Dagur - 29.06.1960, Blaðsíða 5
4
5
-- -—----<------—-—
ÁRÁS EFLIR
S AMTÖKIN
NÚVERANÐI RÍKISSTJÓRN er
nú búin að kasta hanzkanum og hefja
heiftarlega sókn gegn samvinnufélög-
unum í landinu. Engum kom það á
óvart, sem till þekkja, en einhverjum
kann nú að virðast nokkuð erfitt að
vera bæði samvinnumaður og Sjálf-
stæðismaður og báðum trúr,endaerfitt
að vonum. Þótt Sjálfstæðisflokkurinn
hampi slagorðunum „frjáls sam-
keppni“, vill hann ekki frjálsa sam-
keppni við samvinnufélögin, heldur
vill hann lama þau með því að nota
meirihlutavald sitt á Alþingi og láta
hvers kyns lagaboð koma þeim á kné
í sinn stað. Og Alþýðuflokkurinn
hjálpar dyggilega til. Já, svo ótrúleg-
ir hlutir geta gerzt í landi voru, að
stjórnmálaflokkur, sem kenndur er
við alþýðuna og lengi starfaði fyrir
hana og var hlynntur samvinnusam-
tökum fólksins, sem einum þætti í
baráttunni til betra lífs hinna fátæk-
ari, hjálpar nú Sjálfstæðisflokknum
til þessa tilræðis við samvinnufélögin.
Aðalfundur Sambands íslcnzkra sam-
vinnufélaga, sem nýlega var haldinn
að Bifröst samþykkti EINRÓMA
eftirfarandi mótmæli:
„Aðalfundur Sambands íslenzkra
samvinnufélaga 1960 mótmælir harð-
lega þeim sérstöku, illvígu árásum á
samvinnufélögin, er síðasta Alþingi
leyfði sér að gera með lagasetningu,
t. d. um:
1. Að heimilt sé að leggja veltuútsvar
jafnt á viðskipti félagsmanna og ut-
anfélagsmanna í samvinnufélögun-
um eftir sömu reglum og kaup-
mannsverzlun sama staðar. Vöru-
kaup félagsmanna til eigin nota og
sala þeirra á eigin íramleiðsluvör-
um er alls ekki venjulegur verzlun-
arrekstur og þess vegna rangt að
leggja útsvar á þess konar kaup og
sölu eftir sömu reglum og cinka-
verzlun á staðnum. Kemur fram í
þessari lagasetningu skilningsleysi
og fjandskapur við félögin.
2. Að taka megi með valdboði hluta
af fé innlánsdeilda samvinnufélaga
og flytja hann í Seðlabankann í
Reykjavík til bindingar þar. Er með
þessu rófin friðhelgi eignarréttar
samvinnumanna og félög þeirra
svipt mikilsverðu starfsfé.
Þá vítir fundurinn hina gífurlegu
hækkun lánsfjárvaxta, sem fyrirskip-
uð hefði verið af ríkisvaldinu, og er
viðskipta- og efnahagslífi þjóðarinnar
fjötur um fót.
Ennfremur telur fundurinn hinn
nýja, almenna söluskatt hættulegan,
þar sem engin trygging er fyrir því,
að allir innheimtuaiðilar standi full
skil á innheimtufénu til ríkissjóðs.
Skorar fundurinn fastlega á næsta
Alþingi að nema framangreind atriði
úr lögum.
Jafnframt skorar fundurinn á alla
samvinnumenn í landinu að beita
áhrifum sínum til leiðréttingar á lög-
gjöfinni og standa traustan vörð um
rétt samvirtnuhreyfingarinnar og að-
stöðu til heilbrigðrar starfsemi í þágu
almenningsheilla og menningar, og
síðast, en ekki sízt: Láta árásir and-
stæðinganna verða sér hvöt til nýrrar,
öflugrar sóknar í samvinnumálum.“
*s-_____________________________________>
Hefur kennt sund í háifa ö!d
Á mánudaginn var átti Ólaf-
ur Magnússon, hinn kunni
sundkennari á Akureyri, ein-
stakt afmæli. Þann dag voru
rétt 50 ár liðin síðan hann
byrjaði sundkennslu, þá 17 ára
piltur. Talið er, að enginn fs-
lendingur hafi kennt sund svo
lengi.
Ólafur vara snemma harð-
gerður, vel að manni og vel til
þess fallinn fyrir margra hluta
sakir, að glæða áhuga yngri og
eldri fyrir líkamsrækt. Hann
nam sund hjá Steinþóri Leós-
syni, Jóhanni Ólafssyni, og
1924 hjá þeim Jóni og Ólafi
Pálssonum í Reykjavík, og var
ágætur sundmaður.
Hinn 27. júní 1910 hóf Ólafur
sundkennslu í Hrafnagilshreppi
í næstum köldum polli við
Kristnes, síðan við Gröf í Öng-
ulsstaðahreppi og fyrir sunnan
og ofan Blómsturvelli í Glæsi-
bæjarhreppi við kalda læki á
báðum stöðum. Mörg fyrstu ár-
in fór sundkennslan að sjálf-
sögðu aðeins fram á meðan
hlýjast var í veðri.
Vorið 1922 hóf Ólafur svo
sundkennslu á Akureyri í köld-
uði sundpolli, þar sem nú er
Sundlaugin. Búið var þá að
steypa veggi, en botninn var
mold og leir. Árið 1933 var
heitu vatni veitt úr Glerárgili í
sundpollinn, og nú er hér mjög
fullkomin úti- og innisundlaug.
Hinn aldni sundkennari hefur
því í sannleika lifað tímana
tvenna í sundmálum og einnig
lagt drjúgan þátt til þeirrar
sundkunnáttu, sem nú er orðin
í landinu.
Ekki gat blaðið fengið neinar
tölur um fjölda nemenda Ólafs
sundkennara, en efalítið skipta
þeir þúsundum. Og víst er það,
að margir hafa bjargað lífi sínu
með þeirri sundkunnáttu, sem
þeir þakka Ólafi Magnússyni.
Fáir atburðir munu tíafa glatt
hann meira en þær fréttir.
Enginn Akureyringur, nema
Ólafur Magnússon, hefur hlotið
hið fasta viðurnefni sundkenn-
ari. En tæplega mun sund-
kennslan, við þau skilyrði, sem
voru á fyrri kennaraárum Ól-
afs, hafa verið þrautalaus.
Nú munu hins vegar fáir
eða engir sundstaðir fullkomn-
ari eða skemmtilegri á landi
hér en Sundlaug Akureyrar, og
góð aðstaða fyrir hinn aldna og
góða sundkennara, sem varið
hefur ævi sinni til að kenna
tramhald. á 7. siðu.
Þrumur og eldingar
Þistilfirði, 25. júní. — í gær-
dag var hér og á Langanesi
sunnanátt, sólskin og mesti
hiti, sem komið hefur á þessu
sumri, allt upp í 25 stig eftir
hádegið. Þurrkur var því mjög
góður og sums staðar mikil taða
nýslegin á túnum.
En síðla kvölds breyttist
skyndilega veður í lofti og gerði
steypiregn, sem eyðilagði mikið
af því, sem áunnizt hafði um
daginn við heyþurrkun. Þessu
fylgdu þrumur og eldingar
langa stund, en eldingar eru
mjög fátíðar í þessu byggðarlagi
og töldu margir sig ekki hafa
séð slíka sýn fyrr, sem þarna
gaf að líta. Hringingar glumdu
í sveitasímum, án þess að af
mannavöldum væri, en ekki ollu
eldingarnar tjóni, svo að kunn-
ugt sé.
Fjölmennt kveðjusam-
sæti á Blönduósi
Blönduósi, 28. júní. — Þann
25. júní sl. var þeim haldið
kveðjusamsæti Guðbrandi Is-
berg, fyrrv. sýslumanni, Páli V.
G. Kolka, fyrrv. héraðslækni,
og Steingrími Davíðssyni, fyrrv.
skólastjóra. Kolka og Stein-
grímur eru fluttir til Reykja--
víkur, en öllum var þeim þakk-
að fyrir margþætt störf í þágu .
héraðsins. Hófið sátu um 230
manns.
Hin 26. júní kepptu Héraðs-
Gætum þess nú vel i sumar. . . .
VIÐ ÍSLENDINGAR höfum
búið of strjált og of einangrað til
að venjast því að taka nauðsyn-
legt tillit til náungans, svo sem
nú er nauðsynlegt í þéttbýlinu og
eftir að einangrun var að mestu
rofin um land allt. Við getum
ekki lengur lifað eftir þeirri lífs-
reglu að garðar séu granna-
sættir eða vík þurfi milli vina
eða fjörður milli frænda, svo að
nágrennið sé sæmilegt.
Bæja- og borgarmenning er
ung ennþá hér á landi, múg-
mennskan líka — kannski er
hvorugt til. En ennþá þrá flestir
að halda þeirri líftaug blá-
þráðalausri, sem nokkur sam-
skipti við jörðina, náttúru lands-
ins, er öllum jarðarbörnum. —
Slitni sú taug lifir þjóðleg menn-
ing ekki lengi, fremur en afskor-
in blóm. Við eigum stórt land og
svo fullt af fegurð, að hún orkar
ekki á okkur, sem hið fágæta,
fremur en annað það, sem nóg
er til af. Þetta veldur virðingar-
leysi fyrir því, sem fegurst er.
Það er líklega þess vegna, sem
við hendum bréfum og niður-
suðudósum út um hvippinn og
hvappinn og skiljum eftir
óþverra í tjaldstæðum. En þeir,
sem á eftir koma og hafa opin
augun, hryggjast yfir því að
fagurt land skuli flekkað af
dónum.
Nú er tími sumarleyfa og
ferðalaga. Innisetufólk úr þétt-
býlinu, sem ekki er algjörlega
vaxið upp úr skítnum og skark-
alanum, en hefur einhvern tíma
fundið unað á grænu grasi, þrá-
ir ferskt loft sveitanna, ilm úr
jörðu, fegurð fjalla og dala,
mjúkt gras að ganga á, sólheitan
hvamm og tært vatn, lygnt eða
straumþungt. Og fólk þráir líka
einfaldleikann, nýtur þess að
sofa í tjaldi og setja pott á hlóð-
ir, vera laust við útvarp og dæg-
urþras, en finna í þess stað and-
ardrátt náttúrunnar og sameinast
honum. Öllu því fólki, sem á þess
kost að njóta sumarleyfa á þessu
sumri og ferðast eitthvað, óskar
blaðið góðrar skemmtunár. En
þeirri frómu ósk er hér með
komið á framfæri um leið, að
enginn flekki landið með óhirðu-
legri og sóðalegri umgengni.
Munið það, vegferendur góðir,
að nákvæmlega eins og ykkur
blöskrar að sjá bréfarusl, matar-
leifar, flöskur og blikkdósir ein-
mitt þar, sem þið hefðuð helzt
kosið ykkur áningarstað, svo fer
þeim, sem á eftir ykkur kemur
— ef þið hafið nú sjálf gleymt
hirðuseminni, þar sem þið veljið
ykkur verustað.
Feröamenn.
Talið er, að fleiri útlendir
ferðamenn heimsæki landið nú
í sumar, en nokkru sinni fyrr.
Þetta þykja gleðitíðindi. Svimhá-
ar gjaldeyristekjur nágrannaþjóð-
anna af ferðamönnum eru gjarn-
an feitletraðar í fréttum og í
ræðu og riti eru látnar í ljósi
vonir um framtíðarlandið ísland
sem ferðamannaland. Víst mætti
svo fara að Island yrði ferða-
mannaland. En til þess þarf
breytt hugarfar, ekki síður en góð
gistihús. Engir eru verr fallnir til
þjónsstarfanna en íslendingar eða
meira fákunnandi í þeim fræðum
að laða að sér gesti. Gestrisni
heimila og hjartahlýja, sem ein-
kennir dreifbýlið og ekki er með
öllu útkulnuð í þéttbýlinu, á hér
ekki skylt mál.
Hér á landi dáum við stórvax-
in tré og hlýja veðráttu. Sú að-
dáun stafar af berangri landsins
og kuldanum. Ekki þykir hlýða
að sýna útlendingi ljósmynd héð-
an, nema á henni sjáist tré. Birki-
kræklan getur orðið bæði stór og
falleg á ljósmynd, með ofurlítilli
lagni. En útlendingar koma ekki
hingað til að sjá tré og þeir koma
ekki til þess að baka sig í sól.
ísland er svalt og fegurð þess
nakin, nóttlausir dagar hreint
undur fyrir þá, sem sunnar búa á
hnettinum, tærleiki lofts og lag-
ar óviðjafnanlegur og litbrigði
beinlínis ótrúleg. Eldfjöll, hraun,
hverir og laugar, fossar og laxár
laða ferðamenn, jafnvel íslenzkir
hestar og uglur í Odáðahrauni og
svo blessaður svalinn. Þetta er
það, sem þarf að auglýsa til að
fá hingað erlenda ferðamenn.
En sjálfir þurfum við auðvit-
að að læra að ferðast og fyrst og
fremst í okkar eigin landi, og þar
er verkefnið bæði stærst og þýð-
ingarmest.
samband Boi-gfirðinga og Hér-
aðssamband A.-Hún. í frjálsum
íþróttum. Borgfirðingar sigruðu
með 75,5 stigum, en Húnvetn-
ingar hlutu 74,5 stig. Bezta af-
rek mótsins átti Sigurður Sig-
urðsson, Hún., fyrir langstökk,
6,82 m. Aðstaða var mjög erfið
til keppni í þessari grein.
I dag, 28. júní, efndi Kaupfél.
Austur-Húnvetninga til hóp-
ferðar og bauð konum úr
Toífulækjar- og Svínavatns-
hreppi til Suðurlands. Um 60
konur, mest húsfreyjur, taka
þátt í ferð þessari.
Sunnudaginn 10. júlí verða
haldnar kappreiðar, sem hesta-
mannafélög í A.-Hún. standa
fyrir. Þær fara fram á Hvamms-
eyrum í Langadal.
Heyskapur er víðast byrjað-
ur. Spretta er mjög góð. Smalað
verður til rúnings síðar í vik-
unni.
Kirkjan endurbyggð
Unnið er að því að gera
rækilega við hina 75 ára gömlu
timburkirkju á Grenivík. Fúa
var farið að gæta undir glugg-
um og víðar. Turn kirkjunnar
er yngri en aðalkirkjan, eða
tæpra 50 ára. Kirkjan verður
iriáíúð hótt og lágt og síðan
endurvígð, sennilega í haust.
Nýr skírnarfóntur eftir Eíkarð
Jónsson mun vera tilbúinn frá
hahs hendi og verða gefinn
kirkjunni sem minningargjöf.
Frjáls samskot í sókninni til
kirkjunnar námu 50 þús. kr.
Margir hafa auk þess ‘heitið á
hana óg hún orðið vel við.
,Þá er nýlokið. gagngerðri end-
urbót á húsi pósts og síma á'
Grenivík. Húsið var „innrétt-
að“, dúklagt og málað og lítur
vel út. Stöðvarstjóri er Magnús
Jónsson, og tók hann við því
starfi 1. maí í vor.
Tíðindi úr N.-Þing.
Þislilfjörður — Þórshöfn —
Langanes, 21. júní. — Túnaslátt-
ur hófst í gær, hiti var 19 stig í
forsælu.
Afli er nú góður við Langa-
nes, og má telja, að svo hafi yf-
irleitt verið á þessu vori, þótt
mikið drægi úr aflanum í byrj-
un þessa mánaðar.
Búið er að frysta um 6000
kassa á Þórshöfn og er það
meira en um sama leyti í fyrra.
Þar eru nú byrjaðar hafnar-
framkvæmdir og verður fyrst
steypt eitt ker, sem á að fara til
Bakkafjarðar. Síðan verður
steypt ker til viðbótar, sem not-
að verður á staðnum og lengd-
ur hafnargarður, sem er grjót-
garður, það sem hægt er, áður
en ker verður sett niður, sem
væntanlega verður næsta sum-
ar.
Unnið er að því að ryðja veg
út Langanes. Þar er stór jarð-
ýta að verki, og búið að ryðja
nokkuð út fyrir Höfða. Hér í
sveit er eitt íbúðarhús í smiðum
á Fjallalækjarseli í Þistilfirði.
Framkvæmdir hjá bændum í
heild eru minni en undanfarin
ár. Ekki er byrjað á neinu
íbúðarhúsi á Þórshöfn í vor. —
Vinna með jarðýtu er hafin í
Hálsvegi, milli Raufarhafnar óg
Þistilfjarðar. Þetta er einn af
millibyggðavegunum og verður
unnið allmikið í honum í sum-
ar.
Jóhannes Árnason á Gunn-
arsstöðum, fyrrv. bóndi þar,
varð sjötugur 18. þ. m. Heim-
sóttu hann þá margir. Hinn 19.
þ. m. lézt Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Fjallalækjarseli,
hnigin á efri aldur, 68 ára, veil
til heilsu undanfarið.
Kolaveiði í net hefur verið
stunduð hér í firðinum um
hálfsmánaðartíma eða svo, en
hún er heldur treg.
Hér um slóðir eru sveitar-
stjórnir og félög verkamanna og
útvegsmenn mótfallnir því, að
landhelgin verði opnuð fyrir
dragnót og hafa tilkynnt Fiski-
félaginu þá afstöðu.
Skurðgrafa vann á Strönd sl.
haust og áfram í vor, en er nú
farin austur á Hérað. í vor hef-
ur beltisdráttarvél (jarðýta)
Ströndunga unnið að jarðabót-
um á framræstum löndum þar í
sveit.
VélaverkstSeði er tekið til
. starfa á Þórshöfn í húsnæði,
;S,em: er eign Hauks Kjartans-
sonar bifreiðastjóra. Þar vinna
tveir menn: Guðmundur Krist-
insson frá Nýhöfn, sem er for-
stöðumaður, og Daníel Gunn-
laugsson frá Eiði. Er þessi starf-
semi enn á býrjunarskeiði og
stendur til bóta, en mikil þörf
. er hér fyrir viðgerðir á landbún
aðarvélum, bátavélum, jepp-
um o. fl.
Um næstu mánaöamót er von
á stórvirku moksturstæki, sem
vitamálastjórnin á og verður
notað til að taka upp grjót í
hafnargarðinn og koma því á
bíla. Gert er ráð fyrir að sér-
stakir grjótflutningsbílar fylgi
tæki þessu. Mun atvinna fyrir
vörubilstjóra því verða minni
við hafnargerðina en gert hafði
verið ráð fyrir.
I vor hefur verið unnið að því
að koma upp útbúnaði til sild-
arbræðslu í sambandi við fisk-
mjölsverksmiðju Kaupfélags
Langnesinga. Verður þessu
væntanlega lokið nægilega
snemma, áður en síld berst á
land til söltunar. Tilgangurinn
með þessari framkvæmd er sá,
að vinna síldarúrgang og slatta
og greiða þannig fyrir söltun-
inni. Afköstin verða væntan-
lega 3—400 mál. Þess er vænzt
að töluverð síldarsöltun verði á
Þórshöfn í sumar.
Mikill heyskapur
Saurbæ, 28. júní. — Gras-
spretta er mjög mikil og
snemma byrjað að slá. Mjög
víða er mikið hey komið í hlöð-
ur. I Fellshlíð mun fyrri slætti
og hirðingu um það bil lokið og
mun slíkt einsdæmi. En mjög er
það misjafnt, hvað sláttur byrj-
ar snemma og hversu fjótt
gengur að heyja.
Jarðvinnsla og byggingar eru
mun minni en vérið hefur und-
anfarið. ...
Sjö bátar á síld
Húsavík, 28. júní. — Fyrsta
síldin barst hingað til Húsavík-
ur 22. júní. Það, var m.s. Freyr,
ÍS 151, og var með 300 tunnur,
sem fóru til frystingar.
Héðan eru 7 bátar á síldveið-
um í sumar og er Helgi Fló-
evntsson búinn kraftblökk.
Stálbátur, smíðaður í Noregi,
er væntanlegur hingað innan
skamms.
Úr Svarfaðardal
■ Þverá, 18. júní 1960. — Ekki
er sláttur hafinn hér í sveit, en
trúlega byrja einhverjir bænd-
ur í næstu viku. Spretta er að
verða sæmilega á blettum, en
nokkurt kal er í túnum, einkum
fram. til dala. Tíðarfarið hefur
verið ágætt. Snemma voraði og
hlýindi og væta meiri en vana-
legt er hér í maímánuði.
Á sauðburði kom þó dálítið
áfelli, en ekki hlauzt tjón af svo
að neinu næmi. Sauðburður
gekk yfirleitt vel. Lambalát
varð á stöku bæ. Urðu einkum
þrír bændur fyrir miklu tjóni
af þeim sökum. Annars hefur
fé verið hraust og gengið vel
undan. En nokkuð hefur borið
á doða í kúm eins og raunar oft
áður.
Eitt greni hefur fundizt í
hreppnum og tókst að vinna
það.
í vikunni var hér kúasýning.
Aðaldómari var Bjarni Arason
ráðunautur. Sýndar voru 191
kýr úr báðum hreppum dalsins.
21 kýr hlaut fyrstu verðlaun.
Fyrra laugardag komu hing-
að góðir gestir, yfir sextíu
Austur-Skaftfellingar, bændur
og húsfreyjur. Tekið var á móti
fólkinu í húsakynnum útibús
Kaupfélags Eyfirðinga á Dalvík
og þar veittur kaffisopi. Síðan
dreifðist hópurinn um dalinn og
dvöldu þar næturlangt. Ekki er
það títt að ferðamannahópar
heimsæki okkur Svarfdælinga
til þess að hafa verulega við-
dvöl. Erum við sannarlega
þakklátir Skaftfellingunum að
leggja lykkju á leið sína og
koma hingað.
Á morgun ætla konur úr
kvenfélaginu „Tilraun“ að fara
skemmtiferð til Húsavíkur. —
Þátttaka er góð.
Á hvítasunnudag varð Þor-
leifur Bergsson í Hofsá sextíu
ára. Þorleifur hefur lengi búið
á Hofsá, verið mikill atorku- og
dugnaðarmaður. Ber jörðin
honum glæsilegt vitni, því að
Hofsá er eitt myndarlegasta
býli hér í sveit. Þorleifur hefur
gegnt ýmsum trúnaðarstörfum,
er t. d. nú í hreppsnefnd. —
Kvæntur var Þorleifur ágætri
Framhald á 7. siðu.
Barnaskólarnir á Norðurlandi
Upplýsingar Stefáns Jónssonar námsstjóra
Stefán Jónsson námsstjóri var
hér nýlega á ferð og leitaði þá
blaðið frétta af skólamálum hér
norðanlands. Hann varð vinsam-
lega við þeim tilmælum að
gera grein fyrir þessum málum
í stórum dráttum og birtist hér
fyrri hlutinn.
1. KAUPSTAÐIR.
a) Siglufjörður. Enn er ekki
að fullu lokið stækkun og end-
urbyggingu barnaskólans, en
áætlað er að Ijúka þessu í
sumar.
b) Sauðárkrókur. Þar er nýtt
og vandað skólahús. Engar
breytingar hafa verið gerðar
þar síðustu árin, en lóðin löguð
og gangar og stofur málaðar.
c) Olafsfjörður. Þar er vand-
að skólahús ásamt fimleikahúsi
og sundlaug. Félagsheimili er
þar í byggingu.
. d) Akureyri. Þar er í bygg-
ingu nýtt vandað skólahús á
Oddeyri og verður mikið unnið
við þá byggingu í sumar, þótt
ekki verði skólabyggingunni
lokið.
Áætlað er að byggja nýtt
skólahús í Glerárþorpi, en
leggja ekki í verulega stækkun
á gamla skólahúsinu þar.
e) Húsavík. I byggingu er
stórt og vandað skólahús, ásamt
fimleikahúsi og handavinnu-
stofustofum. Fimleikahúsið er
fullgert og einnig handavinnu-
stofurnar, en skólahúsið sjálft
er ekki fullgert. Byggingu
sundlaugar mun lokið í sumar.
Þegar lokið er að fullgera
byggingarnar á Oddeyri og
Húsavík, og endurbyggingu
skólahússins á Siglufirði, má
telja að kaupstaðirnir á Norð-
urlandi séu vel settir með
skólahúsnæði.
KAUPTÚN.
a) Hvammstangi. Á Hvamms-
tanga hefur barnaskólinn búið
við mjög lélegt húsnæði. Á
liðnu sumri var hafin þar skóla-
bygging og lokið við undirstöð-
ur, og kjallara undir nokkrum
hluta skólahússins.
b) Blönduós. Skólahúsið þar
orðið of lítið, þar sem nú er
þar starfandi unglingaskóli í
tveimur deildum.
Áætlað er að stækka skóla-
húsið svo fljótt, sem unnt er.
Fimleikahús er þar ágætt. Fé-
lagsheimili er þar í byggingu.
c) Höfðakaupstaður ( Skaga-
strönd). Þar er fullgert nýtt,
vandað skólahús, en fimleika-
hús vantar.
d) Hofsós. Þar er sæmilega
gott skólahús og vel við haldið.
Áætluð er girðing um skólalóð-
ina. Fimleikahús vantar. Fé-
lagsheimili er þar í byggingu.
e) Dalvík. Þar er nú lokið
stækkun og endurbyggingu
skólahússins. — Fimleikahús
vantar. Rætt er um byggingu
félagsheimilis, sem dugað gæti
sem fimleikahús.
f) Hrísey. Þar er lítið gamalt
skólahús. Á árinu 1959 var
það málað og endurbætt.
g) Raufarhöfn. Þar er skóla-
húsið orðið allt of lítið og hefur
orðið að leigja þar kennslu-
stofu í íbúðarhúsi tvö undan-
farin skólaár. Skólanefndin
áætlaði fyrst að stækka skóla-
húsið, en það mætti andúð hjá
ýmsum í kauptúninu, og má
segja að ýmis rök staðfesti það,
að heppilegra væri að selja
gamla skólahúsið og byggja nýj-
an skóla á heppilegri stað. Hef-
ur staðurinn þegar verið ákveð-
inn. Er bygging skólahúss í
undirbúningi.
III. SVEITIR.
a) Vestur-Húnavatnssýsla.
í Vestur-Húnavatnssýslu eru
sex sveitir fyrir utan Hvamms-
tanga. Ekkert skólahús er
í þessum sex sveitum, en í Ytri-
Torfustaðahreppi er kennt í fé-
lagsheimilinu Ásbyrgi. Eru þar
sæmileg viðleguskilyrði fyrir
10—12 ára börn. Þar er starf-
ræktur heimavistarskóli í sex
mánuði á hverjum vetri.
Áætlað er að byggja einn
heimavistar-barnaskóla fyrir
þessa sex hreppa að Reykjum í
Miðfirði. Hefur þetta mál verið
mikið rætt við skólanefndir og
fleiri aðila, en engar bindandi
samþykktir gerðar. Talið er að
þarna sé fyrir hendi nægur jarð
hiti, ef borað væri. í þessum
sex hreppum eru 70—80 börn
skólaskyld, ef miðað er við 9
ára aldur.
b) Austur-Húnavatnssýsla.
í sýslunni eru 8 hreppar, auk
Blönduóss og Höfðakaupstaðar.
Ekkert skólahús er í þessum
átta sveitum, nema að Sveins-
stöðum í Þingi. Þar er kennt í
gömlu félagsheimili, sem upp-
haflega var jafnframt ætlað fyr-
ir skólahús. Áætlað hefur verið,
og um það gerð samþykkt í
fræðsluráði Austur-Húnavatns-
sýslu, að byggður verði einn
heimavistar-barnaskóli fyrir
þessar 8 sveitir að Reykjum á
Reykjabraut. Er þar allstórt
land, sem gefið hefur verið í
því augnamiði, að þar yrði
reistur barnaskóli, félagsheimili
og sundlaug.
í þessum 8 sveitum eru skóla-
skyld 90—95 börn miðað við 9
ára skólaskyldu. Vegna fjar-
lægðar hefur Skagahreppur
nokkra sérstöðu, og ræði eg það
síðar í þessari skýrslu, er eg
minnist á Skefilsstaðahrepp í
Skagafjarðarsýslu.
c) Skagafjarðarsýsla.
í Skagafirði eru 13 sveitir
fyrir utan Sauðárkrók og Hofs-
6s. Þar af eru 10—11 hreppar,
sem ekkert sæmilegt skólahús
eiga.
í Lýtingsstaðahreppi er nýtt
skólahús við Steinsstaðalaug,
(Steinsstaðaskóli). Er skólahús-
ið mikil og vönduð bygging, en
við það vantar fimleikahús.
Þegar brýr eru komnar á Aust-
ur-Vötnin, gætu börn úr suður-
hluta Akrahrepps vel sótt
Steinsstaðaskóla.
Við Barðslaug í Vestur-Fljót-
um, Haganeshreppi, er lítill
heimavistar-barnaskóli. — Ekki
hafa búendur í Austur-Fljótum,
Holtshreppi, viljað sameinast
um þennan skóla. Það virðist þó
sjólfsagt að þessir tveir hreppar
sameinist um skólann við
Barðslaug og skólahúsið verði
stækkað og endurbætt, við það
byggt fimleikahús og sundlaug-
in endurbætt.
í Holtshreppi er_ gamalt, lítið
skólahús, sem jafnframt er
funda- og samkomuhús. Heim-
anganga er þarna mjög erfið.
Er börnum komið fyrir til dval-
ar í, nágrenni skólans.
Eru þá enn 10 sveitir í
Skagafirði, sem ekkert viðun-
andi skólahús eiga.
í Akrahreppi, Staðarhreppi
og Hofshreppi hefur þó verið
kennt í fundarhúsum, sem eru
sæmilegt húsnæði, en lítil skil-
yrði eru þar til skólahalds.
í Skagafirði hef eg haldið
marga fundi um skólamálin.
Haustið .1956 hélt eg almennan
skólamálafund i Hlíðarhúsinu í
Hofshreppi fyrir Viðvíkur-,
Hofs- og Hólahreppa. f desem-
ber 1956 ræddi fræðsluráð
Skagafjarðar skólamálin á
fundi sínum á Sauðárkróki og
lýsti yfir þeirri skoðun sinni, að
byggja ætti einn heimavistar-
barnaskóla í Varmahlíð fyrr
allar þessar 10 sveitir, og skrif-
uðu öllum skólanefndum við-
komandi hreppa um þetta.
Fræðsluráðið tekur þó fram,
að Skefilsstaðahreppur eigi
þarna sérstöðu vegna fjarlægð-
ar. Tel eg að komið geti til mála
að Skefilsstaðahreppur og
Skagahreppur í Austur-Húna-
vatnssýslu sameinuðust um ilít-
inn bamaskóla eða sami kenn-
ari kehndi í báðum skólahverf-
unum, þótt sinn kennslustaður-
inn væri í hvorri sveit.
Þegar sæmilegur akvegur er
kominn í kringum Skagann,
verða samgöngur betri á milli
þessara sveita, heldur en inn til
Skagafjarðar um Laxárdals-
heiði.
Auk hins almenna skólamála-
fundar „austan vatna“ hef eg
haldið fulltrúafundi um þessi
menningarmál að Hólum í
Hjaltadal og Varmahlíð. Mættu
ó þessum fundum skólanefndir
og hreppsnefndir sveitanna:
Viðvíkur-, Hóla- og Hofshreppa
að Hólum og Skarðs-, Staðar-,
Akra- og Rípurhrepps í Varma-
hlíð. — (Framhald.)
Knattspyrnulið ÍBA, Akureyri, sem keppti við Val, Reykjavík á sunnudaginn. Valur sigraði með 3:2.
Frá vinstri: Páll Jónsson, Siguróli Sigurðsson, Skúli Ágústsson, Haukur Jakobsson, Birgir Her-
mannsson, Steingrímur Björnsson, Tryggvi Georgsson, Jón Stefánsson, Magnús Jónatansson, Einac
Helgason og Jens Sumarliðason.