Dagur - 04.08.1960, Blaðsíða 1
/ . """" A
MAuiacn 1’ R AMSÓKN AÍÍM AWA
R Ts rjÓRi: lr.RI IKGTK J1AVÍttSSOX
Símj i 166.! 'VTNINOU OG PKIvXTX-IN
A NNA.VI Pki-.Ni VI KK Oill),
B ! < >!'. \ 1 NA!t ll.l'. Akíirf.vkj
N J
Dagur
3CLIII. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 4. ágúst 1960 — 35. tbl.
■\l l.MMNU'l júki. |ó.n Sam-
VJil -SsON . ÁRCAN«U!U«N KOSTAR
kr. 100.00 Gjai ,h>m i i k í irj i
Bi.atob keah.r úr Á MinyiKUnou-
UM OG Á l,.U’f!AKDÖt;UM
ÁJ l'H *!l VI H» HKIK III.
Síldarflutningaskipið á leiðinni
að austan með fullfermi frá nokkrum skipum
Um það leyti er blaðið var að fara í pressuna kom norska
síldarflutningaskipið Aska, sem verksmiðjurnar í Krossanesi
og Hjalteyri hafa leigt til síldarflutninga, inn fjörðinn með
fullfermi af síld til bræðslu.
Skipið tók síldina úr nokkiaim bátum á Seyðisfirði og mun
það bera úm 3500 mál. Fanninum verður skipt milli verk-
smiðjanna.
Basto, annað norskt síldarflutningaskip, sem einnig á að
taka bræðsusíld úr bátum á miðunum, mun vera lagt af stað
hingað, einnig leigt af sömu síldarverksmiðjum.
Á skipunum eru norskar áliafnir, en Finnur Daníelsson,
Akureyri, er leiðsögumaður í þessari fyrstu ferð.
» r
111111111111 ■ 1111111
Norðlenzka sjúkraflugvélin
hefur haft mikil verkefni, og
mjög of torðið að svo miklu liði
við flutning sjúkra, að tæpast
verður metið að fullu.
En aðfaranótt miðvikudagsins
20. júlí sl. voru öll met slegin í
norðlenzku sjúkraflugi. Þá nótt
voru þrjú sjúkraflug og þoldi
ekkert þeirra neina bið.
Tryggvi Helgasfip flugmaður
var rétt kominn austan af
Bakkafirði, og þá liðið fast að
miðnætti, þegar fyrsta kallið
kom frá Hvammstanga. Flytja
þurfti slasaðan dreng í sjúkra-
hús. Tryggvi flaug vestur og
náði í drenginn.
Hann hafði svo nýlokið við að
setja vélina í flugskýli, þegar
aftur var kallað, og í þetta
skipti frá Grímsey. Þar var sjúk
kona, sem strax þurfti að kom-
ast í sjúkrahús. Þangað var
flogið og konan flutt til Akur-
eyrar, og hún flutt í Fjórðungs-
sjúkrahúsið.
Flugmaðurinn var nýgenginn
til náða, og hafði sofið dálitla
stund, þegar enn var kallað og
beðið um sjúkraflug. Enn var
flogið og nú til Vopnafjarðar,
og þar tekin veik stúlka og
flutt til Akureyrar.
Norðlendingar voru ákveðnir
í að eignast sjúkraflugvél. Þeir
skildu þörfina. Reynslan sýnir
að sú þöx'f var brýn. Hin noi’ð-
fenzka sjúkraflugvél er flesta
daga á ferðinni, því að ekki er
hún einskorðuð við flutning
sjúki'a.
Hinn 28. júlí flaug Ti-yggvi til
Siglufjai'ðar og lenti á hinum
nýja sjúkraflugvelli, sem þar
er búið að gera á Ráeyri. Flug-
bi’autin er um 400 m., en nýtist
illa vegna þess að hún er bungu
mynduð og lægri til endanna.
Aldrei hefur tveggja hreyfla
flugvél lent þar áður. Þetta er
30. lendingai'staður sjúkraflug-
vélarinnar á Akureyri hér á
landi.
„Leiin fil
Þorsteinsskáli í Herðubreiðarlindum. — (Ljósmynd: S. II.).
Þorsfeinsskáli í Herðubreiðarlindum vígður
Þangað komu um 200 manus um verzlunar-
mannahelgina og nutu fyrirgreiðslu F. A.
Sæluhús það í Herðubreiðar-
lindum, sem verið hefur í smíð-
um undanfax-in ár á vegum
Fei'ðafélags Akm-eyi'ai', og
nokkrum sinnum hefur verið
getið hér í blaðinu, var vígt um
verzlunarmannahelgina og ber
nafnið Þoi-steinsskáli til heiðurs
Þorsteini Þoi’steinssyni, sem
lengi var formaður Ferðafélags-
ins hér.
Ferðafélag Akui'eyrar undii'-
bjó vígsluna eftir föngum og
rr
| Sextán sólahringa á j
! grenjum í Núpasveit!
Benedikt Kristinsson skrifar
blaðinu meðal annars þetta um
grenjavinnslu í Presthólahreppi í
N.-Þingeyjarsýslu: „Heiðarnar
skiptast í þrjá hluta til grenja-
vinnslu og eru tveir menn um
hvert svæði. Sigurður Haraklsson
Núpskötlu og Iagimundur Páls-
son Presthólum voru 16 sólar-
hringa á Núpasveitarheiði, fundu
5 greni, unnu þau öll og drápu
38 dýr samtals í ferðinni. Siðan
fannst eitt greni til viðbótar og
unnu þeir læðuna og 4 hvolpa,
samtals 42 dýr á Núpasveitarheiði.
Það var lítið um lambaræfla við
greni þessi. Arni Pétur Lund
Miðtúni og Kristján Kristinsson
Sandvík leituðu grenja á Vestur-
sléttuheiði, cn fundu fá og gekk
illa að vinna þau. Austursléttu-
heiði leituðu Brynjólfur Sigurðs-
son Brúnum og Eiríkur Þorsteins-
son, Blikalóni, fundu jxeir eitt
greni, náðu læðu og einum hvolp
og hafa ekki l'arið aftur. Iivergi
virtust skæðir dýrbítir.
Hvarvetna eru nú að koma í ljós álirif af efnahagsráð-
stöfunum ríkisstjórnarinnar, svo sem vaxtahækkun og
verðhækkun á byggingarefni, vélum o. fl.
í allri Norður-Þingeyjarsýslu, að þorpunum með-
töldum, sem samtals telur um 2000 manns, hefur á
þessu ári aðeins verið byrjað á einu íbúðarhúsi. Stingur
það mjög í stúf við það, sem verið liefur á undanförn-
um árum, því að mikið hefur verið þar um íbúðarbygg-
ingar, ekki sízt í þorpum.
Ekki hefur þess orðið vart þar, að nokkur hafi fengið
nýjan jeppa á þessu ári og aðeins þrír hafa fengið nýjar
dráttarvélar.
Svo alger er stöðvun uppbyggingar þar í sýslu, svona
ógnandi brotalöm á eðlilegri framþróun einstaklinga í
sveitum, og á þennan hátt efnir ríkisstjórnin loforð sín
um „leiðina til bættra lífskjara“, sem boðuð var
í blindum liita síðustu alþingiskosninga.
Bóndi nokkur þar í héraði hafði orð á því nýlega, að
ef bændur þeir, sem kusu Sjálfstæðisflokkinn síðastlið-
ið haust, hefðu allir þurft að kaupa dráttarvél í vor,
hefðu þeir sennilega gert sér fulla grein fyrir því, hvað
þeir voru að gera við kjörborðið, ef þeir hafa ekki þeg-
ar gert það.
Verðhækkun á landbúnaðarvélum varð yfir 50% og
álíka á bátavélum.
Stöðvunarstefna núverandi ríkisstjórnar lokar leið-
inni til bættra lífskjara.
fói'u 50 manns á vegum þess
austur, en auk þess fjöldi ann-
ai'ra manna, meðal annai's 40
manna hópur á vegum Fai'fugla
í Reykjavík. Þar var og kominn
Sigurður Jóhannsson vegamála-
stjóri og margir ferðagarpar úr
höfuðstaðnum.
Vígslan fór fram á laugardag-
inn, 30. júli. Tryggvi Þorsteins-
son skátafoi'ingi stjórnaði henni.
Kári Sigui'jónsson, foi-maður
Ferðafélagsins rakti byggingai'-
sögu, Hallgrímur Jónasson
kennai'i sendi frumoi't ljóð, sem
Sigurður Kristjánsson flutti, og
Þormóður Sveinsson gaf hinu
nýja og myndarlega sæluhúsi
nafnið Þoi'steinsskáli. Forseti
Ferðafélags íslands færði sælu-
húsinu vandaða gestabók, for-
maður Ferðafélags íslands
flutti frumort ljóð, ennfremur
Karl Magnússon, Akureyri, og
enn fleiri tóku til máls.
Á laugardaginn skiptust menn
í hópa og skoðuðu nági'ennið
undir leiðsögn fróðra manna, en
á Herðubreið lá þoka og var því
ekki farið nema nokkuð upp í
hlíðar hennar.
Um kvöldið var kvöldvaka,
og þá lesinn kafli um útlegð Ey-
vindar og Höllu á þessum slóð-
um. Vígslan fór myndarlega
fram í alla staði. Enn ein leið er
opin til að njóta öræfadýrðar.
ÁREKSTRAR
Lögi'eglunni á Akureyri var
tilkynnt um 11 árekstra bif-
reiða um síðustu helgi, verzlun-
ai'mannahelgina. Á einum stað
lentu 3 saman í árekstri og
skemmdust þeir allir mikið. —
Slys urðu ekki alvarleg á fólki,
nema í bílaárekstri á Öxnadals-
heiði á laugardagskvöldið. Þar
rakst fólksbifreið frá Akui'eyi'i
á vöruflutningabíl og stór-
skemmdist hún, en kona, sem
var í framsætinu, mun hafa
hlotið ávei'ka og fengið snert af
heilahi'istingi. Hún er á sjúkra-
húsi.
Neglt er fyrir alla glugga í
Bakkaseli og er þar enga aðstoð
að fá, þótt slys beri að höndum
á Öxnadalsheiði, og er það mik-
il og óhæf afturför.
s---------------—---- —
Júlíus Havsteen látinn
. Júlíus Havsteen, fyrrv. sýslu-
maður, andaðist í Reykjavík 31.
júlí sl. Hann var þjóðkunnur
maður, var fyrst bæjarfógeti á
Akureyri og Siglufirði, en síðar
í Þingeyjarsýslum í 36 ár.
Átía gripnir á Eyvindarstaðaheiði
Blönduósi, 4. ágúst. Sunnu-
daginn 31. júlí sl. héldu 5 menn
af stað, 3 Skagfirðingar og 2
Húnvetningar, sem leið liggur
fram á Eyvindarstaðaheiði til
að líta eftir hvort reglur um
stóðhesta væru haldnar, svo
sem lög mæla fyrir um.
Er á heiðina kom, kom í ljós,
að svo var ekki. Þar gengu
graðfolar í stóði, sem ekki áttu
þar að vera. Átta þeirra voru
handsamaðir og færðir til
byggða. Þeir verða allir boðnir
upp á laugardaginn og bíða
þess dags á Álfgeirsvöllum.
För þessi var farin á vegum
Hrossaræktarsambands Norður-
lands, og víðar mun pottur
brotinn í folahaldi.