Dagur - 21.06.1961, Síða 1
AJái.gacn J'hamsóknakmanna
R.'.rsrjoki; l..Ki.i\i;i i< Davíðsnon
Skiuknuu a i Haf.narstr.í; i'j 90
S'hii J H56 . Sktni.nóc oo prextun
AN'NAST l’iu.Ni V)-.!::; Onus
B.ÍÖRNNnONAR II.F. Akúrevri
Dagum
XLIV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 21. júní 1961 — 31. tbl.
Auc.i.vsin ÚJSI.NNON . KR." '100,00 . Bi.Ai'in Kl-.N (iASiT jOkí: J ÖN SAM' Ák«. AM.i KIN.N KOSI AK < ; )AI 1>]IAC! I.K 1. st i i n’R 6r Á .MinviKUDÖc-
VVI'XUA ÞYRIR TH.
L J
„Góður ísfendingur verður íyrst
cg íremst eð iifa fyrir sæmdina”
sagði Þórarinn Björnsson, skólameistari, við
skólauppsögn Menntaskólans á Akureyri
HINN 17. JÚNl árdegis voru 69
stúdentar brautskráðir frá
Menntaskólanum á Akureyri.
Hátíðasalur skólans var þétt
setinn og rúmaði ekki alla gesti
er skólaslit fóru fram.
Nýstúdentar skiptust þannig
á milli deilda, að 34 voru í mála
deild en 35 í stærðfræðideild.
Stúdínur voru aðeins 14 talsins
og hlutfallstala þeirra lægri en
oft áður.
í skólann komu á árinu 420
nemendur, og er það í fyrsta
skipti, að nemendur eru yfir
400 talsins. Þriðjungur nem-
enda voru konur.
Hæstu einkunn í skólanum
hlaut Jóhannes Vigfússon, Ak-
ureyri, í landsprófsdeild, 9,42 og
í sömu deild hlaut Björg Rafnar
9,37.
Á stúdentsprófi í máladeild
hlaut Þórir Jónsson, Svarfaðar-
dal, hæstu einkunn, 9,02. I
stærðfræðideild hlaut Guð-
mundur Sigurðsson frá ísafirði
hæstu einkunn, 8,94.
Þórarinn Björnsson skóla-
meistari sagði frá starfi skólans
og afhenti nýstúdentunum próf
skírteini, en ávarpaði þá síðan
sérstaklega.
Hann brýndi fyrir þeim að
bregðast ekki, varaði við pen-
ingahættunni, sem gegnsýrði
þjóðfélagið og vék að ýmsu ó-
samræmi í þjóðfélags- og at-
vinnuháttum. Tók hann í því
sambandi dæmi af nemendum,
sem fengu svimhátt kaup fyrir
vinnu í'stuttan tíma hjá fýrir-
tæki, sem ekki getur staðið á
eigin fótum. Skólameistari vék
einnig að því, að eitt af því, sem
íslendingar gætu með rétti
stært sig af, væri félagslegur og
efnahagslegur jöfnuður fólks-
ins, þessvegna mættu þeir, sem
eru öðrum þarfari og færari
ekki gera of miklar peninga-
kröfur, þótt jöfnuður gæti verið
of mikill.
„Hver góður íslendingur verð
ur fyrst og fremst að lifa fyrir
sæmdina af því að vinna vel og
lijálpa til að lyfta þjóðinni
allri.“
Og skólameistari minnti nem
endur á, að foreldrar, skólar og
ættjörðin krefðust mikils af
þeim, og orðrétt sagði hann:
„En ef þið nú bregðizt, og það
gerum við öll einhvern tíma, þá
megið þið ekki leggja árar í bát,
heldur reyna aftur og aftur að
bregðast ekki. Lífið er viðleitni,
þrotlaus viðleitni til að ná því,
sem aldrei verður náð. . . . “
Bókaverðlaun úr Hjaltalíns-
sjóði fyrir hæstu einkunn í
munnlegri íslenzku hlaut Anna
Guðrún Jónasdóttir, Akureyri,
og Hjörtur Pálsson, Akureyri,
fyrir hæstu einkunn í íslenzkri
ritgerð. Fyrir enskukunnáttu
hlutu einnig verðlaun úr sama
(Framhald á bls. 7)
Séra Birgir Snæbjörnsson.
Frú Aðalheiður Rafnar.
Sverrir Pálsson, kennari.
Tveir 17. júní hátíðisdagar á Akureyri
Illviðri gerðu hátíðahöldin endaslepp á laugar-
daginn en á sunnudagskvöldið var f jölmenni á
Ráðhústorgi og skemmtiskráin tæmd
UNDIRBÚNINGUR hátíðahald
anna 17. júní sl. fór fram sam-
kvæmt venju. Bærinn var hrein
legur, Ráðhústorg mjög skreytt
og skemmtikraftar ráðnir. En
veðurguðirnir breyttu hastar-
lega áætlunum bæjarbúa í til-
efni þessa merka þjóðhátíðar-
dags. Hið mesta illviðri gekk yf
ir, bæði norðan rok og rigning.
Þó fór nokkur hluti hinna fjöl-
breyttu hátíðadagskrár fram,
samkvæmt áætlun.
Formaður hátíðanefndar, Her
mann Stefánsson setti hátiðina.
Á Ráðhústorgi léku Lúðra-
sveit Akureyrar og lúðrasveit
drengja undir stjórn Jakobs
Tx-yggvasonar, guðsþjónustu
flutti séra Birgir Snæbjörnsson,
frú Aðalheiður Rafnar flutti á-
vai-p fjallkonunnar, kvæði Da-
víðs Stefánssonar, Karlakór Ak
ureyrar og blandaður kór
sungu undir stjórn Áskels Jóns-
sonar. Sverrir Pálsson flutti
fullveldisr^eðuna og Hjöi'tur
Pálsson nýstúdent mælti fyrir
minni Jóns Sigurðssonar.
Þegar þessum atriðum var
lokið, voru flestir orðnir gegn-
drepa og var frekari hátíðahöld
um frestað.
Á sunnudagskvöldið gekk veð
ur niður og varð hið fegursta.
Þá var aftur haldið á Ráðhús-
torg og tekið þar til, sem áður
var frá horfið.
Lúðrasveitin lék, leikþáttur-
inn „Geymskotið" var sýndur
undir stjói'n Guðmundar Gunn-
arssonar, Hrafn Pálsson flutti
gamanvísur, frú Björg Bald-
vinsdóttir og Jóhann Ögmunds-
son sungu tvísöngva úr Bláu
kápunni, Geysir söng undir
stjórn Árna Ingimundarsonar,
ennfremur var spurningaþáttur
og að síðustu dansað til mið-
nættis. □
| RÍKISSTJÓRNIN |
bannar enn þá atvinnurekend-
um að semja um Iausn vinnu-
deilunnar við launþegasamtök-
in. Hún lætur stranda á því
HVERNIG skuli greiða 1% laun
anna. S9
Fremsta röð frá vinstri: Sigfús Guðmundsson, Pétur Einarsson, Árni Sigurbjörnson, Hjálmar Jóelsson, Davíð Gíslason, Eysteinn Björnsson, Karl H.
Proppé, Páll Helgason, Magni Steinsson, Snorri Þorgeirsson, Birgir Vigfússon, Jón Sæmundur Sigurjónsson, Magnús H. Ólafsson, Reynir Vilhjálmsson.
Önnur röð frá vinstri: Guðmundur Sigurðsson, Valgarður Egilsson, Rannveig Sigurðurdóttir, Jón Þórir Jónsson, Berta Sigtryggsdóttir, Hjálmar Hjálm-
ari ion, Hallfríður Kolbeinsdóttir, Steinunn Karlsdóttir, Ólafur Ragnars, Engilráð Sigurðardóttir, Guðmundur Karl Jónsson, Ketill Oddsson, Karl
Grönvold, Skúli Johnsen, Stefán Jónasson, Valgerður Franklín, Anna G. J ínasdóttir, Steinarr Höslculdsson, Aðalbjörg Jónsdóttir, Hörður Ólafsson,
líákon Ólafsson. — Þriðja röð frá vinstri: Atli Dagbjartsson, Baldvin J. Bj arnason, Jóhannes G. Sigvaldason, Ingunn Stefánsdóttir, Hanna Dóra Pét-
ursdóttir, Guðrún Eggertsdóttir, Elías Elíasson, Einar G. Pétursson, Iljörtu • Pálsson, Gírli G. Kolbeinsson, Óttar Einarsson, Þorvaldur G. Einarsson,
Laufey Vilhjálmsdóttir, Valgerður Jónsdóttir, Garðar Gíslason, Erna Jakobsdóttii', Einar Aðíilsteincson. — Fjörða röð frá vinstri: Björgvin Jónsson,
Leifur Símonarson, Jón Erlendsson, Sigurður L. Viggósson, Guðni Óskarss on, Þorsteinn Geirsson, Kristinn Arnþórsson, Sigurður Eymundsson, Sigurð-
ur Sigurðsson, Hjalti þórðarson, Auðunn Sveinbjörnsson, Ketill Hannesson, Óskar Óskarsson, Sighvatur Björgvinsson, Vigfxis Aðalsteinsson, Kristinn
Ziemsen, Þorbjörn A. Friðriksson. — Myndin er tekin í Lystigarðinum á Akureyri að morgni þjcðháííðardagsins hinn 17. júní (Ljósmynd: E. D.)