Dagur - 11.03.1961, Blaðsíða 7

Dagur - 11.03.1961, Blaðsíða 7
7 Starfsmannafél. Ákureyrarbæjar (Framhald af bls. 1) vinna 17 manns undir stjórn Knúts Ottersteds, rafveitu stjóra, sem einnig annast fram- kvæmdastjórn Laxárvirkjunar. Rafveitan er eins konar smá- sölufyrirtæki, sem kaupir raf- magn af ríkisrafveitunum og miðiar því neytendum með „hóflegri" álagningu. Jón Har- aldsson er stöðvarstjóri Laxár- virkjunar. Laxárvirkjun er sjálfstjórnarfyrirtæki undir stjórn þriggja manna frá Akur- eyrarkaupstað og tveggja frá ríkinu. Lögreglumenn bæjarins eru 11, bærinn greiðir 9 laun, en ríkið 2. Yfirlögregluþjónn er Gísli Olafsson. í Siökkviliði Akureyrar starfa 4 menn undir stjórn Sveins Tómassonar, eða sam- tals 5. Við Sundlaug bæjarins eru 4 menn fastráðnir. Aðalsund- kennari er Olafur Magnússon. Vatnsveitan er fáliðuð á papp írnum, en þar vinnur þó stund- um fjöldi manna, eins og víðar, þótt þar séu fæstir fastráðnir. Sigurður Svanbergsson er vatnsveitustjóri og Friðrik Hjaltalín, vatnssölumaður og er þá upptalið. Hafnarvörður er Þorsteinn Stefánsson og eru ekki fleiri fastráðnir þar. Amtsbókasafnið annast Sig- laugur Brynleifsson. í skólum bæjarins, íþróttahúsi, samkomu húsi og almenningssalerni ann- ast 6—7 manns gæzlustörf. Vcrkfræðingur bæjarins er Stefán Stefánsson, nýlega ráð- inn, Jón Ágústsson, bygginga- fulltrúi og Sigtryggur Stefáns- son, tæknifræðingur. Auk þeirra starfa svo byggingameist arar, bæjarverkstjóri, bifreiða- stjórar og aðrir er stjórna vinnuvélum. Fjórðungssjúkrahúsið hefur mikið starfslið. Framkvæmda- stjóri þess er Brynjólfur Sveins son. Yfirlæknar eru tveir: Guð mundur Karl Pétursson og Ól- afur Sigurðsson. Sex læknar á- samt nemum, mörgu hjúkrunar fólki og öðru starfsliði starfa þar að staðaldri. Sjúkrahúsið er sjálfstjórnarstofnun og nýtur styrks frá bæ og ríki og lýtur sérstakri stjórnarnefnd. Krossanesverksmiðju stjórna Guðmundur Guðlaugsson, fram kvæmdastjóri, og Jón M. Árna son, verksmiðjustjóri. Þar vinn ur töluvert margir menn árið um kring. Krossanesverksmiðja hefur sérstaka stjórn, eins og Fjórðungssjúkrahúsið og fleiri stofnanir, sem þó eru reknar á ábyrgð bæjarins og í umboði hans. Framfærslu- og heilbrigðis- fullrtúastarf annast Björn Guð- mundsson. Vinnumiðlun annast Stefán Bjarman og lengur má telja, þótt numið sé. staðar. Hver starfsgrein er bæði um- hugsunar- og umtalsefni, ef tóm gæfist til. Samtalið er lengra orðið en til var ætlazt og þakkar blaðið það. Af því, sem sagt hefur verið hér að framan, er ljóst, að „rnargs þarf búið með“ og marg þætt eru störf bæjarins. E. D. Þrj ár góðar myndir GARÐAR VÍBORG, erindreki Slysavarnafélags íslands, ferð- ast nú um Norðurland og kom hingað sérstaklega í tilefni af 25 ára afmæli Kvennadeildar Slysavarnafélagsins á Akur- eyri. Garðar sýnir 3 kvikmyndir í Samkomuhúsi bæjarins á mánu dagskvöldið: Björgunarafrekið við Látrahjarg,, Eskimóamynd frá Alaska og fiskveiðimynd frá Glochester. Allar eru myndirn- ar með íslenzku tali. □ - Amma sagði ... (Framhald af bls. 5) Að mínu áliti er höfuð sökin fyrir þessum hræðilega glæp áfengið, eða réttara sagt þeirra, sem veittu það. (Lauslega þýtt úr „Folket“, málgagni bindindismanna í Noregi). — Frá Áfengisvarna- nefnd. Þökkum innilega auðsýndan vinarhug vegna and- láts og jarðarfarar HALLGRÍMS ÞORBERGSSONAR Halldórsstöðum. Bergþóra Magnúsdóttir, Þóra Hallgrímsdóttir, Valdimar Halldórsson. Innilegar þákkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og liluttekningu við andlát og jarðarför JÓNS BENEDIKTSSONAR frá Syðri-Tjörnum. Guð blessi ykkur öll. Vandamenn. - Spjallað við Sigurð (Framhald af bls. 2) Seigðu mér eitt að lokum, Sigurður, er það ekki rétt, að þú hafir gefið hin fögru ljósa- tæki, sem nú prýða Sauðanes- kirkju? Jú, rétt er það. Ég gaf þau til minningar um konu mína. Þegar rafmagnið kom í Sauða- nes, bauðst presturinn til að gefa rafmagnið í kirkjuna, en þá vantaði þetta, svo ég hljóp undir bagga. Sigurður fylgir mér til dyra, hár og þrekinn, snar í hreyfing um og léttur í spori, þrátt fyrir silfurhvítt hárið. Virðulegur fulltrúi þeirra kynslóðar, sem senn er að hverfa af sviðinu. J. S. N Ý K O M I N N Ungbarnafatnaður í mjög fjölbreyttu úrvali. VERZLUNIN DRÍFÁ Sími 1521. þvdtjt'ávélina lJýi tímiwi. vill Jw°ttavöl1 ÍVottavéHn. skilar tauinu íallegustu, Ujpegar notaS er -þvottaáufr. Perla vereuLír iierui-uríLSr ,en er óvÍBur áhreiriinda. - © ■© Frá MÍR: Kvikmyndasýning verður í Ásgarði á morgun, sunnud., kl. 4 e. h. — Sýnd verður sovézka kvikmyndin ’Tígratemjarinn. Stjórnin. i FYRIR NOKKRUM dögum lá leiðin fram hjá kolaverzlun i § KEA á Oddeyri og myndavélinni var beint að Sigfúsi Krist- \ i jánssyni, þar sem hann stóð við kolabinginn og vigtaði hið i | dökka eldsneyti. — Mór, skán, rekaviður og skógviður voru | i helztu hitagjafarnir í hýbýlum manna og við það eldsneyti i i var allur matur soðinn. Síðan komu erlend kol til sögunnar. i i Enn hafa orðið þáttaskil. Kolin eru að hverfa, cn rafmagn i i og olía er komið í staðinn. — Á Akureyri eru tvær kola- i i verzlanir. Þar minnkar verzlunin ár frá ári og fær enginn i i rönd við reist. Fyrir 10 árum seldi KEA 6—7000 tonn af i 1 kolum. Síðasta ár seldi það aðeins um 1400 tonn. Eflaust er | i svipaða sögu að segja af hinni kolaverzluninni. — Tonnið i i kosiar nú 1213 krónur, heimflutt. — Og svo snúum við oklc- i i ur aftur að Sigfúsi. Hann hefur staðið við kolabinginn í r i 17 ár og vigtað marga skipsfarma af kolum og séð um i i afgreiðslu á þeim fyrir Kaupfélag Eyfirðinga og það eru i i margir pokar. Kolarykið er mikið og það gerir hann | i dökkleitan dag hvern. Kolakarlar eru sjaldan stásslegir í i i starfi. En það er sama hvað Sigfús er svartur, allir vita að i = hann er traustur starfsmaður. (Ljósm. E. D.) ; Góður afli í Ólafsfirði og Húsavík FRÉTTAMAÐUR Dags í Ólafs firði sagði blaðinu í gær, að í síðustu viku hefðu línuveiðar hætt vegna aflaleysis. Voru þá tekin net og á sunnudaginn kom Guðbjörg með 17 tonn, eft ir sólarhring og fyrstu lögn og fékk 11 tonn á mánudag, 10 tonn á þriðjudag og 10 V2 á mið vikudag. Einar Þveræingur er að fara út með net. Ólafur Bekkur var á suðurleið en sneri við og kem ur hann væntanlega að í dag úr fyrstu veiðiferð. Hann er með net. Þessi netaveiði er alveg ó- venjuleg hér, segir fréttaritar- inn. Trillur voru á færi um helgina og fengu upp í 3000 pund yfir daginn. Fréttaritari blaðsins á Húsa- vík segir svo: Undanfarið hefur verið óstillt. En í gær fóru bát- ar á handfæri og fengu ágætan afla. Sæborg, sem rær með net, fékk 9 tonn. Rauðmagaafli er ágætur. Hann er ísaður og send ur á Reykjavíkurmarkað. Bif- reiðar sækja hann að sunnan. Hér kostar hver rauðmagi 4 kr., en í Reykjavík er hann seldur á 10—11 krónur. Einn bátur, Fanney, er með loðnunet og hefur aflað dálítið af loðnu, sem er fryst til beitu cg mest seld til Vestfjarða. Tehús ágústmánans hefur vérið sýnt við ágæta aðsókn níu sinnum og við fögnuð áhorf enda. Fjöldi fólks hefur komið úr sveitunum. Hér voru kenn- arar og nemendur Laugaskóla í gær, fimmtudag, voru á leik- sýningunni og jafnframt voru þeir gestir Gagnfræðaskólans bér og héldu dansleik fyrir Laugamenn að sýningu lokinni. Aðalfundur Héraðssambands Þingeyinga verður haldið í Höfðahverfi um helgina. □ Höfðahverfi um helgina. Mikill undirbúningur er haf- inn vegna landsmóts U. M. F. í, sem haldið verður að Laugum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.