Dagur


Dagur - 14.09.1960, Qupperneq 6

Dagur - 14.09.1960, Qupperneq 6
6 GÚMMÍSTÍGVÉL, fyrir börn og fullorðna, (gamla verðið.) GÚMMÍSKÓR, með lieilum sólum, stærðir 23—47. SOKKAHLÍFAR, stærðir 27-47 STRIGASKÓR, öklaháir og lágir, stærðir 26—46. — Gott úrval. KARLMANNA SKÓHLÍFAR og BOMSUR JARÐÝTA CATERPILLAR D. 8 er til leig'u í smærri eða stærri verk. — Upplýsingar í síma 2209 eða 1644. VINNUVÉLAR S. F. Kjör á 27. þing A. S. I. IÐJa, félag verksmiðjufólks, Akureyri, auglýsir eftir listum varðandi kjör 6 aðalfulltrúa og 6 varafulltrúa á 27. þing A. S. í. Skal listunum 'skilað til kjörstjórnar fyrir kl. 12 þann 17. sept. á skrifstofu verkalýðsfélag- anna, Strandgötu 7. Listunum þarf að fylgja meðmæli 65 fullgildra félagsmanna. STJÓRN IÐJU. NÝJAR KÁPUR Haust- og vetrar-kápurnar eru komnar. Fjölbreytt úrval. - Verð frá kr. 1835.00 VERZLUN B. LAXDAL Skólaföt á börnin! DRENGJABUXUR PEYSUR SKYRTUR NÆRFÖT TELPUPEYSUR ÚLPUR, allar stærðir Gamla verðið. KLÆÐAVERZLUN SIG. GUÐM U NDSSO N AR H.F. Afgreiðslustúlka óskast sem fyrst. ANNA & FREYJA STRIGAPOKAR hentugir undir kartöflur. K AFFIBRENN SL A AKUREYRAR Afgreiðslustúlka óskast nú þegar. PÁLL SIGURGEIRSS. STRIGAPOKAR hentugir undir garðávexti VERÐ KR. 2.50. VÖRUHÚSIÐ H.F. GÚMMÍHRINGIR á niðursuðuglös. VÖRUHÚSIÐ H.F. LÖVE-HANDRIÐ Henta jafnt á TRÖPPUR, SVALIR °g GIRÐINGAR. Margar gerðir . Myndir og sýnishom fyrirliggjandi . Önnumst uppsetningu. Upplýsingar á Akureyri hjá TRYGGVA SÆMUNDSSYNI, múrarameistara, Ásvegi 25, sími 1569. ATVINNA! Okkur vantar srniði nú þegar. TRÉSMÍÐAVERKSTÆÐIÐ REYNÍR SÍMI 1082. KVÖLDVSNNA Ungur reglusamur maður óskar eftir vinnu á kvöldin. o o Margt kemur til greina. — Tilboð leggist inn í afgr. blaðsins merkt „Kvöldvinna“. AÐVÖRUN UM SKÓLASKYLDU 0. FL. Af gefnu tilefni viljum vér benda forráðamönnum ung- menna hér í skólahverfinu á ákvæði gildandi laga um skóla- skyldu allra barna og unglinga á aldrinum 7—15 ára, en þar er m. a. tekið fram, að heimilisfaðir skólaskylds barns beri ábyrgð á, að það hljóti lögmæta fræðslu og sæki lögskipuð próf, enda varðar það dagsektum, ef barn kemur að ástæðu- lausu ekld til innritunar í viðkomandi skóla, þegar það er skylt. Lögin gera þó ráð fyrir, að hægt sé að veita undanþágu frá skólaskyldu, þegar sérstaklega stendur á, en að sjálfsögðu verður þá að sækja um slíkar undanþágur til fræðsluráðs í tæka tíð og hlíta úrskurði þess, hvort umsóknin skuli tekin til greina eða ekki. Vegna unglinga þeirra, er eiga samkv. framangreindum ákvæðum að sækja unglingadeildir framhaldsskólanna hér næsta skólaár, en telja sig hafa ástæðu til að æskja undan- þágu frá þeirri skólaskyldu, höfum vér látið gera eyðublöð fyrir slíkar umsóknir, og munu þau liggja frammi til útfyll- ingar og undirskriftar hjá skólastjóra gagnfræðaskólans hér á þeim tímum, sem tilgreindir eru í auglýsingu hans um skrásetningu nýnema, og birtast mun í bæjarblöðunum sám- tímis aðvörun þessari. Þá viljum vér og í þessu sambandi benda atvinnurekend- um á þau ákvæði gildandi barnaverndarlaga, að stranglega, er bannað að ráða skólaskyld börn eða unglinga til vinnu, t. d. í verksmiðjum og á skipum, og mun þar þó einkum átt við þann árstíma, þegar skólarnir eru starfandi, enda hafi engin undanþága verið veitt frá skólaskyídu. Virðist því sjálfsagt, þegar vafi kann að leika á um þetta, að atvinnu- rekendur krefjist skriflegra heimilda fyrir undanþágunni frá réttum aðiljum, áður en ráðning fer fram. Vér teljum skylt að hlutast til um það með öllum tiltæk- um ráðum, að framangreindum ákvæðum laga um skóla- skyldu og barnavernd verði, nú og framvegis, framfylgt hér í skólahverfinu, ekki síður en tíðkast annars staðar á land- inu. Akureyri, 12. september 1960. FRÆÐSLURÁÐ AKUREYRAR. FRÁ GAGNFRÆÐASKÓLANUM Á AKUREYRI Að gefnu tilefni skal á það bent, að öll þau böx-n, er fulln- aðai-pi-ófi luku frá bamaskólunu má Akureyiá sl. vor, skulu skrásett til framhaldandi skyldunáms, og fer sú ski'ásetning fram á vegum gagnfræðaskólans hér, hvort sem börnin hafa í hyggju að ljúka skyldunámi sínu í þeim skóla eða annars staðar. Að þessu sinni fer skrásetning nýnema skv. ofan- sögðu fi'am í skrifstofu minni í skólahúsinu (sími 2398) dag- ana 14.—16. sept. n. k. (þ. e. miðvikud., fimmtud. og föstud.) kl. 4—7 síðdegis alla dagana. Nauðsynlegt er, að allir fyrr- greindir nemendur — eða fori’áðamenn þeirra — mæti á þessum tímum til viðtals. Sama gildir og um skólaskylda unglinga, sem kunna að hafa flutzt í bæinn á þessu ári, enda hafi þeir með sér skíi'teini sín um fullnaðarpróf í bax-naskóla. — Eldri nemendur, er óska að ráðgast við mig um fram- haldsnám sitt í G. A., eru hins vegar beðnir að hafa tal af mér á sama stað laugardaginn 17. sept. n. k., kl. 4—6 síðd. Samkvæmt auglýsingu fræðsluráðs, er væntanlega mun birt í bæjarblöðunum samtímis tilkynningu þessari, munu eyðublöð undir beiðnir um undanþágur frá skólaskyldu, þegar sérstaklega stendur á, liggja fi-ammi hjá mér á sama stað og tímum, er að ofan greinir, til útfyllingar og undir- skriftar forráðainanna þeirra unglinga, sem slíkrar undan- þágu kunna að óska, enda mun aðstoð veitt við útfyllingu þessara skilríkja, ef þess vei’ður óskað. Akureyri, 12. september 1960. JÓHANN FRÍMANN, skólastjóri.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.