Dagur - 29.06.1960, Blaðsíða 8
8
Þau vökfu athygli, litlu skipin tvö
En hvað verður gert við |)au í framtíðinni?
Á Sjómannadaginn varð
mörgum starsýnt á skip tvö,
sem stillt var út í glugga Járn-
og glervörudeildar KEA. Mönn-
um kom saman um, að þar
hefðu dverghagar hendur verið
að verki, og er það ekki ofmælt.
Nafn höfundarins, Jóhannesar
Olafssonar, stóð þar á litlu
spjaldi. En ekki karrnast nema
sumir bæjarbúar við þann
mann, nema hann sé nefndur
Jói prests, svo rótgróin eru
gælunöfn og uppnefni í okkar
bæjarfélagi, svo mikill smá-
borgarabragurinn. Jóhannes er
rafvirki og vinnur á Gefjun á
Akureyri.
Minna skipið, skólaskipið
Danmark, er einn metri á
lengd og byggt nákvæmlega eft-
ir teikningum af þessu 28 ára
gamla skipi. Engan þarf að
undra, .þótt smíði þess hafi tek-
ið langan tíma, og var hver frí-
stund notuð til þess, að heita
má, um eins árs skeið. Það er
mikil og vandasöm vinna að
búa til 300 blakkir og seglaút-
búnað fyrir 26 segl og smíða 6
björgunarbáta.
Stærra skipið er briggskip og
ekki fullsmíðað. Það er á þriðja
metra á lengd og fagurlega
gert.
En hvað verður nú gert við
þessi fallegu skip? Eru þau að-
eins snotur tómstundaiðja, sem
hefur fært höfundi sínum gleði,
eða eru þau einnig listaverk? —
Jóhanes Ólafsson.
Þeim spurningum lsétur blaðið
ósvarað. En benda má á það, að
skipin mundu sóma sér vel í
sjómannskirkju, eða í sjómanna-
skóla.
/
Síldarverksmíðjan í Krossa-
nesi hefur nú tekið á móti 8033
málum síldar. í fyrra barst
fyrsta síldin þangað 9., júií.
Þessi skip hafa lagt upp afla
sem hér segir:
Sigurður Bjarnason 2546 mál
Súlan 260 mál
Meira samstarf vinabæjanná
Greiða fyrir ferðafólki og veita ýmsa fræðslu
Á fundi bæjarstjóra vinabæja Þeir Akureyringar, sem
Akuréyrar á Norðurlöndum, hyggja á Norðurlandaferðir
'sem haldinn’ var á Akureyri 19. geta fengið bæklinginn aPnent-
júlí 1958 var m. a. samþykkt, an á bæjarstjóraskrifstofunni,
að vinabæirnir fimm efndu til Strandgötu 1, Akureyri.
útgáfu sameiginlegs bæklings íslenzka útgáfan heitir: „Eg
með myndum og stuttum upp- er frá vinabænum Akureyri.“
lýsingum frá vinabæjunum, I bæklingnum er greint frá
Akureyri, Álasundi, Randers, vinabæjahreyfingunni. — Ljós-
Vásterás og Lahti. Bæjarstjór- mynd í litum er fró hverjum bæ
inn í Randers í Danmörku tók ásamt þjóðfána hvers lands og
að sér að sjá um útgáfuna í bæjarmerki og stuttri frásögn
samráði við auglýsingafyrir- frá viðkomandi bæ. Þá er þátt-
tækið Poul Juncher i Randers. ur er nefnist: „Nytsamar upp-
Síðar varð að ráði að bæklingur lýsingar.“ Eru þar tilgreindar
þessi yrði notaður sem „vina- ferðaskrifstofur í hverjum bæ,
bæjavegabréf“ og að ferðamenn gististaðir, tjaldstæði o. fl.
ifrá einum vinabæ nytu — við Þá er í bæklingnum greint
framvísun þessa bæklings — frá helztu söfnum og því mark-
sérstakrar fyrirgreiðslu í hinum verða3ta, sem er að sjá í hverj-
vinabæjunum. um bæ.
Bæklingur þessi er nú full- Bæklingurinn er prentaður í
prentaður og hefur honum ver- mörgum litum og skreyttur
ið dreift til vinabæjanna í með uppdráttum og teikning-
30.000 eintökum alls. um.
Síldarallinn 114 þús. mál um helgina
En á sama tíma í fyrra var aflinn aðeins um
14 þúsund mál - Síldarsöltun er hafin lítillega
í skýrslu Fiskifélagsins segir,
að síldaraflinn sl. laugardags-
kvöld hafi verið orðinn 114.084
mál og tunnur. Þá voru 148
skip búin að fá einhvern afla og
þar af 108 skip 500 mál og
meira. Á sama tíma í fyrra var
aðeins búið að veiða um 14 þús.
mál. Má því segja, að sæmilega
líti út með síldveiðarnar, það
sem af er. Talið er, að um 225
I C • ''l • '
i bjoiijon |
Dagblaðið „Þjóðviljinn" skýr-
ir frá því á Sjómannadaginn, að
Siglfirðingar séu að athuga um
kaup á skuttogara. Togarinn á
að vera 1.500 tonn að stærð og
allur eftir því. Væntanlegir for-
ráðamenn togarans, en hann á
að fullverka mikið af aflanum
um borð, segja frá nokkrum
breytingum, sem þeir hafa hug
á að gera á teikningunum. Með-
al þeirra, og að okkar áliti sú
merkilegasta, er það nýmæli,
að hafa nokkra tveggja manna
klefa fyrir ung hjón, sem vinna
vilja baeði á skipinu. Ekki er
ólíklegt, að pláss verði í eld-
húsinu fyrir nokkrar tengda-
mæður,. og bíðum við í spenn-
ingi að sjá, hvernig þessu reiðir
af öllu saman.
(Sjávarafurðadeild SÍS.)
ri
Björgvin
Hafþór
Sæfaxi
Snæfell
2131 mál
801 mál
485 mál
1810 mál
Árni Geir 800 mál
Akraborg 1216 mál
Gyfli 475 mál
Gylfi II 365 mál
Eldborg 1684 mál
Rifsnes 594 mál
Auðunn 450 mál
Júlíus Björnsson 331 mál
skip stundi síldveiðarnar fyrir
Norðurlandi í sumar.
Lítil síldveiði var á sunnu-
daginn, en hún glæddist á ný á
mánudaginn.
Fyrsta síldin veiddist aðfara-
nótt 17. júní.
48 skip tilkynntu komu sína
með afla í gærmorgun.
Síldarútvegsefnd leyfðil sölt-
un á mánudag. Nokkrir síldar-
saltendur höfðu þá þegar byrj-
að söltun á eigin ábyrgð.
Á sjöunda tímanum í gær-
kveldi voru 20 skip á leiðinni til
Siglufjarðar, því að síldarverk-
smiðjurnar á Raufarhöfn gátu
ekki tekið á móti meiru í bráð.
Lausafregnir herma, að síld
hafi veiðzt út af Tjörnesi í gær,
en ekki var það staðfest.
Á Siglufirði er 21 söltunar-
stöð og síldarsöltun hafin á
nokkrum stöðum.
í gærkveldi voru togskipin
Björgvin og Björgúlfur bæði á
leið til Krossaness með góðan
afla, Björgvin með um 1200 mál
ekki vitað um veiði Björgúlfs.
Hafþór og Sigurður Bjarna-
son voru búin að fá nokkra
veiði, en höfðu ekki boðað komu
sína til lands er síðast fréttist.
Hjalteyrarverksmiðjan hafði
í gær teki ðá móti 6000 málum
síldar, en ekkert á sama tíma í
fyrra. Skipin, sem landað hafa
þar, eru:
LUXEMBORGARAR
KOMA HINGAÐ
Á laugardaginn fá Akureyr-
ingar heimsókn frá Luxem-
borg. Knattspyrnuliðið Red
Boys, sem er annað bezta lið
þar í landi, leikur við ÍBA kl.
5 á laugardag og aftur á mánu
daginn kl. 8.30.
Red Boys tapaði fyrir KR
| 1:5, en gerði síðar jafntefli við
; Akranes, 1:1, og mun svo hafa
| háð þriðja kappleikinn syðra í
j gærkveldi.
; Ferðalag um Þingeyjarsýslur.
Á sunnudaginn munu Akur-
j eyringar bjóða gestunum í
j skemmtiferð um Þingeyjar-
j sýslur.
Leikirnir við Red Boys um
; helgina geta orðið mjög
! skemmtilegir, og vonandi sýna
j Akureyringar þá sitt bezta.
Verðiminur á góðri vöru cg lélegri
Verðlisti sá, sem samþykktur
hefur verið af útgerðarmönnum
og frystihúsunum fyrir humar
og flatfisk, markar tímamót í
samningum þessara aðila um
fiskverð. Nú er í fyrsta sinn
gerður glöggur munur á fyrsta
flokks Jiráefni og annars flokks.
Verður það án efa til að ýta
undir vöruvöndun á þessum af-
urðum og er óskandi, að áfram
verði haldið á sömu braut.
Nú lítur vel út með humai'-
veiðarnar, og eru þær fyrir
nokkru byrjaðar, Frystihús í
Vestmannaeyjum, Keflavík,
Innri-Njarðvíkum, Þorlákshöfn
og víðar hafa þegar hafið fram-
leiðslu af fullum krafti. Humar-
in ner frystur bæði í 5 lbs. og 1
lbs. öskjur, skelflettur og einn-
ig í skelinni, fyrir markað í Ev-
rópu og Bandaríkjunum. Eftir-
lit allt mun nú vera betra en áð-
ur með meðferð og vinnslu
þessa dýrmæta fisks. Mest af
flatfiski þeim, sem á land berst
með humarnum, verður í’eynt
að flaka.
Rækjur eru taldar eftirsóttar
af þorskinum, og er hann oft
úttroðinn af þeim.
Ástir í sóttkví
í kvöld verður enski gamanleikurinn, Ástir í sóttkví, sýndur í
Samkomuhúsinu. Það er nýtt leikhús, leikflokkur undir stjóm
Flosa Ólafssonar, sem hér er á ferðinni, og emur úr mikilli ferða-
reisu um Austur- og Norðausturland. Leikarar, auk Flosa, sem er
leikstjórinn, eru: Emilía Jónasdóttir, Baldur Hólmgeirsson, gamal-
kunnur hér um slóðir, Jón Kjartansson, Elín Ingvarsdóttir og Jak-
ob Möller. — Leikurinn gerist í frönsku Olpunum og hefur fengið
hinar beztu viðtökur og mikla aðsókn.
| Prestvígslur I
Á sunnudaginn var Oddur
Thorarensen vígður til Hofs-
prestakalls I Vopnafirði og Ingi-
berg Hannesson til Staðar-
hólsþings í Dölum.
Sigurvin Eliasson hefur verið
kosinn prestur í Æsustaða-
prestakalli.
Jón, Jakob og Baldur í hlutverkum sínum.