Dagur


Dagur - 17.09.1960, Qupperneq 5

Dagur - 17.09.1960, Qupperneq 5
4 5 ER BÆJARSTJÓRNIN AÐ BLÁSA UPP? EKKI ER ÞAÐ FÁTÍTT, að sá stærri geti lært af þeim minni, þótt tilhneigingin beinist oft í hina áttina. Akureyringar eiga mörg þús. fjár á fjalli á hverju sumri, sennilega 7—8 þús. En haglendið er svo Iítið að féð þrífst ekki. En jafnframt því að fé fær ekki nægju sína í þröngum og of- settum sumarhögum, blæs landið upp vegna ofbeitar. Á þetta horfa menn ár eftir ár og hafast ekkert að. Bent hefur verið á, að annað hvort verði að fækka fénu og létta þannig á landinu eða bæta landið með framræslu og áburði. Ekki hefur verið tekið undir þær ábendingar. Fénu fjölgar, landið blæs upp, og þetta gerist við höfuð- stað Norðurlands. Benda má á til at- hugunar, að Húsvíkingar höfðu, og hafa enn, við nákvæmlega sama vandamál að stríða, hafa margt fé, en ekki tilsvarandi sumarhaga. En sá er munurinn, að þeir fóru að hugsa og ráðgera úrbætur, en af því virðast Akureyringar her um bil saklausir. Og ráðagerðirnar leiddu til þeirrar ákvörðunar, að nota tæknina í þjón- ustu bæjarins, fá sér áburðarflugvél og rækta beitilandið. Bæði nú í sum- ar og síðastliðið sumar var tilbúnum áburði dreift á landsvæði í nágrenni Húsavíkur úr flugvél. Áburðardreif- ingin í fyrrasumar þótti bera tilætl- aðan árangur. Því má svo bæta við, ag Húsvíkingar hyggja á miklu stærri framkvæmdir í þessa átt á næstu ár- um. Þótt ekkert skuli fullyrt um hvað borgar sig í þessu efni, enda engar hagfræðilegar niðurstöður fyrir hendi hér á landi til að byggja á, er á þetta minnt enn einu sinni, fjáreigendum, og þó fyrst og fremst bæjarstjórn, til umhugsunar. Akureyringar verða að sætta sig við, að djúpborinn mikli, sem loks er nú væntanlegur til landsins, e. t. v. í næsta mánuði, og sérstaklega er ætl- að verksvið á Norðurlandi, taki fyrst til starfa í Húsavíkurkaupstað. Eitt- hvert blað hefur sagt svo frá, að það sé vegna ákveðinna óska Húsvíkur- bæjar um að fá borinn, að hann verði látinn byrja þar. Það hefði verið fyllri frásögn að viðurkenna það hreinlega, að Húsavíkurkaupstaður hefur þegar látið fara fram allar nauðsynlegar undarbúningsrannsókn- ir þar eystra og liggja þær fyrir. — Það hefur Akureyrarkaupstaður aft- ur á móti ekki gert og verður að bíða. Hér hafa verið nefnd tvö glögg dæmi um meiri áhuga nágrannakaup- staðar, sem vel mættu örfa bæjaryfir- völdin okkar. Höfuðstaður Norður- lands er fjárhagslega vel stæður bær, atvinnuöryggi meira en víða annars staðar og almenn hagsæld mörg hin síðari ár. En forsjármenn bæjarins, sem eru velviljaðir borgarar, mega ekki sofna á verðinum þegar mikils- verð framfaramál bíða úrlausnar. Ný- ungar og framfarir í andlegum, sem vereldlegum efnum, verður að hag- nýta í málefnum höfuðstaðarins og sýna þeim a. m. k. ekki minni áhuga en þegar verðmætri lóð eða bitlingi er ráðstafað. Borgaramir gera miklar kröfur til bæjarfulltrúa sinna sinna í málefnum bæjarins. .GUÐNI SIGURÐSSON: Rjúpan og hann Haukur frændi Óvænt tíðindi Það þóttu mér óvænt tíðindi, er ritstjóri „Dags“ sagði mér, að grein væri í laugardagsblaðinu (9. apríl sl.) stíluð til mín frá Hauki Ingjaldssyni í Garðshorni i Kinn, og væri greinin um rjúpurta. Jæja. Heill og sæll, Haukur frændi, hugsaði eg. Það er gott, að fleiri en eg láti til sín heyra um mál þetta og hafi ef til vill einhver nýmæli í pokahorninu. Mættum við fá meira að heyra! Þú hefur mál þitt með því að drepa á grein mína í „Degi“ frá 28. febr. 1959 með svofelldum orðum: — „Þótt meira en ár sé Iiðið frá að greinin kom, vil eg biðja „Dag“ að flytja þér og öðr- um athugasemdir nokkrar um gátuna: — Hvernig stendur á því, að rjúpurnar okkar Islend- inga hverfa stöku sinnum svo mjög, að nokkur ár líða þar til þær ná aftur venjulegum fjölda?“ Við þessa „miklu gátu“ gerir þú enga athugasemd né svarar henni á nokkurn hátt í grein þinni, heldur rabbar létt fram og aftur um ýmis atriði, án frekari röksemda og raka. Þú varpar aðeins fram þessari spurningu, sem nú er svo alkunn orðin. Og það munu fleiri gera. Og beindi eg henni t. d. að þér, myndi eg varla þurfa svars að vænta úr þeirri átt. Og þá væri eftir sem áður „hvorki klippt né skorið". Þetta er mál sem mikið hefur verið deilt um á síðari árum, að- allega sökum þess, að hvarf rjúp- unnar hefur verið talið fara fram á einhvern dularfullan hátt. Ber því að sama brunni, hve lengi sem deilt verður frá því sjónar- miði. „Gátan mikla“ verður aldr- ei ráðin á þann hátt. Mun eg því aðeins ræða málið, eins og það lítur út frá mínum bæjardyrum. Og drjú bæjarleið mun reynast á milli skoðana okkar frænda á þeim vettvangi. Þú ert mér sammála um það, að rjúpan muni vera vel hraust á öllum aldri, en þó virðist þú fylla þann flokkinn, sem trúir á dular- fullt hvarf rjúpunnar. Virðist all- örðugt að samrýma þetta. Hverfi rjúpan á einhvern slíkan hátt, ætti því að valda einhver bráður sjúkdómur, sem grípur hana, er enginn þekkir né veit hvers kyns er. Virðist hætt við, að sjúkdóm- ur þessi sæki frekar á mann- skepnuna sjálfa en rjúpuna, eins og galdratrúin áður fyrri. Eg trúi ekki á þessa dularfullu kenningu, sem samrýmist svo illa sjálfum veruleikanum og sneiðir algerlega fram hjá staðreyndum. Mín trú og lífsreynsla er sú, að það sé algerlega tíðaríarið og „sveiflur þess“, sem ráða örlög- um rjúpunnar, lífi hennar og dauða. Á víð og dreif. Þú virðist efa mjög kenning- una um „tiu ára sveiflur“ í rjúpnastofninum og telur henni vart reystandi. Hún gæti vel ver- ið tilviljun ein. Meðal annars til- færir þú ummæli úr fyrrgreindri grein minni, sem ekki eru að öllu leyti rétt eftir mér höfð. Tel eg því þörf á að endurtaka kafla úr fyrri grein minni, svo að bæði þú og aðrir geti þar séð, hvað fyrir mér vakir, og þar er sagt. Er kafl sá á þessa lund: „.... Dr. Finnur minnist á það við blaðamanninn, (sjá „Tímann“ 6. nóv. ’58), að nú séu liðin tíu ár síðan rjúpnaleysis- árið gekk hér siðast yfir. Og að vissu marki má taka það trúan- legt. En þó eru ekki nema átta ár siðan rjúpan féll í hrönnum, þús- undum saman. Þetta skeði vetur- inn 1950—1951. Þessi vetur gekk mjög snemma að með látlausum norðaustan hríðum. Snjó hlóð niður svo brátt, að til vandræða horfði með allar samgöngur. Fréttir tóku að berast um, að hreindýr væru tekin að falla (á Fljótsdals- héraði), þar eð þau næðu hvergi til jarðar. Refir gengu hér um götur bæjarins að leita sér ætis. Rjúpan var horfin. Og hvað var þá orðið af henni? Við skulum í stuttu máli at- huga þær fréttir, sem þá tóku að berast af rjúpunni og örlögum hennar. Ein fréttin var sú, að eft- ir látlausa stórhríð í heila viku urðu menn í Reyðarfirði þess varir, að komin var rjúpa þar í hliðarbrekkur, og jafnvel heim að húsum og bæjum. Og samtím- is kom önnur frétt að austan, að skip, sem kom af hafi, hefði siglt gegnum breiða röst af dauðum rjúpum. (Eg segi hvergi að skip- ið hafi siglt inn á Reyðarfjörð.) Þessar fréttir þurfa engrar skýringar við. Rjúpuna hrakti undan hriðinni. Sumir hóparnir gátu stöðvað sig á landi, en aðra hrakti á haf út.*) Ókleift mun að segja með nokkurri vissu, hve mikið féll af rjúpunni þennan vetur. Einnig má minnast á síðastlið- inn vetur (1957—1958). Hann lagðist óvenju snemma að með hriðum, og í nóvember var mjög viða búið að taka allar skepnur á gjöf, og fóru þær ekki úr húsi fyrr en komið var fram á vor. Bati kom aldrei allan veturinn, og má hann því teljast með þeim hörðustu, sem komið hafa um langa hrið. ..." Þannig er þá þessi kafli fyrri greinar minnar. Og við nánari at- hugun myndir þú aldrei hafa tal- ið það „sjómannasögu“ eina um rjúpnarekið á hafinu fyrir aust- an. Og engin sönnun er það, þótt rjúpur sem hrekjast á haf út und- an norðanhríðum, reki ekki á íjörur við Skjálfandailóa! Þó virðist þú ekki telja ósann- indi, að hreindýr hafi fallið úr hungri þennan vetur, og er þó ólíku saman að jafna. Hreindýrin stór og sterk með stálharðar klaufnabrúnir, sem geta barið upp allt að því metra djúpt harð- fenni og náð til jarðar, en rjúpan litla, sem aðeins vegur pund, get- ur aðeins krafsað mjög þunnt snjólag, og verður því oft fegin að skjótast „í skafrenningi skjótt í krafsturinn" hjá sauðfénu. Heldur þú ekki að harðna hafi tekið á dalinn hjá rjúpunni, þeg- ar svo hart svarf að hreindýrum, og fénaður allur á gjöf! Eg rengi ekki svona „sjómannasögu", enda munu fleiri af því tagi. Og eigi er „blessuð rjúpan hvíta“ yfirleitt jafnheppin og sá litli hópur, sem náði fótfestu í Vestmannaeyjum veturinn 1937, er hann hrakti undan norðanhríðinni. Sauðkindin og rjúpan. í grein sinni segir Haukur frændi m. a. — „Þú talar, Guðni, um sauðkindina og spyrð, á hverju rjúpan eigi að lifa, þegar jarðlaust er fyrir sauðfé?" Þessu *) Þetta mun ekkert einsdæmi á Suðurlandi, fyrr og siðar, því að rjúpnahópar hafa algerlega horfið eftir látlaus ofviðri dög- um saman. svarar Haukur þannig, að „kind- in sé staðbundin, þegar ófærð er, en rjúpan ekki.“ En mín ákveðna skoðun er sú, að þegar ekki er hægt að láta út sauðfé sökum ófærðar og hagleysis, þá muni og sama gilda fyrir rjúpuna, að hvorki kind né rjúpa geti bjargað sér. Og sú varð líka raunin með rjúpuna þennan vetur. Um haustið 1957 stóð þannig á, að rjúpan stóð á hátindi fjölg- unar sinnar, og gekk þá í garð „tíu ára áætlunin“ viðkunna. En allur veturinn -1957—1958 var með afbrigðum harður. Eg geri mér í hugarlund, að þá muni hafa verið a. m. k. um hálf milljón rjúpna í landinu þetta haust. En hvað heldur þú, að all- ur þessi fjöldi þurfi mikið fóður á dag, ef hver rjúpa þarf 100 grömm til að halda sæmilegu lífi. Mér virðist fara vel á því, að þú ráðir gátuna sjálfur, þar sem þú segir, að rjúpan sé hraust á öll- um aldri, og er það satt og rétt, en jafnframt því trúir þú samt, að hún hverfi á einhvern dular- fullan hátt. En þegar þú hefur nú reiknað út, hve mikið fóður hálf milljón rjúpna muni þurfa á dag með 100 gr. dagskammti hverrar rjúpu, mun þér verða ljóst, að þeim muni ekki nægja „smá víði- kvistir", sem þær geti slitið upp úr gaddinum hingað og þangað. Og þá ættirðu einnig að fara nærri um, hver afdrif rjúpunnar hafi orðið þennan vetur. Svar við fullyrðingu. Hið eina sem þú, Haukur frændi, raunverulega fullyrðir í grein þinni, og svara þarf sér- staklega, er sú staðhæfing þín, að rjúpan horfalli alls ekki, og hyggst rökstyðja fullyrðingu þina með þessum orðum „Ef rjúpur horfella verulega, þá myndu þær bera beinin í sauðfjárhögum okk- ar bændanna, þar með talið skóg- ar- og birkikjarr." Mig furðar hve orðdjarfur þú ert í þessari fullyrðingu þinni, og erfitt mun þér reynast að færa haldkvæm rök og sannanir fyrir henni. Þessu er að vísu svarað bæði beint og óbeint hér að framan, en þó skal þessu bætt hér við: Það er auðvelt að færa gild rök og sannanir fyrir því, að rjúpur falli í hrönnum, er harðir vetur ganga yfir. Tökum t. d. vet- urinn 1918, sem var sá langharð- asti, er komið hefur á minni ævi. Þá féll rjúpan svo um allt Suður- og Vesturland, að eftir hafa lifað aðeins fáar rjúpur um vorið, og í Skaftafellssýslu mun hafa verið gereyðing rjúpna að frásögn nú- lifandi manna og skráðum gögn- um. Eg átti þá heima á Reynivöll- um í Kjós. Þegar snjóa leysti um vorið, gaf heldur á að líta, er við fórum að smala til rúnings. Uppi á hálendinu fundum við aðeins tvær rjúpur á lífi, en dauðar rjúpur út um allar heiðar. Svona hefur þetta gengið um aldaraðir, að eldgos og harðindi hafa nær gereytt rjúpnastofnin- um. En Guð leggur alltaf líkn með þraut, svo að stofninn ger- eyðist aldrei til fulls, þótt fátt sé stundum eftir. — Það mun reyn- ast ókleift að afsanna rök og reynslu sannorðra manna á þess- um vettvangi. Hér með er í rauninni svarað og margsvarað öllu því, er þú drepur á í grein þinni, Haukur frændi, og einnig spurningu þinni í upphafi máls. Rjúpnafell- ir og fjárfellir hlíta sömu lögum. Þú átt t. d. 400 ær á fóðrum og Framhald á 7. síðu. Snaran bjargaði Svo bar við hjá fyrirtæki einu hér í bæ, að undarleg hljóð heyrðust í loftræstingar- röri einu háu og lóðréttu. Þótt- ust menn kenna þar hið aumk- unarverðasta kattarkjökur. — Ekki var hægt um vik að kom- ast þar að, sem þurfti, og var lögreglan beðin aðstoðar. Henni tókst að koma snöru niður rör- ið, snara köttinn og draga hann upp, og v.arð hann frelsinu feg- inn. Talið er, að kötturinn muni ekki af sjálfsdáðum hafa lent í þessari sjálfheldu. Til vina minna 4. nóvember þ. á. verð eg 80 ára. Á þessum tímamótum vil eg: a) þakka af heilum hug alla vinsemd og velvilja, sem eg hef notið. b) Óska vinum og kunningj- um, konum og köi'lum, að þeim farnist vel og gæfan fylgi þeim. c) Afbiðja gjafir og hvers konar umstang í tilefni af afmæl inu. V irðingarfyllst. Hofi, 14. september 1960. Hannes Davíðsson. Ilorft út um gluggann á Syðri-Brckkunni. EF AÐ EG væri vel ritfær skildi eg skrifa langa blaðagrein um hið dásamlega útsýni hér á Akureyri. Þó hrífur Vaðlaheiði mig mest með sínum marg- breytileik. Hún er eiginlega aldrei eins, stundum sýnist hún miklu hærri en hún er, stund- um virðist hún svo lág og flöt. Þetta fer eftir sólfari og veðr- áttu. Þó líkist hún mest ævin- týralandi í tunglsljósi á vet- urna, þegar hún er í klaka- hjúpi. En eg ætlaði nú ekki að þessu sinni að skrifa langt mál um Akureyrarpoll, Vaðlaheiði, Vaðlaskóg eða Vaðlatún, sem nú ná sums staðar upp í miðjar hliðar og nærri óslitið frá Syðri- Varðgjá og út að Geldingsá. Eg var sem oftar að líta út um gluggann minn og dást að útsýninu. Sé eg þá hvar Þura í Garði er að hamast við að slíta upp njóla í Bretarústunum á Barðstúninu og bera í stóran bing. í rústunum hafði sem sé myndast gróðrarstöð fyrir njóla, ekki þó nema sýnishorn á móti því njólahafi, sem dafnar í næði, t. d. í Spítalagörðunum, á óbyggða svæðinu á móti Norðurpólnum, eða jafnvel í Barðsgili, svo að aðeins örfáir staðir séu nefndir. Það fyrsta, sem mér flaug í hug, þegar eg horfði á Þuru, var að hlaupa til hennar og hjálpa henni, en eg áttaði mig brátt. Hún virðist ekki hafa verið mjög hrifin af karlmönnum, og ekki ' einu sinni á sínum yngri árum. „Og sjaldan er á botninum betra,“ kvað hún um sjálfa sig, þegar hún var um fimmtugt. Bezt að ónáða hana ekki, hugsaði eg, enda hef eg aldrei verið hrifinn af þessum piparjómfrúm, þó að margt gott megi um þær sumar segja. En viðurkenningu á Þura skilið að fá fyrir sjálfboðastarf- Nýjar Kvöldvökur. Tíma- rit um ættvísi og þjóðleg fræði. Ritstjórar: Einar Bjarnason, Gísli Jónsson, Jón Gíslason og Jónas Rafnar. Nýjar Kvöldvökur hafa nú komið út meira en hálfa öld og hafa löngum verið vinsælt skemmtirit, jafnframt því sem þær hafa látið sig bókmenntir nokkru skipta. Bókmenntaþætt- ir séra Jónasar á Hrafnagili vöktu mikla athygli á fyrstu árum þessa tímarits, og í því hafa birzt sígildar skáldsögur í góðum þýðingum, auk margvís- legs fróðleiks, og mætti taka þar til dæmis Fnjóskdælasögu Siguðar Bjarnasonar. Þegar útgáfa skemmtirita, sem höfðu svipaðan tilgang, tók að aukast mjög á seinni árum, var horfið að því ráði að gera Nýjar Kvöldvökur að tímariti um ættvísi og þjóðleg fræði, án þess þó að sleppa með öllu fyrri verkefnum. Er þetta svo harla góð og þörf umbreyting á tímaritinu, að mér þykir ástæða til að vekja athygli á. íslendingar hafa þótt hneigð- ir fyrir ættvísi mörgum þjóðum framar, en þó hefur nú í seinni tíð ekkert tímarit verið til, sem helgað hefur verið þessum fræð um eingöngu, eins og tíðkast með nágrannaþjóðum vorum. ið, það er til fyrirmyndar, og þá hnoðaði eg saman þessari vísu: Hatar njóla, heggur njóla, að hlífa njóla það er synd. Eltir njóla út um hóla, að eyða njóla er fyrirmynd. Nú liðu allt að 10 dagar og njólinn lá í bing í rústunum, mér varð að vanda litið út um gluggann, það var norðan gola. Þá sé eg að reyk mikinn leggur upp úr Bretarústunum á Barðs- túninu. Þar er Þura í Garði að verki. Hún ber hverja njólaföt- una á eftir annarri á bálið, þá varð mér að orði: Kyndir bál á Barði, blossar njóla eldur. Það er Þura í garði, sem þessa útför heldur. Það er ekki nóg að minnast á þetta með léttúð eins og mér hefur orðið á að gera, tilgangur minn með þessum línum er að koma tillögu Þuru á framfæri. Hennar skoðun er sú, að njólinn verði seint yfirunninn hér í bæ eins og ástandið er orðið nú, nema hver lóðareigandi fylgi hennar fordæmi og uppræti njólann í sínu nágrenni. Af eigin reynslu get eg bætt því við, að ef einn einasti njóli nær að festa rætur og fella fræ við lóðargirðinguna hjá ykkur, þá vitið þið hvað til ykkar frið- ar heyrir. — Brekkubúi. Þegar staður fær óorð á sig. FÉLAGSHEIMILIN eru nú á hættulegum tímamótum í áliti almennings. Þau eru flest hin myndarlegustu, og svo vel búin að öllu leyti, að þau geta verið hin ánægjulegasta miðstöð menningar- og skemmtanalífs, hvert á sínum stað, og eru það, sem betur fer. En í munni margra bæjarbúa og yfirleitt þeirra, sem af sögusögnum eða Jón Pétursson háyfirdómari gaf út ættfræðilegt tímarit á árun- um 1869—73, þar sem m. a. voru raktar ættir allra alþingis- manna og athygli vakin á ýms- um ættfræðilegum vandamál- um. Þetta tímarit er nú í dag geysilega eftirsótt af bókasafn- endum og talið með dýrindis- bókum, og mætti eins fara, er tímar líða, að.þeir sem gerðust nú áskrifendur að Nýjum Kvöldvökum og héldu þeim saman, þættust góðu bættari. Fer því fjarri, að hér sé um ein- tómar ættartölur að ræða. Meg- inmál ritsins hefur inni að halda skemmtilega og fróðlega ævisöguþætti, myndum prýdda. Þau hefti, sem komið hafa út af Nýjum Kvöldvökum síðan þessi breyting var gerð, hafa verið fjölbreytt að efni og skemmtileg, auk hins margvís- lega fróðleiks, sem þau hafa að geyma. Er óhætt að sjá vel fyrir framhaldinu, meðan menn eins og Jónas Rafnar, fyrrum yfir- læknir og ritstjóri hins stór- merka þjóðfræðasafns Grímu, er í ritstjórninni, og Einar Bjarnason endurskoðandi, sem nú mun vera einhver ættfróð- asti íslendingur, eftir að Hann- es Þorsteinsson leið. Er nú að birtast í ritinu mjög merkileg ritger ðeftir hann, sem nefnist: íslenzkir ættstuðlar, en það er miðlungsvelvild til þessara stofnana, eru félagsheimilin hinir verstu drabbstaðir og sam komurnar ofurseldar drykkju- skap og öðrum ósóma. En sögur af ölæði manna og ólátum þeirra, eru munntamar. Engum sögum fer af prúðmannlegri framkomu eða ágætum sam- komum. En undantekningar frá prúðmennskunni eru alltof margar, svo margar, að heiðri félagsheimilanna er nokkur hætta búin. Hinn góði vilji og ótrúlegur dugnaður við að byggja félags- heimilin, endist ekki nægilega vel við reksturinn. Mörg félög standa oftast að þessum stofn- unum. Þegar ein samkoma gengur vel í hvívetna, sækja sparnaðarhugsjónir fast að því félagi, sem næst heldur þar samkomu. Sá sparnaður kemur oft fram í slælegu eftirliti, bæði úti og inni, án nánari tilgrein- ingar. Hið stranga eftirlit með að ákveðnum reglum hússns sé fylgt, hefur víða brostið að nokkru og þar með er ósóman- um boðið heim. Á þá staði flykkjast óreglumenn og vand- ræðapiltar, og þeim' er hleypt inn. Inngangseyririnn þeirra er of dýru verði keyptur. Félagsheimilin eru menning- armiðstöðvar og hin dýrmæt- asta eign sveitanna. En glæsi- leiki þeirra megnar ekki að halda þeim hreinum, svo sem margir trúðu á. Þótt erfitt sé að byggja þau, er enn erfiðara að reka þau sómasamleag, gildir það bæði um fjárhagsafkomu og í menningarlegu tilliti. Sú staðreynd er sorgleg, að byggja þarf fangageymslu við hvert einasta féálagsheimili til trygg- ingar lífi og limum amennra samkomugesta, en það er þó enn augljósari staðreynd, að forráðamenn félagsheimila verða að gera sameiginlegt og öflugt átak til að halda uppi heiðri þeirra að fullu. rannsókn ýmissa miðaldaætta. Eg óska Nýjum Kvöldvökum langra lífdaga. Þetta er tímarit, sem enginn fræðimaður má láta sig vanta. Benjamín Kristjánsson. Menn og minjar. íslenzk- ur fróðleikur og skemmt- un IX: Bernskuminning- ar Kristins á Núpi. Finn- ur Sigmundsson bjó til prentunar. — Reykjavík 1960. Þeir bræðurnir Kristinn Guð- laugsson á Núpi og séra Sig- tryggur bróðir hans urðu báðir þjóðkunnir menn, annar sem forystumaður í búnaðarfram- kvæmdum og málefnum sveit- ar sinnar, en hinn sem prestur og skólastjóri. Gáfur þeirra voru staðgóðar og farsælar og mannkostir slíkir, að öllum sem kynntust þeim, fannst til um, enda unnu þeir mikið og þjóð- nýtt ævistarf. Nú eru komnar út Bernsku- minningar Kristins, ritaðar af honum sjálfum, og segir þar frá æsku hans og uppvexti í Eyja- firði. Þetta er hugðnæm bók fyrir margra hluta sakii'. Fyrst og fremst er það í-aunsönn sveitarlífslýsing úr Eyjafirði fi'á seinni hluta 19. aldai', þegar líf manna og hugsunai'háttur var í allt öðrum skorðum en nú. Er þar greint frá vinnubi'ögð- um og heimilisháttum, sam- kvæmislífi og andlegum hrær- ingum, mönnum og málefnum, sem höfundurinn kemst í snert- ingu við á æskuárum sínum. En jafnfi-amt er þetta andleg saga hans sjálfs, óvenjugáfaðs di-engs með brennandi mennta- löngun og menningarviðleitni á tímum, þegar fjárhagur manna var almennt þröngur og skóla- ganga þótti eftii-sóknai'verð. — Kemst útgefandinn þannig að oi'ði í foi-mála: „Kristinn ólst upp á menn- ingarheimili, þó að afskekkt væi'i og ekki auðugt að verald- legum verðmætúm. Þeir Þram- arbræður, hann og Sigtryggur, síðar prestur og skólastjóri að Núpi, voru á ungaaldri ásamt föður sínum foi'göngumenn ým- issar menningarviðleitni í sveit sinni og líklegir til að hafa mik- il og heillavænleg áhrif á sögu héraðsins, ef það hefði fengið að njóta ævistarfs þeirra. En at- vikin höguðu því á annan veg. Foreldrar þeiri'a féllu frá á góð- um aldri, og heimilið leystist upp. Sigtryggur fór í Lærða- skólann og vai'ð pi'estur. Krist- inn lauk búfræðinámi á Hólum og gei'ðist bóndi. Leiðir þeirra lágu aftur saman á Núpi í Dýra- fii'ði. Annar varð foi'ystumaður í uppeldismálum, hinn í búnað- ai'fi'amkvæmdum. Samvinna þeirra og þátttaka langa ævi í menningarmálum Vestfjarða vai'ð giftudrjúg og verður sú saga væntanlega skráð á sínum tíma.“ í Bernskuminningum Ki'ist- ins koma margir Eyfii'ðingar til sögunnai', sem nú eru komnir undir gi-æna toi'fu. Bókin er skrifuð á látlausu og blæfögru máli, svo að unun er að lesa, en dómar höfundarins hógværir og góðmannlegir bera honum sjálf- um bezt vitni, hvílíkt valmenni hann hefur verið. Ég er viss um að Eyfirðing- um og mörgum fleiri þykir verulegur fengur að þessari bók. Frá henni andar hlýju til bei'nskustöðvanna. Yfir henni er ferskleikur og heiðríkja. — Ungir jafnt sem aldnir geta haft ánægju af að lesa. Benjamín Kristjánsson. Grau gærurnar Svo sem áður segir í fréttum, hafa gráar dilkagæi'ur vei'ið í háu verði í Svíþjóð síðustu 10 áxin. Þær eru notaðar þar í kápur og fleira, og þessi 10 ára reynsla er ekki stundar-tízku- íyrii'bi'igið heldur staði-eynd. — Og enn eru gráar gærur í helm- ingi hærra verði en hvítar og vel það, miðað við sölu þar í landi. Di'. Halldór Pálsson ráðu- nautur hefur í sumar ritað grein um þessa sölu og enn- fremur hvernig bændur geta framleitt grá lömb, án þess að auka mjög tölu gi'áu ánna. — Gráu gærurnar þurfa að vera giáar eða gi'ábláar inn að skinni. Lömbin þurfa að vera blágrá og án hvítra flikra í síð- um. Sumar Ijósgx'áar gærur geta verið vei'ðmiklar, ef nægi- legt er af svörtum hárum eða dökkum inn við skinnið. Síðari hlutinn af grein Halldói's Páls- sonar fer hér á eftir: „Síðan 1951 hefur Búnaðar- deild Atvinnudeildar Háskól- ans unnið að rannsóknum á því, hvemig sauðai'litir erfast með tilraunum, á Hesti og nú upp á síðkastið einnig víðar. — Síðustu árin liefur Stefán Aðal- steinsson tekið þetta verkefni að sér og beitir hann sér nú einkum að því að í'annsaka hvernig grái liturinn erfist. Nú þegar hefur ýmislegt mai'kvert komið í ljós um litar- ei'fðirnai', en margt er enn að meii-a eða minna leyti á huldu. Mun Stefán Aðalsteinsson í'ita vísindalega grein um málið, þegar rannsóknirnar eru nógu langt komnar að hans dómi til þess. Þótt bændur vei'ði að bíða eftir ritgerð þeirri, til þess að fá nákvæma skýi'ingu á því, hvei'nig grái liturinn og aðrir sauðarlitir erfast, þá þykir rétt að benda þegar á örfá atriði, sem rannsóknirnar benda ein- dregið á, sem auðveldað geta bændum að auka framleiðslu grárra lamba. Grái liturinn er víkjandi fyr- ir hvítum lit, en ríkjandi yfir svörtum. Þess vegna geta hvít- ar kindur gengið með dulinn ei'fðavísi fyi'ir gráum lit, en svai'tar kindur hafa engan eig- inleika fyi'ir gráum lit. Af þeiri'i ástæðu fæðist aldrei grátt lamb undan tveimur svörtum foreldrum. Þar eð svarti liturinn er ríkjandi fyrir gráum lit, þá fæðast oft svört lömb undan tveimur gráum for- eldi'um, en þá eru bæði foi'eldr- in ax'fblendin hvað litinn varð- ar, þ. e. ganga bæði með dulinn eiginleika fyrir svörtum lit, þótt þau séu sjálf grá. Fjölda margar gráar kindur eru arf- blendingar, þ. e. ganga með dul- inn erfðavísi fyrir svöitum lit. Hver sú grá kind, sem hefur eignast svart afkvæmi, gengur með dulinn erfðavísi fyrir svörtu. Kind, sem er arfhrein með tilliti til gráa litai'ins, er dýiinæt, sérstaklega hrútur. Slík kind eignast aldrei svart lamb. Hvít kind undan arfhreinu, eru verðmiklar gráu foreldi'i og hvítu, gengur ætíð með dulinn ei-fðavísi fyi'ir gráum lit, en hvít kind undan öðru foi'eldri gi'áu með dulinn erfðavísi fyrir svörtu, og hinu foreldrinu hvítu, gengur annað hvort með dulinn erfðavísi fyr- ir svörtu eða gráu. Vegna þessa er nauðsynlegt að í'annsaka hvort gráir hrútar, sem nota á, eru arfhreinir með tilliti til gráa litarins eða ekki og einnig, hvítir hrútar af gráu kyni, t. d. undan öðru foreldi'inu gi'áu, ganga með dulin ei'fðavísi fyrir gráum lit eða svöi'tum. Þetta er auðvelt að gei'a ef viðkomandi bóndi á nokkrar svartar ær, helzt 5 eða fleiri. Tökum dæmi: Sé grár hi'útur notaður handa 5 eða fleiri svörtum ám, og ekk- ert larnbið verður svart, er nokkui'n veginn víst, að hi'útur- inn er ai'fhreinn grár. Þótt eitt- hvert lambið verði grámórautt, sem vel gæti oi'ðið, þá osakast það af því, að foreldrarnir ganga með dulinn ei-fðavísi fyi'- ir mói-auða litnum, en sá litur er ríkjandi fyrir svörtu. Sé hvítur hrútur undan gráu foreldri og hvítu, notaður á svartar ær, 5 eða fleii'i, verða sum lömbin hvít en hin mislit. Gangi hrúturinn með dulinn erfðavísi fyrir gráu, þá verða mislitu lömbin undan honum og svörtu ánum öll grá eða mó- raúð. Með öðrum oi'ðum, ef undan hvítum hrút og svai'tri á fæðist svart larnb, þá gengur hrútui'inn ekki með crfðavísi fyrir gráu, enda þótt grá lömb kynnu að fæðast undan honum og hvítum ám eða gi'áum. í slíkum tilfellum kæmi grái eig- inleikinn frá móðurinni, en ekki föðurnum. Grár litur kemur aldrei fi-am nema mislitur eiginleiki, dulinn eða augljós, sé í báðum foreldr- um og grár a. m. k. í öðru þeirra. Nú er meii'i hluti hvíta fjái'ins, a. m. k. hjá öllurn þoiTa bænda, arfhreint hvítt, þ. e. hefur engan dulinn eiginleika fyrir mislitu. Sé hvítur hrútur með dulinn erfðavísi fyrir gráum lit notað- ur á arfhreinar hvítar ær, þá verða öll lömbin hvít, en annað hvort þeii-ra gengur með dulinn erfðavísi fyrir gi'áu. Er því auð- veldast að koma gi'áa litnum í fjái'stofninn með því að nota arfhreina gráa hrúta, en þar næst með því að nota hvíta hrúta, sem sannast hefur að gangi með dulinn erfðavísi fyr- ir gráum lit. Sé notaður grár hrútur, sem gengur með dulinn exfðavísi fyrir svörtum lit — er t. d. undan öðru foreldrinu svörtu — handa ai'fhreinum hvitum ám, þá verða öll lömbin hvít, en annað hvort þeirra gengur með dulinn erfðavísi fyrir grá- um lit, en hin með dulinn erfða- vísi fyrir svörtum lit. Notkun slíkra hrúta eykur því svarta litinn jafnmikið og gi’áa litinn. Við val hrúta, til þess að auka fi-amleiðslu grári'a lamba, þarf að taka tillit til framangreindra Framhald á 7. siðu.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.