavaði og á Austurlandi, og frá fundi
félags Eyfirðinga, sem síðar verður sagt frá hér
í blaðinu.
Niðurjöfnunarnefndir bæjanna hafa það þó
verulega á valdi sínu, samkv. frumvarpi stjórn-
arinnar, hversu veltuútsvarið er hátt á hverjum
stað. Hvarvetna í Iýðræðislöndum er samvinnu-
starfið viðurkennt af valdhöfunum og það
verndað gegn ólióflegri skattpíningu. Svo hefur
það einnig verið hér á landi. En svo undarlega
hefur við brugðið, að í stað þess að ríkisvaldið
veiti samvnnufélögunum starfsgrundvöll og skil-
yrði til að starfa fyrir hagsmuni fjöldans, verða
samvinnufélögin nú, samkvæmt hinu illræmda
frumvarpi ríkisstjórnarinnar, að biðja niðurjöfn-
unarnefndir kaupstaðanna að vernda sig fyrir
landslögum.
Daglega dynja verðhækkanimar yfir úr öllum
áttum, síðast í gær hækkaði mjólk og mjólk-
urvörur. Tvöföld aðflutningsgjöld, söluskattur,
vaxtaokur og dýrtíðarflóðið vegna gengisfelling-
arinnar, allt þetta eru þau höft á hvers konar
framtak einstaklinga og félaga, sem stjórnar-
flokkamir herða sem fastast í stað þess að leysa,
eins og þeir lofuðu. Alveg sérstaklega koma hin-
ar nýju ráðstafanir hart niður á bændum, enda
eru þeir skattlagðir alveg sérstaklega eins og
sýnt er hér að framan.
.... JÓKAS JÓNSSON FRÁ HRIFLU: ...
LISTASAFN A AKUREYRI
Mætum árásinni í krafti samtakamáttarins
Ég hef fyrir nokkrum vikum
skrifað grein í Dag um afrek skör-
unga, sem áttu heima á Akureyri
um aldamótin. Frásögnin um
þessa menn var að því leyti merki-
leg, að á þeim umrædda tíma
lagði Akureyri fratn, fyrir sókn
þessara og rnargra annarra manna,
verulegan skerf í frelsis- og um-
bótabaráttu landsmanna. Síðan þá
hefur Akureyri á margan hátt tek-
ið hliðstæðan þátt í framfarabar-
áttu landsins, og er þar ntargs að
minnast. Margt er þó ógert, sem
enn er auðvelt að franrkvæma.
Þegar kaupstaður eins og Akur-
eyri er viðurkenndur höfuðstaður
í heilum fjórðungi, þurfa verkin
að tala oft og mörgum sinnum.
Mér hefur komið til hugar að
benda Akureyrarbúum og Eyfirð-
ingum á eitt verkefni, sem að vísu
mun ekki kallast stórmál, en gæti
þó orðið, ef vel væri frarn úr ráðið,
til ánægju og gagns fyrir fólk, sem
á heirna á Akureyri eða kemur
þangað að sumarlagi. Bending
ntín er sú, að andlegir og verald-
legir leiðtogar Akureyrarbæjar
taki ráð sín saman unt að koma á
fót í kaupstaðnum safni nteð góðri
íslenzkri list, sem verði opið
nokkurn ltluta dags að sumarlagi
meðan gestkvæmt er í bænum og
sumarleyíi standa yfir.
Bending mín er sú, að forráða-
menn Akureyrar fari þess á leit
við menntamálanefnd, að hún
láni til sýningar á Akureyri all-
mikið af listaverkum, sem safnið
á og þarf ekki öll að nota sökutn
rúmleysis lieinta fyrir.
Ég leyfi ntér ennfrentur að
benda á ltið tnikla og góða hús
gagnfræðaskólaits. Það er fyrir
margra liluta sakir prýðilega fallið
til að verða að sumarlagi sýningar-
staður íslenzkrar listar.
Ég vil til stuðnings máli mínu
segja frá litlu atviki um áhrif
myndlistar á unga ntenn, og at- .
vikið gerðist einmitt í Akureyrar-
bæ. Fyrir skömmu minntist Ragn-
ar Jóhannesson ritltöf. í blaði í
liöfuðstaðnum atviks úr skólasögu
sinni, þegar hann var nemandi í
Menntaskólanum á Akureyri. —
Sagði Ragnar, að í sal Mennta-
skólans ltefðu verið mörggóð mál-
verk. Elafði Sigurður skólameistari
aflað þeirra. Eitt af þeint var
mynd eftir Ásgrím Jónsson úr
Norðurárdal. Þar sást Baula og
Norðurá og fögur byggð vítt um
kring. Ragnar skáld lýsti, ltversu
þessi mynd hefði lifað í huga hans
allan skólatíntann. Hann hafði
leitazt við, þegar fundir eða annar
mannfagnaður var í salnum, að
sitja þannig, ef birtan var lientug,
að hann gæti notið ]tar þeirrar dá-
santlegu fegurðar, sem málarinn
hafði ílutt inn í*skólahúsið.
Mér þótti sagan falleg og sér-
staklega ánægjuleg af þvi, að ntér
var kunnugt um þau atvik, sem
leiddu til að þetta málverk kont í
Akureyrarskólann. Þegar gagn-
fræðaskólanum á Möðruvöllum
var breytt í menntaskóla, keypti
menntamálastjórnin þetta mál-
verk af Asgrínti Jónssyni fyrir 1200
„brennivíns“-krónur, eins og þá
var komizt að orði, eftir að gróð-
inn af áfengissektunt féll í sjóð
menntamálaráðs og skyldi varið
til listaverkakaupa. Vitnisburður
Ragnars Jóhannessonar var í ltuga
mínum mikil sönnun fyrir því, að
það væri hyggilegt, að æskuntenn
landsins ættu kost á að kynnast
því bezta, sent til er í íslenzkri list
strax á námsárunum. Bending
mín um listasafn á Akureyri er
byggð á þessari skoðun.
Nú liáttar þessum málum svo,
að menntantálaráð í Reykjavík
hefur í 30 ár keypt mikið af ís-
lenzkunt listaverkum. í fyrstu var
nokkuð af þessum andlega auði
lánað í skóla og aðrar stofnanir í
almanna þágu víða um land, en
þegar ríkið byggði þjóðntinjasafns
húsið í Reykjavík, var mennta-
ntálaráði afhent efsta hæð hússins
í því skyni að þar myndaðist visir
að listasafni íslands. Sú 'skipan
ltefur lika komizt á, en ríkið á
ntiklu meira af góðunt listaverkum
lteldur en hægt er að koma fyrir
í þessu safni. Meginhluti málverka
ríkisins nú er geymdur í myrkra-
stofu. Hefur auk þess verið nokk-
urt los á forræði safnsins, þannig
að af og til ltefur safnverkunutn
verið raðað í geyntslu einu sinni
eða oítar á ári, til þess að liægt
væri að ltafa þar yfirlitssýningar á
verkunt íslenzkra listamanna. Það
er að vísu mikilsverð framkvæntd
en nokkuð dýr að því leyti, að
vegna þessara stórbreytinga hefur
engin festa komizt á listasafn í
Reykjavík, en vonandi ntun frarn
úr því rakna áður en langt urn
líðurA
Eins og sjá ntá af þessari frásögn
er framkvæmanlegt fyrir mennta-
málaráð að hafa nokkur útibú
annars staðar á landinu, öll nteð
góðunt listaverkum. Þar við bæt-
ist, að Ásgrímur lieitinn Jónsson
gaf ríkinu ntörg hundruð málverk,
sem eru nú innibyrgð í húsi lians
og bíða þess að yfir þau verði
byggt sérstakt safn. Sennilegt má
telja, að það væri ekki brot á gjafa
brcfi Ásgrínts, þó að nokkuð af
þeint forða væri til sýnis í safni á
Akureyri.
Eftir því sem ég veit bezt, standa
fjölntargar bjartar og fallegar
kennslustofur gagnfræðaskólans á
Akureyri auðar sumarlangt. Ríkið
á nú þegar nógu mikið af ágætum
listaverkum til þess að fylla marg-
ar stofur í skólanum, ef tiltækilegt
þætti að flytja listaverkin norður í
þcsstt skyni. Á vetrum yrði að
geyma ntyndaforðann í góðri og
öruggri geymslu, þar sent væri jafn
oggóður ltiti og engin eldhætta. Á
ltverju vori væri liægt að skipta
unt nteira eða minna af safninu.
Reksturskostnaður getur verið lít-
ill, aðeins gæzla í tvo eða þrjá
ntánuði að sumarlagi. Eftir reynsl-
unni í Reykjavík væri ekki ástæða
til að ltafa safnið opið nenta
nokkra stund síðari liluta dags.
Listasafnið í Reykjavík á svo
mikið af verkunt Ásgríms, Kjar-
vals, Jóns Stefánssonar og Blön-
dals, að sýnishorn af verkunt þess-
ara manna myndu gefa gestum, er
litu inn í salinn, glögga hugmynd
um list þeirra. Þá á safnið ntjög
mikið af verkunt hinna yngri mál-
ara og myndhöggvara, þar á nteðal
ríkulegan forða bæði af atomlist
og klessumálverkunt. Sennilega
myndi þykja sjálfsagt allra hluta
vegna að sýnishorn af þeim verk-
um væru líka á suntarsýningum á
Akureyri.
Ef til þess kentur, að áhugafólki
á Akureyri þyki bending mín þess
verð, að ltenni sé gauntur gefinn,
þá myndi fyrst þurfa að undirbúa
tnálið heintafyrir. Forráðantenn
bæjar og gagnfræðaskóla þurfa að
beita sér fyrir nýmælunum. Síðar
yrðu forráðantenn Akureyrar að
snúa sér til menntamálaráðs ög
fara fram á velviljað samstarf þess
um framkvæmdina. Ég geri ráð
fyrir að nienntamálaráð ntyndi
telja sér skylt að verða við svo líf-
rænni og sanngjarnri ósk, en ekki
hef ég nein völd í þeirri stofnun,
en mæli hér eftir því sem mér
þykir sennilegt um aðgerðir valdra
manna, sem gegna ábyrgðarstöðu.
Mér þykir fullvíst, að ef slík til-
raun lánast eins og efni geta stað-
ið til, þá ntyndu síðar rísa íleiri
útibú frá listaverkasafninu i Rvík
í öðrum landshlutum.
Menntamálaráð gerði fyrir fá-
eiitunt missirum tilraun til að sýna
allmörg listaverk á tilteknum stöð-
um, en ég hygg að sú framkvæntd
ltafi ekki gefizt eins vel og til var
ætlazt. Það er töluvert erfitt að
Oytja málverk langar leiðir, eins
og vegir eru á íslandi, og tnikill
kostnaður við umbúðir o. s. frv.
Nokkur hætta er á að listaverkin
skemmist við ílutning á vondum
vegunt. Aítur á ntóti virðist mér,
að nteð tillögunni um útibú á Ak-
ureyri væri í þessu efni hægt að
sigla fram hjá flestum skerjum.
Húsið, sem Akureyrarbær getur
notað, er fyrirtaks gott á allan liátt
bæði um öryggi og birtu. Það ntun
vera ónotað allan sumartímann og
flutningur á listaverkunum sjó-
Ieiðis einu sinni á ári, lítill unt-
búðakostnaður og skentmdtr svo
til fyrirbyggðar.
Læt ég svo úttalað um þetfa. mál
að sinni. Mér þykir líklegt, að •
þessi bending verði tekin til ,at- .
hugunar og að í ár eða á næstu
árurn verði ltafnar framkvæmdir
til að hafa á Akureyri sumarlangt
öllum bæjarbúum og gestum til
athugunar og yndisauka mikið. og
síbreytilegt safn beztu íslenzkrár
listar, síðan Sigurður málari ruddi
hina þyrnum stráðu listainaiins-
braut.
Ræða Jóns Sigurðssonar í Yzta-Felli á hátíðis-
degi verkalýðsins, 1. maí síðastliðinn
Fyrir 40 árum hófust stjórn-
málasamtök vinnandi stétta,
bænda og verkamanna. Fyrir
þriðjungi aldar, árið 1927, kom-
ust þau til valda allt fram til
ársins 1958 voru þessi samtök
voldugasta stjórnmálaflið í
landinu. Þau stóðu fyrir hinni
miklu sókn til bættra lífskjara
og aukinnar menningar á öllum
sviðum. — Samtök bænda og
verkamanna í kaupstöðum hafa
gjörbylt öllu mannlífi í land-
inu. Víst er um það, að aldrei í
okkar sögu hafa orðið slíkar
framfarir. Engin þjóð mun á
jafnskömmum tíma hafa aukið
jafnmikið sín lífsþægindi, auk
þess að vinna á öllum sviðum
stórvirki, sem verða framtíð-
inni að notum.
Stórhýsi og stórfyrirtæki hafa
verið reist til almannaþarfa.
Meginhluti þjóðarinnar býr nú
í nýjum húsum og nú í fyrsta
sinn rísa hús úr varanlegu efni.
Síminn, útvarpið og rafmagnið
er komið til meirihluta fólksins
og bindur þjóðina saman sem
eitt heimili. Mestu máli skiptir
það þó að framleiðslutækin hafa
gjörbreytzt, þannig að hvert
handtak, sem nú er unnið, að
framleiðslu til lands og-sjávar
og í iðnaði, skilar nú márgföld-
um áfköstum við það, sem áður
var.
Fólkinu í veröldinni fjölgar
með ótrúlegum hraða, öflun
matvæla veldur miklum áhyggj-
um. Flest gömlu menningar-
löndin eru fúllræktuð, þar
minnka ræktunarlönd árlega
vegna þess sem tekið er undir
hús og athafnasvæði vaxandi
Jónas Jónsson frá Hriflu átti frumkvæði að stofnun Dags
fyrir röskum fjórum áratugum, og hefur blaðið oft notið hans
síðan. Og enn sendir hann blaðinu hugvekju til Norðlend-
inga. — Jónas Jónsson varð 75 ára 1. maí sl. 1 tilefni af því
sendir Dagur honum innilegar árnaðaróskir og tekur undir
þessi orð eins af fyrri ritstjórum Dags um þennan mesta rit-
snilling okkar tíma og ótrauða og gáfaða baráttumann:
„Jónas er síðastur fulltrúi þeirrar fylkingar afreksmanna,
sem á viðreisnaröldinni orkuðu byltingum í þjóðmálastefnum
íslands.“
fólksfjölda. Fiskimiðin erjast í
grennd við fjölbýlli löndin.
Olía og kol og aðrar orkulindir
eru á þrotum. Enginn jafn fá-
mennur hópur í heiminum mun
framleiða nándar nærri jafn
mikið magn matvæla á mann
sem íslenzkir sjómenn og
bændur.
Nágrannaþjóðir okkar búa
í löndum við minnkandi mögu-
leika. Við höfum ótæmandi skil-
yrði til þess að auka okkar
landsnytjar. Við stækkum okk-
ar land með þrautseigri bar-
áttu fyrir víðari landhelgi. Að-
eins örlítill hluti af hinni frjóu
gróðurmold okkar er ennþá
yrktur. Við kunnum ráð til
þess að græða sandana og ör-
æfin og rækta nytjaskóga, þar
sem áður voru hrjóstur í brött-
um hlíðum. Aðeins örlítill hluti
vatnsaflsins er ennþá virkjaður,
og svo er einnig um jarðhitann.
Vorið 1959 var hið blíðasta og
grózkumesta sem eg man. En á
sjálfan þjóðhátíðardaginn, 17.
júní gerði gjörningaveður, svo
sem kominn væri þorri. Við
bændur gátum óttast daginn
þann, að allt líf, gróðurinn og
lifandi peningur, sem við höfð-
um verið að hlynna að allt vor-
ið, væri í heljargreipum. En sól-
in sigraði, öllu var borgið. En
ef gróðurinn og fénaðurinn
hefði ekki verið styrktur með
lífsþrótti ræktunarinnar, hefði
illa farið.
Nú stendur yfir í stjórnmála-
lífinu, stórhríðarbylur, með
ofsastormi, frosti og fannburði,
sviplíkur viðbrögðum veðurfars
ins, sent urðu á þjóðhátíðinni í
fyrra. Heljarmáttur heims-
skautaloftsins í norðri olli þá
bylnum.
En það er aðeins vanhyggja
okkar, sem veldur óveðri stjórn
málanna, sem nú geisar og
gengur yfir þjóðina. Þeir, sem
þjóðin treysti, hafa brugðizt.
Þeir, sem nú hafa völdin halda
því fram, að hin mikla framför
síðustu ára sé háskaleg, hana
beri að stöðva. Þeir vilja ekki
viðurkenna, að þjóðinni líður nú
betur en nokkru sinni fyrr og
hún á nú betri tæki til hvers
konar menningar- og aúðöflun-
ar. Þeir halda því fram, að fjár-
festinguna verði að stöðva. En
fjárfesting er á flestum sviðum
sparnaður. Það er að segja
verðmæti eru geymd til fram-
tíðarnota.
Þeir segja, að bæta skuli hlut-
fallið milli neyzlu og fram-
leiðslu einvörðungu með
minnkandi neyzlu, ekki með
aukinni sköpun verðmæta. Þeir
segjast ætla að bæta efnahag
þjóðarinnar með því að skerða
kjör almennings, gera hann svo
fátækan að hann verði að
minnka eyðslu sína. Utgjöld
okkar til heimilisþarfa vaxa
daglega. Þessi varan, eða þessi
almannaþjónustan hækkar í
dag í verði, hin á morgun. En
tekjur okkar, vinnulaun bónd-
ans eða verkamannsins, mega
ekki hækka. Stjórnin vill að
við séum fátækir, eyðum litlu,
hættum að hugsa um að rækta
jörð, byggja hús, kaupa skip og
báta og veiðarfæri eða vélar,
sem auka afköst vinnunnar.
Alveg sérstaka alúð leggur
stjórnarstefnan við það, að
hamla sjálfsbjargarviðleitni
æskunnar. Aðgerðir hennar
banna fátækum mönnum að
leita sér menntunar erlendis,
eða halda þar áfram námi. Þær
banna ungum hjónum að stofna
sjálfstætt heimili í sveit eða
bæ. Við frumbýlingsbóndann,
sem vantar bæði ræktun, vél-
Jón Sigurðsson, Yztafelli.
ar og bústofn á við nágrannana,
segir stjórnarstefnan: Þú skalt
halda áfram, ungi maður, að
vera fátækari heldur en gamli
bóndinn, nágranni þinn, og
vinna með úreltum tækjum
meðan hann stundar nýtízku
búskap.
Allar efnahagsráðstafanirnar
miða að því að færa skipulagið
að því sem var fyrir 40 árum,
áður en bændur og verkamenn
hófu samstöðu í stjórnmálum.
Allt miðar þetta að því að gera
hina fátæku fátækari og hina
ríku ríkari. Þegar bónda norð-
ur í Köldukinn eða verkamanni
á Akureyri eru greiddar þús-
und krónur í dýrtíðarbætur
með lækkun tekjuskatts, fá há-
launamennirnir í Reykjavík,
þeir sem stefnunni ráða, ef til
vill 30—50 þúsundir í sams kon-
ar bætur.
Það er opinbert leyndarmál,
viðurkennt af sjálfum stjórnar-
flokkunum, að kaupmenn munu
geta dregið til sín að meira eða
minna leyti þann söluskatt, sem
þeim er skipað að taka af okk-
ur, stungið honum í eigin vasa
og auðgað sjálfa sig.
En kaupfélögin hljóta að
borgar skattinn sem þau leggja
á neytendur sína og fá litla
borgun fyrir að innheimta
hann..
Innstæðumaðurinn á að fá
hærri vexti af fé sínu en áður,
svo að hann geti safnað sér
meiri innstæðu og orðið ríkari.
Hinn fátæki á að borga hærri
skuldavexti, þó að það kunni að
verða til þess- að skuldir hans
vaxi og hann verði enn fátæk-
ari.
Stjórnarstefnan leggur alveg
sérstaka áherzlu á það að
hnekkja samvinnufélögunum.
Útsvarslagafrumvarpið með
veltuútsvarið á að verða svipan,
sem ríður þeim að fullu.
Ekki minna en sex sveitar-
eða bæjarfélög geta skattlagt
sömu vöruna á ýmsum fram-
leiðslustigum. Með þeim er
Reykjavík gefið vald til að
leggja hátt veltuútsvar á allar
norðlenzkar framleiðsluvörur
sem eru seldar þar.
Ef einhver Norðlendingur
getur, þrátt fyrir aðgerðir
stjórnarinnar, sparað nokkra
aura og lagt þá í banka,
þá er honum það frjálst, en það
má bara ekki lána þá hér fyrir
norðan, þeir eiga að fara til
Reykjavíkur.
Eg hef ekki tíma til að rök-
styðja betur það, sem öllum
ætti að vera Ijóst, að stjórnar-
stefnan er árás á lífskjör al-
mennings, hindrun á sókn vinn-
andi manna til aukirinar menn-
ingar og vaxandi framleiðslu.
Nokkrir af þeim, er verkamenn
bæjanna treysta, hafar brugðizt
og gengið í lið með afturhalds-
öflunum. Þetta verða frjáls-
lyndir verkamenn að athuga og
velja sér nýja menn í þeirra
stað.
Aðgerðir stjórnarinnar komu
yfir framsókn þjóðarinnar sem
stórhríðarbylur á algróna jörð
um Jónsmessuskeið. 40 ára
framfarir byggðust allar á
stjórnmálasamvinnu vinnandi
manna í bæjum og sveitum. —
Harðviðrið, sem nú gengur yfir
í stjórnmálunum, stafar af því
að þessi samvinna brást. Eina
ráðið til þess að bæta skaðann,
sem harðviðrið hlýtur að valda,
er sú að efla þessa samvinnu,
og gera hana sterkari en nokkru
sinni fyrr.
í Þingeyjarsýslu og við Eyja-
fjörð hófst samvinna vinnandi
manna í verzlunarmálum, í
þessum héröðum hefur hún
jafnan verið sterkust. Nú hafa
þau verið dæmd til að
vera eitt kjördæmi. Látum nú
afturhaldið finna, að einnig hér
sé að vænta forystu um varnir
gegn ofurvaldi auðmagnsins í
höfuðstaðnum, varnir, sem séu
byggðar á sterkri forystu fyrir
samvinnu vinnandi manna í
stjórnmálum, sem breiðist út
um allt landið, græði sárin, sem
núverandi harðviðri stjórnmál-
anna skapar, svo að framundan
sé grózkuríkt surnar í menn-
ingu íslendinga.
«iiiiiniiii 1111111 n n ii 111111111111111111111111 imimiiimiti*
I HEIMSÓKN 1
I K. F. R. I
Eins og áður hefur verið get-
ið í blaðinu kom hingað urn sið-
ustu helgi lið frá KFR. Á laug-
ardag lék það við KA í íþrótta-
húsi Menntaskólans og var sá
leikur mjög skemmtilegur og
endaði með jafntefli, 55:55 stig-
Á sunnudag fóru Reykvíking-
ar og Akureyringar til Húsavík-
ur og léku þar í stórglæsilegum
íþróttasal, er nýlega hefur ver-
ið tekinn í notkun. Húsið var
þéttskipað áhorfendum, sem
flestir sáu körfuknattleik í
fyrsta sinn og virtust skemmta
sér ágætlega. Leikurinn var
mjög spennandi og lauk með
sigri KFR, 72 stigum, IBA gerði
57 stig.
ÞANKAR OG ÞYÐINGAR
SPJALL UM HITT OG ÞETTA.
Nú verður líklega hlé næstu daga og engin auglýsing
glymjandi frá Rukkskrifstofu Ríkisútvarpsins um 30
króna hegningarvexti, verði útvarpsnotendum einum
degi of seinir með gjaldið. Það er búið, sem búið er, og
þeir, sem gleymt hafa greiðslu, mega nú búast við þjón-
um laga og réttar með lögtaksöxina reidda um öxl, en
aðmíráll rukksins fyrir sunnan mun telja peninga og
undirbúa tundurskeytabáta sína til næstu ferðar um
öldur ljósvakans.
En 30 kr. dráttarvextir, ef menn greiða þessar 300 kr.
t. d. 10. maí? Kr. 30 af kr. 300 í 10 daga; hve miklir árs-
vextir eru það? Geta ráðherrar og rukkarar reiknað
þetta dæmi?
Jæja, menn anda nú alltaf léttar í hléum á milli stríða,
og auglýsingaherferðinni ætti nú eitthvað að linna
næstu daga.
En svo er ýmsum fyrir að þakka, að margt heyrist
fleira í útvarpi en þessi kæra og margnefnda auglýsing.
Stjórnarvöldin auglýsa stundum, eða einhverjir á þeirra
vegum. Mjög stutt er síðan heyrðist tilkynning til bænda
um innflutning á dieselrafstöðvum. Mér hlýnaði reglu-
lega um hjartaræturnar, er eg heyrði, að sveitamenn
þyrftu að greiða 15 þús. krónur fyrirfram, og það þó
nokkru áður en þeir fengju vélarnar. — Þetta minnti
mig nefnilega á ánægjulegar frásagnir margra kunn-
ingja minna, sem fengið hafa sér bíla, dráttarvélar og
ýmsa þarflega hluti á undanförnum árum og þurftu
að borga heilmikið um leið og þeir pöntuðu. Venjulega
hafa ekki liðið nema svo sem 6—-14 mánuðir frá pöntun
og þar til sækja mátti gripinn til Reykjavíkur. Eg var
hálfhræddur um, að viðreisnartillögur ríkisstjórnar
okkar allra myndu kannski blaka óvart við þessu
greiðslufyrirkomulagi, en gott e.r, að óttinn var ástæðu-
laus.
En svo að snúið sé að öðru málefni; hve lengi geta
þulir lesið upp greiddar tilkynningar og auglýsingar
kaupsýslumanna án þess að anda?
Það var nú öðru hvoru megin við páskahátíðina, að
einhver sprettharður þulur las á að gizka 25 tylftir til-
kynninga á undan kvöldfréttum og lauk, held eg, við
síðustu tilkynninguna á slaginu 8, og þá andaði hann.
Á milli tveggja tilkynningá var eitthvað innan við
1/10 úr sek. Byrjað var á lestra þeirrar næstu svona
rétt áður en hinni var lokið. Þannig virtist mér þetta og
minnti þeysingurinn langhelzt á þoturnar, sem fara hrað
ar en hljóðið. Og hvað var svo auglýst og tilkynnt þetta
kvöld? Veit það ekki. Þetta rann allt saman í einn kökk.
Útvarpið ætti að hafa „keppnir“ í íþróttinni að hráð-
tafsa.
Já, nú koma mér í hug blessaðir íþróttarféttaritararn-
ir. Þeir tala og skrifa mjög um það, að þessi eða hinn
hafi „æft vel“. Æft hvað? „Hann hefur æft ntikið í vet-
ur.“ Já, svo að eg snúi mér strax að efninu; eru menn
alveg hættir að æfa SIG?
Bezt er að hætta ritstörfum og skrúfa heldur frá tæk-
inu. Kannski eg verði svo heppinn að lenda á musica
sacra, musica nova, musica longa, rnusica alinea eða þá
módettu fyrir hamoniku og banjó eftir hið fræga tón-
skáld Bæjara, Otto Snobbestian von Krumschpring, en
eftir hann hefur aldrei verið leikið neitt ennþá, a. m. k.
ekki hér á landi.
I. VERÐLAUN.
Fyrir skömmu fékk málverk nokkurt 1. verðlaun á
sýningu í París.
Er sýningunni var lokið, tók húsvörðurinn eftir því,
að málverkið sneri öfugt — og hafði gert það alla tíð!
Hann benti forsvarsmönnum húss og sýningar á þá
staðreynd, að stafir listamannsins voru öfugir efst í
horninu öðrum megin. Jú, ekki neituðu þeir. En gerðu
þéir nokkuð? Viðurkenndu þeir mistök? Nei, auðvitað
ekki.
LÍKA KENNARASKORTUR ÞAR.
I Danmörku vantar á þessu ári um 2550 barnakennara
í stöður víðs vegar um landið. Léleg launakjör eru talin
valda hér miklu um, en einnig skortur á kennaraskólum.
SJÓNVARP í NOREGI.
Hinar reglulegu sjónvarpssendingar byrja í Noregi
þann 20. ágúst í sumar. Verður sent bæði frá Ósló og
Bergen.
Hingað til hefur aðeins verið sjónvarpað til reynslu
þar í landi.