Dagur - 25.05.1960, Page 8

Dagur - 25.05.1960, Page 8
8 Aðgerðum ríkissijórnarinnar mófmælt Frá aðalfimdi Bændafélags Eyfirðinga Aðalfundur Bændafélags Ey- firðinga var haldinn 27. apríl. — Þar voru samþykktar þessar á- lyktanir: 1. Aðalfundur B. E. telur, að eitt mesta vandamál bænda, sem sakir standa, sé hve erfitt er um jarðakaup og sölu. Vill fundur- inn eindregið skora á ríkisstjórn og Alþingi að leita eftir leið til þess að leysa þennan vanda hið bráðasta, t. d. með því að efla svo veðdeild Búnaðarbanka ís- lands, að hún verði hlutverki sínu vaxin. í því sambandi bend- ir fundurinn á samþykkt síðasta Búnaðarþings um lántöku til veðdeildar og telur, að þar sé úm að ræða nokkfa úrlausn þessa máls. Tillagan, sem var frá félags- stjórninni, var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. 2. Aðalfundur B. E. lýsir ó- ánægju sinni yfir hækkun út- varps og blaðgjalda, en telur að réttara hefði verið að. stytta dagskrá og minnka dagblöðin, sem svaraði hækkuninni. Tillaga þessi var flutt af Jóni Rögnvaldssyni og var samþykkt með 9 : 7 . atkvæðum. 3. Aðalfundur B. E. mótmælir harðlega ákvæðum þeim um veltuútsvör, sem hæstvirt rík- isstjórn leggur til að lögfest verði, samkv. breytingu á út- svarslögum, er nú lig'gur fyrir Alþingi. Þar sem veltuútsvörin hljóta að verka svipað og al- Framhald d 7. siðu. SÝSLUFUNDUR EYJÁFJARÐAR Sýslufundur Eyjafjarðarsýslu 1960 var haldinn á Akureyri d.agana 9.—13. maí og lauk að- alfundarstörfum. Fjallaði fund- urinn að venju um ýmis hreppa- og sýslumál og gerði ályktanir um þau. Gerð var að venju áætlun um tekjur og gjöld sýsluvegasjóðs og sýslu- sjóðs Eyjafjarðarsýslu. Niður- stöður áætlunar sýsluvega- sjóðs eru rösklega 343 þús. kr., og er gert ráð fyrir að það fari allt til afborgana af vega- og HVAR ERU FUGLAR ÞEIR Á SUMRI SUNGU ... ? „Eg tel rétt að láta þig vita, vegna þess, sem á undan er gengið, að við erum hættir við rafstöðina í bili.... Þetta þarf ekki langra skýringa við. Það eru bara efnahagsráðstafanirnar sem valda þessu. . . .“ Þetta eru örfáar línur úr bréfi, sem barst til Reykjavíkur, skömmu eftir að lögin um efnahagsmál voru gengin í gildi ög kunn- ugt varð að lánakjörin hjá Raforkusjóði voru orðin óhagstæðari en áður var. Bréfið er frá bónda. Viðtakandi bréfsins hafði áður verið beðinn að annast lántöku. Hér var um að ræða framkvæmd, sem miklar voiiir vroru bundnar við, a. m. k. fyrir tvö heimili í strjál- býlli sveit, vonir um ljós, yl og orku til ýmsra nota. Hin mikla verðhækkun og vaxtahækkun batt skyndilega enda á þessar vonir. Þetta er aðeins eitt dæmi af mörgum síðustu mánuð- ina í sveitum landsins, Verðhækkun á efni, vaxtahækkun í Rækt- unarsjóði úr 4% í 6 Vz% og í Byggingasjóði úr 3l4% í 6V2% og styttur lánstími Ræktunarsjóðs úr 20 árum í 15, segir til sín fyrir bændur landsins. Hjá innflutningsfyrirtæki í Reykjavík lágu fyrir pantanir á 200 heimilisdráttarvélum á öndverðum vetri. Um miðjan maí voru þessar pantanir komnar niður í 47. Sjö til átta bændur af hverjum tíu, sem ætlúðu að kaupa dráttarvélar á þessu vori, telja sig nú ekki hafa ráð á því eins og sakir standa. Já: „Hvar eru fuglar, þeir á sumri sungu?“ Eða var ekki einu sinni sagt: Leiðin til bættra líískjara er að kjósa Sjálfstæðisflokk- inn? brúarlánum og viðhalds sýslu- vega. Þó var að þessu sinni samþykkt að taka nokkra nýja vegarkafla í tölu sýsluvega, en ekki veitt fé til lagningar þeirra á þessu ári. Niðurstöður fjárhagsáætlun- ar sýslusjóðs eru um kr. 479 þús. Helzti'tekjuliður sjóðsins er sýslusjóðsgjöld hreppanna og voru þau ákveðin kr. 180 þús. á þessu ári. Alls var veitt um kr. 333 þús. til hinna ýmsu mála sem hér greinir: Stjórn sýslumálanna kr. 40 þús. — Til menntamála kr. 51 þús. — Til heilbrigðismála kr. 83 þús. — Til búnaðarmála kr. 133 þús. — Ýmsir styrkir kr. 11 þús, — Til óvissra útgjalda kr. 15 þús. | Námskeiðum Hús- [ | mæðraskólans lokið ! Námskeiðum Húsmæðra- skólans á Akureyri er nú lokið. Hálft annað hundrað konur sóttu þau. Kennd var mat- reiðsla, handavinna (einkum fatasaumur) og vefnaður. Kenn arar: Sigrún Höskuldsdóttir, Ólöf Þórhallsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir. Námskeiðin eru mjög gagn- leg fyrir yngri og eldri konur bæjarins, giftar og ógiftar, og er aðsókn mjög góð. Þau standa yfir í 1—2 mánuði hvert. Æskilegt er talið, að námskeiðum þessum fjölgi, svo að sem flestar konur hafi þeirra not. E Unglingar leggja gjörva hönd á marga hluti, og hér sjáið þið i | unga og myndarlega stúlku, sem er að leggja af stað með i i blöðin til kaupendanna. — (Ljósmynd: E. D.). Ný st jórn Framsóknarfél. Eyjaf jarðar Aðalfundur Framsóknarfélags fyrrverandi Eyjafjarðarkjör- dæmis var haldinn á Akureyri fimmtudaginn 19. maí sl. Á þeim fundi eiga sæti stjórn félagsins, og auk þess einn full- trúi frá hverri félagsdeild. For- maður félagsins, Bernharð Stef- ánsson, fyrrv. alþingismaður, setti fundinn og lagði fyrir hann frumvarp til nýrra félags- laga, til að samræma lögin hinni breyttu kjördæm^skipun. Meðal annars var nafni félags- ins breytt í Framsóknarfélag Eyfirðinga. Frumvarpið var samþykkt einróma og óbreytt. Aðalmál fundarins voru þó fjármál Framsóknarflokksins og var stjórn félagsins falin framkvæmd þeirra mála í hér- aðinu. Bernharð Stefánsson, sem verið hefur formaður félagsins frá stofnun þess 1931, skoraðist undan endurkosningu og eún- fremur tveir aðrir stjórnar- nefndarmenn, þeir Eiður Guð- mundsson og Valdemar Páls- son. Garðar Halldórsson alþingis- maður var kosinn formaður fé- lagsins, Einar Sigfússon bóndi í Staðartungu varaformaður, og aðrir í stjórn: Kristinn Sig- mundsson, bóndi á Arnarhóli, Jón Jónsson frá Böggvisstöðum og Ketill Guðjónsson, bóndi, Finnastöðum. £11lllllllllllIIIIIIIIIIIIIIMMMHVIIII11 lllt l|rill|llll|lll IVÍSITALANI * ■ . ■ ‘ Kauplagsnefnd hefur reiknað vísitölu framfærslukostnaðar í byrjun maímánaðar 1960 og reyndist hún vera 105 stig, eða einu stigi hærri en hún var í aprílbyrjun 1960. FRA BÆJARSTJORN AKUREYRARKAUPSTAÐAR (Framh. úr síðasta blaði.) Frá skipulagsnefnd. Erindi KEA varðandi lóðar- beiðni og byggingu á lóðinni nr. 23 við Lögmannshlið, sem bæjarstjórn hefui’ á fundi sín- um 12. apríl sl. vísað til skipu- lagsnefndar til umsagnar, sam- kvæmt bókun bygginganefndar 11. apríl sl.. Nefndin er því samþykk að orðið sé við beiðn- inni, þar sem hæð hússins og íbúðafjöldi fylgir skilyrðum þeim, er áætluð hafa verið um byggingar á svæði þessu. Stækkun niðursuðuverksmiðj- unnar. Erindi Kristjáns Jónssonar & Co. um byggingu niðursuðu- verksmiðju við gamalt hús þeirra á Oddeyri, næst norðan við olíuport ESSO. Athuguð var vandlega á ný tillaga skipulagsstjóra, dags. 24. maí 1959, af nefndu svæðí, og var gatnaskipulag lagfært smávegis frá þeirri tillögu. Fundarmenn mættu vegna erindis þessa á bæjarráðsfundi og hafnarnefnd arfundi 28. apríl, og var það álit beggja fundanna, að ekki væri hægt að leyfa nefnda byggingu á þeim stað, sem sýnt er á byggingaruppdráttum, en hins vegar mundi vera hægt að leyfa staðsetningu byggingar- innar í suðurhúsalínu bygg- ingareits næst norðan Sjávar- götu, sem þá mundi skoðast sem varanleg útsetning hússins samkvæmt skipulagi. Nýtt verzlunarsvæði. Lagður var fram tillöguupp- dráttur af verzlunarsvæði á horninu austan Byggðavegar, norðar Hrafnagilsstrætis, gerð- ur af Sigvalda Thordai'syni 19. apríl 1960. Er þar á horninu gert ráð fyrir einni hæðar verzlun, litlu samkomuhúsi og væntanlega fjögurra hæða þjónustuhúsi, ásamt nægilegum bílastæðum. Vegna eldri beiðna um lóðir á nefndu svæði, svo og með til- vísun til fundargerðar 8. janúar 1960, leggur fundurinn ein- dregið til að skipulagstillaga Sigvalda Thordarsonar 19. apríl 1960 verði höfð til grundvallar við byggingu svæðisins og svæðið verði auglýst laust til umsóknar. Samþykkt skipulagstillaga. Lögð var fram tillaga að skipulagi á svæði því vestan Þórunarstrætis, er Elliheimilið á Akureyri hefur fengið út- hlutað. Tillöguna gerði byggingafull- trúi Jón G. Ágústsson. Fundur- inn mælir með því að tillagan verði samþykkt. Skipulag miðbæjar og..„,.vfc:- • Oddeyrar. Skipulagsstjóri lagði fram frumdrög að breytingum af skipulagi miðbæjar og suður- hluta Oddeyrar, og var sá upp- dráttur ræddur. Allmiklar, róttækar breyt- ingar eru gerðar á gatnaskipu- laginu, samkv.. frumdrögum þessum, Glerárgata t. d. breikkuð allmikið til austurs, Gránufélagsgata felld niður á hluta, svo og Lundargata, Grundargata og e. t. v. Hríseyj- argata syðst. Strandgata breikkar allmjög suður og gert er ráð fyrir bygg- ingum og hafnarmannvirkjum á breiðu svæði sunnan hennar. Fundurinn athugaði tillögu þessa og er sammála um að nauðsynlegt sé að ræða upp- dráttinn nánar og að hraða beri að taka endanlega ákvörðun um skipulag nefnds svæðis, þar sem vitað er að unnið er að undirbúningi að stórbyggingum á svæðinu, eftir eldri tillögu- uppdráttum, sem nú þarfnast endurskoðunar. Skipulagsstjóri mælti eindregið með því á fundinum, að bæjarstjórn sam- þykkti nú þegar, að engar byggingar yrðu leyfðar á nefndu svæði, þar til endanlega verður gengið frá skipulagi svæðisins. Nefndin mun í nánustu fram- tíð einbeita sér að því að hraða gerð varanlegs. skipulags á nefndu svæði með hinum ýmsu nefndum bæjarins.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.