Dagur - 11.05.1960, Blaðsíða 5

Dagur - 11.05.1960, Blaðsíða 5
4 5 STÓR SIGUR UNNINN Á RÁÐSTEFNUNNI í Genf urðu þáttaskil í landhelgisdeilu fslendinga og Brcta, þótt engin tillaga næði tilskildu fylgi. Á ráðstefnunni í Genf 1958 hefðu Bretar getað fengið 12 mílna fiskveiðitakmörk með undanþágu fyrir sjálfa sig, byggða á „sögulegum rétti“. Þeir höfnuðu þessu þá. Nú börðust -þeir hins vegar fyrir sams konar tillögu, samanber sameiginlega tillögu Kanada og Bandaríkjanna um 6 plús 6 mílur og söguleg fiskveiðiréttindi. En þessari margumtöl- uðu tillögu var hafnað og einnig þeirri aftanítil- lögu íslendinga, að gerðardómur f jallaði um sögulega réttinn og ákvarðaði um undanþágur frá honum. Genfarráðstefnan breytti þó gangi mála, sem sérstaklega snerta okkar hagsmunamál. Með henni urðu þáttaskil í hinum alkunnu ránveið- um Breta í Iandhelgi fslands. Samkvæmt til- kynningu frá Landhelgisgæzlunni 5. maí sl. sendu brezku herskipin H M S Delight og Palli- ser, sem bæði eru hér við land, út fyrirmæli til brezkra togaraskipstjóra á fslandsmiðum og var hún á þessa leið: „Við höfum móttekið eftirfarandi skipun frá flotamálaráðuneytinu: „Gerið svo vel og til- kynnið öllum brezkum togurum, að enda þótt íslenzka ríkisstjórnin hafi samþykkt að láta nið- ur falla fyrri ákærur, þá verða þeir þó að halda áfram að hlýða skipunum yðar í einu og öllu. Þó mega togararnir fara hin fyrir 12 mílur, ef þeir eru með búlkuð veiðarfæri, og þeir mega einnig leita skjóls í íslenzkum höfnum eða fara þangað með veika menn.“ Eg vil aðvara yður alla um það, að mér hefur verið skipað að skýra frá öllum brotum yðar á fyrirmælum þeim, sem eigendur skipanna hafa gefið. Það er mjög mikilvægt, að þér hjálpið oss til að forðast árekstra eins og nú standa sakir.“ Með þessu er stór sigur unninn í hinni hörðu landhelgisdeilu. VARAÞINGMENNIRNIR ÞÓ AÐ EKKI sé langt um liðið frá því, að kjördæmabreytingin kom til framkvæmda, eru þó flestir ókostir hennar, svo sem Framsóknar- menn spáðu fyrir um, komnir fram. Einn af þcim er sá ruglingur, sem er á því hverjir sitja á Al- þingi. Munu nú allt að 20 varaþingmenn hafa íekið sæti á því Alþingi, sem nú situr. Varaþing- menn eru að sjálfsögðu hafðir til þess, að þeir taki sæti kjörinna þingmanna í forföllum þcirra. En auðsætt er, að ekki eru alltaf um lögleg for- föll að ræða, þegar þingmenn hverfa af þingi og láta varamenn taka sæti sitt. Er það mcðal ann- ars vitað mál, að um þessi skipti liefur í mörgum tilfellum verið samið fyrirfram, áður en kosn- ingarnar fóru fram. Má það öllum auðsætt vera, að slíkir fyrifram samningar eru alger brot gagnvart kjósendum og bein svik við þá. Kjós- endurnir hafa kosið þingmenn sína með það fyr- ir augum, að þeir sætu á Alþingi að forfalla- lausu. Blaðið hefur nýlega talað við aldraðan mann, sem segist jafnan hafa vitað síðan 1901 hverjir voru þingmenn, en nú hafi hann ekki hugmynd um, hverjir sitja á þingi, svo margir nýir menn séu þangað konmir sem varamenn um lengri eða skemmri tíma. Þetta þarf áreiðanlega lagfæringar við og þarf enga stjómarskrárbreytingu til þess, heldur að- eins breytingu á þingsköpum. Lögleg forföll al- þingismanna ættu einungis að vera: í fyrsta lagi andlát hans, í öðru lagi veikindi og í þriðja lagi utanfarir í opinberum erindum, en ekki cinkaer- indum. Önnur forföll ætti ekki að taka til greina. Þó menn þykist þurfa heim til sín vegna anna, er ekki hægt að sjá, að það séu lögleg forföll. Menn, sem ekki geta setið á þingi vegna ann- ríkis, eiga alls ekki að bjóða sig fram til þings. Hér verður látið staðar numið að sinni, en vera Ttiá, að blaðð víki síðar að þeim göllum, sem á kosningum og þingskipan nú eru. Vitað var, að Bretar voru orðnir langþreyttir á deilunni. Herskipaverndin var nokkuð dýr, en álitshnekkirnir voru þó þyngri á metunum og langsamlega þyngsta áfall þeirra í þessu máli. Frá 1. sept. 1958 hefur landgrunnið innan 12 mílna markanna notið um 90% friðunar, miðað við það, sem áður var, og hefur því borið nær fullan árangur. Nú virðist fullum sigri náð, þótt engin alþjóðalög séu enn til um hinn svokallaða „rétt á hafinu“. Bretar hafa látið undan síga og virða í verki útfærslu fiskveiðtakmarkanna eins og er. I GRÍMSEY ER GAMAN AÐ KOMA Mokafíi uppi í landsteinum, fuglamergð í björg- um og búpeningur gengur nær sjálfala Fyrir helgina skrapp eg til Grímseyjar með Tryggva Helgasyni flugmanni, en sem kunnugt erí heldur Drangur og sjúkraflugvél Norðlendinga uppi samgöngum við eyna. Til Grímseyjar er álíka langt frá Akureyri og til Vestmannaeyja frá Reykjavik, eða hálfrar stundar flug. Einn í landhelgi. Margir bátar voru að veiðum umhverfis eyna og nokkrir tog- arar í sjónmáli lengra norður — fyrir utan 12 mílna mörkin — og þó. Einn var þar svo sem 3 mílur aðeins norður af Grímsey og Tryggvi flaug yfir hann. Hann var útlendur með einkennisstafina O 299, að okk- ur sýndist, en með búlkuð veið- arfæri og á leið út úr landhelg- inni. Fuglamergð í björgunum. Svo stefndum við þá til eyj- arinnar og inn yfir standbergin háu, sem eru þéttsetin fugli á þessum tíma, og hvílíkt fjaðra- fok Úr ofurlítilli fjarlægð minnti fuglagerið á mývarg, svo þéttur var fuglinn, þar sem hann sveimaði við bjargbrún- ina. Og bráðum er varptími og þá eru björgin mikil nægtar- búr. Varpið eykst með ári hverju. En nú er súlan horfin' og haftirðillinn líka. Smalamennska á flugvél. Ekki hafði mér flogið í hug, að flugvélar yrðu notaðar til fjárgæzlu úti í Grímsey.Það fór þó svo, að reka varð féð af flugbrautinni áður en hægt var að lenda, og af því að eyjar- skeggjar gerðu það ekki, urð- um við að „stugga úr túninu“, flugum þá mjög lágt yfir og færðu æmar sig þá út af flug- brautinni. Þrisvar sinnum póstur þennan dag. Um leið og við settumst á völlinn, lagði Drangur frá bryggju. Auðvitað kom hann með póst, það gerðum við líka, og stundu síðar kom gæzluflug- vélin Rán og kastaði niður póst pakka í fallhlíf. Einhvers stað- ar eru nú póstferðirnar strjálli, hugsaði eg. Áður en farið.var að litast um snæddum við ágætan há- degisverð hjá Steinunni Sigur- bjamardóttur útibússtjóra, sem er fréttaritari Dags þar ytra og manni hennar, Guðmundi Jóns- syni. Mokafli í 3 vikur. Niðri við höfnina hitti eg þá bræður Valdimar og Sæmund Traustasyni. Þeir voru að lag- Jakob Jakobsson er að koma Iifrarbræðslunni af stað. Hann er framar á myndinni. — (Ljósmynd: E. D.). Ávarp til safnaðar Ak.kirkju Eins og kunnugt er hafa for- ráðamenn Akureyrarsafnaðar ákveðið, að kirkjan eignist vandað og fullkomið pípuorgel. Vonir standa til, að það verði komið fyrir 17. nóv. n.k. Þá verður Akureyrarkirkja 20 ára, en eftir 3 ár verður öld liðin síðan kirkja var reist í bænum. Að dómi færustu sérfræð- inga hefur Akureyrarkirkja hin beztu skilyrði til hljómlistar- flutnings og hefur gerð og stærð orgelsins verið áformað í samræmi við það. Nú er hafin smíði orgelsins í Þýzkalandi og miðar verkinu vel áfram. Ollum má Ijóst vera, að söfnuðurinn þarf að standa saman um þetta velferðarmál kirkjunnar. Þó að nokkuð hafi safnazt til að greiða orgelið, vantar enn mikið á, að nægilegt fé sé fyrir hendi til þess að greiða það að fullu. í Þess vegna viljum við hvetja Akureyrarsöfnuð til þess að Ijá málinu lið. Ef allir leggja fram sinn skerf, verður orgelið auð- veldlega greitt á tilsettum tíma. Tímamótin vekja oss til um- hugsunar, hvers virði kii’kjan sé og hennar starf. Hljómlistin er veigamikið atriði í hverri kirkjulegri athöfn. Ekki verður of miklu varið til að skapa þá tóna, sem dýpstum áhrifum valda í sál þess safnaðar, sem hrifinn er til söngs og lofgerðar fyrir augliti skaparans. Kirkja vor hefur oft verið nefnd Matthíasarkirkja. — Hér var þjóðskáldið séra Matthías Jochumsson prestur í 14 ár. — Á 20 ára afmæli kirkjunnar verða liðin rétt 125 ár frá fæð- indardegi hans. Varla væri hægt að hugsa sér fegurri minn isvarða í kirkju vorri um hið fræga þjóðskáld en að þangað komi hið væntanlega pípuorgel til að leiða söfnuðinn í söng á sálmum hans. Tökum höndum saman, Ak ureyringar. Kirkjan hefur áður notið fórna safnaðarins og þess vegna rís hún, fögur og mild á hæðinni. þar sem hinn eilífi fagnaðarboðskapur er fluttur. Vér treystum því að sá fórnar hugur ríki áfram. — Það, sem gert er fyrir kirkjuna, er unnið í þágu guðsríkis. Þar eru einnig tónarnir, sem tala. Pétur Sigurgeirsson. Kristján Róbertsson. Páll Sigurgeirsson. Jón Júl. Þorsteinsson. Jakob Tryggvason. Árni Bjömsson. Kristinn Þorsteinsson. Sesselja Eldjárn. Sigríður L. Árnadóttir. S. G. Guðmundsdóttir. Áskell Snorrason. Áskell Jónsson. Básar í Grímsey, nyrzti bær á islandi. Þar á að byggja upp nýjan bæ í vor. — (Ljósmynd: E. D.). færa vél í bát, máttu ekki vera að því að skreppa í land og fá sér nýja, sögðu þeir. En aðra trillu eiga þeir á floti, Björn Þór II, og er hún tveggja tonna. Annar rær, hinn gerir að aflan- um. Þeir hafa fengið 50 skip- pund af þorski, rnest á síðustu 3 vikum, auk þess 16 tunnur af gráhleppuhrognum. Aflayerðm. yfir 100 þús. kr., og enn ekki miður maí. Aldrei komizt í annað eins. Valdimar sagðist aldrei hafa komst í annan eins fisk. Ekkert nema að henda færinu út og draga svo fisk á hverjum krók og tvíhlaða dag eftir dag. Fisk- urinn er allur saltaður, og það mun erfitt að benda á betra hráefni en færafiskinn við Grímsey, sem veiðist svo að segja upp í landsteinum, og það mun erfitt að benda á meiri tekjur manna annars staðar, eins og nú hefur verið um skeið Átta þúsund á dag. Hvað hafa sjómenn haft mestar tekjur núna í þessari aflahrotu? verður manni á að spyrja. Ja, það eru engar ýkj- ur, að einn maður, með dreng- hnokka með sér, hafi aflað fyr- ir 8 þús. yfir daginn, er svarið, og hér mun hafa verið átt við Ola Bjarnason. Ekki þurfa þeir í Grímsey að Öfunda aðra af tekjum sínum þessar síðustu vikur. Skemmtiferðir til Grímseyjar. Drangur mun fara nokkrar ferðir með skemmtiferðafólk til Grímseyjar í vor og Tryggvi Helgason mun fljúga þangað út öðru hvoru. En hvenær þyi’past menn þangað til þess að taka sér þar bólfestu? Það er spurn- ing, sem ungir sjómenn og fleiri gætu velt fyrir sér, er þeir velja sér framtíðarheimili og starfsvettvang. Þá má hafa í huga, að sauðfé ’ gengur nær sjálfala í eyjunni, fuglinn gefur mikil hlunnindi auk hinna ágætu og stórbatnandi fiski- miða og óvenjugóðrar legu til sildarsöltunar. Og Grímseyingar, sem eru aðeins milli 60 og 70 talsins nú, ætla að hefja byggingu félags- heimilis, skóla og bókasafns nú í sumar. í sumar verður líka steypt 10x10 m. ker, sem sett verður við hafnargarðinn næsta vor. Þá batnar aðstaðan enn frá því sem nú er. Alþingi hefur ákveðið 450 þús. kr. fjárveitingu til hafnar- jnnar. Uppmokstursskip fer að vinna þarna einhvern naéstu daga. TriIIur og togarar. Eg spurði um útgerðarkostn- aðinn. Jú, hann var nú svo sem nógu mikill. Eitt og hálft fat af benzíni frá áramótum á trillu, sem var búin að skila 50 skip- pundum af fiski og 16 tonnum af grásleppuhrognum. Enginn beitukostnaður, engin net og engin lina og ekkert milljóna- skip og ekkert hraðfrystihús til að þrefa við um verðið. Hættir mönnum ekki um of til að líta yfir — eða fram hjá smábátaút- gerðinni? Fjöldi aðkomubáta. Fjöldi aðkomubáta stundar handfæraveiðar við Grímsey og kemur höfnin þannig í góðar þarfir fyrir fleiri en Grímsey- inga eina. Og útibú KEA, snot- ur og mjög vel umgengin verzl- un, er opið allan sólarhringinn og kemur það bátunum sérlega vel. Steíni snúið. Með í þessari fcr voru raf- virkjar frá Raflagnadeild KEA. Þeir voru að koma rafmagni í lifrarbræðsluna, svo að hægt væri að nýta það hráefni líka. Þeir voru óþarflegá fljótir, fannst mér. — Svo var þá stefni snúið til lands og setzt á Ak- ureyrarflugvöll eftir hálfrar klukkustundar flug í glamp- andi sól. Tvær ályktanir eru mér efst í huga eftir þessa heimsókn til nyrztu hyggðar á íslandi: Þar er gaman að koma, • og þarna mun gott að vera. E.D. iiiittiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiii(iii*iiiitiiiiiiiiiiiiiiiaiiii>*^ Guð gefi ríkum örlátt lijarta Nokkur orð um pípuorgel, sóknarnefnd o. fl. Valdimar og Sæmundur Traustasynir að gera við gamla vél í Irillu. Hjá þeim stendur einn af yngri kynslóðinni. (Ljósm.: E. D.). Þótt kirkjusókn íslendinga sé hin aumasta, svo að jafnvel í stærstu kaupstöðum landsins sæki ekki nema 20—30 manns guðsþjónustur að jafnaði, hafa verið flutt inn 18 dýr og vönduð pípuorgel í kirkjur landsins fyrir atbeina dugandi forystu safnað- anna. Hin miklu velgengnisár hafa gert mönnum kleift að eignast marga þá hluti, sem keyptir verða fyrir peninga. Hér á Akureyri var reist veg- leg kirkja á fögrum stað fyrir 20 árum, og eru Akureyringar stolt- ir af henni, þótt þeir komi þang- að sjaldan. Fyrir nokkrum árum var farið að vinna að því að kaupa pípuorgel til kirkjunnar. Sóknarnefnd og síðan sérstök orgelnefnd kirkjunnar hafa unn- ið að málinu. Samskota var leit- að, en með raunalega litlum ár- angri. Jafnvel kjarnorkukonan Sesselja Eldjárn mætti ekki þeirri fórnfýsi, sem prestar og aðrir góðir forsjármenn töldu vísa hjá því fólki, sem byggði Akureyrarkirkju af stórhug. Þó safnaðist nokkurt fé, lík- lega um 130 þúsund krónur. — Með létta pyngju, en bjartsýni, var beðið um nauðsynleg leyfi til kaupa á pípuorgeli erlendis. En yfirvöldin brugðu ekki fegin- samlega við óskum kristinna manna á Akureyri og höfðu þær að engu. Á sama tíma fengu þó aðrar kirkjur pípuorgel, en for- ráðamenn þeirra hafa eflaust ekki haft eins mikla trú á því, að hið góða málefni leystist af sjálfu sér hjá yfirvöldum lands- ins og hafa fylgt málum sínum fastar eftir en hér var gert. — Víst er það, að við fengum ekki hið þráða hljóðfæri og jafnvíst er hitt, að hver króna, sem safn- aðist, hafði minnkað til stórra muna í höndunum á fjáröflunar- nefnd, eins og aðrar íslenzkar krónur. Söfnunin, sem var um 130 þúsund krónur, var þriðj- ungur af verði orgelsins, sem kaupa átti. Nú kostar það pípu- orgel, sem ákveðið er að kaupa, sennilega um eina milljón og söfnunarsjóðurinn er ekki lengur verulegur hluti þeirrar upphæð- ar. Hér hafa mönnum orðið mis- lagðar hendur og þeir ekki fylgt málinu eftir í upphafi, eins og aðrir gerðu fyrir sínar kirkjur. Hin nýja gengisfelling skall yfir áður en sóknarnefndin haíði komið kaupunum fram. En nú eru leyfi fyrir hendi og Jakob Tryggvason organisti hefur farið til Þýzkalands, þar sem hið nýja orgel er í smíðum, og sagt fyrir um gerð þess, og að því leyti mun vel vera séð fyrir því, að orgelið verði við hæfi kirkjunn- ar. En nú vantar peninga. Leitað verður til bæjarbúa um framlög og úr þessu verður ekki snúið við. Sú skoðun hefur skotið upp kollinum, að vegna þess að Vil- hjálmur Þór og frú hans gáfu Akureyrarkirkju það orgel, sem nú er í kirkjunni, og er gott hljóðfæri, hafi dregizt lengur að ganga röggsamlega fram í pípu- orgelskaupunum. Þetta er rangt. Fyrir liggur margra ára gömulyf- irlýsing gefenda, þar sem skýrt er tekið fram, að það sé síður en svc í þeirra óþökk að kirkjan fái fullkomnara orgel. Hitt er svo annað mál, að ýmsum finnst ein- mitt þetta orgel mjög sómasam- legt fyrir kirkjuna í næstu fram- tíð. Þá hefur það einnig komið fram, að Vilhjálmur Þór hafi, um leið og hann gaf yfirlýsingu sína um orgelið, látið þau orð falla, að Akureyringar skyldu þá kaupa sér mjög vandað hljóð- færi, ef þeir á annað borð skiptu um. Það er þess vegna, segja menn, Vilhjálmi Þór að kenna, að ekki er komið nýtt pípuorgel í kirkjuna á gamla góða verðinu og það er líka honum að kenna, að nú á að kaupa dýrt orgel, upp á eina milljón eða svo. — Þannig þakka sumir Akureyring- ar góðar gjafir. Bezt er að viðurkenna mistök þau, að orgelið var ekki keypt í tæka tíð, fyrir síðustu verðhækk- anir, eins og aðrir gerðu, og bezt er líka að viðurkenna umbúða- laust það „snobb“, að það er gert að metnaðarmáli að kaupa nú dýrasta og tónaflesta pípu- crgel, sem nokkru sinni hefur verið flutt til íslands. — Því „snobbi“ er svo bætt við, að bráðum séu liðin 125 ár frá fæðingu Matthíasar og bráðum líka 100 ár frá því að byggð var kirkja á Akureyri, þess vegna séu kaupin eðlileg. En forsjármenn kirkjumála á Akureyri þurfa ekki og eiga hreint ekki að finna afsakanir fyrir orgelkaupunum, ef það er Framhald d 7. siðu. I Islenzkt skéld hlýtur ( viðurkenníngu Tveir brezkir prófessorar fara miklum viðurkenning- arorðum um þýðingar Þórodds Guðmundssonar á Ijóð- um eftir William Blake. Báðir eru þessir menn hálærðir bókmenntafræðingar og kunna íslenzku. Annar þeirra, dr. Turville-Petre, prófessor í Oxford, hefur dvalizt hér á landi langtímum saman og lagt mikla stund á íslenzkar bókmenntir, auk brezkra; hinn, dr. Gwýn Jones, prófessor í Aberystwyth, Wales, er listfengt smásagnaskáld og mikill ljóðavinur. Einnig hefur hann lagt stund á þýðingar, m. a. þýtt Egils sögu á ensku. Samkvæmt góðfúsu leyfi beggja aðila eru hér bréfleg ummæli prófessoranna. Aberystwyth, Wales, 1. marz 1960. Kæri Þóroddur Guðmundsson. Eg veit ekki, hvernig eg á að þakka yður að verðleik- um þá vinsemd að senda mér yðar fögru bók. Eg hef ávallt elskað þessi ljóð Blakes svo mjög, að eg hef aldrei þorað að fara yfir þau með stúdentum mínum, en þau eru hluti af námsefni þeirra í enskum bókmenntum. Eg hef alltaf óttast, að eg færi að gráta frammi fyrir þeim, ef eg gerði það. Svo bar við kvöldið áður en bók yðar barst mér, að eg sat einn og var að lesa Söngva sakleysisins. Þá kom kona mín inn í stofuna, og von bráðar spurði hún: „Er nokkuð að þér?“ „Nei, það er ekkert að mér á neinn hátt. Eg er lesa Söngva sakleysisins, og það er sem eitthvað óviðjafn- anlega dýrmætt hafi lokizt upp fyrir mér.“ Seinna um kvöldið sagði eg við konuna mína: „Finnst þér undarlegt, að fimmtíu og tveggja ára maður verði svo hrærður við Söngva sakleysisins, að hann tárfelli?“ Hún svaraði: „Mér þætti mikla undarlegra, ef fimmtíu og tveggja ára maður yrði ekki hrærður við lestur þéirra“ — og bætti við, að sér fyndist miklu eðlilegra, að menn hrærðust af því líku, þegar æskan og fyrri manndómsárin væru að baki. Eg segi yður þetta aðeins, Þóroddur, svo að þér skiljið, að bók yðar var mér mjög kærkomin, og á hún sér vísan góðan stað á heimili mínu. Eg byrjaði að lesa þýðingarnar yðar daginn, sem þær komu, en hef beðið nærri hálfan mánuð með að skrifa yður, þar sem eg vildi, að kvæðin dveldust nokkuð í huga mínum, áður en eg skrifaði. Og nú vil eg segja, hve mjög eg dáðist að þýðingum yðar og hvílíkt yndi þær hafa veitt mér. Kvæðaþýðingar eru mjög örðugt verk (svo miklu örðugra en þýðingar óbundins máls), og þýðingar á ljóð- rænum kvæðum eru örðugastar af öllu — og meðal ljóð- rænna kvæða er svo ljúfur og hreinn skáldskapur sem Blakes þýðandanum er torveldari en nokkuð annað. I fullri hreinskilni sagt, hygg eg, að íslenzkir fái merkilega góða hugmynd um Blake af þýðingum yðar. Þér hafið fylgt hrynjandi Blakes með áhrifamiklum hagleik. Eg gerði tilraun að lesa „Dals úr hlíðum hörpu frá,‘, „Tígris- dýrið“ og „Sjúku rósina" nokkrum nemendum mínum í vikunni sem leið (auðvitað kunna þeir ekki stakt orð í ís- lenzku), og mér þótti gaman að finna, að þeir vissu, hvar þeir voru staddir og hvað eg var að lesa, einungis við þá samstillingu hljóms og hrynjandi, sem þér hafið náð. Helzta aðfinnslan var í fyrstu línu „Tígrisdýrsins", þar sem þeir söknuðu endurtekningarinnar: „Tyger, Tyger, burning bright. . ..“ Eg nefni þetta aðeins, til þess að þér skiljið, að áheyrendurnir kunna jafnt að finna að sem lofa. Með öllum beztu óskum, yðar einlægur Gwyn Jones. Oxfcrd, 28, febrúar 1960. Kæri herra Þóroddur Guðmundsson. Eg skrifa til að þakka yður fyrir yðar yndislegu þýð- ingar á Blake, skáldi, sem eg hef alveg sérstakar mætur á. Að mínum dómi hafa þýðingar yðar heppnazt fullkom- lega. Eg er í sannleika undrandi yfir, að íslenzk tunga skyldi reynast svo vel hæf, og án sýnilegra örðugleika, til að túlka ljóð af þessari tegund. Eg man, að Guðmund- ur Finnbogason var vanur að segja, að íslenzkan ætti orð yfir allt, svo framarlega sem þýðandinn glímdi nógu lengi við það. ... I öðru bréfi segir svo: .... Einhverjum kjmni að virðast ofdirfskufullt af mér að láta í ljós mína skoðun, þar sem eg er ekki inn- fæddur Islendingur. Þrátt fyrir það tel eg mig hafa lesið nægilega mikið af íslenzkum Ijóðum til þess að hafa nokk- urn smekk. Eg er vissulega ánægður með þýðingar yðar á Blake. Eg hefði ef til vill átt að taka það fram, þegar eg skrif- aði yður síðast, að auk efnisins, þótti mér allur frágangur bókarinnar með ágætum. Með beztu óskum, yðar einlægur, G. Turville-Petre.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.