Dagur - 17.09.1960, Side 1
f ' ; "
j Mái.<;a«:\ I-ramsóknarmanna
R rsrjÓRi: Eruncur Davíbsso.n
Skuíkstofa í Hai-narstk.th 90
SÍM| H6ö . Sktningo og prentun
annast I’kkn rvi.RK Oims
Bjóhnssonar H.t'. Akiírkvri
Augi.vmvgastjóri: Jón Sam-
ÚEX-SSON . ArCANGUKJÍ^I KOSTAR
KU. 100.00 . GjAt.DDAGt S 1* 1. ift.i
KE.MUR ÚT Á MlftVJKttDÖC-
VM or. Á I.AlT.ARhÖGU.M
l’F.GAR Ást'.KOA ÞYKIR Tll.
Hér liggur Þórunn þverbrotin í Miðbæjarurð. Landtakan er svo
ill, að heita má kraftaverk að bjargast í land í sjógangi. —
(Ljósmynd: Björgvin Jónsson.)
M.b. Þórunn strandaði við Hrísey
Gunnar Olafsson, er var einn á bátn-
um, bjargaði sér til lands á sundi
í notkun á Egilsstöðum
Bændur á Fljótsdalsliéraði rækta
bygg í 30-35 ha lands - Kornskurður
stendur yfir - Viðtal við S vein Jóns-
son kornræktarbónda á Egilsstöðum
Á tólfta tímanum á þriðju-
dagskvöldið strandaði mótor-
báturinn Þórunn, EA 565, frá
Akureyri við Hrísey og brotn-
aði í spón. Aðeins einn maður
var um borð, Gunnar Ólafsson,
sem er eigandi bátsins. Hann
svam í land og slapp með
skrámur, en varð annars ekki
meint af volkinu.
Þórunn kom frá Siglufirði og
Ólafsf. og var á leið til Akureyr-
ar, þegar þetta vildi til, og þar
urðu hásetar Gunnars eftir í
vertíðai'lokin. Þegar báturinn
kom inn með Hrísey, kom að
honum óstöðvandi leki, svo að
sjórinn fossaði inn. Gunnar ætl-
aði þá að komast inn að
bryggju í Hrísey, en komst það
ekki, og renndi bátnum upp í
fjöru norðan við Saltnes, þegar
hann sá að hverju stefndi, enda
ekki önnur ráð fyrir hendi. Veð-
ur var stillt, en nokkur sjór, og
brotnaði báturinn og er gjör-
ónýtur. Saltnes er lítið eitt
norðan við þorpið á vestan-
verðri eynni. Það eru klappir
að sjó og stórgrýtt fjaran.
Þórunn var 13 smálesta bát-
ur, og hét áður Björgvin, og var
þá í eigu Páls A. Pálssonar
hrefnuskyttu. — Eigendaskipti
urðu fyrir tveim árum. Bátur-
inn var gerður út á handfæra-
veiðar, og hrefnuveiðar með-
\ Fulltrúar hjá S. Þ. j
Hinn 20. sept. n.k. liefst í New
York 15. allsherjarþing Samein-
uðu þjóðanna. Fulltrúar íslands
á þinginu liafa verið skipaðir:
Thor Thors sendiherra, Kristján
Albertsson rithöfundur, Stefán
Pétursson þjóðskjalavörður,
Sigurður Bjarnason ritstjóri,
Þórarinn Þórarinsson ritstjóri,
Hannes Kjartansson aðalræðis-
maður.
(Frá utanríkisráðuneytinu.)
fram, og mun hafa komið með
7 hrefnur til lands í sumar og
sæmilegan fiskafla.
Talstöð, dýptarmæli og ein-
hverju fleiru var bjargað úr
bátnum á strandstaðnum.
Hríseyingar urðu ekki
strandsins varir eða vissu um
það fyrr en Gunnar kvaddi
dyra í Miðbæ, sjóblautur og
hrollkaldur.
í gær tók gildi nýtt verð á
landbúnaðarvörum. — Verðið
hækkar til muna, nema ný-
mjólk. Hækkunin stafar af því,
að ríkisstjórnin kippir að sér
hendi um niðurgreiðslur og
verðlagsgrundvöllurinn hefur
hækkað verulega, m. a. vegna
vextahækkunarinnar, söluskatt-
anna og svo þess, að allar
rekstrarvörur landbúnaðarins
hafa hækkað mjög vegna geng-
isbreytingarinnar. Hækkun á
verðlagsgrundvellinum er
7,55%.
TOGARINN
KYRRSETTUR
Á þriðjudagskvöldið kom
óstöðvandi leki að brezka
togaranum Lord Lloyds. —
Annar brezkur togari dró
hann til Seyðisfjarðar. Sá
heitir Wyre Mariner og er á
svörtum lista hjá íslenzku
Landhelgisgæzlunni frá 7.
júlí í sumar, en hann var þá
að veiðum út af Hvalbak, 8,3
sjómílur innan línu.
Landhelgisgæzlan lét kyrr-
setja landhelgisbrjótinn og
hefja réttarhöld, og stóðu
þau enn yfir í gær. Það var
Guðmundur Kærnested, sem
stjórnaði Rán er togarinn
var tekinn að ólöglegum veið
um, og sami maður sem nú
var ákærandi. — Togara-
skipstjórinn neitar landhelg-
isbrotinu og kveðst ekkert
muna frá deginum 7. júlí, og
að enginn á skipinu hafi orð-
ið var við Rán, eða að hún
hefði skotið rakettum yfir
þeim, ljóskúlum, í 3 klukku-
tíma, og notað alþjóðamors-
merki. — Talið var, að yfir-
heyrslunni lyki í gærkveldi,
en blaðið var þá farið í
pressuna.
Aðgætandi er, að verðhækk-
un landbúnaðarvara stafar ekki
að neinu leyti af hækkuðu
kaupi til bænda, heldur að öllu
leyti af ráðstöfunum ríkis-
stjórnarinnar.
Miklar hækkanir.
Súpukjöt hækkar úr 18.90 pr.
kg. í 22.00 krónur, rjómi úr kr.
39.45 í 41.40 pr. ltr., smjör
hækkar um kr. 1.20 kílóið, ost-
ur, 45%, um 7.40 í smásölu, svo
að dæmi séu nefnd af þessum
nýju verðhækkunum.
Klemens Kristjánsson til-
raunastjóri á Sámsstöðum í
Fljótshlíð hefur um áratugi
ræktað bygg, hafra og rúg með
góðum árangri og beitt sér fyrir
því að bændur tækju upp þessa
ræktun, sem eina grein búskap-
arins. Hann er mesti korn-
ræktarmaður landsins á þessari
öld. Löngum hefur verið litið
svo á, að hann talaði við dauf-
dumba í þessu efni, því að korn-
rækt hefur ekki breiðzt út eða
orðið almenn. Örfáir einstakl-
ingar hafa þó reynt byggrækt
og heppnast það, sumum ágæt-
lega. En þá hefur verkfæraleysi
hamlað ræktun í stærri stíl. Nú
er almennur áhugi að vakna
fyrir ræktun korntegunda.
Nú stendur kornskurðui' yfir
hjá kornyrkjubændum. Sveinn
Jónsson á Egilsstöðum mun
hafa stærstan kornakur í ár og
nýja sláttu- og þreskivél.
Blaðið lagði fyrir hann nokkr-
ar spurningar viðvíkjandi þess-
ari ræktun, og fara svör hans
efnislega hér á eftir.
Hvað mikið land hefurðu
undir korn í ár?
Um 17 hektara. Kornskurður-
inn stendur yfir, við ræktum
einungis bygg og studdumst við
tilraunir Klemensar á Sáms-
stöðum um tegundaval.
Hve mikil verður uppskeran?
Á að gizka 500 tunnur, eða
um 30 tunnur af hektara, og er
það feikna mikil uppskera, enda
var sumarið gott. En bygg
þroskast í kaldari sumrum, t. d.
náði það sæmilegum þroska
1958, en þá var kaldasta sumar
síðustu hálfa öld, samkvæmt
upplýsingum veðurstofunnar.
Rækta fleiri bygg á Fljóts-
dalshéraði?
Já, nú eru nokkuð margir
bændur byrjaðir, svo að akrar
munu samtals vera 30—35 hekt-
arar í héraðinu, og í sumar hef-
ur þetta gengið með ágætum.
En hér á Egilsstöðum hefur
verið ræktað bygg í fjögur ár.
Byggið er gott fóður eða fóður-
bætir og mikils um vert að geta
ræktað kornfóður í landinu í
stað þess að flytja það inn.
Hvernig reynast nýju tækin?
Nýkeypt kornskurðar- og
þreskivél, sem við keyptum hér
á Egilsstöðum í félagi við kaup-
félagið og Búnaðarsambandið
að einum þriðja hver, reynist
vel. Hún slær byggið og þreskir
það mun leið og sekkjar það. —
Tveir menn eru við þetta, ann-
ar stjórnar dráttarvélinni og
hinn skiptir um poka o. fl. —
Þessi vél hefur skilað um 60
pokum (50 kg.) á klukkustund.
Hvað verður svo gert við
þessa ágætu uppskeru?
Hluti af henni fer til útsæðis
hér heima og.annars staðar, svo
notum við kornið til fóðurs á
búinu, höfum rafmagnskorn-
myllu til að mala það, og avo er
enn óráðið hvað verður gert við
afganginn. Framleiðslukostnað-
ur er ekki mjög mikill. Fimm
hundruð tunnur af ágætlega
þroskuðu byggi eru mikils virði,
segir Sveinn Jónsson að lokum,
og manni vex það ekki lengur í
augum þótt kornskurðar- og
þreskivélin kostaði 100 þús. kr.
Blaðið þakkar fyrir þessi
svör stórbóndans á Egilsstöð-
um. Með nýjum tækjum, sem
Framhald á 2. siðu.
Nýja kornskurðarvélin á Egilsstöðum markar e. t. v. tímamót í íslenzkxi kornrækt. Hún leysir uppskeruvandamálið. (Ljósm.: G. K.).
I
Hækkunin stafar eingöngu af hækkuðu verði
rekstrarvara, vaxtaokrinu og söluskattinum
Landbúnaðarvörur hækka