Dagur - 15.02.1961, Síða 8
8
Töluverf unnið að söngkennslu
Kjartan Jóhannesson sftngkenn- bandinu Heklu. Hún hefur þegar
ari liefur á vegum Kirkjukórasam- þjálfáð karlakóraná á Akureyri og
bands íslands ferðazt á milli Dalvík og er á förum vestur í
kirkjukóra og þjálfað þá. Hann Húnavatnssýslu til að æfa karla-
er búinn að kenna á Svalbarðs- kórinn í Bólstaðarhlíðarhreppi.
eyri, Hálsi, Reykjahlíð og í Ljósa- Að því loknu fer ungfrúin til
vatnshreppi. Reykjadals austur og Mývatns-
Ungfrú Ingibjörg Steingríms- sveitar og þjálfar karlakórana
dóttir starfar hjá Karlakórasam- þar. □
• ii iii iii iiiiiiiiiiuin*
| Gefa skaS þess, sem gert er |
MÁLSHÁTTUR einn hljóðar
svo: „Hæst bylur í tómri
tunnu.“ Þykir vel við eiga að
hafa hann um þá menn, sem
vaða elginn um allt og ekki
neitt, þykjast hafa vit á öllu, en
rista þó í rauninni mjög grunnt.
Reynast löngum haldlítil ráð
þeirra og leiða jafnvel til ófarn
aðar.
Ef lýsa skyldi núverandi rík-
isstjórn í fáum orðum, væri það
ekki hægt á heppilegri hátt en
með þessum málshætti.
í herbúðum stjórnarliðsins og
taglhnýtinga þess, er hávaða-
samt og orðaflaumur mikill. Og
eitt einkenni er sérstaklega á-
berandi: Takmarkalaust raup
af ímynduðum eða upplognum
áfreksverkum.
Eitt af því marga, sem stjórn
ax-liðið galar óþarflega hátt um,
eru hin glæsilegu kjör, sem það
telur gamalmenni og öryrkja
nú búa við. Og ekki þarf að því
að spyrja, hverjum slíkt beri
að þakka.
En er þetta nokkuð annað en
ein fi-amleiðslutegundin úr
blekkingasmiðju stjórnai-innar?
Við skulum nú athuga þetta svo
lítið betur.
Eins og kunnugt er, nemur elli-
og örorkulífeyrir á öðru verð-
lagssvæði 900 kr. á mánuði.
Nú er svo ástatt um fjölda
fólks, sem þessa styi'ks nýtur,
að það getur mjög lítið unnið
sér inn og mai'gir alls ekki neitt.
Tökum nú t. d. mann, sem ein-
ungis hefur þennan styrk til
að lifa af. Gerum ráð fyrir, að
hann þui'fi að kaupa sér fæði.
Hvergi mun það fást fyrir
minna en 40 kr. á dag, eða 1200
kr. á mánuði. En hvað kemur
■iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii*
s :
I Góður afli í janúar }
'Sauðárkróki 13. febrúar. Nú er
veðurbreyting og farið að snjóa í
norðanátt. brír dekkbátar lxafa
róið hérna og 7—8 trillubátar-.
Aflinn í janúar var góður. Dekk-
bátarnir eru þessir: Bjarni Jóns-
son og er hann rúmar 20 smálest-
ir að stærð, Nonni og Mummi eru
10 tonna bátar.
Kaldbakur landaði hér 80 tonn-
um til vinnslu í hraðfrystihúsmu
í vikunni sem leið.
Skólaskemmtun Gagnfræða-
skóla Sauðárkróks var haldin á
laugardaginn. Kl. 3 var skemmt-
un fyrir börnin en klukkan 8.30
fyrir fullorðna. Eiríkur I-Iansen,
nemandi í 3. bekk flutti ávarp og
skólakórinn söng undir stjórn Ey-
þórs Stefánssonar og í lok skemmti
þáttanna var sýndur smáleikurinn
„Auminginn hann afi sálugi“.
Fjölmennt var á skólaskcmmtun-
inni og skemmtunin fór vcl franx.
Naumast þarf að taka það fram,
að í lokin var dans stiginn.
nú í ljos? Aumingja manninn
vantar þá 300 kr. til þess að
geta greitt mánaðarfæðið. Með
öðrum orðum: Hann vei'ður að
svelta í 7V2 dag í hvei'jum mán-
uði. Og þar við bætist, að hann
hefur ekkert fyrir fatnað og hús
næði, svo að taldar séu aðeins
frumstæðustu þarfir hvei'S
manns.
En í menningarþjóðfélagi nú
á dögum eru margar fleiri þarf
ir, sem menn eiga rétt á að fá
fullnægt, en maður sá, er tek-
inn var sem dæmi, virðist al-
gerlega verða að fai-a á mis við
þær.
Þetta er þá öll dýrðin. Ekki
er að undra, þótt hátt glamri
í tómu tunnunni og gi'obbað sé
af því að hafa komið þessum
kjarabótum til leiðai’. Mikil er
mannúðin. Mikið er í'éttlætið.
Svo kann nú enn að falla svo-
lítið á ljómann af þessum afreks
verkum. þegar það er haft í
huga, að nokkru áður en efna-
hagsfálm ríkisstjói'narinnar
kom til fi-amkvæmda, voru allir
á einu máli um það, að hækka
bæi'i elli- og örorkulífeyri um
20%. Hefði það vafalaust verið
gert, þótt engin hækkun hefði
orðið á verðlagi. Það eru því
ekki nemn ein skitin 24%, sem
fyrrgi-eindir styrkþegar hafa til
þess að mæta þeirri óheyrilegu
hækkun, sem á öllu vöruverði
hefur oi’ðið síðan í fyrra. En
eitt af hinum svívii'ðilegustu
falsbrögðum stjóx-narinnar í
febrúarboðskapnum í fyrravet-
ur, var það, að hækkun á verði
lífsnauðsynja yrði ekki tilfinn-
anleg. Til gamans má geta þess,
að sagt var t. d. að kornvai'a
yi'ði greidd svo mikið niður, að
verðhækkunin yi'ði aðeins 3%.
Sem dæmi þess, að í'íkisstjói'n-
in hefur ekki látið sér mjög
annt um að þræða götu sann-
leikans í þessu ati'iði, fremur en
mörgum öðrum, má nefna það,
að 1 kg af haframjöli, sem kost
aði fyrir „viðreisn" 4 krónui',
(Framh. á 7. síðu).
| Hraðfrystihúsin i
SAMKVÆMT upplýsingum í
febrúarhefti Ægis eru 88 hi'að
frystihús hér á landi.
Afköst á 16 klukkustundum
eru 1385,5 tn. og geymsla fyrir
44430 tonn. Á Noi'ðurlandi eru
17 hraðfrystihús með 181 tonns
afkastagetu. Þessi frystihús
hafa 5880 tonna geymslurúm.
Stærst norðlenzkra hraðfrysti-
hiisa er lijá U. A. á Akureyx'i.
Afköst 30 tonn og geymslurúm
fyrir 1200 tonn. K
i í dag er fjársöfnunardagur Rauða-krossins. Hér á Akureyri fagna börnin Öskudeginum á sér- |
i stæðan hátt, svo sem myndin sýnir. (Ljósmynd: E. D.)
NOKKURRA ÞINGMÁLA GETID
Um bankamál.
Fi'umvai'p til nýrra laga um
Seðlabanka íslands, felur í sér
þær breytingar helztar, að yfir
bankann á að velja 3 banka-
stjóra og 5 bankaráðsmenn, í
stað 5 manna stjórnar nú, þár
af 2 bankastjóra, ennfremur, að
taka inn í bankalögin ákvæði til
frambúðar um að binda hluta
af fé innlánsdeilda kaupfélaga
í Seðlabankann.
Þá er frumv. til nýrra laga
um Landsbankann. Samkvæmt
því á umboð núverandi banka-
í'áðs að falla niður og Alþingi
að kjósa allt bankaráðið (5) í
stað þess að ráðherra ræður nú
vali eins þeirra (fox’manns).
1 framhaldi af þessu er svo
eitt frumvarp um Fram-
kvæmdabankann. Umboð núver
andi bankai'áðs að falla niður
og bankaráð á að kjósa á sama
hátt og bankax'áð Landsbank-
ans. Von mun vera á einu frum
varpi enn um Utvegsbankann.
En í heild virðist hér aðallega
um að ræða hagræðingu og
fjölgun á bankastjórunum og
bankai'áðsmönnum. Lands-
bankalögin (um viðskiptabank-
ann) virðast þó hafa verið end-
urskoðuð og einhverjum atrið-
um sennilega breytt þar til
bóta.
Hefur nú vei'ið getið nokk-
urra frumvarpa, sem ríkisstjórn
in stendur að.
Skóli fyrir fiskmatsmenn.
Endurflutt er tillaga um skóla
fyi'ir fiskmatsmenn, af þeim Ing
vai-i Gíslasyni, Gísla Guðmunds
syni, Jóni Skaftasyni og Geir
Gunnai'ssyni, þar sem ríkis-
stjórninni er falið að beita sér
fyrir framgangi málsins, fisk-
iðnaðinum til eflingai'.
Þórarinn Þói'ai'insson flytur
tllögu um að afnema hinn tak-
markaða einkarétt Fei'ðaskrif-
stofu ríkisins til að reka ferða-
skrifstofu fyrir útlendinga.
Hann flytur einnig tillögu um
að „afla upplýsinga um vaxta-
kjör atvinnuveganna hjá þeim
þjóðum, sem íslendingar keppa
við á erlendum mörkuðum og
að vinna síðan að því, að vaxta
kjör íslenzkra atvinnuvega,
verði ekki lakari en vaxtakjör
hliðstæðra atvinnuvega hjá
framangreindum þjóðum.“
Ríkisstjórninni virðist ekkert
um þessa tillögu gefið og hefur
Olafur Björnsson flutt við hana
breytingartillögu, sem myndi
eyða málinu, ef samþykkt yi'ði.
Lúðvík Jósepsson og Kai'l
Guðjónsson flytja fi'umvarp um
vei'ðflokkun á nýjum fiski. Ein
ar Olgeirsson flytur tillögu um
skipun nefndar í neðri deild
samkv.'39. gr. stjórnarskrárinn-
ar „til þess að rannsaka vissar
fjárreiður Sölumiðstöðvar hrað
frystihúsanna og fleiri atvinnu-
i’ekenda.“ Voru í vikunni sem
leið allmiklar umræður og tals-
vei'ðar hnippingar milli Sjálf-
stæðismanna og Alþýðubanda-
lagsmanna út af tillögu þessai’i.
Sigurður Bjarnason og fleiri
flytja tillögu um ráðstafanir
vegna læknaskorts. Benedikt
Gx'önd. og Sigurður Ingimundar
son flytja tillögu til þingsálykt-
unar „varðandi bx'ottflutning
fólks frá íslandi11, og Eggert
Þorsteinsspn um „rannsókn á
hagkvæmiaukningu ákvæðis-
vinnu.“ □
Guðsþjónustan að Munkaþverá
Dulskyggn kona sá margar furðulegar sýnir
Á SUNNUDAGINN var hátíða
guðsþjónusta í Munkaþverár-
kirkju, sem sóknarpresturinn,
séra Benjamin Kristjánsson
flutti, í tilefni af góðum gjöfum,
sem kirkjunni höfðu borizt.
Kvenfélag safnaðai'ins hafði
látið leggja gang og kór mjög
vönduðu klæði og setur þetta
mjög hlýlegan svip á guðshúsið.
Ungfrú Helga Halldórsdóttir
á Öngulsstöðum gaf 10 sálma-
bækur til afnota fyrir söfnuð-
inn, til að örfa hinn almenna
söng við guðsþjónustui'.
Frú Helga Sigui'ðardóttir á
Munkaþverá gaf súlur og blóma
potta til ski'eytingar í kói' kirkj
unnar.
Síðast en ekki sízt, gaf frú
Kx’istín Kristjánsson forkunnar
veglegan altai'iskross, þríarm-
aðan kertastjaka úr silfri og
1300 krónur til í’afhitunar í
kirkjunni.
Frú Kristín var sjálf viðstödd.
Hún hefur tekið mikilli tryggð
við Munkaþverárkii'kju, þótt
hún hafi aðeins einu sinni áður
komið þangað. Frúin er vel
þekkt austan hafs og vestan
fyrir dulskyggni og fyrir nokkr
um árum kom út bók um hana,
sem frú Elínborg Lárusdóttir
skrifaði og fjallar hún um dul-
x-æn efni. Bókin heitir Forspár
og fyrirbæri.
Frú Kristín liefur lengi átt
heima í Vesturheimi og stund-
að hjúkrunar- og líknarstörf,
auk þess þykjast margir hafa
fengið bót méina sinna vegna
fyrirbæna hinnar dulskyggnu
konu. Hún dvelst í Reykjavík í
vetur.
Talið er, að frúin hafi séð sýn
ir miklar í kirkjunni á sunnu-
daginn, sem mjög eru umtalað-
ar síðan og þykja merkilegar á
marga lund og meðal þeirra
sáust látnir kennimenn og kunn
ir kirkjuhöfðingjar. □
- FJARSÖFNUN
Á FUNDI miðstjórnar A. S. í.,
fimmtudaginn 25. janúar 1961,
var rætt um verkfallsbaráttu
verkalýðsfélaganna í Vest-
mannaeyjum og samþykkt ein-
róma að lýsa fullum stuðningi
Alþýðusambandsins við verka-
menn og verkakonur í Eyjum,
sem í deilunni standa.
Kröfurnar, sem um er barizt,
eru þær, sem mótaðar voru á
; seinasta alþýðusambandsþingi.
| Þær eru því kröfur verkalýðs-
; hreyfingarinnar allrar.
Alþýðusamband íslands heit-
I ir því alla, sem samúð hafa með
i kjarabaráttu launastéttanna í
j landinu að veita verkfallsmönn
Frarnhald á 7. síðu.