Dagur - 19.10.1960, Síða 1

Dagur - 19.10.1960, Síða 1
f— N MÁl/.ACN I- K A \IsókN AI!XIANN A ■' R TSTJÓKf: Eruní.i r Davíossi.in ÍSJUII KS l'UI'A í I ! AI NAHSTk.l. l ! 90 SÍMI H()() . SfcTNlNCU OC PREXtliN ANNAST l’líKNI VKUK ( )|l|)S BjÖRNSSONAIÍ II.I . Aki.KlAKI R----—-------------------- •\l l.l SM.Nt.AM )ÓKi: JÓN Sa:\I- ÚKI.SSON . ÁRtíANOtmiNN KOSI AR KH. 100.00 . Gj Al.OD.VGt ER 1. JÚLÍ líl.AOIfi KEMI.ii tr A MH)\ ilvUMÖC.- !':wm or. ,a ’..Ai;r;.vKO(K;i,M :M w.i.ak Ás;i r,i)A DvklR rii.: j;'; s----------------------------------------J • nniiii iiiiiniiiiiiiiiiiiniiiiniiiiiiiiiiii ininninnnnnnninnnininnnnnn n* Húsvíkingar kaupa bát og skip Útgerðarfélag Húsavíkur h.f. ákvað á fundi sínum á föstu- daginn, að ráðast í kaup á 200 smálesta stálskipi, ef nauðsyn- leg leyfi fást. Skip þetta á að kosta 8,2 milljónir ísl. krdna, og á að gera það út frá heima- höfn árið um kring til að auka atvinnuna. Hlutafélagið hyggst auka hlutafé sitt að mun. Til dæmis mun K. Þ. og Fiskiðjusamlag Húsavíkur leggja fjórðung milljónar hvort til eflingar fé- laginu. Jafnframt er í athugun hjá útgerðarfélaginu að leita til- boða í 25—30 tonna línubát inn- anlands og utan, sem komið gæti í stað Hagbarðs, sem er gamall orðinn. Endurvarpsstöðvar á Áusturlandi Um þessar mundir er Ríkis- útvarpið að taka í notkun sjö nýjar endurvarpsstöðvar á Austurlandi og rekur þá alls tíu endurvarpsstöðvar, auk að- alstöðvarinnar á Vatnsendahæð við Reykjavík. Truflanir hafa lengi undanfar- ið verið á útvarpi víða á Aust- urlandi af völdum erlendra stöðva og hefur útvarpið leitað ýsmra ráða til úrbóta. Nú á að vera bót ráðin á þessu með nýju endurvarpsstöðvunum og hefur verið að þessu unnið með samvinnu Landssímans og út- varpsins. Landssíminn hefur látið útvarpinu í té rásir til flutnings á útvarpsefninu frá Reykjavík og að Höfn í Hornn- firði og Eiðum og í sjö kauptún eystra, og þar hafa nýju endur- varpsstöðvarnar verið reistar: Djúpivogur 1484 krið/sek. 202 m. Breiðdalsvík 1412 krið/sek. 212 m. Stöðvarfjörður 1545 | INNBROT | í síðustu viku var brotist inn sumarbústað Ebenharðs Jóns- ionar norðan í Moldhaugahálsi >g þar stolið útvarpstæki, kos- mgasi o. fl. En þar hefur ekki /erið búið um skeið. Þjófarnir brutu rúðu í ;lugga tll að komast inn. Við Drottför sína tylltu þeir gleri í únn brotna glugga, og var það -aunar betri umgengni en búast nátti við af mönnum er slíkra írinda fara og eru nýbúnir að 'remja innbrot og þjófnað. Vetur gengur í garð Fyrsti vetrardagur er á laugardaginn. Við kveðjum sumarið með þakklátum huga, því að sól og blíðviðri hafa einkennt það, svo að með ein- dæmum er. Og á margan hátt hefur það búið okkur vel und- ir stutta daga og langar næt- ur, sem nú eru framundan. — Hinn rótgróni skammdegis- ótti er að hverfa, þótt jafnan reyni Vetur konungur nokkuð á þrek og þolgæði. Og vera má að einmitt hann sé okkar bezti uppalandi. krið/sek. 194 m. Fáskrúðsfjörð- ur 1484 krið/sek. 202 m. Reyð- arfjörður 1520 krið/sek. 197,4 m. Eskifjörður 1510 krið/sek. 198 m. Neskaupstaður 1412 krið/sek. 212 m. £iiiiiiiuiiiii iii iii in iii iii iii n n n iii n n iii iiiiin iii iii itn* f Nýjasta áherzlu- | \ merkið! ! Ræðumenn brýna raustina, breyta um svip, fetta sig og bretta og nota óspart hendurn- ar til að gefa máli sínu meiri áherzlu. Þeir berja jafnvel í borðið og lemja sjálfan sig ut- an. En allt eru þetta smámunir einir hjá hinni nýju aðferð Krúsjoffs, sem hann notaði ný- lega á fundi Sameinuðu þjóð- anna, en þá varð hann ofsareið- ur. Hann reif af sér annan skó- inn og lamdi honum í borðið svo að glumdi í. Roland þingforseti notaði þá hinn íslenzka fundarhamar, er Ásmundur Sveinsson gerði, en þá fór ekki betur en svo, að hausinn hrökk af skaftinu og þeyttist fram í sal. Forseti sleit þá fundi. Day-fjölskyldan í sjónleiknum Pabbi, sem frá er sagt á fimmtu síðu blaðsins í dag. (Ljósmynd: Edvard Sigurgeirsson.). Fjárlög ríkisins hafa hækkað um þriðj- ung í tíð núverandi sljórnarflokka, þráít fyrir allf sparnaðarhjalið Svikin loforð. Þess var beðið með eftirvænt- ingu að reglulegt Alþingi kæmi saman, einkum vegna landhelg- ismálsins. Viðræður við brezka sendinefnd hafði þá staðið vikutíma, bak við svo harðlok- aðar dyr, að utanríkismála- nefnd fékk ekki einu sinni að fylgjast með því, sem gerðist, þrátt fyrir skýlaus loforð þar Landhelgismál. Eins og fyrr er frá sagt, gerði Eysteinn Jónsson fyrirspurn, fyrir hönd Framsóknarfl. um málið. Hann fór þess á leit að Alþingi yrði gefin skýrsla um málið og engar ákvarðanir gerðar án samráðs við það. Á þetta féllst forsætisráðherra og síðan hefur ekki verið um mál- ið rætt á Alþingi. En átta þing- menn Framsóknarflokksins í Efrideild hafa lagt fram frum- varp um að 12-mílna reglugerð- in frá 1958 skuli hafa lagagildi. Hermann Jónasson, fyrrv,- for- sætisráðherra, mun hefja um- ræður um það mál. Fjárlagafrumvarpið. Fjárlagafrumvarpið fyrir 1961 hefur verið lagt fram. Árið 1958 var niðurstaða fjárlaga 800 milljónir, árið 1959 hækkaði hún upp í 1000 milljónir, 1960 varð niðurstaðan 1500 milljónir og nú er gert ráð fyrir 1550 milljónum. Hækkunin á fjár- lögujn í tíð núverandi stjórnar- flokka er því meira en 500 milljónir króna. Fjármálaráðherra segir í greinargerð með fjárlagafrum- varpinu, að í því felist 22. millj. króna sparnaður á einstökum útgjaldaliðum og hafa blöð stjórnarflokkanna þyrlað því ryki með honum. Þannig efnir þessi ráðherra sparnaðarloforð- in frá í fyrra og þykir miður rausnarlegt. Gert er ráð fyrir því, þrátt fyrir hækkun fjár- laga, að minnka aðstoð við strandferðir, jarðboranir og til að útrýma meindýrum. Nýi innflutningssöluskatturinn. Nýi innflutningssöluskattur- inn, sem innleiddur var í fyrra, og lofað var margsinnis, að ekki væri nema til bráðabirgða og nam 8,8%, á að gilda áfram, samkvæmt fjárlagafrumvarp- inu. Fer hér sem oftar hjá nú- verandi stjórnarflokkum: Lof- orðin eru falleg, en efndirnar svikin ein. (Framh. á 2. síðu.). I síðustu viku var töluverð síldveiði á Pollinumi og var þessi mynd tekin þegar löndun hófst úr Ester. (Ljósmynd: E. D.). Famsóknarvist (þriggja kvölda keppni) liefst n.k. föstu- dag, 21. okt., og verður að venju spilað á Hótel KEA. — Skemmtunin byrjar kl. 8.30. Aðalverðlaun eru vandað Philips-útvarpstæki, en auka- verðlaun Parker-penni og mái- verk. Þá verða veitt sérstök kvöldverðlaun hverju sinni. — Dansað verður til kl. 1 hvert kvöld. Verð aðgöngumiða er 40 kr. fyrir eitt kvöld og 100 kr. fyrir þrjú kvöld. — Aðgöngumiðar verða seldir í skrifstofu flokks- ins í Hafnarstræti 95 fimmtu- dag og föstudag kl. 1.30—7 e. h. og við innganginn.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.