Dagur - 15.06.1960, Page 1

Dagur - 15.06.1960, Page 1
— \1ái,<;a<;n Framsóknarmanna RitsTjókí: ERi.iNtifK DávíbSson Skkikstofa í Hai narsir.i.íi 90 Stvn 1166 . Sktninou og rkhniiín ANNAST PRENTVERK Ol)US B 1ÓKNSSONAR H.l'. AkUKEVR! N__________/ Dagur XLIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 15. júní 1960 — 29. tbl. >.....................:--------- Auw.ýsincastjórí: ]ón Sam- ÚEI.SSON . ÁrCANOÚRI.N'N kostar KR. 100.00 . G JAl.mACÍ F.R 1. JÚt.i Biaðjð kemiií í'i' Á MinviKunör.- t'M OC A 1.AUGARUÖGCM t'f.CAR ÁST'.r.DA l'YKIR TU. _______________________________ Á föstudagskvöldið bar svo við, að di'áttarvél hvarf af hlað- inu á Gilsbakka í Hráfnagils- hreppi. Nokkru síðar sást mað- ur einn akandi á dráttarvélj sem leið liggur norður og fór mikinn, og. komst hann út fyrir - Grund. Þar ók hann út af veg- . inum ■ og velti vélinni. Hann komst þó af slyssta'ðnum, kom heim í Hólshús blóðugur og illa ’ til reika, og baðst ásjár. Maður " þéssi er frá Akureyri og mun hafa verið töluvert ölvaður. Stal dráttarvél NÆSTI LEIKUR Á sunnud. kl. 2 keppa Ak- ureyringar við Akumesingá í knattspyrnu á leikvellinum hér í bæ. Það er annar leik- ur Akureyringa í fyrstu deild fslandsmótsins. Fyrri leikurinn fór fram á sunnudaginn og lauk með sigri Ak., 3:1, og að fjölda áhorfenda viðstöddum. Unnið er af kappi við lagfæringar á Ráðhústorgi, og þar á að dansa 17. júní. — (Ljósmynd: E. D.). Fréttir af aðalfundi Kaupfélags Ejfirðinga f síðasta blaði var aðalfundar Kaupfélags Eyfirðinga að nokkru getið, en hann stóð þá yfir. Bifreiðaslys á Svalbarðssfrönd Um síðustu helgi valt jeppa- bifreið frá Akureyri með þrem- ur mönnum á Svalbarðsstrand- arvegi nálægt Höfn. Tveir mannanna meiddust og voru fluttir í sjúkrahús, en sá þriðji rotaðist, en náði sér brátt og var fluttur heim til sín. Mál þetta er í rannsókn og er blaðinu ekki kunnugt um að- draganda slyssins eða nánari atvik. Nokkrir sviptir ökuleyfi. Fjórir menn hafa verið sviftir ökuleyfi vegna ölvunar, nú að undanförnu. Nokkur önnur mál af sama toga eru í rannsókn. Smáárekstrar hafa orðið í um- ferðinni hér í bæ og nágrenni, en ekki alvarlegir. En umferða- brot eru mörg. Ný umferða- merki komu hingað fyrir nokkru, en seint gengur að setja þau upp. Ekkert bólar enn á umferðaviku, sem vonir hafa staðið til að haldin yrði til þess að kynna hinar almennu um- ferðareglur og vekja á þeim nauðsynlega athygli. í upphafi aðalfundarins minnt- ist Brynjólfur Sveinsson látinna samvinnumanna, og sérstaklega Ingitnars Eydal, fyrrverandi varaformanns kaupfélagsins. — Risu fundarmenn úr sætum til að votta þeim virðingu sína. Afurðasölumálln. í skýrslu sinni sagði fram- kvæmdastjórinn, Jakob Frí- mannsson, frá afurðasölumál- um. Sala dilkakjöts hefur aldr- ei verið meiri innalands en síð- asta ár, enda verðið lágt. Ullar- salan hefur gengið vel, ullin frá 1958 öll seld og útlit fyrir að ullin frá 1959 muni öll seljast á næstunni. Slátur- og mörsala hefur gengið ágætlega. Sala nautgripakjöts er treg, enda er verðið hátt miðað við kinda- kjötið og miklar birgðir fyrir- Listaverkasýningin verður merkisatburður segir Gils Guðmundsson í viðtali við blaðið Gils Guðmundsson leit inn á skrifstofu blaðsins, er hann var hér á ferð um helgina. En hann er framkv.stj. Menntamálaráðs og áhugamaður um, að Listasafn ríkisins láni listaverk til sýning- ar á Akureyri og á góðan hlut í undirbúningi þess máls. Hvernið lýst þér á fyrirhug- aða listaverkasýningu hér? Okkur í Menntamálaráði finnst sjálfsagt að hlynna að því, að hugmyndin komist í framkvæmd. Um þriðjungur Listasafns ríkisins er í geymsl- um og engum að gagni eða gleði. Hvers vegna ekki að gefa fólki úti á landi kost á að kynn- ast þeim á þann hátt að senda þau t. d. hingað til Akureyrar. Öll þjóðin á þetta safn lista- verka. Hefur þetta eitthvað verið undirbúið af ykkar hálfu? Nefnd hefur verið kosin til að vinna að framgangi málsins í samráði við ykkur. í henni eiga sæti dr. Selma Jónsdóttir, Helgi Sæmundsson og eg. Við höfum góða aðstöðu til að búa um listaverkin til sendingar og munu þau verða send Akureyr- ingum að kostnaðarlausu, nema hvað vátryggingarkostnað snert ir. Honum yrði e. t. v. skipt. Sýning listaverka yrði nokkur viðburður hér í bænum. Óhætt er að telja það stór- merkan viðburð, ef af þessu getur orðið og ef hentugt hús- næði fæst, ætti ekkert að verða því til fyrirstöðu, að koma sýn- ingunni upp nú í sumar. Vel færi á því, að opnunin færi fram með einhvers konar við- höfn, til þess að vekja á henni nauðsynlega athygli. Hafið þið hugsað ykkur far- andsýningar? Það er í athugun. Félags- heimilin eru að vissu leyti vel til þess fallin að taka á móti slíkum sýningum, og þyrfti þá að kynna verkin vel um leið og þau eru sýnd. Blaðið þakkar Gils Guð- mundssyni svörin. Bæjarstjórn mun, á næsta bæjarstjórnar- fundi, kjósa 5 manna nefnd til að hrinda málinu í framkvæmd. Vonandi tekst sú framkvæmd svo fljótt, að bæjarbúar og ferðamenn geti í sumar notið listaverka úr Listasafni ríkisins, án þess að leggja leið sina til Reykjavíkur. Athugandi er, að Mennta- málaráð varð fljótara að skipa nefnd í málið en bæjarstiórn Akureyrar. liggjandi. Þó var væntanlegur útílutningur til skamms tíma á vegum SÍS og losnar félagið þá væntanlega við allar birgðir sínar. Jarðeplasalan hefur geng- ið vel, og hin nýja jarðepla- geymsla félagsins hefur reynzt mjög vel, enda vel til hennar vandað. Um sjávarafurðir sagði fram- kvæmdastjórinn að á Dalvík og í Hrísey hefði rekstur frystihús- anna gengið sæmilega og hefur áður verið sagt frá þeim málum. Endurskoðun. Guðmundur Skaftason endur- skoðandi fór nokkrum orðum um reikninga félagsins, rekstur þess og fjárhag og lagði til, að reikningarnir yrðu samþykktir eins og þeir lægju fyrir. Það var gert. Ágóðinn. Stjórn félagsins lagði til, að af innstæðu ágóðareiknings í árs- lok 1959 úthlutist og leggist í stofnsjóð félagsmanna 3% af ágóðaskyldri vöruúttekt. Það var samþykkt. Minismerki Hallgríms Kristinssonar. Hólmgeir Þorsteinsson flutti eftirfarandi tillögu, sem var samþykkt: „Aðalfundur KEA 1960 sam- þykkir að Kaupfélag Eyfirðinga reisi líkan eða minnismerki um Hallgrím Kristinsson og felur stjórn og framkvæmdastjóra framkvæmd í þessu efni.“ Tillagan var samþykkt sam- hljóða. Gjöf í orgelsjóð Akurey r arkirk ju. Þá samþykkti fundurinn þá tillögu stjórnarinnar að KEA gæfi 25 þúsund krónur til orgel- sjóðs Akureyrarkirkju. En nú er verið að kaupa vandað pípu- Framhald á 2. síðu. JHvenær verður það? = Góð reynsla er fengin af [ notkun tilbúins áburðar á af- j réttarlönd. Dreifing áburðar- 1 ins úr áburðarflugvél hefur I gengið að óskum síðustu ár. j Óvíða mun þrengra í högmn 1 en í afréttarlöndum Akureyr- j inga. Súlumýrar og Glerárdal- j ur þyrftu ríflegan áburðar- Í skammt árlega. j En hvenær tekur bæjar- Í stjórnin það mál á dagskrá? j Það er flugskólinn Þytur sem I á flugvélina og hefur hún gef- Í izt ágætlega til áburðardreif- j ingar. Flytur ávarp á útihátíðah()lduuum 17. júni Forseti Islands og frú hans verða hér á Akureyri 17. júní, og flytur forsetiun ávarp á hátíðahöldunum. Að öðru leyti verða hátíðahöldin þennan dag með svipuðum hætti og verið hefur. Blómabíll ekiu: um bæinn að morgni. Eftir hádegi flytur vígslubiskupinn, séra Sigurður Stefánsson, messu, lúðrasveit leikur, Geysir syngur, Fjallkonan flytur ávarp, Hólm- fríður Jónsdóttir magister flytur lýðveldisræðuna og Jón Sigurðs- son nýstúdent flytur tölu. Þá verður keppt í íþróttum, barnasam- koma á Ráðhústorgi verður kl. 5, en seinna um kvöldið verða skemmtiatriði þar og að lokum dansað. Meðal skenuntiatriða er söngur Karlakórs Akureyrar.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.