Dagur - 12.10.1960, Síða 7
7
Síldarmerkingar á Pollinum
Framhald af 8. siðu.
byssuhlaupinu er beint að
hægri hlið síldarinnar, rétt aft-
an við kviðugga og stungið á
ská inn í kviðarholið, og um
leið tekið í gikkinn og síldar-
merkið rennur í skurðinn og *
hverfur, þá er síldinni gefið
frelsi á ný og hverfur hún þeg-
ar skáhoht niður í djúpið. —
Merkin endurheimtast svo í
síldarverksmiðjunum, þar sem
sterkur segull dregur þau til
sín um ieið og síldin er unnin.
Og fyrir kemur, að þau glamra
við tönn austur í Moskvu, og er
ekki öllum rennt niður, því að
árlega koma nokkur merki
þaðan, þangað komin í ís-
lenzkri síld.
Óboðnir gestir.
Þegar merking hafði staðið
litla stund, komu óboðnir gest-
ir, þyrsklingar, sem þegar lögðu
til atögu við hina nýmerktu
síd, sem er e. t. v. svolítið dös-
uð eftir meðferðina. Þá var það
ráð tekið, að setja merktu síld-
ina á netpoka til þess að verja
hana vargakjafti, og svo sleppt
að verki ioknu eins og fjárhóp
úr rétt. Þeirri athöfn fylgdu
heillaóskir um góðan bata og
gott gengi og gleðilega endur-
fundi.
Síldin, sem merkt var, var 18
—22 sm. að lengd, eða af milli-
síldarstærð. Hún er á þriðja
aldursárinu, segir fiskifræðing-
urinn og eitthvað af henni mun
væntanlega veiðast eftir tvö ár
og síðar. Hér í Eyjafirði dvelur
síld af þessari stærð ekki öllu
lengur, en enn er fátt vitað um
ferðir hennar, því að síldin,
sem hér var merkt í fyrra, hef-
ur enn ekki veiðzt öðru sinni,
en mætti búast við að eitthvað
komi til skila á næsta sumri.
Mikil uppeldisstöð.
Aðalhrygningarstöðvar ís-
lenzku síldarstofnanna tveggja,
vorgotssíldarinnar og sumar-
gotssíldarinnar, er við Suður-
land, allt frá Hornafirði að
Snæfellsnesi. Síldin hefur þó
hrygnt miklu víðar kringum
land, en ekki í stórum stíl.
Síldin hér á Pollinum og inn-
anverðum Eyjafirði er ættuð að
sunnan, berst með Golfstraumn
um hingað norður og elzt svo
upp hér, þar til hún hefur náð
millisíldarstærð, og hverfur. —
Eyjafjörður er mikil uppeldis-
stöð, sennilega sú mesta á Norð-
urlandi. Enginn veit ennþá
hvaða þýðingu þessi staður hef-
ur fyrir síldarstofninn í heild.
En óskynsamlegt virðist að ausa
upp ungviðunum til bræðslu, til
þess eru þau of lélegt hráefni,
þótt þau séu mjög verðmæt til
niðursuðu.
Jakob Jakobsson telur síldar-
merkingar hér á Eyjafirði, átu-
og hitarannsóknir, hinar mik-
ilvægustu til fróðleiks um lífs-
feril íslenzku síldarinnar. Hann
er mjög ánægður yfir hinni
ágætu fyrirgreiðsu Akureyr-
inga, sérstaklega Kristjáns
Jónssonar og manna hans, og
þykir gott hér að vinna í kyrr-
um sjó og veðurblíðu við rann-
sóknarstörf sín.
Jakob Jakobsson fiskifræð-
ingur hefur mikla tiltrú sjó-
manna. Þess vegna er hann
hinn mesti aufúsugestur og von
andi bera störf hans góðan
ávöxt og hagnýtan árangur í
sambandi við hina miklu síld-
aruppeldisstöð í Eyjafirði. Að
síðustu þakka eg fyrir ánægju-
legan dag og fróðleik allan, sem
hér hefur lítilega verið endur-
sagður. — E. D.
Heima er bezt
Októberheftið birtir kápu-
mynd af Bjarna Jónssyni frá
Galtafelli og grein um hann eft-
ir Árna Óla, Rósberg G. Snæ-
dal skrifar Tuttugu ára gamla
túristaþætti, Snorri Sigfússon
um tíkina Frigg, Einar Gutt-
omsson frá Ósi rifjar upp
minningar frá námsárum sínum
i Prentsmiðju Odds Björnsson-
ar 1904—197 og Stefán Jónsson
skrifar um Tregastein. Þá eru
framhaldssögurnar og fleira.
••IIMIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIilllllllllllll'il*
| NÝJA-BfÓ |
= Sími 1285 \
I Aðgöngumiðas. opin frá 7-9 i
E Fimmtudag og föstudag i
i kl. 5 og 9. i
i Kjartan Ó. Bjamason sýnir: |
í FJÖLBREYTTAR MYNDIR i
FRA SVÍÞJÓÐ.
I VETRAR-OLYMPÍULEIK- í
i ARNIR í Squaw Walley. |
SKÍÐAMÓT
í Á SIGLUFIRÐI 1960. í
| HOLMENKOLLEN 1960. í
í HESTAMANNAMÓT í
f ÞÝZKALANDI.
í SKAUTAMYNDIR. j
\ FIMLEIKAMYNDIR. í
| AU STF J ARÐ AÞÆTTI í
i og i
i AKUREYRARÞÆTTI. |
..................
Hálfníræð heiðurs-
kona
Næstkomandi laugardag, þ.
15. þ. m., verður Valgerður,
fyrrum húsfreyja á Lómatjörn,
85 ára gömul.
Valgerður er dóttir Jóhann-
esar Jónssonar prests Reykja-
líns. Hún var gift Guðmundi
Sæmundssyni, og bjuggu þau
allan sinn búskap á Lómatjörn
í Höfðahverfi.
Guðmundur er nú látinn, en
afkomendur þeirra hjóna eru
margir og dreifðir víðs vegar,
gott fólk og gjörvulegt.
„Ellin hallar öllum leik,“
segir einhvers staðar. Heilsa
Valgerðar er tekin að bila.
Dvelur hún nú sjúk á heimili
dóttur sinnar að Grenimel 14 í
Reykjavík.
Mé er sagt, að Valgerður hafi
verið glæsileg ung stúlka, og
hún hefur lifað þannig lífinu,
að hún er nú falleg gömul
kona. Ekkert mótlæti hefur
sett mark sitt á svipinn, og
brosið er svo hlýtt, að það
vermir.
Allir frændur og viriir Val-
gerðar við Eyjafjörð senda
henni kærar kveðjur suðui'.
Ö. S.
Minningarsjóður
Björns jónssonar
— Móðurmálssjóðurinn. —
Stjórn Minningarsjóðs Björns
Jónssonar, Móðurmálssjóðsins,
ákvað á fundi sínum 6. þ. m. að
veita á þessu ári Matthíasi Jo-
hannessen ritstjóra við Morg-
unblaðið, verðlaun úr sjóðnum.
Verðlaún þessi eru veitt mönn-
um, sem hafa aðalstarf við blað
eða tímarit, fyrir góðan stíl og
vandað mál, og skal þeim að
jafnaði varið til utanfarar.
Veitt eru að þessu sinni kr. 10
þús. Verðlaunin voru afhent 8.
október.
Sjóðstjórnina skipa nú: Dr.
Einar Ól. Sveinsson, próf. í ís-
lenkum bókmenntum, dr. Hall-
dór Halldórsson, próf. í ís-
lenzkri málfræði, Tómas Guð-
mundsson, rithöfundur, Bjarni
Guðmundsson, blaðafulltrúi, og
Pétur Ólafsson, forstjóri.
□ Rún 596010127 — Frl.:
I. O. O. F. — 14210148V2 — III
I. O. O. F. Rb. 2 1101O128V2
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju kl. 11 f. h. á sunnudag.
Sálmar nr.: 38 — 534 — 18 —
207 — 372. Aathugið: Messan
er klukkan ellfu. — P. S.
Sunnudagaskóli Akueyrar-
kirkju hefst á sunnudaginn
kemur, 16. okt., kl. 10 árdegis.
Yngri börn (5—6 ára) í kapell-
unni. Eldri börn (7—13 ára) í
kirkjunni. Nýtt biblíumynda-
hefti kostar 10 krónur. — Þeir,
sem ætja að verða bekkjastjór-
ar, mæti í kirkjunni kl. 5 á
laugardag.
Sunnudagaskólinn á Sjónar-
hæð er kl. 1. Öll börn og ungl-
ingar velkomnir.
Drengjasamkoma cr í kvöld
kl. 6 að Sjónarhæð. Ástjarnar-
drengir og aðrir drengir vel-
komnir.
Saumafundir fyrir telpur og
unglingsstúlkur að Sjónarliæð
kl. 6 á fimmtudagskvöldum. —
verið velkomnar.
Almenn samkoma að Sjónar-
hæð á sunnudögum kl. 5 e. h.
Allir velkomnir.
Zíon. Sunnudaginn 16. okt.
kl. 11 f. h. byrjar sunnudaga-
skólinn. Öll böm velkomin. —
Fundur í Kristniboðsfélagi
kvenna kl. 4 e. h. Allar konur
velkomnar.
Frá K. F. U. K. — Fundimir
byrja aftur í þessari viku og
verða á fimmtudögum í Kristni-
boðshúsinu Zíon kl. 5.30 e. h.
fyrir telpur 9—12 ára, en kl.
8.30 fyrir ungar stúlkur, 13 ára
og eldri. Allar velkomnar.
Dalvíkingar! Nærsveitamenn!
Somkoma verður í U. M. F.
húsinu föstudaginn 14. okt. kl.
8.30 e. h. — Sýnd verður kvik-
myndin Börnin frá Frostmo-
fjallinu. Allir velkomnir. —
Hjálpræðisherinn.
Fundir erú á
þriðj udagskvöldum
kl. 8 e. h. í Ungl-
ingadeild (12—17
ára), í Yngstu deild (9—12 ára)
á sunnudögum kl. 1 e. h. í Að-
aldeild á föstudögum kl. 8.30
e. h. Nýir félagar velkomnir.
Fíladelfía, Lundargötu 12. —
Opinberar samkomur á fimmtu-
dag (13. okt.), laugardag og
sunnudag kl. 8.30 síðd alla dag-
ana. — Grænlandstrúboðarnir
Dalen og Reitung tala á sam-
komum þessum. Söngur og
hljóðfærasláttur. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Briggader Nilsen og frú halda
samkomu í sal Hjálpræðishers-
ins í dag, miðvikud. 12. okt., og
éá morgun kl. 6 fyrir börn og
kl. 8.30 fyrir fullorðna. — Sýnd
verður kvikmyndin Börnin frá
Frostmofjallinu. Falleg tal- og
tónmynd. Aðgangur fyrir böm
3 kr. — Laugard. 15. verður
samkoma, sem heimilissam-
bandið sér um, kl. 8.30 e. h. —
Frú Briggader Nilsen talar. —
Kaffi. — Allir hjartanlega vel-
komnir.
Skrifstofa Framsóknarflokks-
ins, Hafnarstræti 95, Akureyri,
verður opin í vetur daglega kl.
13.30—19, nema mánudaga, þá
lokað allan daginn, og laugar-
daga verður opið kl. 10—12. —
Sími 1443.
Hjúskapur. Nýlega voru gef-
in saman í hjónaband af séra
Birgi Snæbjörnssyni, Laufási:
Ungfrú Halldóra Björgvins-
dóttir, Hafnarstræti 53, Akur-
eyri, og Viðar Pétui’sson, sjóm.,
Eiðsvallagötu 1, Akureyri.
Hjúskapur. Sl. sunnudag voru
gefin saman í hjónaband í Ak-
ureyrarkirk j u ungfrú Hildur
Guðrún Júlíusdóttir, hár-
greiðslumær, og Eiríkur
Alexandersson, kaupmaður,
Grindavík.
Frá L. A. Leikfélag Akureyr-
ar hefur starfsemi sína á þess-
um vetri með frumsýningu á
gamanleiknum „Pabbi“ eftir
Howard Lindsay og Russel
Crouse n.k. sunnudagskvöld.
Leikstjóri er Jónas Jónasson. —
Athygli frumsýningargesta skal
vakin á því, að frumsýningar-
miðar verða nú EKKI bornir
út, en verða afgreiddir í að-
göngumiðasölu leikhússins
fimmtud. 13. og föstud. 14. þ.
m. kl. 2—5.30 e. h. Óski núver-
andi frumsýningargestir eftir
að vera það áfram, verða þeir
að taka miða sína þessa daga,
annars verður þeim ráðstafað
til annarra, sem nú eru á bið-
lista.
Framsóknarvistirnar hefjast
föstudaginn 21. okt. Spilað
verður á Hótel KEA. — Nánar
auglýst síðár í Degi og með
götuauglýsingum.
Ljósastofa Rauðarkrossins,
Hafnarstræti 100, tekur til
starfa 14. okt. Opið verður frá
kl. 4—6 e. h. allavirka daga. —
Sími 1402.
Minningarspjöld Styrktarfé-
lags vangefinna fást í Bóka-
búð Rikku.
Skrifstofa Mæðrastyrksnefnd-
ar er opin á þriðjudögum kl.
4.30 til 6.30 e. h. —Fatnaður af
ýmsum stærðum og gerðum
ávallt fyrirliggjandi.
Styrktarfélag vangefinna hef-
ur móttekið 850.00 kr. áheit frá
A. K. (Afhent af Jóhanni Þor-
kelssyni lækni.) Kærar þakkir.
Stjórn Styrktarfél. vangefinna.
Til Steinunnar Pálmadóttur:
S. Á. kr. 100.00. — Björn Jóns-
son kr. 100.00. — Anna Björns-
dóttir kr. 100.00. — R. Þ. og V.
J. kr. 100.00. — Jóhanna og
Kristján kr. 200.00. — I. R. S.
kr. 200.00. -r- V. S. kr. 200.00. —
K. Z. kr. 200.00. — Áheit frá
konu í Bolungavík kr. 500.00.
— N. N. kr. 100.00. — A. J. kr.
100.00. — N. N. kr. 100.00. —
Ásgrímur Halldórsson kr.
1.000.00. — Þ. H. kr. 100.00. —
Tveir litlir drengir kr. 100.00.
— T. Á. H. kr. 100.00. — R. G.
kr. 1.000.00. — Daggeir H. Páls-
son kr.50.00. — Samtals kr.
4.350.00.
Atlabúðin
Vélaverkstæðið Atli hefur
opnað verzlun í Strandgötu 23,
Akureyri.
Þar er einkum verzlað með
alls konar járnvörur og verk-
færi og m. a. nokkrar vörur,
sem áður hafa ekki verið hér á
boðstólum.
Gísli Kr. Lórenzson annast
afgreiðslu í hinni nýju verzlun.
Atlabúðin, en svo nefnist hin
nýja verzlun, er hin snyrtileg-
asta í alla staði.
@-í'4Sí-5'ð-í'4S-e@-í'4fc-^Q-S4ií-^S-í'4S'^ð-f'-*-('®-í'4S-ea-í'4£-aa-f'4,í;-M-!-í'«-S'«!-í'4iW'S-í'4K-
& ?
±
Innilegar þakkir flyt cg öllum þeim, sem glöcldu mi^. ®
á sextugsafmceli mínu 9. þ. m.
1
I
©
JÓHANN ANGANTÝSSON. %
Ý
-f- @
Elskuleg eiginkona mín,
NIKKOLINA GUÐMUNDSSON,
andaðist í Sjúkrahúsinu á Akureyri þann 8. október. —
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju laugardaginn 15.
október kl. 1.30 e. h.
Jón Guðmundsson.
Jarðarför
HERDÍSAR FINNBOGADÓTTUR
frá Fögrubrekku
fer fram frá Akureyrarkirltju miðvikudaginn 12. okt. kl. 2.
e. h. — Blóm og kranzar afbeðið.
Gísli R. Magnússon, börn, tengda- og barnabörn.