Dagur - 04.08.1960, Page 4
4
5
Kynnfu sér ræktun holdanaufa í Noregi og á Bretlandseyjum
FRUMVARP UM JARÐ-
RÆKTARSAMÞYKKTIR
Framsóknarflokkurinn hefur frá
fyrstu tíð beitt sér fyrir því á Alþingi
og í ríkisstjórnum, að ræktun og
framkvæmdir í sveitum gæti orðið
veigamikill þáttur í alhliða uppbygg-
ingu atviimuveganna og framleiðsl-
unnar og oftast gegn hatramri and-
stöðu íhaldsins. Andstaða íhaldsins í
þeim málum hefur verið svo rótgróin
og ákveðin meðal ráðamanna þess
flokks, að sennilega væri engin sæmi-
legur búskapur til í landinu, ef stefna
þeirra hefði ráðið. Þrátt fyrir blíð-
mæli við bændur öðru hvoru, er sá
flokkur ber að fullum fjandskap við
bændastéttina. Hann vill láta fækka
bændum um helming, eða jafnvel úr
sex þúsundum í sex hundruð og
þennan sama flokk hefur þiurft að
kaupa til fylgis við ýmis þau mál, sem
að mestri lyftistöng hafa orðið fyrir
þennan elzta og þýðingarmesta at-
vinnuveg landsmanna.
Á síðasta Alþingi flutti Ágúst Þor-
valdsson og nokkrir aðrir Framsókn-
armenn frumvarp í neðri deild um
breytingar á lögum um jarðræktar-
samþykktir þess efnis að verja skuli
árlega fé úr ríkissjóði til endumýjun-
ar á stórvirkum jarðræktarvélum og
tækjum, allt að hehningi kostnaðar,
að frádregnu því framlagi, sem áður
hefur verið veitt. Til þessa hafa rækt-
unarsamböndunum undanfarin 14—15
ár verið veitt ríkisframlag til kaupa á
138 beltisvélum, 30—60 hö. og 15
minni, 33 traktorum og 9 skurðgröf-
Uffluni. Þessar vélar þurfa nú mikillar
endurnýjunar við, en fyrningarsjóð-
imir hrökkva skammt til þess vegna
hinna gífurlegu verðhækkana, sem
orðið hafa á vélunum, en verð þeirra
hefur margfaldast á síðasta áratug,
hækkar til dæmis lun þriðjung eða
meira á yfirstandandi ári. Á síðasta
áratug hefur árleg nýrækt nálega þre-
faldast og má rekja það til þessara
stórvirku véla. En þegar vélarnar
ganga úr sér, og ekki er hægt að end-
umýja þær vegna fjárskorts fyming-
arsjóðanna, verður stöðvun í rækun-
armálum. En til þess að ríkissjóður
hlaupi hér undir bagga þarf nýja lög-
gjöf.
Ekki vildi meiri hluti Alþingis
sinna frumvarpinu um jarðræktar-
samþykktir. Landbúnaðarnefnd klofn-
aði og lagði meiri hlutinn til, að frum-
varpinu yrði vísað til ríkisstjórnar-
innar. Nefnt frumvarp var lagt fram í
byrjun þings. Nokkrum mánuðum
síðar hafði landbúnaðamefnd skipað
nefnd til að endurskoða lögin í heild.
Frávísunartillagan var á því byggð
hjá stjómarflokkunum, að nefndin
þyrfti að Ijúka störfum. Frávísunartil-
lagan var samþykkt á þinginu 19. maí
og þessu nauðsynjamáli bændastétt-
arinnar þannig drepið á dreif. En að
sjálfsögð verður það tekið upp aftur
af Framsóknarmönniun á næsta Al-
þingi.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálum lama allar fram-
kvæmdir í sveitum, bæði byggingar
og ræktun, og er það hnefahögg
framan í bændastéttina, sem af mikl-
um dugnaði framleiðir þýðingarmestu
næringarefni, sem þjóðin neytir.
Rætt við Garðar Halldórsson bónda og alþm.
að lokinni ferð íslenzkrar sendinefndar
Mörg undanfarin ár hefur áhugi ríkt fyrir innflutningi
holdanauta og margir álíta, að landbúnaðurinn hlyti af því
allmikla nytsemd. Síðasta Búnaðarþing samþykkti ályktun
um, að kjósa nefnd til að gera rökstuddar ályktanir um slík-
an innflutning og arðsemi af ræktun holdanauta, samanbor-
ið við aðrar búfjártegundir, sem fyrir eru í landinu „og
kynna sér reynslu Norðmanna á innflutningi holdanauta og
afla að öðru leyti, eins og kostur er, þeirra upplýsinga", eins
og segir í samþykkt Búnaðarþings um þetta mál. En þessi
samþykkt Búnaðarþings er orsök þess fyrst og fremst, að ís-
lenzkir bændur og fleiri brugðu sér yfir pollinn til að kynna
sér þessi mál, eins og verða mætti, í hálfsmánaðar ferðalagi.
Búnaðarþing kaus þessa:
Svein Jónsson bónda á Egils-
stöðum, Einar Olafsson bónda í
Lækjarhvammi og Garðar Hall-
dórsson alþingismann á Rifkels-
stöðum. Landbúnaðárráðherra
skipaði svo fjórða manninn í
nefndina, Þorstein Sigurðsson,
formann Búnaðarfálags íslands.
Nefndin taldi ástæðu til að
kynna sér þetta af eigin sjón,
og Landbúnaðarráðuneytið og
Stéttarsamband bænda tóku að
sér að kosta utanför framan-
talinna manna til að kynna sér
málið af eigin sjón og raun. —
Ólafur Stefánsson ráðunautur
tók einnig þátt í förinni.
Blaðið hitti Garðar Halldórs-
son alþingismann eftir heim-
komuna og spurði hann frétta
af förinni.
Þið hafið kynnt ykkur hvern-
ig innfluttir gripir eru einangr-
aðir vegna smithættu?
í Noregi sáum við einangrun-
arstöð. Hún er í miðju, þéttbýlu
héraði á Jaðrinum, og var
timburskúr, girtur lélegri girð-
ingu. Þar eru innfluttir kyn-
bótagripir einangraðir. í Noregi
hittum við einnig bændur, sem
framleiða kjöt af holdanauta-
kynjum, meðal annars tvo, sem
fyrir nokkru hættu mjólkur-
framleiðslu og tóku upp þessa
kjötframleiðslu og lofuðu þeir
guð fyrir umskiptin. Bústofn
þeirra var þó innan við 100
gripir hjá hvorum.
Hvaða holdakyn eru einkum
í Noregi?
Norðmenn hafa Hereford og
Aberdeen Angus, og er aðeins
áratugur síðan þeir hófu inn-
flutning þessara holdagripa.
í Noregi nutum við frábærr-
ar fyrirgreiðslu Árna G. Ey-
lands landbúnaðarráðnautar við
sendiráðið í Osló, og hann var
með okkur allan tímann, sem
við dvöldum í Noregi. Síðasta
kvöldið, sem við vorum þar í
landi, stefndi hann á heimili
sitt ýmsum ráðamönnum land-
búnaðarins og hélt okkur mynd
arlega veizlu ,þar sem okkur
gafst tækifæri til að ræða land-
búnaðarmálin við hina ýmsu
framámenn á þessum sviðum.
Formaður sláturfélags þar lán-
aði okkur bílinn sinn og
bílstjóra til að ferðast á meðan
dagur entist, og endurgjalds-
laust. Heimsóttum við þá
nokkra bændur á Jaðrinum og
landbúnaðarskólann á Oxna-
vaði.
kr. á ha. upp í kostnaðinn, en
ríkið 14 þús. kr. Auk þess fær
nýbýlingurinn bæði lán og
styrk til bygginga.
í Rogalandsfylki er 19 þús.
býli og meðalstærð ræktaðs
lands er 4,6 ha. og 750 af þess-
um býlum hafa yfir 10 ha.
lands, og sést af þessu að marg-
ir hinna búa þröngt.
En ferðin til Bretlands?
Síðan fórum við til Englands
og Skotlands og heimsóttum þar
bændur og ýmis fyrirtæki, við-
komandi landbúnaði. Til dæmis
komum við á Smithfieldmark-
aðinn í London. Þar var mikið
um að vera. Einnig heimsóttum
við kjötsamsölu, sem er bænda-
fyrirtæki, byggt upp til þess að
komast fram hjá mörkuðunum
og losna við milliliðakostnað. —
Sú kjötsala hefur um 100 slát-
urhús víðs vegar um Bretland.
Og líka heimsóttum við kjötinn-
flutningsfyrirtæki W. Veddel
Ltd. Þetta fyrirtæki kvað sig
fyrst hafa flutt inn íslenzkt
dilkakjöt, og sent menn hingað
til lands árið 1932 til að leið-
beina um meðferð á því. For-
stöðumaðurinn kvaðst -hlakka
til að fá fyrstu sendinguna af ís-
lenzku nautgripakjöti. En því
Naut og kýr af
Hvemig er landbúnaðurinn á
Jaðrinum?
Fljótt á litið virðist landbún-
aðurinn þar hinn blómlegasti,
þótt jarðvegurinn sé óhemju
grýttur. Þar fórum við í gegn-
um nýbýlahverfi, sem verið er
að reisa, og þar var látið í
ákvæðisvinnu að ryðja grjóti,
lokræsa og plægja, og kostar 15
þús. norskar kr. á ha. Ríkissjóð-
ur greiðir þennan kostnað að
fullu fyrir 5 fyrstu hektarana,
og fyrir næstu 5 ha. þarf vænt-
anlegur bóndi að greiða 1 þús.
Kynbótatarfur af Herefordkyni.
ÍÉÍÍlllllS Siffi
Aberdeen Angus.
má bæta við, að þetta mun hafa
verið tímabundinn áhugi fyrir
innflutnnigi á íslenzku kjöti, því
að þessa dagana vantaði kjöt á
markaðinn vegna verkfalla.
Þá komum við á landbúnað-
arsýninguna í Cambridge og
notuðum þann tíma, sem við
höfðum þar til að skoða holda-
nautgripina, sem þar voru til
sýnis. Líka komum við á til-
raunabú ráðunautastarfseminn-
ar í Hereford. Sú stöð rannsak-
ar niðurstöður annarra til-
ranastöðva, áður en bændum
er ráðlagt að fara eftir þeim. Á
þessari stöð var m. a. gerður
samanburður á nautum, svipað
því sem er gert hér á Lundi og
Laugardælum fyrir sunnan,
ennfremur uppeldisrannsóknir
á kálfum.
Ransóknarstöðin í Aberdeen
hefur uppeldistilraunir á kálf-
um, þar sem kálfum var aðeins
gefin móðurmjólkin í 3 daga, en
síðan mjólkurduft í stað mjólk-
ur. Rannsökuð voru líka áhrif
uppeldis á heilsufar, afurðir og
frjósemi. Við þessa rannsóknar-
stöð, sem er mjög fjölþætt,
vinna 80 vísindamenn og 200
aðrir starfsmenn.
í Edinborg heimsóttum við
sláturhús, sem annast slátrun á
nautgripum og sauðfé, og naut-
gripamarkað komum við einnig
á og fór uppboðið fram með
slíkum hraða, að undrun sætti.
Uppboðshaldarinn sló meira en
grip á mínútu.
Ennfremur heimsóttum við
tilrauna- og rannsóknarstöð há-
skólans í Edinborg. Þar fannst
mér eg fræðast hvað mest um
landbúnaðarmál í viðræðum
við þrjá yfirmenn þar. Þarna
fóru fram erfðarannsóknir og
fleiri tilraunir með nautgripi.
Hver þessara stofnana um sig
væri auðvitað efni í langa blaða
grein, þótt hér séu þær aðeins
nefndar.
Heimsóttuð þið ekki bændur
í Bretlandi?
Jú, bæði í Englandi og Skot-
landi heimsóttum við bændur
og skoðuðum búskap við hin
ólíkustu skilyrði.
Einkum voru þarna stórbú,
sem hreinrækta holdagripina
og miða þá við sölu lífdýra. —
Eitt slíkt bú hafði t. d. selt
kynbótagripi til Þýzkalands,
Argentínu, Nýja Sjálands,
Bandaríkjanna, Canada, Suður-
Afríku, Japan, Ástralíu og ísra-
els.
Á þessum stórbúum er ekkert
til sparað í kostnaði. Dæmi um
það er kynbótanaut eitt er kost-
aði yfir milljón krónur íslenzk-
ar. Undan einu nauti, sem notað
hafði ■ 'verið í 8 ár,< ■ val- okkur
sagt að hefðu verið seldir kálf-
ar fyrir a. m. k. 10 milljónir ísl.
króna.
Heimsóttuð þið ekki líka
smærri buin?
Jú, ekki síður, bú, sem fram-
léiddu hpldanaut til slátr-
unar.
í Englandi og Skotlandi er
lítið af kjöti á markaði af hrein-
ræktuðu holdakyni, heldur af
blendingum. í hálendi Skot-
lands, er stóð í 1000 feta hæð yf-
ir sjávarmál og hafði beitiland,
sem þó stóð hærra, voru m. a.
Galloway-kýr, sem ganga úti
allan veturinn, en gefið út eftir
þörfum. Veðurfar er ekki betra
en svo, að í vor kom þar snjór,
er stóð í 3 vikur, og var allt upp
í 15 þumlunga þykkur. Þær
voru bornar, er við vorum þar á
ferð, og voru þær á óræktuðu
beitarlandi og litu vel út.
Hver voru svo heildaráhrifin
af ferðalaginu?
Mér sýndist enskur búskapur
blómlegur og mjög vel rekinn,
að vísu vil eg undanskilja gras-
rækt og heyverkun. Búskapur-
inn er fjölþættur og rekinn með
mikilli aðstoð þess opinbera. —
Það er í samræmi við orð for-
stöðumanns kjötinnflutningsfyr-
irtækisins, sem áður er getið. —
Hann sagði: Bændastéttm er
aðalstyrkur hverrar þjóðar og
er því nauðsynlegt hverri ríkis-
stjórn að hafa bændur með sér.
Hefur þú trú á, að hagkvæmt
sé fyrir íslenzka bændur að
flytja inn holdanaut?
Vissulega hefur áhugi minn
fyrir þeim innflutningi ekki
Fréttir úr Norður-Þingeyjarsýslu
Garðar Halldórsson.
minnkað, segir Garðar Halldórs-
son að lokum, og þakkar blaðið
svör hans.
í júlílok. — Hér í sýslu byrj-
uðu allmargir að slá tún sín um
eða rétt fyrir 20. júní. Var þá
hlýtt í veðri og orðið vel sprott-
ið. En í sumuni sveitum töfðu
skúrir heyþurrkun nokkuð. —
Spretta er nú yfirleitt orðin
mjög mikil, einnig á útengjum,
sem nú orðið eru þó lítið notuð
til heyskapar.
Á Hólsfjöllum spratt heldur
seint og ollu því þurrviðri fram-
an af.
Öfsvörin á Ákureyri 1960
Niðurjöfnun útsvara í Akureyrar w
kaupstað lauk fyrir nokkru og varíj
að þesstt sinni jafnað niður j
20.025.000.00 á 2610 gjáldendur og
hefur útsvarsskráin legið frammi.
Allt frá þeim tíma að norskir menn
flýðu land og byggðu ísland — til
þess m. a. að losna við óhóflega
skattheimtu í lieimalandinu — hafa
skattar, hverju nafni sem nefnast,
verið þyrnir í augttm. Útsvarsskráin
er þó ekki með öllu gleðisnautt
talnaregistur eða án huggunar, því
þótt flestum finnist of mikið á sig
iagt, er það bót í máli að nágrann-
inn hefur heldur ekki gleymzt. Og
við nánari yfirvegun sjá allir, að mcð
vaxandi kröftun til bæjarfélagsins,
um meiri þjónustu við borgarana,
fylgja attkin útgjöld.
Hér fer á eftir listi yfir nokkur
hæstu útsvörin í Akureyrarkaup-
sta'ð árið 1960:'
Kupfélag Eyfirðinga 916.000
Santband ísl. samvinnufélaga 580.200
Olíufélagið h.f. 174.600
■Amaroh.fi...... 170.700
Útgerðarfél. Akureyringa li.f. 166.00
Linda h.f. , 150.100
Útgerðarfélag KEA 74.400
Þórshamar h.f. 61.800
Olíuverzlun Islands h.f. 52.600
Slippstöðin' h.f. 52.500
Kaffibrennsla Akureyrar h.f. 48.400
Byggingavöruv. T. Björnss. 47.100
Skeljungur h.f. 42.400
Valbjörk h.f. 34.000
Grána h.f. 32.900
Netagerðin Oddi h.f. 32.800
Bókv. Gunnl. Tr. Jónss. s.f. 30.600
Oddi, vélsmiðja h.f. 27.100
I. Brynjólfsson og Kvaran 26.200
Brynjólfur Sveinsson h.f. 24.900
BSA verkstæði h.f. 24.700
Prentverk Odds Björnssonar 23.700
Valhöll h.f. 23.000
Klæðav. Sig. Guðmundss. h.f. 20.700
Kristján Kristjánsson Brg. 66.300
Valg. Stefánsson Oddeyrarg. 46.800
Kristján Jónsson Þingvstr. 46.800
O. C. Thorarensen Bjarmastíg 39.400
Tómal Steingrímss. Byggðav. 39.100
Jónas H. Traustason Asveg 36.400
Asgeir Jakobsson Eiðsvallag. 35.500
Valtýr Þorsteinsson Fjólug. 33.200
Bjarni Jóhannesson Þingvstr. 31.000
Melgi Skúlason Möðruvallastr. 28.800
Eyþór Tómasson Brekkug. 28.700
Guðm. Skaftason Skólastíg 27.900
Jón E. Sigurðsson Hafnarstr. 27.500
Brynjólfur Sveinsson Skólastíg 27.400
Steindór Kr. Jónsson Eyrarveg 26.600
Friðjón Skarphéðinss. Hmstr. 26.300
Skarphcðinn Ásgeirss. Hmstr. 26.000
Guðm. K. I’étursson Eyrarlv. 25.800
Brynj. Brynjólfsson Þingvstr. 25.600
Friðrik Magnússon Aðalstr. 25.400
Vilhjálmur Þorsteinsson db. 25.100
Tómas Björnsson Gilsbakkav. 24.900
Sigurður Jónsson Skólastíg 23.500
Sigttrður Ólason Múnkaþvstr. 23.100
Anna Laxdal Brekkugötu 22.600
Herm. Stefánsson Hrafnagstr. 22.400
Ólafur Jónsson Munkaþvstr. 21.900
Sigurður Helgason Rauðam. 21.800
Sverrir Sigurðsson Ásabyggð 21.400
Jón Einarsson Byggðaveg 21.200
Einar Guðmundss. Klettaborg 21.200
Stefán Reykjalín Holtag. 21.000
Jóhann Þorkclsson Ránarg. 21.000
Örn Pétursson Hafnarstr. 21.000
Ólafur Thorarensen Brg. ■ 20.900
Jón Kr. Guðmundss. Þórstr. 20.700
Jóh. G. Benediktsson Eyrarlv. 20.600
Guðrn. Guðlaugss. Munkaþv. 20.500
KaupfélagiS á Kópaskeri hef-
ur í sumar flutt til Reykjavíkur,
landveg, allmarga bílfarma af
frosnu kjöti. Er þetta löng leið,
en hefur gengið vel og kjötið
haldið frosti og reynzt hin ágæt
asta vara syðra, enda vel um
það búið. Lagt hefur verið af
stað frá Kópaskeri kl. 2-—3 síð-
degis og ekið um nóttina, og
komið til Reykjavíkur fyrir há-
degi daginn eftir.
í fyrra og aftur nú í sumar
hefur verið unnið að stækkun
slátur- og frystihússins á Kópa-
skeri.
Aðeins eitt hús í smíðum.
Á einstaka stað í sveitum er
verið að byggja útihús, en mjög
lítið er þó um slíkar fram-
kvæmdir nú, miðað við það,
sem verið hefur undanfarið, og
í allri sýslunni, sem telur um
2000 manns, hefur á þessu ári
aðeins verið byrjað á einu íbúð-|
arhúsi, bæði sveitir og þorp
meðtalin. Hins vegar er að
sjálfsögðu haldið áfram að
vinna við íbúðarhús, sem áður
var byrjað á.
Þórshöfn.
Á Þórshöfn er unnið að hafn-
argerð. Þangað kom í byrjun
júlímánaðar, á vegum vitamála-
stjórnarinnar, stórvirkt ámokst-
urstæki til að moka upp grjóti í
hafnargarðinn og fylgdu því 5
gjrótvagnar með aflvélum. —
Þessi tæki höfðu áður í sumar
verið notuð í Hafnarfirði til
uppmoksturs og flutnings á
hraungrýti, og gekk mjög greið-
lega. En á Þórshöfn hefur notk-
un grjótvagnanna, sem eru
þungir og breiðir, gengið held-
ur treglega, einkum vegna þess
að vegur var mjór og ótraustur.
Þó hafa þeir verið nokkuð í
notkun, ásamt vörubifreiðum
staðarins. Moksturstækið hefur
aftur á móti reynst vel og er
mjög öflugt.. — Verkstjóri er
Sveinn Jónsson.
Rafarhöfn.
Á Raufarhöfn er lokið við
smíði tveggja síldargeyma, sem
rúma samtals um 35 þús. mál
síldar. Þessar síldarsöltunar-
stöðvar er nú starfræktar á
Raufarhöfn: Gunnar Halldórs-
son, Borgir h.f., Hafsilfur h.f.,
Skor, Vilhjálmur Jónsson, Ósk-
ar Halldórsson & Co. og Valtýr
Þorsteinsson. Unnið var að flug-
braut fyrir litlar flugvélar, og
er síldarleitarflugvél nú staðsett
þar.
Unnið er í Hálsavegi, milli
Raufarhafnar og Þistilfjarðar,
og ekki útilokað að akfært. verði
í haust milli þessara byggðar-
laga þá leið.
Góður afli.
Afli hefur verið fremur góður
í vor og sumar, bæði á Þórshöfn
og Raufarhöfn. Aflinn er frystur
og saltaður.
Áldarafmæli tveggja ki
Hálskirkja til vinstri. Illugastaðakirkja að ofan.
Sjálfsagt mun það einsdæmi á
landi hér, að 2 kirkjur sama
byggðarlags eigi aldarafmæli sam-
sumars. En slíkt á sér stað austur
í Fnjóskadal í ár, því að 1860
voru tvær kirkjur dalsins vígðar,
þ. e. Hálskirkja og lllugastaða-
kirkja. Var þessa merka atburðar
minnzt með liátíðarguðsþjónustu
í kirkjunum 24. júlí sl. Hafa söfn-
uðurnir lagt mikið fram við að
fegra kirkjur sínar og umhverfi
þeirra, og fullvíst er um það, að
aldrei hafa kirkjurnar svo skart-
að sem hinn eftirminnilega dag.
Var allur undirbúningur afmælis-
ins dalbúum til mikils sóma
Afmælishátíðin hófst með guð-
þjónustu í Hálskirkju kl. 10.30.
Prófasturinn sr. Friðrik A. Frið-
riksson þjónaði fyrir altari og
flutti prédikun. En eftir prédikun
skírði sóknarpresturinn 4 drengi
úr sókninni og eins rakti liann
sögu kirkjunnar. Sóknarnefndar-
formaður, Þórólfur Guðnason,
Lundi, þakkaði gjafir er kirkj-
unni höfðu borizt.
Laust eftir kl. 4 var svo sam-
eiginlegt lióf í Brúarlundi í boði
sóknanna og önnuðust sóknar-
konur alla framreiðslu a£ mikilli
rausn. Á fjórða hundrað kirkju-
gesta sótti kaffiboð þéttá, énda
voru guðþjónusturriar fyrr um
daginn mjög fjölmennar svo
livergi nærri rúmuðu kirkjurnar
gesti sína alla. Allir prestár pró-
fastsdæmisins voru viðstaddir að
einum undanskildum, er dvaldist
erlendis. Margir tóku til máls í
hófinu. Það jók á hátfðaskap
manna þennan dag, að sól brauzt
fram úr skýjum, en mjög vætu-
samt hafði verið síðustu dagana
fyrir helgi og stórrigningar síðan.
Hálskirkja. Sr. Þorsteinn Páls-
son (prestur Hálsi 1846—73) lét
reisa kirkjuna á árunum 1859—
1863. Vígð var hún 15. júlí 1860
og þá tekin í notkun. Yfirsmiður
var Tryggvi Gunnarsson, tengda-
sonur sr. Þorsteins. (Hann reisti
bú á þessum árum að Hallgils-
stöðum.) Er kirkjan var fttllgerð
reyndist skuld hennar við bene-
ficiatus 996 ríkisdalir og 6 skild-
ingar. Var kirkjan að fyrstu gerð
mjög vandað liús, svo sem glögg-
lega sést á henni enn í dag. Mark-
verðastar eigur hennar í fyrstu
voru Guðbrandarbiblía mcð árit-
un Guðbratids biskups (nú í
Landsbókasafninu) og Maríu-
líkneski nú glatað. Hljóðfæri kom
í kirkjuna á árunum 1893—1900.
5. júlí 1910 var samþykkt á al-
mennum safnaðarfundi að söfn-
uðurinn tæki við kirkjunni, en
fram að þcim tíma hafði hún ver-
ið í umsjón prestsins.
Miklar endurbætur hófust á
kirkjunni í fyrrahaust, er henni
var lyft af grjótgrunni sínum og
steyptar undirstöður í staðinn.
Síðar, eða í maí í vor, hófst að-
gerð á kirkjunni að innan. Voru
gluggar allir endurnýjaðir og
kirkjan máluð innan sem utan.
Raflögn var sett í kirkjuna. Var
þess alltaf gætt við aðgerðina að
breyta engu frá upphaflegri gerð.
Yfirumsjón með allri endurbót að
innan hafði listamaðurinn Aðal-
geir Halldórsson, Stóru-Tjörnum,
ásamt bróður sínum, Sigurði
Elalldórssyni.
í undirbúningsnefnd afmælis-
ins voru: Bragi Ingjaldsson, Birki-
hlíð, Sigurður Halldórsson, Stóru-
Tjörnum, og Þórólfur Guðnason,
Lundi.
Gjafir bárust kirkjunni í tilefni
afmælisins s. s.: Biblía í vönduðu
skinnbandi. Ljós á ræðustól og
rafmagnsstjakar á altari. Veggljós,
10 að tölu. Hnéfall. Rykkilín.
Þjónustubikarar. Minningagjafa-
bók frá lllugastaðakirkju. Fáni.
Eins um 6000 kr. í peningum.
Kirkjan er nú liið veglegasta liús,
hlý og íögur.
lllugastaðakirkja. Reist af ekkj-
unni Þuríði Aradóttur 1860, en
hún liélt staðinn af mikilli rausn
á þessum árum ásamt syni sínum.
Yfirsmiður var Jón bóndi Sigfús-
son á Sörlastöðum, en honum til
aðstoðar Jón Mýrdal, er var þá
lausamaður á Illugastöðum, og
Jónatan Þórhallsson, Þórðarstöð-
um. Eins hjálpaði Tryggvi Gunn-
arsson við gerð pila kringum alt-
ari. Byggingakostnaður nam
871 r. og 88 s.
Merkastur muna kirkjunnar i
fyrstu var ræðustóll mjög liaglega
gerður frá 1683.
Hljóðfæri eignast kirkjan fyrst
1886 og var það minningargjöf.
Öðru sinni var kirkjunni fært
orgel að gjöf 3. jtiní 1955 er sr.
Sigtryggur Guðlaugsson frá Núpi
helgaði minningu fyrri konu
sinnar Ólafar Sigtryggsdóttur frá
Steinkirkju.
11. júní 1912 tók söfnuðurinn
formlega við kirkjunni. Kirkjan
hefur alla tíð verið vandað hús og
, söfnuði sínum til mikils sóma, svo
vel hefur liann séð um hana. Á
afliðnum vetri var tekið til við að
búa Itana undir afmælið. Var liún
máluð innan og rafnlögn sett í
hana. Aðal umsjónarmaður var
listamaðurinn Kristján Vigfússon
frá Litla-Árskógi.
í undirbúningsnefnd voru: Ing-
ólfur Hallsson og Lovísa Sigur-
björnsdóttir, Steinkirkju, Guð-
mundur Gunnarsson og Pálína
Magnúsdóttir, Reykjum, Helga
Gunnarsdóttir, Illugastöðum, og
•Ragnar Jónsson, Fjósatungu.
Gjafir til kirkjunnar bárust
margar þennan dag s. s.: Guð-
brandarbiblía, ljósprentuð. Biblía
í vönduðu skinnbandi. Kross, hag-
lega gerður. Vasar. Minningagjafa
bók. Þjónustubikarar. Ljós yfir
land (Hirðisbréf biskups). 2000
kr. til kaupa á Ijósi á ræðustól frá
Hálskirkju. Eins um 10.000.00 kr.
í peningum.
Kirkjan er nti hið veglegasta
liús, hlý og fögur.
10 prestar hafa þjónað við kirkj-
urnar á þessu tímabili, en lengst
sr. Ásmundur Gíslason, eða frá
1904-1936.
Núverandi prestur er sr. Sig-
Haukur Guðjónsson.
Sóknarnefndarinenn i Hálssókn
eru: Þórólfur Guðnason, Lundi,
form., Sigurður Davíðsson, Hró-
arstöðum, Valgerður Róbertsdótt-
ir, Sigríðarstöðum.
Meðhjálpari: Sigurður Davíðss.
Organisti: Halldór Sigurgeirs-
son, Arnarstapa.
Sóknarnéfndarmenn i llluga-
staðasókn eru: Ingólfur Hallsson,
Steinkirkju, form., Guðmundur
Gunnarsson, Reykjum, Helga
Gunriarsdóttir, lllugastöðum.
Meðhjálpari: Jónas Þórðarson,
Þórðarstöðum.
Organisti: Ragnar Jónsson,
Fjósatungu.