Dagur - 12.10.1960, Side 8
8
i ■ 11111111111111111111111111111111111 ■■■ i ■ 11 ■■ 11 ■■ i ■ 111 < 11111 ■■■ i ■ ■ 111 ■ 11111 ■■ 11 ■ ■ 11 • 11 ■ t ■ ■ i i ■ 111 • ■ ■
111 ■ 11111 ■ 11111111 ■ ■ ■ ■ ■ i ■ ■ 111 ■ ■ ■ ■ 11111 ■ 11 ■ ■ 11 ■ ■ i ■ 1111 ■ 1111 m 111111 > 11 < 111 ■ ■ 11111 • 11 ■ 11 • 1111111111 ■ i ■ i ■
lllllllllllllllllllllllllll||a
Eins dags skóli hjá Jakobi Jakobssyni fiskifræðingi [
Síldarmerkingar á Polliiium - Eyjafjörður mikil uppeldisstöð íslenzku síldarstofnanna 0 liöIBl f\Lr4
Um borð í Sævari. Síldin tekin í háf og merkingabyssurnar til-
búnar. Hafa verður hröð handtök, því að síldin er viðkvæm. —
(Ljósmynd: E. D.).
Ekki þótti tíðindum sæta á
síldaráiunum góðu, þótt Eyja-
fjörður væri fullur af síld, jafn-
vel allt árið. Þá var síld alls
staðar og meiri annmarkar á að
koma henni í eitthvert verð, en
að veiða rana, en síðan eru nú
liðin 16 ár, sem kölluð eru síld-
arleysisár.
Hinn gullni og silfraði blær
þessa litfegursta fiskjar sjávar-
ins, ævintýraleg uppgripaveiði
á fyrri árum, trylla menn ár
hvert eins og rammasti seiður.
Meira en hálft þriðja hundrað
síldveiðiskip ösluðu á fullri
ferð í leit að síld fyrir Norður-
iandi í sumar og meira en
helmingur þessa skipaflota
fékk mjög lítinn afla og mörg
skip engan afla.
Seint lærist.
Sextán síldarleysisár eru að
byrja að opna augu manna fyr-
ir því, að e. t. v. sé hægt að
gera eitthvað skynsamlegra við
það litla síldarmagn sem nú
veiðist árlega. en ýlda það um
borð í síldarskipunum eða síld-
arþrónum og framleiða síðan
úr því fóðurmjöl og iðnaðarlýsi.
Skárra er að hrúga síldinni
grófsaltaðri í tunnur. Þó er það
frumstæðasta verkunaraðferð.
Teygjan um sporðinn.
Allt fram að þeim tíma, að
síldarmerkingar hófust, var sú
gáta, hvaðan síldin kæmi og
hvert hún færi, algerlega hulin.
Og enn eru göngur síldarinnar
hjúpaðar óvissunni ár hvert.
Skotar urðu fyrstir til að
merkja síld árið 1880. En allt
frá þeim tíma og fram á fjórða
tug okkar aldar mistókust þó
allar tilraunir. Merkingarað-
ferðirnar voru margar og mis-
jafnar, svo sem að setja eins
konar teygjuband um sporðinn,
gjörð um miðjuna, þræða vír
eða nælon gegnum bakið og
festa merki þar við. En þá
fundu Bandaríkjamenn lausn-
arorðið, rétt fyrir síðustu
heimsstyrjöld, með því að setja
málmmerki inn í kviðarhol
síldarinnar. Við ísland og
Noreg var farið að merkja síld
með þessum hætti árið 1948 og
síðan í vaxandi mæli.
Árni Friðriksson á heiðurinn.
Hinn mikilhæfi vísindam. dr.
Árni Friðriksson, fiskifr. á
heiðurinn af því að hafa komið
þessum merkingum á og síðan
hafa 300 þús. síldar verið
merktar á þennan hátt og um
4000 íslenzk síldarmerki hafa
verið endurheimt, bæði í Nor-
egi og hér við land. Síldarmerk-
ingarnar við ísland og Noreg
eiga að gefa upplýsingar um
síldargöngur í Norður-Atlants-
hafi. Fiskifræðingarnir, Jakob
Jakobsson og Norðmaðurinn
Dragesund eru að vinna að
heildarskýrslu um þetta 12 ára
tímabil síldarrannsóknanna og
kemur hún út seint á næsta ári.
Síldarmerkingarnar gefa ekki
aðeins upplýsingar um göngur,
eða ferðalög þessa fiskjar í
sjónum, heldur einnig síldar-
magn.
Síldin og hvalurinn.
Norðmenn og Rússar deila
síðustu árin mjög um það,
hvort um ofveiði síldar sé að
ræða í norskum fjörðum og
flóum, og er þetta nú rannsakað
alveg sérstaklega. Síldin er að-
eins á norðurhelmingi jarðar,
en hefur aldrei fundizt fyrir
sunnan miðjarðarbaug. Um það
hefur verið rætt að flytja hana í
suðurhöf, en af því hefur ekki
orðið, m. a. vegna hvalveiðanna
þar. Talið er að síldin muni
keppa við hin stóru veiðidýr
um ætið og e. t. v. eyðileggja
hvalveiði hinna mörgu landa,
í Suðurhöfum.
En nú er bezt að líta sér
nær. Á síðustu árum hefur það
þótt æ rannsóknarverðara, hve
mikil síld er hér á innanverðum
Eyjafirði árið um kring. Engar
rannsóknir voru þó gerðar á
þessu af fiskifræðingum fyrr
en árið sem leið, og aftur nú.
Glöggur Akureyringur.
Hins vegar hafði athugun
glöggra manna leitt margt í
ljós um þessa síld. Og má til
dæmis benda á, að Ingólfur
Guðmundsson Seyðfjörð hélt
nákvæmar dagbækur um ára-
tugi og skráði þá vandlega alla
síldveiði á Eyjafirði og hér í
nágrenninu alveg sérstaklega,
og eru þetta langbeztu samtíma
heimildir, sem til eru. Á þriðja
tug ára hefur síld veiðzt hér í
nágrenninu marga mánuði árs-
ins, nema 3 árin, og hefur fiski-
fræðingum þótt þetta hinar
merkilegustu upplýsingar. Fyrr
á árum veiddist oft svo mikið,
að ekkert var við veiðina að
gera. Þá var síldin geymd í
fjölda af lásum í von um að
koma henni í verð. Athuganir
heimamanna hafa, ásamt
margra ára áróðri, sem lesend-
ur Dags eflaust muna, orðið til
þess, að 'nú er komin hér upp
niðursuðuverksmiðja, sem get-
urf hagnýtt smásíld á sómasam-
legan hátt, skapað útflutnings-
veðmæti og mikla atvinnu og
er það kunnari saga en upp
þurfi að rifja, enda nýlega frá
því sagt hér í blaðinu.
Síldarmerking á Pollinum.
í fyrra merkti Jakob Jakobs-
son fiskifræðingur 2500 síldar
hér á Pollinum. Fyrir síðustu
helgi kom hann hér aftur og
merkti þá, ásamt Sverri Guð-
mundssyni, starfsmanni Fiski-
deildar, 3500 síldar.
Undirritaður fékk að vera
viðstaddur einn daginn, er síld-
in var merkt, og fræddist þá
um ýmsa þá hluti, sem hér hef-
ur verið drepið á að framan, og
sá hvernig síldarmerkingar eru
framkvæmdar. Það var góður
skóli.
Mótorbáturinn Sævar var
tekinn í þjónustu vísindanna í
þetta skipti og aðstoðaði Guð-
mundur Hauksson og háseti
hans við starfið. Leyfi var feng-
ið hjá Kristjáni Jónssyni til að
taka síld úr lás, er hann átti, til
merkingar.
Síldin er tekin í litla nót úr
lásnum og höfð í henni við
bátshliðina. Fiskifræðingurinn
og aðstoðarmaður hans sótt-
hreinsuðu sildarmerkin, þunnar
stálplötur, áletraðar, sem vega
hver 1 gr. og eru 50 saman í
hylki. Hylkin eru svo sett í eins
konar merkjabyssur og svo
hefst hin merkilega athöfn.
Þarf að ganga fljétt.
Skipverjaimar tveir á Sævari
tóku sinn síldarháfinn hvor og
tóku eina eða fleiri síldar úr
nótinni í einu. Á samri stundu
var síldin komin í lófa merk-
ingarmanna, litlum hníf á
(Framhald á 7. síðu.)
Vínveitingar eru byrjaðar á
Hótel KEA. Vínbar er þó eng-
inn, en venjulegar vínveitingar
alla daga. ,
Á sunnudagskvöldum verður
kalt borð ásamt öðrum veiting-
um, þar sem borgurunum gefst
sérstakur kostur á að gera sér
og konum sínum dagamun, og
létta um leið á hússtörfunum
þann daginn.
Á sunnudaginn var hófst
þessi nýbreytni og fullnægði
kalda borðið kröfum þeirra
vandlátustu.
| Lýðræðið j
| á Akranesi
I Meirihluti bæjarstjórnar [
l á Akranesi sagði Daníel i
i bæjarstjóra upp starfi vegna i
| þess að liann hefði dregið i
i bænum fé af gömlu fólki. — i
i Setudómarinn ógilti þá \
i ákæru. Þá krafðist meiri-1
i hluti að Daníel léti af störf- i
i um án saka og taldi sig þá i
i bezt þjóna lýðræðinu, að i
i meirihlutinn réði og féllst i
i setudómarinn á það sjónar- i
: mið. i
| En borgarar á Akranesi i
i undu þessu ekki. Meirihluti i
i atkvæðisbærra kjósenda mót i
i mælti og krafðist þess áð i
| Daníel héldi embætti sínu, i
i ella færu fram bæjarstjórn- i
| arkosningar.
i Meirihluti bæjarstjórnar i
i vildi nú ekki Ieugur fara eft- I
i ir meirihlutareglunni og f
f hafnaði kröfu kjósenda.
i Þykir mönnum lýðræðið á i
| Akranesi orðjð liarla torskil- i
i ið. Hitt er öllum ljóst, að að- i
= förin að Daníel bæjarstjóra i
i er pólitísk ofsókn og hún er i
i fordæmd af flestum ábyrg- i
i um mönnum og hlýtur að =
i bitna á stjórnarflokkunum, i
i þótt síðar verði.
•••tllll•ll■lllllll■ll•lllil■■■l•■ll•ll■llll■■l■■lll■llll•ll■ll•llv
Einstakt tækifæri
Hingað til bæjarins er kom-
inn ágætlega menntaður fiðlu-
leikari, Sigurður Steingrímsson
Steinþórssonar búnaðarmála-
stjóra. Hann kennir fiðluleik í
Tónlistarskólanum.
En svo undarlega, sem það
kann að láta í eyrum, er það
staðreynd, að ungt fólk óskar
ekki að nema fiðluleik hér á
Akureyri. Aðeins 2 eða 3 nem-
endur vilja njóta kennslu í
þessari grein tónlistar. En kenn-
arinn gæti haft 15—20 nemend-
ur.
Á meðan Akureyringar snið-
ganga strokhljóðfærin verður
engin hljómsveit stofnuð hér í
bæ. En nú vilja allir hamra á
saraa hljóðfærið, píanéið. Hér
þarf að verða breyting á og það
nú þegar, til þess að hægt sé
að vænta eðlilegrar þróunar í
tlj émlistarmálum. Unga fólkið,
sein iðka vill hljóðfæraleik, ætti
að hugsa um þetta ágæta tæki-
færi.
Jakob Jakobsson heldur á síldinni í vinstri hendi, sker fyrir með
hnífnum, tekur í gikkinn og hin þunna stálplata rennur inn í
kviðarhol síldarinnar. — (Ljósmynd: E. D.).